Morgunblaðið - 10.07.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991
37
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / ESSÓ-MÓT KA í KNATTSPYRNU
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Glæsileg tilþrif! KR-ingurinn Tommi skorar með föstu skoti í varnarmann Grindvíkinga ogþaðan fór boltinn í markið.
Heimamenn unnu
í keppni A-liða
Veðurguðirnir léku á als oddi mótsdagana
ESSÓ-MÓTI KAíknattspyrnu
fyrir 5. aldursflokk lauk á Akur-
eyri á laugardaginn. Á kvöld-
vöku að keppni lokinni voru
afhent verðlaun og það var
auðséð að keppendur og að-
standendur mótsins voru án-
ægðir að mótslokum enda
skemmtilegir dagar að baki og
veðrið hafði svo sannarlega
leikið við mótsgesti, hiti og
sólskin alla dagana.
Að þessu sinni, en þetta er í
fimmta sinn sem mótið fer
fram, mættu 65 lið til leiks og voru
keppendur á áttunda hundrað.
■■■■■■ Keppt var í A,B,C
Reynir Eiríksson og D-liðum og voru
skrifar frá keppendur frá 23
Akureyri félögum. Mótið var
sett á miðvikudags-
kvöld o gvar keppt í riðlum á
fimmtudag og föstudag en úrslita-
keppnin fór fram á laugardag og
eins og áður sagði lauk mótinu með
kvöldvöku á laugardagskvöldið. Á
fimmtudag og föstudag var keppt
í bandí og kunnu drengirnir vel að
meta það.
Að sögn aðstandenda mótsins
gekk það mjög vel í alla staði og
það eina sem þeir höfðu heyrt að
keppendur settu útá var að það
hefði verið heldur heitt á föstudeg-*—
inum. Mótið hefur vaxið nrjög hratt
síðan það var fyrst haldið fyrir fimm
árum og að sögn keppnisstjórnar
geta þeir ekki tekið á móti fleiri
keppendum með góðu móti, en
komu til leiks að þessu sinni.
Það voru gestgjafarnir sem fóru
með sigur af hólmi í keppni A-liða,
en þeir lögðu Víkinga 1:0 í úrslita-
leik og öfðu margir það á orði að
þar hefði KA náð að hefna 0:1 ósig-
urs í 1. deiídinni fyrir helgi gegn
Víkingum. í flokki B-liða léku Fylk-
ir og Þór Akureyri til úrslita og fór
þannig að Fylkir hreppti bikarinn
með 1:0 sigri. í flokki C-liða lagði
Austri frá Eskifirði lið Víkinga að
velli 2:1 í leik um fyrsta sætið og
KA fékk flest stig í flokki D-liða.
Axel Árnason fyrirliði KA-A:
Getum orðið ís-
landsmeistarar
Axel Árnason fyrirliði A-lís KA
er stór og stæðilegur mark-
vörður og var hann öryggið uppmál-
að í leik sinna manna við Víkinga
um sigur í keppni A-liða og tókst
honum að halda markinu hreinu.
„Þetta var mjög gott mót hjá
okkur í KA. Við töpuðum að vísu
einum leik en við létum það ekki á
Jóhann Þórhallsson:
okkur fá og börðumst bara enn
betur í þeim leikjum sem eftir voni
og uppskárum sigur og er það stór-
kostlegt,“ sagði Axel og var kátur
með að hafa náð að sigra Víkinga.
„Okkur hefur gengið ágætlega í
sumar og næsta takmark okkar er
að komast í úrslit i íslandsmótinu
og að vinna þann tiltil líka, ég er
viss um að við getum það,“ sagði
markvörðurinn stæðilegi.
Svipað og
á Andrési
„Við unnum
Stjörnuna 4:0 í
leik um þriðja
sætið og það var
ágætt. Við vor-
um að vísu mjög
óhressir með að
komast ekki í
úrslit,“ sagði Jó-
hann Þórhalls-
son, leikmaður
með A-liði Þórs. I6hann
„Við töpuðum fyrir Víkingum í
vítaspyrnukeppni en ef við hefðum
unnið hefðum við leikið til úrslita
við KA.“
Jóhann er margfaldur Andrésar-
meistari á skíðum og því lá beint
við að spyija hann hvernig þetta
mót væri í samanburði við Andrés.
„Þau eru mjög svipuð að mörgu
leyti og finnst mér alveg rosalega
gaman á þessu móti eins og alltaf
á Andrésarmótunum."
Magnús Jónsson, Fylki:
Frábært!
að er frábært að keppa á þessu
móti og okkur hefur gengið
mjög vel og nú erum við búnir að
vinna bikarinn sem við ætluðum
okkur,“ sagði Magnús Jónsson fyr-
irliði B-liðs Fylkis.
„Við unnum alla leiki okkar og
skoruðum 27 mörk og fengum ein-
ungis 3 á okkur. Við erum allir,
nema markvörðurinn, á yngra árinu
í fimmta flokki og höfum spilað
mikið saman og gengið ágætlega,
unnum t.d. Tommamótið í fyrra,“
sagði Magnús.
íÞfémR
FOLX
■ HÖFRUNGUR frá Þingeyri
sendi lið til keppni að þessu sinni
en þeir senda ekki lið til keppni í
íslandsmóti. Drengjunum frá Þing-
eyri þótti mikið til þess koma að
fá að taka þátt í mótinu og var
margt að sjá.fyrir þá enda ekki
vanir að taka þátt í stórum mótum.
Piltarnir áttu varla til orð þegar
þeim var sagt að í Lundarskóla,
þar sem allir keppendur gistu, væru
um 200 fleiri þessa dagana en
byggju á Þingeyri.
■ MARGAR góðar setningar
fljúga oft hjá strákunum i leik og
eina slíka mátti heyra í keppni D-
liða. Einn leikmanna fékk víti, hann
tók aðeins tveggja skrefa tilhlaup
að boltanum og skoraði með góðu
og nákvæmu skoti, stöngin inn.
Hann fagnaði markinu og hljóp
síðan til þjálfarans og sagði: „Það
þarf ekki alltaf að vera fast þegar
það er nákvæmt!“
■ VEÐRIÐ var einstaklega gott
á meðan á mótinu stóð. Veðrið var
líka það eina sem mótsgestir kvört-
uðu gndan. Á föstudaginn var hit-
inn um 30 gráður og fannst drengj-
unum það full mikið þegar leika
átti knattspyrnu af fullum krafti.
■ ÞAÐ voru gerð 799 mörk í þeim
190 leikjum sem fram fóru í mót-
inu. Flest mörk voru gerð í keppni
B-liða, 273, í A-liða keppninni
gerðu strákarnir 231 mark, C-liðin
gerðu 245 mörk og í keppni D-liða
voru gerð 50 mörk. Þar voru aðeins
leiknir 10 leikir og því voru gerð 5
mörk að meðaltali í leik.
Meistarar KA í keppni A-liða
Aftari röð frá vinstri: Jóhannes Bjarnason, þjálfari, Hafþór Einarsson, Hlynur Erlingsson, Jóhann Hermannsson,
Heimir Ámason og Atli Sveinn Þórarinsson. Fremri röð frá vinstri: Jóhann Traustason, Sigurður Guðmundsson,
Hans Hreinsson, Axel Árnason, Eiríkur K. Olafsson og Þórir Sigmundsson.
jpð'HAfj^
ípAIHA*
Morgunblaðið/Reynir
Sigurlið Fylkis í keppni B-liða
Aftari röð frá visntri: Arnþór Úlfarsson, Ófeigur Jóhann Guðjónsson, Magnús Jónsson, Jón Eggert Haraldsson,
Jón Björgvin Hermannsson og Þorsteinn Geirsson, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Theodór Oskarsson, Sveinn
Teitur Svanþórsson, Jón Ingi Einarsson, Guðmundur Hauksson og Guðmundur Kristjánsson. „Lukkutröll" Fylkis-
manna er Pétur Óskarsson en hann verður að bíða í nokkur ár áður en hann getur tekið þátt í mótinu.