Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 18|91
Reuter
Trúin er boðuð á marga vegu
Hér sést trúboðinn John Smith, sem er stofnandi Liðssveitar Guðs
og fer allra sinna ferða á mótorhjóli, ræða við Anthony Gauci, nem-
anda við Melbourne Church of England framhaldsskólann í Astral-
íu. Smith hefur flutt erindi um trúmál og lífsins gagn og nauðsynj-
ar við svo ólík tækifæri sem á allheijarþingi Sameinuðu þjóðanna og
í fámenni á mörkum hins byggilega.
Uffe-Ellemann Jensen um „Stasi“-fyrirspumir í danska þinginu:
Bamalegt ef menn
em hissa á þessu
UFFE-Ellemann Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir við Morg-
unblaðið að yfirlýsingar tveggja fyrrum starfsmanna austur-þýsku
öryggislögreglunnar Stasi, í þýska timaritinu Der Spiegel, þess efnis
að Stasi hafi skipulagt fyrirspurnir í danska þinginu til að reyna að
fá Dani upp á móti Bandaríkjamönnum, hafi ekki komið honum á óvart.
„Nei þetta kemur mér alls ekki óvart. Þetta var þeirra starf. Þeir sem
segjast vera hissa núna hafa verið mjög barnalegir í afstöðu sinni,“
sagði danski utanríkisráðherrann.
í frétt í danska dagblaðinu Politi-
ken í gær kemur fram að Torben
Lund, formaður þeirrar nefndar
danska þingsins sem hefur með
njósnir að gera, ætlar biðja ríkis-
stjómina um að rannsaka þessar
staðhæfíngar sem koma fram í grein
Stasi-mannanna fyrrverandi.
Jafnaðarmaðurinn Hans Hækker-
up, sem er formaður vamarmála-
nefndar danska þingsins, segist ekki
muna eftir neinum spurningum sem
hafí gert honum bylt við frá því hann
tók við formennsku árið 1986. Væri
það mjög einkennilegt að hans mati
ef einhveijir hefðu spurt spurninga
einungis á gmndvelli upplýsinga frá
óþekktum útlendingum. Gæti hann
ekki ímyndað sér að sú hefði verið
raunin.
Annette Just, einn þingmanna
Framfaraflokksins, segir hins vegar
við Politiken að ýmsar spumingar
aðallega frá þingmönnum Sósíalíska
þjóðarflokksins (SF) en stundum
einnig frá þingmönnum Jafnaðar-
mannaflokksins hafi vakið hana til
umhugsunar. Hún gæti vel hugsað
sér að þingmenn SF hafi verið notað-
ir meðvitað eða ómeðvitað.
Pelle Voigt, talsmaður SF í varn-
armálum segir hins vegar: „Ég hef
ekki upplifað neitt af þessu tagi og
veit ekki við hvern er átt í þessum
efnum.
Ég hef hins vegar miklar efasemd-
ir um að einhver stjómmálamaður
hafi beinlínis látið nota sig af erlend-
um njósnurum.
Það hefði verið nær lagi að spila
á fjölmiðla og koma fyrirspumum inn
á þingið þá leiðina.“
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin:
Fjórða eftirlits-
nefndin til Iraks
Vínarborg. Reuter.
TUTTUGU manna hópur kjarnorkueftirlitsmanna á vegum Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) heldur af stað til íraks í dag, sama dag og frest-
ur sá rennur út sem fastafulltrúar í öryggisráði SÞ gáfu Irökum
til að úpplýsa öll kjarnorkuleyndarmál sín eða horfast í augu við
alvarlegar afleiðingar ella. Bandaríkjamaðurinn David Kay fer
fyrir hópnum sem verður í Irak í tvær vikur og er fjórði hópurinn
sem fer til íraks á vegum SÞ síðan í maí. Honum er ætlað annars
vegar að leita frekari sannana fyrir kjarnorkuvinnslu Iraka og
hins vegar að ákvarða hvað gera skuli við kjarnorkuver þau sem
þegar hafa verið skoðuð.
írakar verða, samkvæmt vopna-
hlésskilmálunum sem þeim vom
settir, að eyða öllum gereyðingar-
vopnum sínum en þeir reyndu í
fyrstu að leyna því að þeir ynnu
að því að auðga úran. Þegar þeir
viðurkenndu það vegna þrýstings
frá Bandaríkjamönnum og öiyggis-
ráði SÞ sögðu þeir að vinnslan hefði
öll farið fram í friðsamlegum og
vísindalegum tilgangi og að þeim
hefði aðeins tekist að framleiða
hálft kíló af lítt auðguðu úrani.
Þriðja eftirlitsnefnd SÞ í írak fór
þaðan sl. föstudag. Formaður þeirr-
ar nefndar, Dimitri Perricos, sagð-
ist þá hafa í fórum sínum formlega
Sovétmenn sækja um fulla aðild að
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum:
Sovétmenn segja um-
sóknina í samræmi
við Lundúnafundinn
Moskvu. Reuter.
UMSÓKN Sovétríkjanna um fulla aðild að Aljóðagjaldeyrissjóðnum
er í fullu samræmi við það samkomulag sem náðist á fundi Míkha-
íls Gorbatsjovs Sovétforseta og leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims í
Lundúnum í síðustu viku, sagði talsmaður sovéska utanríkisráðuneyt-
isins, Vítalíj Tsjúrkín, í gær. Umsóknin, sem lögð var fram á þriðju-
dag, kom bandarískum stjórnvöklum og yfirmönnum Alþjóðagjald-
eyrissjóðins í opna skjöldu.
Á fundi Gorbatsjovs og leiðtog-
anna var samþykkt að veita Sovét-
mönnum aukaaðild að Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og Alþjóðabankanum
gegn því að sovésk stjómvöld legðu
áherslu á að koma á markaðskerfi
í landinu. Á þriðjudag lögðu Sov-
étríkin síðan inn formlega umsókn
um fulla aðild að stofnununum.
„Það kemur ekki til greina að end-
urskoða afstöðu okkar eða draga
umsóknina til baka til að breyta í
samræmi við Lundúnafundinn,"
sagði Tsjúrkín á fréttamannafundi
í Moskvu. „Þessi ákvörðun okkar
stangast í engú á við það sem sam-
þykkt var á fundinum."
Tsjúrkín sagði að sovéskir emb-
ættismenn gerðu sér fulla grein
fyrir þvf að það tæki langan tíma
að verða fullgildur aðili að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum og að aukaaðild
væri sennilega fyrsta skrefíð. Tals-
maður bandaríska íjármálaráðu-
neytisins sagði í gær að full aðild
að sjóðnum væri „ekki árangursrík-
asta leiðin til að tryggja efnahags-
umbætur í Sovétríkjunum.“
Aukaaðild að sjóðnum gefur við-
komaiidi rétt á að hljóta tæknilega
aðstoð og ráðleggingar, en gefur
ekki kost á lánum. Bandaríkjastjórn
er mótfallin því að veita Sovétríkj-
unum stórvægilega fjárhagsaðstoð
fyrr en frekari merki um umbætur
sjást þar í landi, og telur að um-
sókn um fulla aðild að sjóðnum
muni trufla Sovétmenn við að koma
á umbótum.
yfirlýsingu íraksstjómar þess efnis
að búið væri að upplýsa allt sem
hægt væri að upplýsa um kjarn-
orkuvinnslu í írak. Talsmenn Al-
þjóðakjamorkumálastofnunarinnar
(LAEA) og meðlimir sérstakrar
nefndar, sem hefur umsjón með
eyðingu íraskra vopna, hafa látið
að því liggja að þeir telji sig hafa
fundið allt sem tengist kjarnorku í
írak.
í yfirlýsingu sem IAEA gaf út á
mánudag sagði að nefnd Perricos
hefði fengið ítarlegar upplýsingar
um „viðamikla áætlun um auðgun
úrans“, eins og það var kallað.