Morgunblaðið - 10.07.1991, Qupperneq 38
<38
MORGUNBLAÐIÐ
BÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 1991
TENNIS
Wimbledon:
Becker
hafði
ekkiroð
við Stich
Grafvann Sabatini
í kvennaflokki
ÞJÓÐVERJAR fögnuðu sigri í
einliðaleik karla og kvenna á
Wimbledon mótinu ítennis,
sem lauk um sl. helgi. Steffi
Graf vann í keppni kvennanna
og kom það ekki á óvart, en
landi hennar Michael Stich, 22
ára, kom mjög á óvart er hann
lagði sjálfan tenniskóng Þýska-
lands, Boris Becker, íúrslita-
leik karlanna.
Stich, sem sigraði Svíann Stefan
Edberg í undanúrslitum, var í
sjötta sæti á heimslistanum fyrir
mótið, en Becker annar. Sigurinn
var þó mjög öruggur — 6:4, 7:6
(7:4), 6:4.
Stich, sem er ári yngri en Beck-
er, fær 388 þúsund dollara í sigur-
verðlaun — andvirði um 25 milljóna
ISK — og færist upp í fjórða
sæti heimslistans. „Ég hafði á til-
finningunni þegar ég gekk inn á
völlinn að þetta yrði mjög sérstakur
dagur. Eftir að ég hafði unnið
fyrstu hrinuna þótti mér sem Boris
gæfi sig ekki állan í leikinn. Þá sá
ég að ég átti mjög góða möguleika
á sigri,“ sagði Stich eftir að sigur-
inn var í höfn. Becker, sem er
þekktur fyrir allt annað en að gef-
ast upp, virtist varla með sjálfum
sér að þessu sinni og lítið gekk upp
hjá honum. „Ég fann strax frá byrj-
un að ég var ekki méð í leiknum.
Hugurinn var víðsfjarri,“ sagði
Becker og bætti því við að rigning-
artafir á leikjum mótsins hefðu
líklegast tekið sinn toll. „Þetta hef-
ur líklega verið einum leik of mikið
þessa vikuna. Ég vissi að ég átti
ekki möguleika nema Michael gerði
einhver stór mistök. Svo varð ekki
og ég hafði hreinlega ekki nógu
mikinn kraft til þess að sigra,“ sagði
Becker.
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Hörður Magnússon gerði eitt
marka FH í gærkvöldi.
Auðvelt hjá FH
Unnu Vestmannaeyinga mjög verðskuldað í Hafnarfirði
FH-ingar áttu ekki í vandræð-
um með ÍBV þegar liðin áttust
við í 16 liða úrslitum Mjólkur-
bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi.
Hafnfirðingarnir léku einn áf
sínum betri leikjum í sumar og
unnu verðskuldað 4-1.
H
örður Magnússon gaf tóninn
i 12. mnútu, var fyrstur að
átta sig inní þvögu fyrir framan
vítateig Eyjamanna og skoraði af
stuttu færi 1-0;
Stefán sannkölluð marka-
Stefánsson skorarasnerpa. Að-
skrifar ejng 2 mínútum
síðar jók Hallsteinn
Arnarson muninn í 2-0 með góðu
skoti utan af vítateig eftir vel skipu-
lagða sókn FH. Eftir þessi mörk
náðu FH-ingar undirtökunum og
fleiri mörk lágu í loftinu. Á 33.
mínútu fékk Izudin Dervic boltann
við vinstra vítateigshornið, lagði
hann vel fyrir sig og skaut hnitmið-
uðu skoti út við stöng. Hafnfirðing-
ar voru síðan tvívegis nærri því að
skora undir lok fyrri hálfleiks, en
voru of klaufalegir.
Fjórða mark FH kom síðan á 65.
mínútu þegar Pálmi Jonsson skor-
aði með skalla eftir fallega fyrirgjöf
frá Andra Marteinssyni. Vest-
mannaeyingum tókst að minnka
muninn í 4-1 á 73. mnútu þegar
varamaðurinn Jón Bragi Arnarsson
átti fallegt skot af löngu færi. Það
sem eftir lifði af leiknum sóttu liðin
af fullum krafti, en mörkin urðu
ekki fleiri þrátt fyrir sæmileg tæki-
færi.
FH var mun betra lið í þessum
leik, spilaði boltanum vel upp í horn
og út á kanta og fyllti í opin svæði.
Andri Marteinsson, Izudin Dervic
og Hallsteinn Arnarson voru bestu
menn FH, en ekki mátti líta af
Herði Magnússyni frekar en venju-
lega. Vestmannaeyingar virtust
ekki finna sig inná vellinum, náðu
ekki að spila nægilega saman þó
að baráttan væri sæmileg. Arnljótur
var þeirra besti maður en fékk úr
alltof litlu að moða í framlínunni.
Góður dómari leiksins var Sæ-
mundur Víglundsson. Hann var
mjög hreyfanlegur um völlinn og
þaraf leiðandi vel staðsettur, líkiega
betur en flestir áhorfendur sem
dæmdu leikinn af miklu kappi uppí
stúku.
„Þar sem Framarar eru búnir að
vera vildi ég helst fá Keflvíkinga í
Keflavík. Ég þekki þá drengi vel
og þar sem þeir ætla sér langt
væri sætt að slá þá út,“ sagði Andri
Marteinsson FH-ingur um óskalið
eftir leikinn.
Rósberg var hetja
Leifturs í Ólafsfirði
Varði víti Þráins Haraldssonar og kom Leiftri í 8-liða úrslit
RÓSBERG Óttarsson, markvörður Leifturs, tryggði sínum mönn-
um sæti í 8 liða úrslitum, er hann varði glæsilega vítaspyrnu frá
Þráni Haraldssyni í vítaspyrnukeppni ílok viðureignar Leifturs
og Þróttarfrá Neskaupstað. Venjulegum leiktíma og framleng-
ingu lauk án þess að skorað væri og því þurfti að knýja fram
úrslit með þessum hætti.
Þpað voru heimamenn í Leiftri
sem hófu leikinn undan strekk-
ingsvindi, sem átti eftir að hafa
mikinn áhríf á leikinn. Leikmönnum
■■■^■i gekk illa að hemja
Anton boltann og náðu lið-
Benjamínsson in því aldrei að spila
sína bestu knatt-
spyrnu. Heimamenn
sóttu þó mun meira í fyrri hálfleik
og komust næst því að skora þegar
Gunnlaugur Sigursveinsson átti
bylmingsskot frá vítateig sem hafn-
aði í markstönginni.
skrifarfrá
Ólafsfirði
Þróttarar spiluðu skynsamlega
og reyndu að halda boltanum niðri,
en sóknarlotur þeirra runnu út í
sandinn þegar þeir nálguðust víta-
teig andstæðinganna.
Leiftursmenn mættu mun
ákveðnari til leiks í síðari hálfleik
og voru sterkari aðilinn þrátt fyrir
að hafa vindinn í fangið. Það skap-
aðist ávallt hætta í vítateig Þrótt-
ara þegar Þorlákur Árnason fékk
boltann og með smá heppni hefði
hann getað gert eitt til tvö mörk í
leiknum.
IIII FORMPRENT
Hverfisgotu 78, simar 25960 - 25566
M
METRO
Álfabakka 16,
sími 670050
Mjólfcurbikarkeppnin/
Bifcarkeppni KSÍ
16 liða úrslit
KR
IA
á KR-velli í kvúlti kl. 20.00
I framlengingunni var svipað
uppi á teningnum, mikil barátta í
báðum liðum og voru Leiftursmenn
enn sem fyrr aðgangsharðari við
mark andstæðinganna. Þeir voru
þó greinilega ekki á skotskónum
að þessu sinni.
í liði Leifturs var Aðalsteinn
Aðalsteinsson eins og herforingi á
miðjunni og Gunnlaugur Sigur-
sveinsson var skeinuhættur á kant-
inum. Friðrik Einarsson var mjög
traustur í vörninni og í framlínunni
var Þorlákur Árnason sprækur. Hjá
Þrótti áttu Kristján Svavarsson og
Kristinn Guðmundsson mjög góðan
leik á miðjunni og Hörður Rafnsson
var öruggur í vörninni. Hins vegar
vantaði meira bit í sóknarleik liðs-
ins.
KNATTSPYRNA
Stúlkurnar
óheppnar
i
slenska kvennalandsliðið var heil-
an hálfleik að ná upp góðu spili
gegn þýska úrvalsliðinu F.V. Hessic-
her í gærkvöldi. Hessicher vann 2:0,
^^■■■■1 og komu bæðin
Hanna Katrin mörkin í fyrri hálf-
Friðriksen leik. í síðari hálfleik
skrifar snerist dæmið við,
íslenska liðið var
mun sterkara og hefði hæglega get-
að skorað eitt til tvö mörk.
Mörk þýska liðsins komu á nokk-
urra mín. kafla. Hið fyrra eftir slæm
varnarmistök, en það síðara var
gert með fallegu skoti langt utan
af kanti.
Eina umtalsverða færi Hessicher
í síðari hálfleik, kom undir lok leiks-
ins þegar Ragna Lóa Stefánsdóttir
braut á þýskum leikmanni í víta-
teigshorni íslands. Sigríður Páls-
dóttir, sem þá var nýkomin í íslenska
markið, varði vítaspyrnuna sem
dæmd var.
Bestu færi íslenska liðsins komu
um miðjan hálfleikinn. Guðrún Sæ-
mundsdóttir átti þrumuskot að
marki af 25 metra færi, en þýski
markvörðurinn náði að slæma hendi
í boltann sem fór í stöng og rúllaði
þaðan fyrir markið. Helena Ólafs-
dóttir fylgdi á eftir, en markvörður-
inn var hársbreidd á undan í bolt-
ann. Stuttu síðar skaut Ásta B.
Gunnlaugsdóttir í stöng af stuttu
færi.
IK-Valur 1:2
Smárahvammsvöllur, Mjólkurbikarkeppnin
-16 liða úrslit - þriðjudaginn 9. júlí 1991.
Mark ÍK: Úlfar Óttarsson (6.)
Mörk Vals: Ágúst Gylfason (68.), Sævar
Jónsson (80.)
Gult spjald: Ómar Jóhannsson og Úlfar
Óttarsson, IK. Einar Páll Tómasson, Val.
Dómari: Egill Már Markússon
Lið ÍK: Ragnar Bogi Pétursson, Ómar Jó-
hannsson, Halldór Gíslason, Gunnar Leifs-
son, Reynir Bjömsson, Úlfar Óttarsson
(Rúnar Höskuldsson 70.), Stefán Guð-
mundsson (Steinar Aðalbjömsson 89.),
Helgi Kolviðsson, Hörður Már Magnússon,
Þröstur Gunnarsson, Ólafur M. Sævarsson.
Lið Vals: Bjami Sigurðsson, Einar Páll
Tómasson, Magni B. Pétursson, Ágúst
Gylfason, Steinar Adolfsson, Baldur Braga-
son (Gunnar Már Másson 90.), Jón Grétar
Jónsson, Þórður B. Bogason (Antony Karl
Gregory 69.), Snævar Hreinsson, Gunn-
laugur Einarsson, Amaldur Loftsson.
Fram - Víðir 1:2
Mark Fram: Ríkharður Daðason (71.)
Mörk Víðis: GrétarEinarsson(lL), Sigurð-
ur Magnússon (78.)
Gult spjald: Grétar Einarsson og Sævar
Leifsson, Viði..
Dómari: Ólafur Ragnarsson
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Jón Sveins-
son, Kristján Jónsson, Pétur Ormslev, Viðar
Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Ásgeir
Ásgeirsson, Jón Erling Ragnarsson (Pétur
Marteinsson 84.), Baldur Bjamason (Anton
Björn Markússon 84.), Steinar Guðgeirsson,
Rikharður Daðason.
Lið Víðis: Gísli Hreiðarsson, Klemenz Sæ-
mundsson, Björn Vilhelmsson, Sigurður
Magnússon, Olafur Róbertsson, Daníel G.
Einarsson, Guðjón Guðmundsson, Sævar
Leifsson, Steinar Ingimundarson, Grétar
Einarsson (Karl Finnbogason 84.), Hlynur
Jóhannsson.
FH-ÍBV 4:1
Mörk FH: Hörður Magnússon (12.), Hall-
steinn Amarsson (14.), Izudin Dervic (33.),
Pálmi Jonsson (65.)
Mark IBV: Jon Bragi Arnarsson (73.)
Gult spjald: Izudin Dervic FH, Leifur Geir
Hafsteinsson IBV.
Dómari: Sæmundur Víglundsson
Lið FH: Stefán Arnarson, Olafur Jóhannes-
son, Hallsteinn Arnarsson, Pálmi Jónsson
(Kristján Gíslason 74.), Björn Jónsson, Izud-
in Dervic, Þórhallur Víkingsson, Guðmund-
ur Valur Sigurðsson (Auðunn Helgason
79.), Hörður Magnússon, Olafur H. Kristj-
ánsson, Andri Marteinsson,
Lið IBV: Adólf Oskarsson, Friðrik Sæ-
björnsson, Lúðvík Bergvinsson, Elías Frið-
riksson, Nökkvi Sveinsson (Jón Bragi Arn-
arsson 57.), Leifur Geir Hafsteinsson, Hlyn-
ur Stefánsson, Arnljótur Daviðsson, Martin
Eyjólfsson, Bergur Agústsson (Huginn
Helgason 61.), Sigurður Ingason.
Leiftur-Þróttur N 5:3
Mörk Leifturs: Aðalsteinn Aðalsteinsson,
Sigurbjörn Jakopsson, Gunnlaugur Sigur-
sveinsson, Matthías Sigvaldason, Þorlákur
Ámason. Öll gerð i vítaspymukeppni.
Mörk Þróttar N: Sófus Hákonarson, Kristj-
án Svavarsson, Eysteinn Kristinsson. Öli—
gerð í vítaspymukeppni.
Gult spjald: Eysteinn Kristinssn og Öm
Gunnarsson, Þrótti N.
Dómari: Bragi Bergmann
Lið Leifturs: Rósberg Óttarsson, Friðrik
Einarsson, Gunnlaguur Sigursveinsson,
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Sigurbjörn Ja-
kopsson, Matthías Sigvaldason, Guðjón
Kristinsscm (Bergur Björnsson 115.), Þor-
lákur Ámason, Stefán Aðalsteinsson,
Steingrimur Eiðsson, Friðgeir Sigurðsson
(Róbert Gunnarsson 28.)
Lið Þróttar N: Ivar Sæmundsson, Bjarni
Freysteinsson, Hörður Rafnsson, Guðmund-
ur Þórsson (Birkir Sveinsson 99.), Eysteinn
Kristinsson, Kristján Svavarsson, Siguijón
Kristinsson, Þráinn Haraldsson, Sófur Há-
korfarson, Órn Gunnarsson, Kristinn Guð-
mundsson.