Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JULI 1991 5 Ratsjárstöðvarnar; Engin ákvörðun tek- in um frekari hreinsun - segir umhverfisráðherra EIÐUR Guðnason umhverfisráðherra sagði í samtali við Morgunblað- ið, að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um meiri hreinsun á Straumnesfjalli né slíkar framkvæmdir á Darra eða Heiðarfjalli. A næstunni verður hins vegar athugað, hvort mengun hefur orðið í jarð- vegi af völdum rusls sem urðað var við ratsjárstöð varnarliðsins á Heiðarfjalli á Langanesi. Umhverfisráðherra útilokaði ekki þörfina á frekari hreinsun á Straum- nesljalli eftir nokkur ár, en ráðherr- ann var í hópi þeirra sem fóru á ij'all- ið á mánudagsmorguninn þegar hreinsun þar var að heijast. „Mér þótti merkilegt hvað þessar stein- steyptu einingar í húsunum, sem munu hafa verið fluttar inn frá Hol- landi, hafa staðist vel þau veður og vinda sem þarna blása“, segir Eiður Aðspurður um hvers vegna bygg- ingárnar á fjallinu hafi ekki verið felldar og urðaðar, segir Eiður að það hefði þótt of dýr framkvæmd núna. Eins sagði hann að það væri alltaf álitamál hversu mikið ætti að jafna við jörðu af sögulegum minj- um. „Það er hluti sögu okkar að þessi stöð var reist á Straumnes- íjalli og starfrækt þar í stuttan tíma.“ Eiður segir að ekki sé búið að ákveða neinar hreinsunaraðgerðir í ratsjárstöðvunum, hvorki á fjallinu Darra á Vestfjörðum, þar sem Bret- ar reistu ratsjárstöð á stríðsárunum, né á Heiðarfjalli á Langanesi, þar sem rekin var ratsjár- og fjarskipta- stöð á vegum varnarliðsins á árunum 1954 til 1970. Að sögn Eiðs stendur þó fyrir dyrum athugun á því hvort hættuleg efni finnist í jarðvegi í kringum ruslahaugana við stöðina á Heiðarfjalli, en landeigendur þar hafa krafið bandarísk stjórnvöld skaðabóta vegna tjóns sem þeir telja sig hafa beðið af völdum mengunar. Arnór Siguijónsson starfsmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins sagði í samtali við Morgun- blaðið, að hreinsunin á Straumnes- fjalli hafí farið fram í samráði við landeigendur og í fyllsta samræmi við niðurstöður nefndar, sem Júlíus Sólnes fyrrum umhverfisráðherra Björgunarsveitarmenn að vinnu við hreinsun Straumnesfjalls. Morgunbiaðið/Árni Sæberg skipaði. „Þann 24. júní í sumar stóð svo Varnarmálaskrifstofan fyrir fundi þar sem fulltrúar Náttúru- verndarráðs og umhverfisráðuneytis voru mættir. Á þeim fundi var ákveðið að verða við tilmælum sér- fróðra aðila hjá björgunarsveitunum, sem farið höfðu á fjallið og kynnt sér aðstæður. Þeir lögðu til að þökin yrðu ekki rifin af húsunum, enda hefði það orðið allt of kostnaðarsamt og tímafrekt verk.“ Aðspurður um hvort ekki væri hægt að krefja Bandaríkjamenn um að bera kostnað við hreinsun ratsjár- stöðvanna, segir Arnór að svo áé ekki. „íslensk stjórnvöld yfirtóku þessar eignir á sínum tíma og um leið tóku þau á sig ábyrgðina á þeim. Við yfirtökuna voru eignirnar í góðu ásigkomulagi. Ýmislegt var selt úr þeim þá og auk þess var mikið um að fólk hirti hluti úr stöðvunum. En lengst af þeim tíma sem þessi mann- virki hafa verið í okkar vörslu hafa þau að mestu verið eftirlitslaus." A.THUG1Ð! nýjar vörur daglega! j U ^ KAUPSTAÐUR ÍMJÓDD AIIKLIG4RDUR VIÐ SUND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.