Morgunblaðið - 25.07.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991
Húnavatnssýsla:
Tuttugn og sex ára
maður ferst í bílslysi
BANASLYS varð laust eftir há-
degi í gær við Gljúfurárbrú í
Húnavatnssýslu. Slysið varð með
þeim hætti, að fólksbíll lenti fram-
an á vöruflutningabíl og lést öku-
maður fólksbílsins, sem var 26 ára
Reykvíkingur, samstundis.
Okumennirnir voru einir í bílun-
um þegar áreksturinn varð en öku-
maður flutningabílsins slapp
ómeiddur. Ekki er hægt að greina
frá nafni mannsins sem lést.
Annað umferðaróhapp varð við
Glúfurárbrú í gær og einnig rákust
þrír bílar á við Víðidalsá. í þessum
óhöppum urðu ekki slys á fólki en
talsvert eignatjón.
Sorpbrennslan í Hnífsdal í notkun á ný:
Illskásti kosturinn með-
an leitað er betri lausna
- segir Eiður Guðnason umhverfisráðherra
EIÐUR Guðnason umhverfisráð-
herra hefur heimilað starfrækslu
sorpbrennsluofnsins í Hnífsdal að
nýju, eftir bann við rekstrinum
um skeið. Leyfið er veitt með þeim
skilyrðum að ekki verði brennt í
ofninum spilliefnum eða garðaúr-
gangi og að hann verði aðeins
starfræktur þegar ekki er hætta
á að vindur beri reyk frá ofninum
yfir byggðina í Hnífsdal.
„Mitt mat er það, að þeir geti
ekki haldið áfram að urða sorpið
svona eins og gert hefur verið og
ekki leysir það vandann að láta það
safnast upp, þannig að þetta er ill-
skást í stöðunni á meðan leitað er
betri lausna," sagði Eiður í samtali
við Morgunblaðið í gær.
„Eg skrifaði bæjarstjórunum í
Bolungarvík og Isafírði og sveitar-
stjóranum á Súðavík í dag, en það
eru þessi þijú sveitarfélög sem
standa að rekstri þessarar stöðvar,"
sagði Eiður. Hann sagði efni bréfsins
vera á þá leið að skipaður verði
starfshópur sem taki til starfa strax
og tilnefningum verði lokið, í næstu
viku. í honum verði fulltrúar þessara
þriggja sveitarfélaga, einn fulltrúi
umhverfísráðuneytis og einn fulltrúi
frá Hollustuvemd.
„Ég geri ráð fyrir að fulltrúarnir
héðan að sunnan fari vestur strax
og geri úttekt á og skoði nánar
hvemig þessi ofn vinnur eða hvemig
hann brennir,“ sagði Eiður. Starfs-
hópurinn á að skila tillögum fljótt
og kvaðst ráðherra munu ganga eft-
ir því að svo verði. Jafnframt á hópr
urinn að huga að frambúðarlausnum
til sorpförgunar fyrir þessi sveitarfé-
lög.
I HUNDADAGAREGNI
Morgunblaðið/KGA
FFSÍ leggur til að þorsk-
afli verði 290 þús. tonn
FUNDUR stjórnar Farmanna- og fiskimannasambands íslands
(FFSI), sem haldinn var á þriðjudag, telur að með tillögum Haf-
rannsóknastofnunar um hámarksafla á næsta fiskveiðiári, 1. septemb-
er 1991 til 31. ágúst 1992, sé verið að leggja til of mikinn samdrátt
í veiðum, sérstaklega á þorski. FFSÍ leggur til að þá verði veidd
290 þúsund tonn af þorski, 90 þúsund tonn af ufsa, 11 þúsund tonu
af skarkola og 120 þúsund tonn af síld en Hafrannsóknastofnun
leggur til að veidd verði 250 þúsund tonii af þorski, 70 þúsund tonn
af ufsa, 10 þúsund tonn af skarkola og 80 þúsund tonn af síld.
Stjórnarfundur FFSI skorar jafn-
framt á stjórnvöld að efla eftirlit
með veiðum útlendinga innan
íslensku fískveiðilögsögunnar og
sjálfsagt sé að láta þá greiða þann
kostnað, sem eftirlitinu fylgir.
91 % verðmunur
er á kínakálinu
MIKILL munur er á verði mat-
jurta, samkvæmt verðkönnun
Morgunblaðsins á fimm tegund-
um matjurta á nokkrum stöðum
á landsbyggðinni og höfuðborg-
arsvæðinu. Mesti munur á hæsta
og lægsta verði reyndist vera á
kínakáli, 91%, hvítkáli 85% og
tómötum 83%.
Kínakál kostaði frá 230 til 439
krónur kílóið. Ódýrast var það í
Hafnarfírði en dýrast á Egilsstöðum
og munar yfir 90% á verðinu.
Utanríkisráðherra:
Banni á
S-Afríku
verði aflétt
JÓN Baldvin Hannibalsson
kveðst telja tíma til kominn að
íslendingar aflétti hömlum á við-
skipti og samskipti við Suður-
Afríku en segir að ekki verði
aðhafst í því máli fyrr en Alþingi
komi saman í haust enda þurfi
lagabreytingar við.
„Við getum ekki útkljáð það mál
fyrr en með frumvarpi á þingi í
haust en mín skoðun er sú að De-
Clerk hafí gert, það mikið til að
bijóta niður þetta viðurstyggilega
kerfi kynþáttaaðskilnaðar að hann
verðskuldi siðferðilegan styrk við
þá aðgerð,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.
Hvítkálið kostaði 165 krónur kílóið
á Þórshöfn, þar sem það var ódýr-
ast, en 306 krónur á Bíldudal en
þar var það dýrast. Kálið var því
85% dýrara á Bíldudal en á Þórs-
höfn. Verð á grænmeti breytist ört
á þessum árstíma. Nú er til dæmis
að koma á markaðinn íslenskt
hvítkál sem er töluvert dýrara en
það innflutta og hefur það áhrif á
verðsamanburðinn.
Tómatar kostuðu 293 krónur
kílóið á Þórshöfn en 538 krónur á
Bíldudal. Tómatarnir eru því 83%
dýrari á Bíldudal en á Þórshöfn.
Gúrkur voru ódýrastar í Hafnar-
firði, kostuðu 281 kr. kílóið, en
voru liðlega 60% dýrari á Egilsstöð-
um þar sem þær kostuðu 452 krón-
ur kílóið.
Minnsti verðmunurinn reyndist
vera á kartöflum, þær kostuðu frá
70 krónum (Þórshöfn) til 106 kr.
(Neskaupstaður), og munar þar
rúmlega 50%. Kartöflurnar voru
misjafnar að gæðum enda af upp-
skeru síðasta hausts. Víða eru
komnar nýjar kartöflur í verslanir
og var algengt verð á bilinu 144
til 197 kr., eða um tvöfalt hærra
en verðið á gömlu kartöflunum.
Þijár af þeim fimm tegundum
matjurta sem könnunin náði til voru
ódýrastar á Þórshöfn, tvær tegund-
ir í Hafnarfírði. Tvær tegundir voru
dýrastar á Bíldudal og Egilsstöðum
og ein í Neskaupstað.
Verðkönnun á matjurtum, eins
og sú, sem birtist í fyrsta skipti á
bls. 23 í blaðinu í dag, verður gerð
vikulega á næstunni.
Þá ítrekar fundurinn fyrri sam-
þykktir um að leggja beri niður
Verðlagsráð sjávarútvegsins. Fund-
urinn áréttar þá skoðun FFSÍ að
starfsemi ráðsins standi hér fijálsri
verðmyndun físks fyrir þrifum og
beinir því til stjórnvalda að þegar
í stað verði hafíst handa við að
undirbúa jarðveginn fyrir frjálst
fískverð á landinu öllu.
FFSÍ vill vekja athygli ráðherra
sjávarútvegsmála á að lítill ef nokk-
ur árangur er sýnilegur af þeim
stjómunarleiðum, sem beitt hefur
verið undanfarin 15 ár í fískveiðum
við ísland. „Við teljum að endur-
skoða þurfi þessi mál frá grunni
og viljum í því sambandi benda á
eftirfarandi atriði: Aðgerðir til þess
að auka hrygningu nytjastofna,
endurskoða hvar veiðar em stund-
aðar og með hvaða veiðarfærum á
hvetjum tíma. Koma í veg fyrir að
nýtanlegum fiski sé hent í sjóinn
aftuf vegna þvingandi stjórnvalds-
aðgerða. Endurskoða veiðiheimildir
útlendinga í fískveiðilandhelginni.
Auka veiðar á vannýttum tegund-
um og veita styrki í tilraunaveiðar
og rannsaka hvaða fæðu laxastofn-
ar nýta í lífríki sjávar.“
í greinargerð með tillögum
stjómar FFSI um veiðar á næsta
fískveiðiári segir meðal annars:
„Árferði í sjónum við ísland er nú
mjög gott. Uppvaxandi árgangar
nytjafíska ættu þar af leiðandi að
hafa afar góða möguleika til þess
að komast vel af og náttúruleg af-
föll ungfisks að vera í lágmarki.
Meðalþyngd hvers fisks í þorsk-
stofninum hefur aukist frá fyrra
ári um 5-18%, sem sýnir að þegar
á árinu 1990 hafa skilyrði uppvax-
andi árganga batnað verulega, þar
sem allar tölur í skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar em byggðar á afl-
anum fyrstu 5 mánuði ársins 1991,
það er janúar til maí.“
Aukatónleikar
Gunnars og
Jónasar í kvöld
GUNNAR Guðbjörnsson tenór og
Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari héldu tónleika í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi í gær-
kvöldi.
Bergþóra Jónsdóttir hjá Menn-
ingarmiðstöðinni sagði, að aðsóknin
hefði verið svo mikil, að margir
hafi orðið frá að hverfa. Því hafi
verið ákveðið að halda aðra tónleika
í kvöld á sama tíma, klukkan 20:30.
Brian Mulroney forsætisráðherra Kanada um leiðtogafundinn í Londoiu
Tel okkur hafa stutt dyggi-
lega við bakið á Gorbatsjov
"BRIAN Mulroney, forsætisráðherra Kanada, hafði stutta viðdvöl á
íslandi í gær á leið heim vestur um haf frá Evrópu. í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar tóku á móti Mulroney þeir Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, Björn Bjarnason, alþingismaður, og Graham Mitchell, sendi-
herra Kanada á íslandi. Áttu forsætisráðherrar Islands og Kanada
saman um klukkustundar langan fund, þar sem m.a. var rætt um
fund leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims í London í siðustu viku, við-
skipti íslands og Kanada, stofnun samtaka ríkja á norðurslóðum og
gagnkvæmar opinberar heimsóknir.
„Ég hafði látið forsætisráðherra „Við áttum mjög góðan og ánægju-
íslands vita að ég myndi eiga leið legan fund saman og ég hlakka til
hjá og þar sem við höfðum ekki
hist frá því að hann tók við emb-
ætti fannst mér þetta kjörið tæki-
færi fyrir mig að.hitta hann og í
leiðinni veita honum upplýsingar
um fund leiðtoga sjö helstu iðnríkja
heims í London í síðustu viku sem
og ræða samskipti ríkja okkar,“
sagði Mulroney aðspurður um til-
gang heimsóknar sinnar. Hann
sagði það m.a. hafa komið til tals
að þeir myndu heimsækja hvor ann-
an til að bæta samskipti ríkjanna.
að hitta forsætisráðherra íslands
aftur í framtíðinni," sagði Mul-
roney.
Hann var spurður hvort fríversl-
unarsamningur Bandaríkjanna og
Kanada hefði skilað þeim árangri
sem til var ætlast. Svaraði Mul-
roney því til að hann væri mjög
ánægður með þennan samning. Nú
væri verið að ræða um útvíkkun
fríverslunarsvæðisins þannig að það
næði einnig til Mexíkó og taldi hann
það vera af hinu góða.
Spurður um hvort að hann sæi
fram á aukin viðskipti milli íslands
og Kanada sagði Mulroney að gagn-
kvæm viðskipti ríkjanna væru því
miður ekki eins mikil og þau gætu
verið. Hefðu hann og Davíð Odds-
son rætt ýmsar leiðir til að auka
þau.
Mulroney var að lokum spurður
hver væri mikilvægasta niðurstaða
leiðtogafundarins í London að hans
mati. „Að frátöldum þeim peninga-
legu, skattalegu og efnahagslegu
ákvörðunum sem teknar voru held
ég að það mikilvægasta hafi verið
fundur okkar með Míkhaíl Gorb-
atsjov, forseta Sovétríkjanna, og
þau skilaboð sem hann fór með
heim. Það náðist í London sam-
komulag milli forseta Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna um
fækkun langdrægra kjarnorku-
flauga og Gorbatsjov hélt heim með
áætlun um efnahagsaðstoð í sex