Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 ém STJORNUSPA eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) II"* Hrúturinn byijar ótímabært á einhveiju verkefni í dag, en hættir við strax og hann áttar sig á, mistökunum. Hann ætti ef til vill að draga sig í hlé til að endumýja krafta sína. Naut (20. apríl - 20. maí) ■Nautinu kann að verða á í messunni þegar hann tekur ákvörðun í peningamálum núna. Það kann að eyða of miklu ef það fer út að skemmta sér og væri þá verr farið en heima setið. Tvíburar (21. maí - 20. júní) J» Breytingar verða þess valdandi að tímaáætlun tvíburans fer úr skorðum. Hann ætti ekki að blanda vini sínum í peninga- mál í kvöld. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Krabbanum líst ekki á tillögu sem borin er undir hann. Hann ætti að kanna málið ofan í kjölinn og ráðgast við þá sem vit hafa á því. Ljón (23. júli - 22. ágúst) Það freistar ljónsins ákaflega núna að vera lausbeislað í pen- ingamálum. Það ætti að forð- ast að vera þóttafullt í fram- komu í kvöld. wMeyja (23. ágúst - 22. september) <S$ Meyjunni gengur betur að vinna ein núna en í samvinnu við aðra. Hún verður að vera með báða fætur á jörðinni í ástarsambandi sínu. V°g ^ (23. sept. - 22. október) Vogin verður að gæta þess að láta sér ekki sjást yfír mikil- væg smáatriði í starfi sínu. Einhver lætur hana bíða í dag. Hún ætti að halda lifandi sam- bandi við sína nánustu. Sporödreki (23. okt. - 21. nóvember) 9Kj£ Það er ekki víst að sporðdrek- inn fái það sem hann borgar fyrir í dag. Hann ætti að halda sig á þeim stöðum sem hann þekkir vel. Bogmaöur (22. nóv. — 21. desember) Bogmaðurinn kemur ekki öllu í verk sem hann ætlaði vegna þess að einhver verður til að trufla hann. Hann á erfitt með að sinna hversdagsstörfum sínum vegna eirðarleysis. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er eilíft ónæði hjá stein- geitinni i dag svo að lítið verð- ur úr verki. Hún er tvístígandi yfir hvemig leysa beri ákveðið ágreiningsefni heima fyrir. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Eyðslusemi vatnsberans í skemmtanalífinu getur farið úr böndunum. Einn vina hans virðist vera óáreiðanlegur. Alls konar kjaftasögur fara á kreik í kvöid. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) ÖÍL ’Fiskurinn þarf að hyggja sér- staklega að ákveðnu máli á heimavettvangi. Óvæntur at- burður getur sett áætlanir hans úr skorðum. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. :::::::::: ::r ; DYRAGLENS GRETTIR NO VEBPOI? SÝNT „ KÖTroR . INM. SKIlLLPARveeK TOMMI OG JENNI SDö p>£TT/t ££_ Nj, Afkr/ F&r/V/Z n'a- GRAA/NANS.J LJOSKA í SÚPA EOA SALAT? ■SÚPA F&A SALAT? xécáGereKKt akæþ FERDINAND SMAFOLK vou'llnever beable T0CAT0HABALLWHILE YOU'KE H0LDIN6 AN UMBRELLA! ^zr Þú getur aldrei gripið bolta á meðan þú held- ur á regnhlíf! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þeir sem spila fjórspila opnan- ir á hálit myndu flestir vekja á einu hjarta með spil austurs. En þessi tiltekni austur var „nat- úralisti“ fram í fingurgóma og byijaði á spaðanum. Austur gefur, allir á hættu. Norður ♦ G10864 V76 ♦ 972 + 632 Vestur ♦ - V G843 ♦ K10864 + KG87 Austur ♦ Á532 ¥ KD109 ♦ G5 ♦ D94 Suður ♦ KD97 ¥Á52 ♦ ÁD3 ♦ Á105 Vestur Norður Austur Suður — — 1 spaði 1 grand 2 tíglar Pass Pass 2 grönd Pass Pass Pass Utspil: tígulsexa. í sæti sagnhafa var einn frægasti spilari Bandaríkjanna, Howard heitinn Schenken, fastamaður í landsliðinu á sjötta áratugnum. Opnun austurs hafði þau áhrif að NS fundu ekki rétta bútinn og Schenken varð að heyja baráttuna í 2 gröndum. Þrátt fyrir tígulútspiiið á hann aðeins 7 slagi, því auðvitað dúkkar austur spaðann þrisvar þegar hann sér að suður á fjórlit. Schenken leysti vandann á snotran máta. Hann spilaði tígulþristinum til baka í öðrum slag. Vestur horfði stundarkorn á slaginn, en komst svo að þeirri niðurstöðu að Schenken hlyti að hafa tekið vitlaúst spil og hélt áfram með tígul. Og austur henti spaðatvistinum, sem leit út fyrir að vera óþarfasta spilið á hend- inni! Meira þurfti ekki til. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Það er mjög varasamt að hleypa sænsku stúlkunni Piu Cramling (2.470) í sókn. Á því fékk hinn reyndi þýski stórmeistari Stefan Kindermann (2.515) að kenna á mótinu í Hamborg, sem var að Ijúka: Pia hefur hvítt í Grúnfelds- vörn: 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 — d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. e4 — Rxc3, 6. bxc3 — Bg7, 7. Bc4 - 0-0, 8. Re2 - b6, 9. h4 - Rc6, 10. Bd5 - Dd7, 11. h5 — e6, 12. Bb3 - Ba6, 13. hxg6 - hxg6, 14. Rf4 - Hfd8. 15. Rxe6! - fxe6, 16. Dg4 - Bc8, 17. Dxg6 — Rxd4 (Kinder- mann hefur treyst á að ná gagn- sókn eftir 18. cxd4 — Dxd4, en Pia á mjög sterkt svar, sém segja má að valdi allt sem þarf að valda og hóti öllu illu um leið:) 18. Hh3! - Rxb3, 19. Dh7+ - Kf8, 20. Hf3+ - Df7, 21. Bh6! - Dxf3, 22.Dxg7+ - Ke8, 23. gxf3 - Rxall, 24. Bg5 - Rc2+, 25. Kfl og nú ioks gafst Kindermann upp. Pia varð í 6.-8. sæti á mótinu með 7 v. af 13 mögulegum, sem er góður árangur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.