Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JULI 1991 Grænahlíð - sérhæð IFASTEIGNA OG FIRMASALA AUSTURSTRÆTI 18 Vorum að fá í einkasölu ca 160 fm neðri hæð í vönduðu húsi. Húsið skiptist ma. í 2-4 svefnherb., stór- ar stofur, stórt eldhús með þvottahús innaf og flísalagt bað. Garðskáli. Rúmgóður bílskúr. Eign í algjörum sérflokki Verð 14,5 millj. Fasteignasalan Framtíðin, sími 622424. Til sölu f Hafnarfirði 2ja hæða 153 fm raðhús við Öldutún. Bílskúr. Skipti á 2ja eða 3ja herb. íbúð koma til greina. Steinhús við Álfaskeið með þremur íbúðum. 2ja, 3ja og 4ra herb. Byggt 1953. Stór og góð lóð. Timburhús við Suðurgötu 25 (Stefánshús). Hæð, kj. og ris, alls 153 fm. Mjög góður staður. Laust strax. Stein- og timburhús við Garðaveg. Tvær hæðir, alls 150 fm. Efri hæð er nýbygging. Stór geymsluskúr. 130 fm 7 herb. íbúð í timburhúsi við Strandgötu. 3ja-4ra herb. 100 fm falleg íb. á Hjallabraut 43. Árni Gunnlaugsson, hrl., Austurgötu 10, sími 50764. Leirutangi - Mosfellsbæ - einbýli/tvíbýli 7233 Glæsilegt hús á frábærum útsýnisstað. Stærð 328,4 fm + tvöfaldur bílskúr 48,7 fm. Á hæðinni er fullb. óvenju glæsil. innréttuð íbúð ásamt fullb. bílskúr, sam- tals um 230 fm. Kjallari undir húsinu með góðum glugg- um, þar mætti auðvéldlega, ef vill, innrétta góða íbúð með sérinng. Getur verið laust fljótlega. Skipti möguleg á minni eign. Áhv. veðdeild rúmar 2 millj. Hagaflöt - Gb. 7229 Glæsilegt 150 fm einbýli á einni hæð ásamt ca 40 fm bílskúr. 4 svefnherb., rúmgóð stofa. Möguleiki á sérsól- stofu. Eign í góðu standi m.a. nýtt þak. Frábær stað- setning. Laust fljótlega. Möguleiki á húsbréfum. Skipti á minni eign koma til greina. Ákv. sala. Birkihlíð 5146 Stórglæsilegt ca 190 fm sérbýli á tveimur hæðum. Sérsmíðaðar innréttingar. Parket og grásteinn á gólfum. Rúmgóð stofa og svefnherb. Frábært útsýni. Fullbúin eign í sérflokki. Ca 30 fm bílskúr. Laus nú þegar. Áhv. m.a. 7,5 millj. húsbréf. Fellsmúli 3215 Góð 4ra herb. íbúð á jarðhæð. 3 svefnherb., stofa, nýl. bað og eldhús. Parket. Sérinng. Góð staðsetn. Mögul. skipti á stærri eign. Verð 6,2 millj. Miðsvæðis - nýtt - eign ísérflokki 2278 í einkasölu glæsileg 3ja herb. íbúð á 1. hæð í nýlegu húsi. Parket. Vandaðar innréttingar. Sérgarður. Bílskúr. Laus fljótlega. Athugið! Sendum áhugasömum kaupendum lista yfir bújarðir, íbúðarhúsnæði úti á landi, hesthús og sumarhús. ÍS ^FASTEIGNA MIÐSTÖÐIN 62 20 30 SKIPHOLTI50B -105 REYKJAVÍK SHN/ll 622030 - SÍMBRÉF 622290 Metsölublad á hverjum degi! Píanókvartettar Tónlist Jón Asgeirsson Á þriðjudagstónleikum þeim sem haldnir hafa verið í Listasafni Sig- uijóns Ólafssonar í sumar, hefur ávallt verið húsfyllir og var enn sl. þriðjudag og þá voru fluttir píanó- kvartettar eftir Mozart. Flytjendur voru Hlíf Siguijónsdóttir á fiðlu, Lorenz Hasler á lágfiðlu, Christian Giger á selló og David Tutt á píanó. Mozart samdi tvo píanókvartetta, sem bera númerin K 478 og 493. Sá fyrri var saminn að ósk Franz Anton Hoffmeister, og samkvæmt samningi við Mozart, ráðgerði Hoff- meister að gefa út þijú slík verk. Fyrsti kvartettinn, sá í g-moll, þótti mjög erfiður og Hoffmeister kvart- aði undan því að nóturnar seldust ekki. Mozart mun hafa leyst Hoff- meister frá þessum samningi en hvort sá seinni, í Es-dúr, hefur þeg- ar verið til í frumdrögum, er ekki vitað en hann var gefinn út um það bil ári seinna hjá Altaria, sem á tímum Mozart og Beethovens var eitt af helstu nótnaútgáfufyrirtækj- um í Vínarborg. Tónleikarnir hófust á seinni kvartettinum K 493 í Es-dúr og var flutningur hans í þokkalegu jafn- vægi. Þó ber sérstaklega að geta þess að David Tutt lék vel. Lágfiðlu- leikarinn Lorenz Hasier og sellóleik- arinn Christian Giger gerðu sínu góð skii, þó ekki reyndi mikið á hæfni þeirra. Fiðluleikarinn Hlíf Siguijónsdóttir virtist ekki vera í essinu sínu og var það sérstaklega áberandi í seinni kvartettinum, K 478 í g-moll, þar sem stundum sló fyrir óhreinum leik og slysainnkom- um, svo að nokkuð vantaði á að jafnræði væri með strengjaleikur- unum og að Mozart nyti sín að fullu. Kvartettinn í g-moll er mun meira verk og skemmtilegra en sá í Es-dúr og á köflum er hlutverk píanósins „virtúósískt“, sérstaklega í síðasta kaflanum, rondóinu. Þar fór David Tutt á kostum og er ekki oft sem getur að heyra jafn vel útfærðan leik. Sumartónleikar í Skálholtskirkju: Tvöhundruð ára ártíð Mozarts I ÁR er haldin hátíðleg tvö hundruð ára ártíð W.A. Mozarts (1756-1791). Af því tilefni eru tvennir tónleikar þessarar helg- ar tileinkaðir tónskáldinu. Dag- skrá með tónverkum eftir W.A. Mozart er laugardag og sunnu- dag kl. 15. Laugardagstónleikar sem hefjast kl. 17 eru hins vegar hlegaðir Johann Sebastan Bach. Flytjendur á tónleikunum eru Bach-Sveitin í Skálholti, ein- söngvarar og kór. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson og kon- sertmeistari er sænski fiðluleik- arinn Ann Wallström. Að venju er boðið upp á þrenna tónleika, laugardag 27. júlí kl. 15 og 17 og sunnudag 28. júlí kl. 15. Efnisskrá heigarinnar er tvíþætt. Á laugardags- og sunnudagstón- leikum kl. 15 eru flutt verkin: Litan- iae Lauretanae K. 109, tvær kirkju- Skálholtskirkja Sr. Sigurðar Z. Gíslasonar minnst Þingeyri. Á nýársdag 1943 gerðist sá vo- veiflegi atburður að séra Sigurður Z. Gíslason prestur á Þingeyri fórst á leið til messu í Keldudal, utarlega í Dýrafirði. Nú um miðj- an mánuðinn, rúmum 48 árum eftir þennan atburð, komu afkom- endur hans ásamt mökum vestur á firði til að heiðra minningu hans. Sunnudaginn 14. júlí var guðs- þjónusta í Þingeyrarkirkju. Sigurður Rúnar Jónsson, sonarsonur séra Sig- urðar Z., lék á orgel kirkjunnar, auk þess sem hann lék tvö verk á fiðlu við undirleik föður síns Jóns Sigurðs- sonar. Hjörtur Þórarinsson flutti minningarorð um tengdaföður sinn séra Sigurð Z., og eftir messu bauð sóknarnefnd upp á kaffiveitingar. - Gunnar Eiríkur sónötur K. 224 og K. 144, Sancta maria, Mater Dei fyrir kór, hljóm- sveit og orgel og Missa brevis í G-dúr, K. 140 eftir W.A. Mozart. Á laugardagstónleikum kl. 17 eru flutt verk eftir J.S. Bach. Meðal verka eru tvær kantötur: Kantata BWV 13 „Meine Seufzer, meine Tránen" og kantata BWV 161 „Komm, du Siisse Todesstunde". Flytjendur á tónleikum þessarar helgar eru eins og fyrr sagði Bach- sveitin í Skálholti undir handleiðslu Ann Wallström, kór og einsöngvar- ar. Ann Wallström hefur verið kon- sertmeistari Bach-sveitarinnar frá upphafi. Meðlimir sveitarinnar ieika á barokkhljóðfæri í lágri stillingu. Aðgangur að tónleikunum er ókeyp- is og öllum heimill. Athygli tónleikagesta skal vakin á því að boðið er upp á barnagæslu meðan á tónleikunum stendur. Ekki er krafist gjalds fyrir þessa þjón- ustu en forráðamönnum barna er bent á að kaupa merki Sumartónlei- kanna'í Skálholtskirkju til að um- buna fyrir gæsluna. Messað er í Skálholtskirkju á sunnudag kl. 17. Séra Guðmundur Óli Ólafsson prédikar en organisti er Hilmar Öm Agnarsson. Flutt verður kantata eftir J.S. Bach við guðsþjónustuna. Sætaferðir eru frá Umferðarmiðstöðinni. (Fréttatilkynning:) Jóhannes Djörup læknir látinn Morgunblaðið/Gunnar Eiríkur Fjölmargir þáðu kaffiveitingar í Félagsheimilinu á Þingeyri að messu lokinni. JÓHANNES Djorup læknir er látinn í Kaupmannahöfn, 95 ára gamall. Hann tók læknispróf 1921 og gegndi svo herskyldu í flotanum sem læknir á Islands Falk, varðskipi sem þá hafði Iandhelgisgæsluna við Island. Þess hafði hann óskað sér. Hann var dóttursonur Ágústu Svend- sen, fyrstu ísiensku konunnar, sem stofnaði verslun á íslandi (sjá „Úr ævi og starfi íslenskra kvenna", 1. bindi) og átti þess vegna hér stóra móðurfjölskyldu (m.a. konu Gunnlaugs Claessens, fyrsta röntgenlæknisins á ís- landi). Jóhannes kom oft til ís- lands, sem hann elskaði, lærði töluvert í málinu og skildi mikið. HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Sumarið styttist. Nú er góður tími til að fara á hraðlestrarnámskeið fyrir þá, sem ekki hafa tíma til þess á veturna. Vilt þú vera vel undirbúin(n) fyrir erfitt nám eða menn- ingarlegan vetur með miklum lestri á góðum bókum? Skráðu þig þá strax á næsta námskeið í hraðlestri sem hefst miðvikudaginn 7. ágúst nk.' Skráningarsími 641091. HRAÐLESTRARSKOLINN riEl 10 ÁRA fe.í Eftir gagngera læknamenntun á spítölum í Kaupmannahöfn settist hann niður sem heimilislæknir í miðbænum, alveg eins og faðir hans og afí höfðu gert. Hann fékk fljótt feikna marga sjúklinga og var þar fyrir utan læknir við landsstofnun fyrir foreldralaus börn og embættis- læknir fyrir sinn bæjarhluta. Um tíma var hann líka næturlæknir og fór mestalla æfi á hjóli. Hann var mjög vinsæll heimilis- læknir, sem gat sett sig inn í mann- lega og samfélagslega erfiðleika sjúklinganna. Mikla vinnu lagði hann einnig í félagsskap Kaupmannahafnar- iækna og var lengi í föstum nefnd- um þar. Hann hélt áfram að vinna þangað til hann var 81 árs. Langt fram í elli var hann virkur í danska félaginu fyrir sögu, bók- menntir og listir, sem hann hafði mikinn áhuga á. Hann vann mikið starf, bæði sem læknir og í hugvís- indum. Jóhannesi farfnst hann vera bundinn íslandi svo sterkum bönd- um, að hann hafði óskað sér að deyja þar, en svo fór ekki. Hann lætur eftir sig 3 syni og 7 barnabörn. Elsti sonur hans var um tíma sendikennari við Háskóla ís- lands. Lars Jacobsen, röntgenyf- irlæknir, Ríkisspitalanum, Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.