Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Álviðræður:
Stefnt að undirritun
samnings 12. ágúst
Forstjórar Atlantsálfyrirtækjanna koma til fundar við iðnaðarráðherra í Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur:
Ákveðið að
segja upp þjón-
^ustusamningi
við Flugleiðir
- segir Jón Baldvin
utanríkisráðherra
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að ákveðið
hafi verið að segja upp þjónustu-
samningi við Flugleiðir um einka-
leyfi félagsins til afgreiðslu á
Keflavíkurflugvelli.
„Við höfum tekið ákvörðun um
að segja þessum samningi upp sam-
kvæmt samningsákvæðum með
góðum fyrirvara," sagði ráðherrann.
Hann vildi ekki tjá sig nánar um
—hvenær til uppsagnarinnar kæmi en
samningurinn, sem er uppsegjanleg-
ur af beggja hálfu, rennur út næst-
komandi vor.
Dómsmálaráðherra:
Tilmæli um
auknar
mælingar á
ökuhraða
Dómsmálaráðherra hefur sent
lögreglusljórum og sýslumönnum
tilmæii um að auka eftirlit með
hraða á þjóðvegum, einkum með
tilliti til ökuhraða vélhjóla. Lög-
reglan á Sauðárkróki mældi bif-
hjól á 190 km hraða
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Sauðárkróki var gert við-
vart um vélhljólamann á ofsahraða
á veginum frá Varmahlíð að Sauðár-
.f^Jiróki laust eftir miðnætti aðfara-
nótt þriðjudags. Lögreglumenn fóru
til móts við hann og mældist hraði
hans 191 kílómetri á klukkustund
þegar hann fór fram hjá þeim
skammt frá bænum.
Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð-
herra, hefur sent lögreglustjórum
og sýslumönnum í landinu tilmæli
um að auka eftirlit með ökuhraða
á þjóðvegum á næstu vikum. Hjalti
Zóphóníasson, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu, segir að
einkum sé gert ráð fyrir að eftirlit
með ökuhraða vélhjóla verði aukið,
enda sé ljóst, að ýmsir vélhjólamenn
aki á miklu meiri hraða en leyft sé.
FORSTJÓRAR álfyrirtækjanna
þriggja sem mynda Atlantsál
munu 12. ágúst næstkomandi eiga
fund með Jóni Sigurðssyni iðnað-
arráðherra hér í Reykjavík, þar
sem stefnt er að undirritun sam-
komulags Atlantsáls og íslenskra
stjórnvalda um byggingu og
rekstur nýrrar álbræðslu á Keilis-
nesi. Van der Ros, framkvæmda-
stjóri hollenska álfyrirtækisins
Hoogovens sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hann teldi
ólíklegt að nokkuð óvænt gæti
komið upp, fram til fundarins í
Reykjavík, sem frestaði undirrit-
un samkomulagsins.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins varð samningafundur
aðila í Amsterdam 17. og 18. þessa
mánaðar mun árangursríkari en
greint hefur verið frá. Þannig mun
liggja fyrir eftir þann fund sam-
komulag Atlantsáls og íslensku ál-
viðræðunefndarinnar um ábyrgðir
hvað varðar raforkukaup fyrirtæk-
isins og tengingu þeirra við fram-
leiðslustig verksmiðjunnar.
„Eg tel að samningaviðræður
Atlantsáls og íslenskra stjórnvalda
séu nú komnar á það stig, að ein-
ungis sé eftir að útkljá nokkur
minniháttar atriði, áður en við hitt-
um iðnaðarráðherra á fundinum í
Reykjavík í ágúst,“ sagði van der
Ros, „svo ég er bjartsýnn á að aðil-
ar undirriti samninga 12. ágúst.
Samt sem áður verða menn að gera
sér grein fyrir því, að þótt samning-
ur verði undirritaður, þá er fjár-
mögnunarsamningum Atlantsáls
við lánastofnanir ólokið, og ég úti-
loka ekki að eitthvað það kunni að
koma upp í þeim viðræðum, sem
geri það nauðsynlegt að taka upp
einhver samningsatriði, á síðari
stigum,“ sagði van der Ros.
Van der Ros sagði einnig að ekki
mætti gleyma því, að þegar undir-
ritaður samningur lægi fyrir, þá
ætti Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra eftir að fá hann samþykktan
á Alþingi og hvert fyrirtækjanna
þriggja, þ.e. Alumax, Hoogovens
og Granges, þyrfti sömuleiðis að
leggja samninginn fyrir stjórn síns
fyrirtækis og fá hann þar sam-
þykktan. Það yrði ekki fyrr en á
fyrsta ársfjórðungi næsta árs, sem
stjórnir fyrirtækjanna fjölluðu um
Atlantsálverkefnið í heild sinni, og
tækju afstöðu til þess.
Islenskir aðalverktakar segja
sig úr Vinnuveitendasambandinu
*
Ursögnin tók gildi fímm mínútum fyrir miðnætti í gærkvöidi
ISLENSKIR aðalverktakar hafa sagt sig úr Vinnuveitendasam-
bandi Islands og tók úrsögn þeirra gildi kl. 23.55 í gærkveldi,
eða fimm mínútum fyrir miðnætti. Skeyti með úrsögninni var
send stjórn Vinnuveitendasambandsins í gærkveldi.
Morgunblaðið hefur upplýs-
ingar um að Aðalverktakar hafi
um nokkra hríð verið óánægðir
með aðild sína að VSÍ. Það að
ákvörðun er nú tekin um úrsögn,
mun ekki síst byggjast á þeirri
staðreynd að stór aðili á vinnu-
markaðnum á íslandi í framtíð-
inni, Atlantsál, hefur ákveðið að
sækja ekki um aðild að VSÍ.
Munu forsvarsmenn Aðalverk-
taka telja að samningamál þeirra
við starfsmenn sína séu betur
komin í þeirra höndum, án milli-
göngu Vinnuveitendasambands
Islands.
íslenskir aðalverktakar hafa
verið aðilar að Vinnuveitendasam-
bandinu um áratuga skeið.
Nú blasir jafnframt við að
draga mun úr framkvæmdum á
vegum varnarliðsins, sem liafa
verið í höndum íslenskra aðal-
verktaka. Stjórnendur Aðalverk-
taka munu, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins, telja að fyrir-
tækið hafi fijálsari hendur á inn-
lendum verktakamarkaði, með því
að standa fyrir utan Vinnuveit-
endasamband íslands.
Islenskir aðalverktakar hyggja
í framtíðinni á að auka hlut sinn
á íslenskum verktakamarkaði,
eftir því sem verkefni þeirra fyrir
varnarliðið dragast saman á
Keflavíkurflugelli.