Morgunblaðið - 25.07.1991, Page 34
34
■ MORtíUKBlADI!) FIMMTUDAGUR 2B. JÚLÍ'1991
„ þaÁ &r hanrt UtLL v'inurh 'mn G-ftcir,
góS<X' Hann i/íLi fici LÁncwa. smci.
hananysoLýf-u.»
7
Það er ekki ég heldur þú
sem kemur kjaftasögunum
í umferð ...
Hvað þetta er? Láttu þér
detta eitthvað í hug sem
nota má yfir það ...
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu ...
Silfurhringur týndist
Fíngerður silfurhringur með
plötu ofan á, áritaður, týndist í
miðbæ Reykjavíkur fyrir u.þ.b.
tveimur mánuðum, líklega í mið-
bænum. Finnandi hafi samband í
síma 21763.
Blár páfagaukur týndist
Blár páfagaukur týndist í
Kópavoginum s.l. mánudag. Ef
einhver hefur séð hann hringið í
síma 43032 (á morgnana).
Kettlingur fannst
Gulbröndótt, stálpuð læða
fannst í Elliðaárdalnum fyrir
u.þ.b. mánuði. Eigandi hringi í
síma 76229.
Takið eftir!
Þú, hver sem þú ert, ef þú hef-
ur fundið skrautlegt veski sem
jafnframt er budda. í því voru
peningar ásamt nótum með nafni
eiganda. Vilt þú hringja í síma
18348.
Fjallahjól týndist
Hvítt Trek-íjallahjól hvarf frá
æfingasvæði KR við Frostaskjól
milli kl. 1 og 3 s.l. mánudag. Ef
einhver verður var við það er við-
komandi vinsamlegast beðinn um
að hringja í síma 28835.
Peysa í óskilum
Handpijónuð peysa fannst á
Hverfisgötunni aðfararnótt laug-
ardags s.l. Upplýsingar í síma
18089.
Veski tapaðist
Svart seðlaveski tapaðist á Mi-
klubraut s.l. föstudag. I því voru
skilríki og peningar. Finnandi
hringi í s. 691122.
Týndi peningaveski og
lopapeysu
Svart peningaveski tapaðist í
Kringiunni mánudaginn 15. júlí.
Þriðjudaginn 16. júlí tapaðist lo-
papeysa í Seláshverfi. Ef einhver
veit um þessa hluti vinsamlegast
hringi í síma 78851.
Hvaða læknir?
Jóhanna hringdi:
Mig langar til að hafa sam-
band við, konu sem skrifaði í Vel-
vakanda í fýrra og lét birta mynd
af sér. Hún hafði læknast af
ýmsum kvillum í kjölfar ofnæmis-
prófs út af meltingu. Mig langar
að fá nánari upplýsingar hjá kon-
unni. Hvaða læknir annaðist hana
og hvað var gert?
Úlpa og ullarpeysa
Bleik úlpa með grænni límingu
að framan,smelltri yfir rennilás-
inn og grá ullarpeysa töpuðust á
Þingvöllum helgina 13-14. júlí.
Vinsamlegast hafið samband í
síma 75413.
Ekki níðast á sjúklingum
Mig langar til að lýsa óánægju
minni með nýja heilbrigðismála-
ráðherrann okkar, hann Sighvat
Björgvinsson. Sighvatur er í Al-
þýðuflokknum sem ég hef alltaf
kosið og segist hugsa um alþýð-
una, börn og gamalmenni en ræðst
síðan gegn þessum aðilum með
því að hækka lyf upp úr öllu valdi.
Hveijir heldur ráðherrann að noti
lyf meira, þeir sem eru heilbrigðir
eða þeir sem eru veikir? Eg bara
spyr.
Og nú kórónar ráðherrann allt
saman með því að tala um að
heimta peninga af þeim sem liggja
á spítölum. Mér þykir sjálfri næg
bölvun að þurfa oft að gista spítal-
ana en ráðherrann virðist telja
eðlilegt að krefjast þess að við
borgum fyrir þessa „þjónustu“.
Og hann kemur úr flokknum mín-
um sem kom á tryggingum fyrir
almenning á íslandi á sínum tíma,
á tíma Haraldar Guðmundssonar!
Það er talað um það að spara.
Hvernig væri að hætta að spara
með því að taka alltaf hreint af
sjúklingum, öldruðum og börnum,
það litla sem við höfum? Hvernig
væri að ráðherramir spöruðu við
sjálfa sig í staðinn ráðherrabílana
dýru og veisluhöldin? Mér er sagt
að það sé nóg af þeim. Mér er líka
sagt að ef hætt væri að styrkja
Sighvatur Björgvinsson
bændur til að framleiða allt of
mikið af landbúnaðarafurðum eins
og þeir gera núna myndi ekki
þurfa að spara svona við okkur
gamla fólkið? Ég vil biðja ráðherr-
ana um að. skoða hug sinn og
hætta að níðast á okkur sem erum
minni máttar. Og sérstaklega Al-
þýðuflokkurinn má ekki taka þátt
í slíkum ódrengskap.
Þóra Einarsdóttir
Strimlari er
týndur
Hann er aðeins 7 mánaða gam-
all og hvarf að heiman frá sér að
Hraunbraut 14, Kópavogi, á þriðju-
dag í seinustu viku. hann er brún-
bröndóttur með ljósan kvið, merkt-
ur með blágræna hálsól. Ef einhver
hefur séð hann, yrði sá hinn sami
mikils þakklætis aðnjótandi ef hann
hringdi í síma 43867.
♦ ♦ ♦
Leiðrétting
Fyrir mistök féll niður nafn á
höfundi bréfsins sem bar fyrirsögn-
ina „Gott mannlíf í Austursræti".
Bréfritarinn var Magdalena, sem
áður hefur skrifað í þessa dálka,
og eru hún og aðrir beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Víkveiji skrifar
Viku áður en stjórnarherrarnir
urðu að gefa eftir í Eþíópíu
og skæruliðar eða frelsissveitir (eft-
ir því hvernig á það er litið) Tigre-
hreyfingarinnar og Erítreumanna
náðu völdum hitti skrifari tvo unga
Erítreumenn í Svíþjóð. Öðrum
þeirra sérstaklega var mikið í mun
að tala um hörmungar þær sem
þjóð hans hefur liðið á undanfömum
árum, ekki bara þurrka og ýmsa
óáran náttúrunnar, heldur einnig
hvernig stjórnarher Mengistus hefði
murkað lífið úr þjóðarbrotunum.
Hann talaði um að Erítrumenn
ættu margt sameiginlegt með
Kúrdum, sem hefðu vakið vonda
samvizku vesturveldanna eftir
Persaflóastríðið.
Einnig talaði hann um margra
ára blóðuga styrjöld í Eþíópíu sem
stríðið er Evrópubúar og Bandaríkj-
amenn hefðu ekki viljað vita af.
Þessi maður var beinlínis sendur
af foreldrum sínum í burtu frá hinu
stríðshijáða landi vegna þess að
bróðir hans hafði verið drepinn í
stríðinu og foreldrarnir vildu ekki
missa báða syni sína á þennan hryll-
ilega hátt. Erítreinn í Svíþjóð lifði
fyrir fólkið sitt heima og hver ein-
asta króna sem hann aflaði fór í
baráttuna gegn stjórninni, og hvert
vtækifæri notaði hann til að vekja
athygli á málstað þjóðar sinnar.
XXX
Víkveiji var staddur í Leifsstöð
snemma morguns fyrir
skömmu til að taka á móti fólki,
sem kom með Flugleiðavél frá
Bandaríkjunum og hafði áður stað-
ið í tólf klukkustunda ferðalagi um
Bandaríkin til að komast í véiina
heim. I móttökusal Leifsstöðvar
horfði Víkverji á ferðalúna vini sína
koma einna fremst í hópi farþega
að vitja um farangur sinn, án þess
svo mikið sem að fara í Fríhöfnina.
Fljótlega fór færiband í gang með
farangurinn en ein taskan skilaði
sér ekki. Þegar liðið var á aðra
klukkustund frá lendingu voru jafn-
vel þeir farþegar sem iengstum tíma
höfðu eytt í Fríhöfninni komnir í
gegnum tollinn en ekkert bólaði á
töskunni. Þá sneru vinir Víkveija
sér til starfsmanna í flugstöðinni
og báru sig upp.
Starfsmaðurinn hafði greinilega
átt von á að þetta fólk leitaði til
sín, því hann ávarpaði það með
nafni og sagði að því miður hefði
taskan ekki komist með, borist hefði
skeyti frá Bandaríkjunum þess efn-
is skömmu eftir að vélin fór í loft-
ið. Lúnum ferðalöngunum létti að
vita af föggum sínum á vísum stað
en spurðu starfsmanninn hvers
vegna hann hefði ekki haft 'frum-
kvæði að því að koma þessum upp-
lýsingum til þeirra með því að kalla
þau upp í stað þess að láta þau
vakta færibandið að óþörfu í
klukkutíma. Fátt var um svör en
helst var á starfsmanninum að
skilja að hann hefði talið óþarfa að
taka þetta skeyti hátíðlega! Starfs-
fólk í flugstöðinni getur ekki verið
þekkt fyrir það að tefja viðskipta-
vini að óþörfu með þessum hætti.