Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ*1991
Hagsmunaaðilar sjávarútvegs um tillögur Hafrannsóknastofnunar;
Eitt mesta reiðarslag í
sjávarútvegi í mörg ár
Bitnar á framtíðinni ef við höfum tillögurnar að engu, segir formaður LÍÚ
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir að tillögur Hafrann-
sóknastofnunar séu eitt mesta reiðarslag sem sjávarútvegurinn hefur
staðið frammi fyrir í mörg ár. „Afleiðingarnar eru ófyrirséðar en
hér er um gríðarlegt tekjutap að ræða. Eg vara hins vegar við því
að freista gæfunnar með því að hafa þessar tillögur að engu, því það
mun bara bitna á framtíðinni. Ég er ekki að segja að farið verði að
þessum tillögum í einu og öllu en menn verða að búa sig undir að
mæta þessu með einum eða öðrum hætti,“ segir Kristján.
„Þessi tillögugerð er með hreinum
ólíkindum. Maður á ekki eitt einasta
orð. Þetta er fjórða árið í röð sem
gerð er tillaga um samdrátt í þors-
kveiðum. Ég held að þeir hljóti að
vera fastir í einhverri ægilegri
skekkju,“ segir Guðjón A. Kristjáns-
son, formaður Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands.
Árnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, segir
tillögurnar gera ráð fyrir miklum
samdrætti eða sem nemi a.m.k. 50
þús. tonnum í þorskafla, sem muni
kosta fiskvinnslu og sjávarútveginn
allan verulegt tekjutap. Á sama tíma
fari afurðaverð lækkandi og óvissu
er yfir loðnuveiðunum.
Afrakstur þorskstofnsins
Kristján sagði að niðurstaða Ha-
frannsóknastofnunar um þorsk-
stofninn ættu ekki að koma á óvart
því nýliðun undanfarinna ára hefði
verið langt undir meðaltali. „Afli
togaranna á uppeldisstöð þorsksins
síðast liðið haust og í vetur var
42 herbergi verða tekin í notk-
un á Hótel Islandi á morgun.
Herbergin eru öll í norðurhluta
hótelsins.
IIótel_ Saga mun sjá um rekstur
Hótels íslands fyrir Búnaðarbank-
ann sem á hótelið. Mótttökustjóri
er Ingibjörg Olafsdóttir.
Konráð Guðmundsson hótelstjóri
Hótels Sögu sagði að enn væru laus
herbergi á hótelinu í sumar. Ástæð-
mjög slæmur, sem hefur gefið
ákveðna vísbendingu um að niður-
stöður Hafrannsóknastofnunar séu
réttar og að árgangarnir sem koma
næstu fimm ár verði mjög lélegir.
Það veldur hins vegar miklum von-
brigðum ef það er að verða niður-
staða að afrakstur þessa stofns, sem
hefur gefið okkur 400-450 þúsund
tonn, verði ekki nema 250-300 þús-
und tonn til lengri tíma litið,“ sagði
Kristján.
„Til viðbótar þessu eru erfiðleikar
í ýsunni og enn meiri í ufsanum og
svo erum við með 43 loðnuskip, sem
eru nánast verkefnalaus vegna þess
að við fáum ekki að veiða loðnu
fyrr en í haust og horfurnar eru
afleitar.
Þessar niðurstöður allar eru eitt
mesta reiðarslag sem sjávarútegur-
inn hefur staðið frammi fyrir í mörg
ár en það verður að takast á við
þennan vanda. Það verður að gera
með því að takmarka veiðarnar og
byggja frekar stofninn upp,“ sagði
hann. „Þetta þýðir að það verður
una sagði hann vera að ekki hefði
verið ákveðið fyrr en í vor að taka
hótelið í notkun í sumar en líka að
lítil ijölgun ferðamanna hefði verið
á landinu í sumar.
Um leið og herbergin 42 verða
tekin í notkun verður veitingasalur
á fyrstu hæð hótelsins opnaður. Á
sömu hæð verður Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur með skrifstofu.
að leysa upp Hagræðingarsjóðinn,
sem hefur núna til umráða 12 þús-
und þorskígildi, og ráðstafa þeim
beint til flotans. Við þurfum líka
að taka til baka veiðiheimildir eins
og til Færeyinga upp á 9.500 tonn,“
sagði hann.
Hugmyndir um auðlindaskatt
foknar út í veður og vind
Kristján sagði aðspurður að þess-
ar tillögur hefðu þá þýðingu varð-
andi áframhaldandi stjórnun fisk-
veiða að þær hugmyndir sem uppi
væru um að leggja ný gjöld á grein-
ina fykju út í veður og vind. „Það
eru engar forsendur fyrir hugmynd-
um um skattbyrði á greinina. Ég
er á ferð um Vestfirði og hitti þar
fólk sem vinnur við sjávarútveg og
hef hvergi fundið neinn nýjan skatt-
stofn. Hér eru fyrirtæki sem beijast
í bökkum og eru að reyna að kom-
ast út úr erfíðleikunum. Nýjar álög-
ur myndu draga úr nauðsynlegri
hagræðingu vegna þess að þeim
skattpeningum er betur varið með
því að færa saman heimildir og
hagræða en að greiða þá í ríkis-
sjóð,“ sagði Kristján.
Hef enga trú á tillögunum
Guðjón sagði að lífríkið í sjónum
væri nú eins og best yrði á kosið.
„Það er ekki hægt að merkja það
af aflabröghðum þessa árs að menn
hafí átt í erfíðleikum með að ná
aflanum í öll veiðarfæri. Það er al-
veg á hinn veginn. Ég hef vægast
sagt litla trú á þessum tillögum,"
sagði hann.
Hafrannsóknastofnun leggur til
að loðnuveiðar verði ekki leyfðar
fyrr en að undangengnum mæling-
um á stærð veiðistofnsins í haust
og/eða veturinn 1992. Guðjón sagði
að miklar breytingar væru á hita-
fari og lífríki hafsvæðisins og sagði
að ástæða væri fyrir fiskifræðinga
að endurskoða hugmyndir sínar frá
grunni. Það mætti hefja loðnumæl-
ingar strax í september og Hafrann-
sóknastofnun ætti ekki að fullyrða
neitt nú um veiðina í vetur. „Það
Morgunblaðið/KGA
Sérfræðingar Hafrannsókna-
stofnunar kynntu aflahorfur fyr-
ir fiskeiðiárið 1991/92 á fundi
með fréttamönnum í gær.
eru ekki nema tvö ár síðan þeir
lögðu til 53 þús. tonn af loðnu en
svo voru veidd 800 þús. tonn,“ sagði
hann.
Draga úr siglingum á erlenda
markaði
Arnar sagði að ef tillögurnar
gengju fram óbreyttar myndu þær
hafa mjög mikil áhrif á afkomu sjáv-"
arútvegsins. Stofnunin hefði gert
tillögu um 300 þúsund tonna þor-
skafla fyrir yfírstandandi ár og geri
nú ráð fyrir að aflinn verði 315
þús. tonn á árinu. Tillaga um 250
þús. tonna þorskafla á næsta fi-
skeiðiári sé því mikill samdráttur.
„Nú erum við greinilega að sigla inn
í enn meiri erfiðleika en verið hafa
undanfarið, meðal annars vegna
lækkandi afurðaverðs. Ef þessar til-
lögur ganga fram að einhveiju eða
öllu leyti hlýtur að verða að draga
úr siglingum með afla á erlenda
markaði til að skapa vinnslunni
meiri möguleika.
Grænlandsgangan hefur greini-
lega sett strik í reikninginn. Fiski-
fræðingar gerðu sér ákveðnar vonir
fyrir þetta ár sem ekki hafa gengið
fram. En það er ráðherra sem hefur
síðasta orðið þó ekki sé að búast
við að hann breyti miklu frá þessum
tillögum. Útlitið er mjög dökkt
framundan," sagði Amar.
Kristján Ragnarsson sagði að það
myndi aðeins auka á erfíðleikana
ef skipin fengju ekki að nýta. sér
möguleika á að selja afurðirnar á
mörkuðum þar sem hæst verð feng-
ist hveiju sinni.
Læknafélag
Reykjavíkur:
Hámark
verði sett
á lyfja-
kostnað
LÆKNAFÉLAG Reykjavík-
ur hefur ritað Sighvati
Björgvinssyni heilbrigðis-
ráðherra bréf þar sem skor-
að er á hann að beita sér
fyrir því að sett verði há-
mark á þann kostnað sem
einstaklingi og fjölskyldum
sé ætlað að bera vegna lyfja-
kaupa á ári hverju.
Bréfíð inniheldur ályktun
frá stjórnarfundi félagsins 8.
júlí sl. þar sem fjallað var um
reglugerð um greiðslu al-
mannatrygginga á lyfjakostn-
aði, en reglugerðin tók gildi
um mánaðamótin.
í ályktuninni segir m. a. að
eflaust sé mörgum sjúklingum
ekki ofviða að bera þann
aukna kostnað vegna kaupa á
lyfjum sem reglugerðin kveði
á um. Hins vegar geti reglu-
gerðin haft þau áhrif fyrir
aðra að þeir telji sig ekki hafa
ráð á þeirri læknismeðferð sem
þeim sé ráðlögð. Skorar félag-
ið því á heilbrigðisráðherra að
setja hámark á þann lyfíja-
kostnað sem einstaklingar og
eða fjölskyldur þurfi að bera.
Fari kostnaður viðkomandi
yfir það hámark greiði al-
mannatryggingar lyfjakostnað
eftir það að fullu.
í ályktuninni hvetur Lækna-
félag Reykjavíkur meðlimi
sína til þess að gæta í senn
hagsmuna sjúklinga sinna og
eins fjárhagslegra hagsmuna
þeirra, sem greiða fyrir heil-
brigðisþjónustuna. Jafnframt
er sett fram sú von að almenn-
ingi takist að efla kostnaðar-
vitund sína þannig að nýta
megi sem best þá fjármuni,
sem heilbrigðiskerfið hefur
yfír að ráða.
Hótel Island:
42 herbergi tekin í notkun
12/220 VOLTA SJÓNVARPSTÆKIN FRÁ HEIMILISTÆKJUM
SKINANDI
SJÓNVARP í BÚSTAÐINN
14 tommu litasjónvarp með fjarstýringu og
12/220 volta spennubreyti. Hefur alla kosti stóru
tækjanna. ■ I
íí
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
> í samtuH^iutt
fuperléch
'simmisin
FLAKKARINN
Tilvalið tæki á skrifstofuna, í bílinn, bátinn, gott
sem „monitor" fyrir myndbandsupptökuvélina
og tölvuleikina.
• 13 cm hágæða litaskjár .Monitor" • Innbyggt AM/FM sterio
útvarp og segulband • Stafræn klukka með vekjara • 220 volt
eða rafhlöður 12 volt • 12 volta bílasnúra fylgir.
fúþerlech
'simmisiii
FRÁBÆRI FERÐAFÉLAGINN
Hágæða 10 tommu litaskjár, myndband
(afspilun) og fullkomin fjarstýring. 12/220 V.
• TYP-002 SUPERTECH • 10 tommu hágæða litaskjár
• leitari með minni • Fullkomið afspilunartæki • „lnfra-rauð“
fjarstýring • Allar aðgerðir sjást á skjánum
• Stærð B:270 H:310 D:310 mm.