Morgunblaðið - 25.07.1991, Side 35
35
! MORGUNBLAÐIÐ f'UMMTUDAeUfl 25. JÚU1991
Takið tillit til
Reiðskólinn Hrauni
Grímsnesi - sími 623020
Reiðskóli fyrir 10-15 ára unglinga
Utreidar og bókleg kennsla um hesta
oghestamennsku.
9 daga námskeið með fullu fæði.
Reiðskólinn Hrauni
Þar sem hestamennskan hefst!
l/y stjörnuspekistöóin gunnlaugur guðmundsson
^ miðbæjarmarkaðnum
sendum í póstkröfu aðalstræti 9, sími 10 3 77
Kaupmannahöfn
KR. 19.7507
Fast verð án flugvallarskatts og forfallatryggingar.
| Til samanburðar: Ódýrasta superpex til
| Kaupmannahafnar á 33.750 kr. Þú sparar 14.000 kr.
1 Flogið alla miðvikudaga og föstudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir.
= FLUGFERÐIR
= SQLRRFLUC
__________Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
íbúa miðbæjarins
Hvers eigum við að gjalda, sem
kjósum að eiga heima í miðbænum?
I dag er sunnudagur og ég vaknaði
snemma og hugðist njóta veðurblíð-
unnar úti í garði. En viti menn, þá
er byrjað að vinna í grunni nýja
bílageymsluhússins á horni Smiðju-
stígs og Hverfisgötu, og það upp
úr klukkan átta á sunnudags-
morgni!
Að vísu er að mestu hætt að
sprengja þar, en þá voru þeir hrein-
lega að gera út af við okkur hérna
í næsta nágrenni, bæði virka daga
og um helgar hristist allt og nötr-
aði, en núna var þessi ærandi vinnu-
vélahávaði. Finnst ykkur þetta
mönnum bjóðandi? Yrði svona látið
viðgangast í öðrum hverfum borg-
arinnar?
Annað langar mig einnig til að
minnast á, en það eru þessar óend-
anlegu bílastæðaframkvæmdir.
Búið er, og verið er, að byggja fjöld-
ann allan af bflageymsluhúsum í
miðborginni, auk allra auðu svæð-
anna, sem er búið að leggja undir
bílastæði. Þessi hús eru varla hálf-
nýtt, og sömu sögu er að segja um
bílastæðin. Hvers vegna þá að
byggja fleiri?
Fólk leggur helst ólöglega, eða í
merktum einkastæðum, til þess að
losna við að borga, það hlýtur að
vera ástæðan, því oft er til að dreifa
stæðum jafn nálægt Laugavegin-
um, sem eru lögleg, auk þess sem
bílageymsluhúsin gætu tekið við
miklu fleiri bílum! Komið hefur fyr-
ir að lagt er fyrir bílinn hjá manni,
fyrir hliðið, inni í görðunum og jafn-
vel úti á miðri götu, þannig að eng-
inn kemst framhjá, nema þá við ill-
an leik. Munduð þið, kæru bílstjór-
ar, leggja svona í ykkar eigin götu?
Hvernig væri að taka jafn mikið
tilit til samborgaranna hvar í bæn-
um sem þeir búa?
íbúi í miðbænum
Bjarni ekki nógu vel heima
Nokkur umræða hefur orðið um
sjónvarpsþátt þann, sem Ingimar
Ingimarsson stjórnaði og ræddi við
þá Jón Baldvin Hannibalsson og
Bjarna Einarsson.
Eitthvað hafa menn verið að
senda Ingimar tóninn fyrir stjórn
hans á þættinum, sem raunar var
vandasöm nokkuð, en hér verður
ekki lagt mat á það atriði. Hitt vil
ég segja, að Bjarni Einarsson virt-
ist ekki vera nægilega vel heima í
þeim atriðum, sem þarna voru til
umræðu. Ráðherrann var aftur á
móti að íjalla þama um hluti, sem
hann er þaulkunnugur. Hefur meira
að segja stjórnað fjölþjóða viðræð-
um um þessi efni og staðið sig þar
afburða vel.
Því vil ég raunar bæta við, að
ekki er að undra, þótt ýmsir hafi
ekki í fullu tré við Jón Baldvin í
kappræðum, enda er hann almennt
álitinn málsnjallasti maðurinn á
Alþingi. Að því er ræðumennsku
varðar, minnir hann mjög á sinn
fræga föður, sem mestur hefur ver-
ið „folketaler“ íslenskra stjórnmála-
manna á þessari öld.
Sigríður Jóhannsdóttir
Samt var þar falskur tónn
Ég var að lesa dóm Jóns Ásgeirs-
sonar um söng Hamrahlíðarkórsins
í blaðinu 18. þ.m. Hann var að venju
skýr og skilmerkilegur. Þó verð ég
að bæta við, að ég kunni því afar
illa, að kórinn skyldi kynna söng-
skrána og sjálfan sig á ensku, þar
á meðal nöfn kórfélaga með þessu
líka frumstæða stafrófi sem notað
er í ensku. Kynningin var samin
handa áheyrendum á alþjóðlegu
kóramóti á Spáni. Það gat ekki
verið mikið mál með nútíma rit- og
prenttækni að íslenska kynninguna.
íslensk tunga á við í Reykjavík.
Það athugi allir.
Tónlistarunnandi
MIKILL AFSLATTUR
THVALIOAO GEfíA
G00INNKAUP FYRIR
VERSLUNARMAI..
(i%KARNABÆR
|_AUGAVEGI 66 • SÍMI 22950
DÖMU- HERRA- OG BARNADEILD