Morgunblaðið - 25.07.1991, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991
29
Helgi Bergmann
málari - Minning
Góður og gamall vinur minn er
látinn, Helgi Bergmann málari og
listamaður. Samkvæmt málaratali
er Helgi fæddur 15. nóvember 1908
í Ólafsvík. Foreldrar hans voru Sig-
urður Darriel Bergmann Gíslason
útvegsbóndi á Hellissandi, f. 15.
desember 1859, d. 28. október
1935, og kona hans Guðrún Hall-
dóra Cýrusdóttir ljósmóðir í Ólafsík,
f. 24. aprfl 1873 í Lóni í Breiðuvík,
d. 22. júlí 1943.
Ungur fluttist Helgi til
Reykjavíkur og hóf nám í málaraiðn
hjá Guðbergi Jóhannssyni, en lauk
ekki námi hjá honum. Síðar fór
hann til Vestmannaeyja og lauk þar
námi hjá Einari Lárussyni málara-
meistara.
Kynni okkar Helga hófust
snemma á fyrstu árum Málara-
sveinafélagsins. Hann varð félagi
þess 1932 og gerðist mikilvirkur
félagsmaður, tillögugóður og átti
gott með að tjá skoðanir sínar. Oft
var grunnt á kímninni hjá Helga
og verð ég ekki svo gamall að ég
gleymi samstarfi okkar í nefnd um
atvinnuleysismál ásamt Gunnari
Leo Þorsteinssyni. Báðir voru þess-
ir menn miklir frásagnarsnillingar,
ekki hvað síst í gamanfrásögnum.
Við Helgi störfuðum í nokkur ár
saman hjá einum þekktasta málara-
meistara þess tíma, Lúðvík Einars-
syni. Þá kynntist ég vel hve mikilli
listhæfni hann var búinn. Margir
muna sjálfsagt skreytingarnar á
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Helgi átti mikinn þátt í þeim. Hann
vann víðar að skreytingum bæði
hjá einkaaðilum og fyrirtækjum.
Helgi fór að áeggjan minni til
Kaupmannahafnar 1936 og dvaldi
þar við nám og vinnu, hann stund-
aði nám við hinn þekkta Dekorati-
onsskóla Jens Möller Jensens. Þar
nam hann listmálun og skreytingar
að meira eða minna leyti í íjögur
ár. Hann mun einnig hafa unnið
all mikið að bílamálun og var félagi
í samtökum bílamálara í Kaup-
mannahöfn.
Eftir 10 ára útivist kom hann
aftur heim til föðurlandsins. Þá
strax hófum við samstarf í iðninni.
Hann gekk í Málarameistarfélag
Reykjavíkur árið 1946 og gegndi
ýmsum störfum fyrir félagið, en
lengst sat hann í prófnefnd eða í
rúm 10 ár. Við Helgi unnum marg-
víslega málaravinnu en þó mun
málun á Austurbæjarbíói og Nýja
Bíói þegar því var breytt vera
stærstu verk sem við unnum sam-
sinni. Tvo syni átti Þórey frá fyrra
hjónabandi, Leif og Ottó Örn. Þórey
og Helgi slitu samvistum fyrir all
mörgum árum. Eftir það bjó hann
lengi einn og hafði vinnustofu þar
sem hann gat unnið að list sinni.
Ég mun alltaf minnast Helga sem
eins hæfásta málara innan málara-
stéttarinnar og að mínu mati mikils
listamanns. Ég og kona mín sendum
börnum og öðrum aðstandendum
Helga samúðarkveðjur.
Sæmundur Sigurðsson málari
t
Konan mín,
BALDVINA H. HAFLIÐADÓTTIR,
Miklubraut 9,
andaðist 23. júlí.
Haraldur Agústsson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
REGÍNA MAGNÚSDÓTTIR
frá Kirkjubóli,
Laugarnesvegi 36,
Reykjavík,
andaðist í Landakotsspítala þann 22. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, Reykjavík,
miðvikudaginn 31. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Trúboðssjóð Fíladelfíu-
safnaðarins.
Ragnar Guðmundsson,
Magnús Ragnarsson,
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Ragnarsdóttir,
Garðar Ragnarsson,
Anna Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Útför
JÓNS STEFFENSEN
prófessors, Aragötu 3, Reykjavík,
sem lést 21. júlí, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn
26. júlí kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Háskóli íslands.
an. Þar sýndi Helgi hæfni sína og
fullyrði ég af kynnum okkar, að
fátt var það sem varðaði iðnina sem
hann gat ekki leyst með miklum
ágætum. Helgi hætti hefðbundnum
málarastörfum um 1960 og sneri
sér alfarið að listmálun sem lengi
mun hafa verið hans draumur.
Hann hefur haldið fjölda listsýninga
víðsvegar um landið og þá fyrstu
1929 þá rúmlega tvítugur, svo á-
því má sjá að listsköpun hefur lengi
blundað með honum.
Helgi kvæntist árið 1942 Þóreyju
Brynjólfsdóttur sem var mjög list-
feng kona, þau áttu saman tvö
böm Guðrúnu f. 1944 og Þórð
Helga f. 1945. Áður átti Helgi einn
son, Pál sem ólst upp hjá móður
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skaf á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR ALFREÐ SIGURÐSSON,
Stekkjarkinn 5,
Hafnarfirði,
lést mánudaginn 22. júlí.
Erla Jóhannsdóttir,
Hallfríður Ólafsdóttir, Jón Ágústsson,
Heimir Ólafsson, Kristín Jónsdóttir,
Anna Ólafsdóttir, Páll Hermannsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
BJÖRNS S. MARKÚSSONAR,
Vogatungu 95a,
Kópavogi.
Sigriður R.
Ingibjörg F. Björnsdóttir
Svava Björnsdóttir,
Kristín Björnsdóttir,
Sigríður Björnsdóttir,
Hallur Björnsson,
Guörún Björnsdóttir,
Þórður Björnsson,
Lúðvík Björnsson,
Stefanía Björnsdóttir,
barnabörn og
Þórðardóttir,
, Guðjón Ragnarsson,
Geir Magnússon,
Axel Þórarinsson,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Örnólfur Sveinsson,
Helga Einarsdóttir,
Halldóra Magnúsdóttir,
Manit Saifa,
barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaöur minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
GUNNAR INGIBERGUR JÚLÍUSSON,
Kleppsvegi 48,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu-
daginn 26. júlí kl. 13.30.
Unnur Jóna Geirsdóttir,
Hrefna Gunnarsdóttir, Karl Hjartarson,
Sigurgeir Gunnarsson,
Margrét Gunnarsdóttir, Benedikt Eyjólfsson,
Ágústína Gunnarsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN JÓNSSON
bóndi,
Smjördölum, Sandvíkurhreppi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 27. júlí kl. 13.30.
Jarðsett verður í Laugardælum.
Stefán Sigurjónsson, Svanbjörg Gísladóttir,
Eiríkur Sigurjónsson, Guðbjörg Hulda Albertsdóttir,
Jón Kristinn Sigurjónsson, Kristin Alda Albertsdóttir,
Grétar Sigurjónsson,
Margrét Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
+
Frænka okkar,
KRISTBJÖRG PÁLSDÓTTIR
frá Húsavík,
, Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
lést 23. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Ásdís Aðalsteinsdóttir,
Helga Sigurgeirsdóttir,
Höskuldur Sigurgeirsson,
Aðalsteinn Hallgrímsson.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
KARLS FRIÐRIKS DAVÍÐSSONAR,
Látraseli 7.
Elín Brynjólfsdóttir,
Anna Karlsdóttir, Jónas Hermannnsson
og barnabörn.
+
Hjartanlegar þakkirfyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar og dóttur,
ÞÓRU SVEINSDÓTTUR,
Funafold 59.
Sérstakar þakkir eru færðar hjúkrunar-
fólki deildar 13D á Landspítalanum.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda,
Hákon Hákonarson,
Ólafur Haukur Hákonarson,
Gunnar Hákonarson,
Guðrún Erla Brynjólfsdóttir,
Guðrún Árnadóttir.
Erfidrykkjur í hlýlegu
og notalegu umhverfi
Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir
allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi,
brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með
rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur,
rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl.
Með virðingu,
FLUGLEIÐIR
HÖTEL LOFTLEIDIR
REYKJAVlKURFLUGVELLI. 101 RBYKJAVlK
sIM1: 9 1 - 2 2 3 2 2