Morgunblaðið - 10.07.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
17
Hestamannafélagið Fákur:
Rætt um úrsögn úr
Landssambandinu
INNAN hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík eru umræður um
hvort félagið eigi að segja sig úr Landssambandi hestamanna í
mótmælaskyni við þá ákvörðun stjórnar LH að halda Landsmót hesta-
manna á Gaddstaðaflötum 1994 en ekki í Víðidal.
„Fáksmenn eru óhressir með
þessa ákvörðun" sagði Viðar Hall-
dórsson, formaður Fáks, er Morg-
unblaðið hafði samband við hann
út af þessu máli. Að sögn Viðars
ætla Fáksmenn að skoða stöðu sína
mjög vel sem meðlimir í LH. Viðar
sagði að Fáksmenn greiddu um 1
milljón króna í Landssamband hest-
amanna á ári og að hans mati
fengju þeir lítið í staðinn fyrir þenn-
an pening. Viðar sagði ennfremur
að LH stæði nú á tímamótum þar
sem hestamennska væri nú viður-
kennd sem íþrótt hvort sem menn
stunduðu hana sem áhuga- eða at-
vinnumenn og búið væri að stofna
önnur samtök hestamanna, Hesta-
íþróttasambandið. Viðar sagði að
Hestaíþróttadeild Fáks og fleiri
hestafélaga væru í Hestaíþrótta-
sambandinu og það væri spurning
hvort önnur samtökin ættu þá ekki
að hverfa.
Viðar sagði einnig að með því
að halda stór mót í Reykjavík væri
tryggt að fjárfesting manna í upp-
byggingu mótsvæðis nýtist vel þar
sem svæði Fáks væri í notkun 6 -
8 mánuði á ári . Að sögn Viðars
hélt Hestamannafélagið Fákur
fjórðungsmót 1985 og það hefði
komið að stað mikilli uppbyggingu
sem hefði annars ekki orðið.
Viðar taldi ekki líklegt að boðað
yrði til sérstaks félagsfundar vegna
þessa máls. Að hans mati er þetta
mál fyrir aðalfund Fáks og því verð-
ur ekki endanlega ljóst hvort Fáks-
menn ganga úr LH fyrr en í febrú-
ar á næsta ári.
Sigurður Þórhallsson, fram-
kvæmdarstjóri LH, sagði að sér
þætti leiðinlegt að heyra þessi við-
brögð Fáksmanna. Hann sagðist
vel skilja að mönnum hlypi kapp í
kinn um tíma en hann vonaði að
Fáksmenn myndu sættast á löglega
tekna ákvörðun stjórnar LH. í
stjórn LH væru fulltrúar frá öllum
landsfjórðungum og þeir hefðu ein-
róma samþykkt að halda landsmót-
ið á Hellu þar sem þar væri allt
tilbúið fyrir stórmót. Að sögn Sig-
urðar eru Fáksmenn ekkert út úr
myndinni þó að landsmótið verði
ekki í Víðidal 1994. Sigurður sagði
að LH vildi styrkja Fák þar sem
félagið væri mjög stór hluti af LH.
Sigurður nefndi ýmsar hugmyndir
sem LH hefði um aukna starfsemi
í Víðidal sem myndi vera mikil lyfti-
stöng fyrir Fák. Sem dæmi má
nefna árlega keppni hestamanna-
félga vestan Hellisheiða sem væri
ígildi fjórðungsmóts, hestasýningar
fyrir ferðamenn og skipulagða veð-
hlaupastarfsemi.
GEVALIA
Þakka af alhug öllum þeim, er glöddu mig á
áttrœÖisafmœli mínu, þann H.júní, með heim-
sóknum, skeytum og gjöfum.
GuÖ blessi ykkur öll.
Ármann Guðnason,
Hrísateigi 18.
Öllum þeim fjölmörgu, sem glöddu mig með
nœrveru sinni, góðum gjöfum og heillaóskum
á áitrœðisafmœli mínu, hinn 24. júní sl., fœri
ég mínar bestu þakkir og kveðjur.
Haraldur Hannesson
frá Fagurlyst, Vestmannaeyjum.
Söfnuðir Oddaprestakalls.
Alúðarþakkir okkar fyrir veglegt kveðjusam-
sœti 22. júní sl., myndarlega gjöf og alla vin-
semd.
Biðjum ykkur Guðs blessunar í lífi og starfi
um ókomin ár.
Ólöf Stefán og börnin.
Klassísk tónlist
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Aðrir sumartónleikar í Skál-
holti um sl. helgi samanstóðu af
tveimur verkum eftir Mozart og
verkum eftir Graf-bræðurna, sem
voru samtíðarmenn Mozarts.
Fyrsta verkið var flautukvartett
í D-dúr, K. 285, eftir Mozart, sem
hann samdi fyrir „Herra de Jean“
í Mannheim. í bréfi til föður síns
ritaði Mozart, að h'ann hefði ekki
áhuga á að semja fyrir flautu og
gerði það í raun með hangandi
hendi að semja þrjá flautukvart-
etta, sem fyrir utan þann í D-
dúr, eru í raun ófullgerðar tón-
smíðar, aðeins í tveimur köflum
og sá síðasti saminn upp úr öðru
og mun eldra verki. Þrátt fyrir
þetta er verkið á köflum falleg
tónlist og hægi kaflinn (Adagio),
sem er eins konar inngangur síð-
asta kaflans (Rondo), er talinn
vera með því fallegasta sem ritað
hefur verið fyrir flautu. Verkið
var frábærlega vel flutt en þar
mæddi mest á flautuleikaranum
Jed Wentz, sem er hreinn galdra-
maður á barokkflautu.
Sembalsónata með „flautu og
sellóundirleik“ eftir Friedrich
Hartmann Graf (1727-95), var
næst á efnisskránni en slík verk
voru samin á skilum barokks og
klassíkur. Semballinn var þarna
í forustuhlutverki og var leikur
Riko Fukuda framfærður af ör-
yggi. Seinna verk Mozarts var
Kvartett í G-dúr K.285 a, en sá
kvartett og þriðji K.285 b, þóttu
ekki vera fullunnir af hálfu Moz-
arts og því neitaði de Jean að
inna af hendi fullar greiðslur fyr-
ir verkin. Þarna galt Mozart þess
að hafa andúð á flautunni sem
kammer- eða einleikshljóðfæri.
Tónleikarnir enduðu á kvartett
fyrir flautu, fíðlu, lágfiðlu og fylg-
irödd eftir Christian Ernst Graf
(1726-1802). Heldur var þetta
verk viðalítið, þokkalegt áheymar
og naut þess að vera afburða vel
leikið. Mozart heyrði eitt sinn
konsert fyrir tvær flautur eftir
yngri bróðurinn, Friedrich, og rit-
aði eftirfarandi um þann atburð
í bréfi frá Mannheim 14. okt.
1777. „Tónlist hans (Friedrichs)
er alls ekki þægileg eða eðlileg.
Hann skiptir mjög snögglega um
tóntegundir og er verkið algjör-
lega rúið þokka. Þegar flutningi
þess lauk, hældi ég honum á hvert
reipi, því sannarlega þurfti hann
þess með. Aumingja maðurinn
mun hafa átt í mestum erfiðleik-
urrrtvið að semja verkið og eytt
miklum tíma í að læra.“ Þessi
ummæli hafa notið meiri frægðar
en verk Graf-bræðranna og er það
að nokkru skiljanlegt, þó ótugtar-
leg séu.
Viðfangsefnin á þessum tón-
leikum teljast til þeirra verka sem
notið hafa skuggsældar gleyms-
kunnar en adagio-kaflinn og
rondóið í D-dúr sónötunni er þó
það eina sem hægt er að kalla
ekta Mozart. Verk Graf-bræðr-
anna er í þeim gæðaflokki, sem
ekkert merki á við um og það sem
eftir stendur, er aðeins frábær
flutningur félaganna í Musica ad
Rhenum.
JOOP!
Summeniighí
NILFISK
STERKA RYKSUGAN
Öflugur mótor meS
dæmalausa endingu.
10 lítra poki og
frábær ryksíun.
Afbragðs fylgihlutir.
NILFISK er vönduð og tæknilega
ósvikin - gerð til að endast.
VERÐ AÐEINS frá kr. 19.420 (stgr).
/rQnix
Fyrir
sumarbústaðinn
ELFA VORTICE
rafmagnsþilofnar.
Nýtt og glæsilegt útlit. Góður hiti.
600-1000-1500-2000 wött.
ELFA-0S0
hitakútar 30—50— 120—
200—300 lítra með blönd-
unar- og örygqisloka.
Ryðfrítt stál.
Blomberg stól eða hvít helluborð.
Einar Farestvett KCo.hf.
Borgartúni 28, sími 622901.
LsH 4 stoppar vM dymar