Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 28
-28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 Birgir Örn Birgisson vann nýliðaskeið á glæsihestinum Kóngi. Fimm stúlkur urðu í efstu sætunum í unglingakeppninni hjá Smára, f.v. Harpa S. Magnúsdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sigurborg Jónsdóttir, Birna Káradóttir og sigurvegarinn Hulda Hrönn Stefánsdóttir er næst formanni, Smára Sigurði Páli Ásólfssyni. Hestar Sigurður Sigmundsson Syðra-Langholti. ÁRLEGT hestaþing hesta- mannafélaganna Sleipnis og Smára í Árnessýslu fór fram á Murneyri við Þjórsá um síðustu helgi. Svo sem venja hefur verið sótti þetta hesta- þing fjöldi fólks og margt af því kom ríðandi á fákum sínum víðsvegar að úr sýslunni svo og úr Rangárþingi og jafnvel vestan frá Faxaflóa. Það er reyndar nokkurt einkenni þessa árlega hestamóts hve margir koma ríðandi einkum ungt fólk sem vill njóta reið- skjóta sinna í veðurblíðunni enda eru reiðvegir að Mur- neyrinni sérlega góðir. Allstór hópur gistir í tjöldum enda er þetta rúmgott svæði og að- staða góð. Forkeppni fór fram á laugar- deginum og var þátttaka góð í gæðinga- og unglingaflokkum svo og töltkeppni. Hinsvegar var þátttaka fremur döpur í kapp- reiðum nema 150 m ' skeiði og ekki nema svipur hjá sjón frá því sem áður var. Fyrir um það bil áratug voru eitt sinn skráðir 141 hestur til keppni í kappreiðunum. Morgunblaðið/Sig. Sigm. Náttfarasonurinn Huginn á Kjartansstöðum verð efstur í flokki alhliða gæðinga hjá Sleipni, knapi og eigandi er Þorvaldur Sveins- son. Þær Ástrún Davíðsson og Ragna Gunnarsdóttir hlutu knapaverð- laun, hjá þeim standa formenn félaganna Sigurður Páll Ásólfsson og Haraldur Þórarinsson. Eldri flokkur unglinga Smári 1. Hulda Hrönn Stefánsdóttir á Svarta Svaninum 8,31 2. Bima Káradóttir á Brönu 8,30 3. SigurborgJónsd. áFrama 8,18 Eldri flokkur unglinga Sleipnir 1. Sig. Óli Kristinsson áVerðanda 8,42 2. Guðm. V. Gunnarss. á Gusti 8,40 3. Guðbj. H. Sigurðard. áLísu 8,22 Hún hlaut ásetuverðlaun Sleipnisungl- inga. B-flokkur Smári 1. Stjarna f. St. Mástungu. eig. Sigfús Guðmundsson. Kn. Annie B. Sigfús- dóttir ' 8,52 2. Frami f. Berghyl. eig. og kn. Sigur- borgJónsdóttir 8,29 3. Orrar f. Steinahlið. eig. Magnús Víðir Guðmundsson og kn. Helgi Kjartans- son 8,38 B-flokkur Sleipnis 1. Pegasus f. Mykjunesi. Eig. Kristjana Kjartansdóttir. Kn. Helgi Kjartansson 8,55 2. Goði f. Amarstöðum. Eig. og kn. Val- gerður Gunnarsdóttir 8,54 3. Neisti f. Selfossi. Eig. Ásdís Hofritz. Kn. Símon Grétarsson 8,49 A-flokkur Smára 1. Straumur f. Sumarliðabæ. Eig. og kn. Guðmundur Sigfússon 7,90 2. Gustur f. ísabakka. Eig. Ásta Bjama- dóttir. Kn. Haukur Haraldsson 8,35 3. Goði f. Breiðuvík. Eig. og kn. Sigfús Guðmundsson 7,70 A-flokkur Sleipnis 1. Huginn f. Kjartansstöðum. Eig. og kn. Þorvaldur Sveinsson. 8,49 2. Öskar f. Ráng. Eig. og kn. Ragnar Þór Hilmarsson 8,22 3. Fengur f. Gafli. Eig. Bjöm H. Eiríks- son. Kn. Einar Ö. Magnússon 8,32 Tölt 1. Einar Öder Magnússon, á Funa. 2. Annie B. Sigfúsdóttir, á Stjömu. 3. Hrafnkell Guðnason, á Jörp. 4. Símon Grétarsson, á Neista. 5. Sig. Ó. Kristinss. á Verðanda. 250 m stökk Löngumýrarskjóni Eig. Ingi- mar Baldvinsson. Kn. Halldór Vilhjálms- son 20,8 300 m brokk Fjöður Eig. Guðrún Ing- varsd. Kn. Atli Sigurðsson 38,8 150 m nýliðaskeið. Kóngur. Eig. og kn. Birgir Öm Birgisson 17,5 350 m stökk. Stormur. Eig. og kn. Ólafur Lámsson 30,2 150 m skeið. Snarfari. Eig. og kn. Sigur- bjöm Bárðarson 14,6 250 m skeið. Leistur. Eig. Hörður G. Albertsson. Kn. Sigurbjörn Bárðarson 22,5 Sveinsmerki Smára fyrir fágaða ásetu og góða framkomu: Ástrún Davíðsson Hús- atóftum. Riddarabikar-Sleipnis, fyrir góða ásetu: Ragna Gunnarsdóttir, Arnarstöðum. Að venju voru gæðingarnir afar misjafnir og að mati fréttaritara síst betri en venja hefur verið. Þó sáust verulega góð hross svo sem efstu hrossin í A flokki hjá Sleipni og í B flokki hjá Smára svo að einhverjir séu nefndir. Þá sigraði Einar Óder Magnússon í töltkeppninni á stóðhestinum Funa frá Skálá með 93 stig sem telst góður árangur. í kappreið- unum gerðist það helst að sá dugmikli og snjalli hestamaður Sigurbjörn Bárðarson kom með vekringa sína Snarfara frá Kjalarlandi og Leist frá Keldudal en þeir unnu sitthvort hlaupið og nú lá íslendsmethafinn Leistur sem orðinn er 13 vetra 250 m sprettinn keppnislaust á 22,5 sek. sem er vallarmet á Murneyr- inni. Yngri flokkur unglingar Smári 1. Sigfús B. Sigfús. á Skenk 8,66 2. Ása Óðinsd. á Sneglu 8,12 3. Ragnh. Þorvaldsd. á Blesa 7,95 Yngri flokkur unglinga Sleipnir 1. EinarHjálmars. áSkugga 8,46 2. Kristín Þórðard. á Kolgrími 8,38 Hún hlaut knapaverðlaun barna. 3. Margeir Steingríms. á Yrpu 8,16 Með fólki og fák- um á Mumeyri t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁSMUNDAR SIGGEIRSSONAR, Grænumörk 3, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 27. júlí kl. 15. Vilborg Bjarnfreðsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. -r t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR, Hólsgötu 4, Neskaupstað. Steindór Önundarson, Stefania Steindórsdóttir, Sveinn G. Einarsson, Önundur Steindórsson, Guðni Þór Steindórsson, Jóhanna Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför FIIMNBOGA ÞÓRARINS ÞORBERGSSONAR frá Efri-Miðvík, Hátúni 10. Ingibjörg Jónsdóttir, Oddný Finnbogadóttir, Björn Friðrik Björnsson og barnabörn. t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÞORGRÍMS KRISTINSSONAR fyrrverandi bifreiðastjóra, Sörlaskjóli 17, Reykjavík. Kristín Sigurðardóttir, Sigurður Þorgrímsson, Þorbjörg Skarphéðinsdóttir, Amalia Þorgrimsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og barnabörn. Byggðasafn N-Þingey- inga opnað formlega Hraunbrún, Kelduhveríi. STEFNT er að formlegri opnun Byggðasafns Norður-Þingey- inga, sunnudaginn 28. júlí klukk- an 15. Safnið er til húsa í gamla skóla- húsinu við Kópasker ásamt héraðs- bókasafninu og hefur að geyma um 1.500 gamla muni af svæðinu. I tilefni af opnuninni verður boð- ið góðum gestum, héraðsnefndar- mönnum, fyrrum stjórnannönnum safnanna og svo íbúum Norður- Þingeyjarsýslu. Þar að auki er von- ast til að Þjóðminjavörður, Þór Magnússon, sjái sér fært að vera viðstaddur opnunina. - Inga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.