Morgunblaðið - 25.07.1991, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991
NEYTENDAMÁL
Á ferð um landið
í sumri og sól
í BLÍÐVIÐRINU að undanförnu hefur landið skartað sínu fegursta
litskrúði, eins og rétt til að laða fólk til ferðalaga, það hefur líka
verið dýrðlegt að ferðast um hér í sumar. I árlegri sumarferð um
landið var því veitt athygli að fleiri íslendingar virðast nú eyða
sumarfríum sínu í ferð um landið en oft áður. Ekki eru nema tvö
til þijú ár síðan að heyra mátti flest tungumál töluð á Edduhótelun-
um önnur en íslensku. Nú virðist breyting á.
íslendingar njóta betur en
áður fegurðar eigin lands
íslendingar eru í auknum mæli
að uppgötva fegurð og sérkenni síns
eigin lands. Það má vera að ferðalög
erlendis hafi orðið til þess að fólk
sér landið í öðru ljósi en áður. Ferða-
lög í framandi landi bjóða oft upp
á viðmiðun sem getur verið nauð-
synleg og er okkur oft hagstæð.
Hvar annars staðar í veröldinni er
hægt að ferðast jafn óhindrað um
landið og sjá svo vítt yfir sem hér.
Landið okkar en engu öðru líkt.
Tískusýning
í Naustkjallaranum
íimmtudaginn 25. jólí.
Sýnður verúur íatnaúur
írá msluninni
fflSM
/ Bomkrinnlunni.
Módelsamtökin sýna
kl. 21.30.
K#KkM Naustkjallarinn
Erlendir ferðamenn hafa
kynnt sér vel áhugaverða staði
Erlendir ferðamenn, sem hingað
koma hafa einnig uppgötvað sér-
kenni og fegurð landsins og þeir
hafa greinilega lesið sér vel til um
þá staði sem áhugaverðast er að
sjá. Þeir láta greinilega ekki hend-
ingu ráða viðkomustað. Við hittum
þá fyrir á ystu nesjum, inn til heiða,
og á öllum þeim stöðum sem á ein-
hvern hátt tengjast sögu lands og
þjóðar.
Umhverfi sögustaða víða til
fyrirmyndar en huga þarf
betur að öðrum
Landið sjáft er fallegt og hin
besta landkynning og margir sögu-
staðir eru til fyrirmyndar og má þar
nefna Hóla í Hjaltadal. Aðkoman
að hinu forna biskupssetri með Hól-
akirkju í forgrunni, er mjög hrífandi
sýn. Það er fallegt að Hólum og
snyrtimennska mikil. Bæjarmenn
hafa komið upp gönguslóð tengda
sögu Hóla, ferðamönnum til fróð-
leiks. Þetta framtak eykur mjög
gildi staðarins fyrir ferðamenn inn-
lenda sem erlenda.
Sömu sögu er ekki að segja um
Skálholt, hið forna biskupssetur og
höfuðstað landsins um aldir. Þegar
ekið er í Skálholt er komið að kirkj-
unni baka til sem dregur mjög úr
sterkum áhrifum vegna helgi stað-
arins. Breytt aðkoma að sunnan eða
vestan gæti gert aðkomuna að hinu
foma biskupssetri mun tilkomumeiri
í hugum gesta. Sögu staðarins
mætti rækta betur. Fæstir vita að
undir óræktarsvæði sunnan við
kirkjuflötina liggja tóftir og menjar
fomra bygginga Skálholtsstaðar. Á
meðan þessar tóftir eru ekki grafn-
ar upp mætti merkja þá sögustaði,
sem þegar eru þekktir, og útbúa
síðan gönguslóð, einskonar „sögu-
braut“, þar sem fólk gæti fundið
tengsl við sögu staðarins.
Margar kirkjur héraðsprýði -
aðrar þurfa betra viðhald
Kirkjur eru oft þeir staðir á lands-
byggðinni sem athygli ferðamönn-
um er sérstaklega vakin á, þó er
víðast komið að lokuðum dyrum.
Margar kirkjur em til fyrirmyndar
hvað umhirðu snertir. Má þar nefna
Þingeyrarkirkju og og kirkjuna á
Kirkjubæjarklaustri, er hún eina
kirkja á landsbygginni sem við kom-
um að, sem stendur opin. Væri ekki
hægt að fjarlægja úr kirkjum verð-
mæta kirkjumuni, þar sem ekki er
gæslufólk á staðnum, og láta kirkj-
urnar standa opnar yfir sumartím-
ann? Safnbaukar mættu liggja þar
frammi. Margir ferðamann myndu
án efa láta eitthvað fé af hendi
rakna til viðhalds á kirkjunum, þó
ekki væri nema fyrir málningaryfir-
ferð og hreinsun á næsta umhverfi
margra þeirra.
A byggðarsöfnum eru rætur
lands og þjóðar
Byggðasöfnin eru mjög áhuga-
verð og er viðhald þeirra og varð-
veisla mjög til fyrirmyndar enda
mjög eftirsótt af ferðamönnum. Má
þar m.a. nefna söfnin í Glaumbæ í
Skagafirði, Reykjum í Hrútafirði og
Skógum undir Eyjafjöllum. Þessi
söfn eiga margt sameiginlegt en
hvert þeirra um sig kynnir atvinnu-
sögu eigin héraða. Glaumbær kynn-
ir vel bændasamfélagið, á Reykjum
má einnig kynnast sögu hákarla-
veiða, og í Skógum hinu blandaða
samfélag fiskimannsins og bóndans,
og mikils hagleiksfólks. Það virðist
sem í Skaftafellssýslum hafi verið
meiri alúð lögð á fágað handverk
en í öðrum sýslum landsins, um það
bera munir safnsins í Skógum
glöggt vitni.
Lítið þekkt héraðssöfn -
Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi
í sýslum landsins leynast einnig
lítil söfn sem ferðamönnum eru lítt
kunn. Eitt þessara safna er heimilis-
iðnaðarsafnið á Blönduósi sem ber
nafn Halldóru Bjarnadóttur, Hall-
dórusafn, og er það til húsa í gam-
alli útihúsabyggingu við gamla
Kvennaskólann á Blönduósi. í þessu
safni er margt fagurlega unninna
muna, sérstaka athygli vekja hand-
unnin klæði úr mjúkri ull, sem sýna
betur en nokkuð annað hvað hægt
er að vinna úr fína þræði úr ís-
lensku ullinni þegar rétt er að mál-
um staðið. Ullin hefur einnig verið
lituð úr íslenskum jurtum og koma
þeir skemmtilega á óvart. Safnið
ættu allir að skoða sem trú hafa á
möguleikum og framtíð íslensks ull-
ariðnaðar og góðu handverki.
Bakarí á Blönduósi á
heimsmælikvaðra
Á Blönduósi er annar staður mjög
nýtískulegur og er það „Krútt“ bak-
aríið sem jafnframt er kaffihús - á
heimsmælikvarða. Staðurinn er
mjög bjartur og snyrtilegur, þar er
á borðstólum gott kaffibrauð og
gestum mætir hlýlegt viðmót af-
SILKINEGLUR
.S7V YR riSTOI A /V ÁGÍJSTA
býður nú hinar vönduðu Backscratchers gervineglur.
Þettaeru glæsilegarneglursem endast vel,
skaða ekki þínar eigin neglur og hægt að hafa þær án naglalakks.
Einnig bjóðum við Clarins meðferð fyrir andlit, barm og líkama. Fótaaðgerð,
vaxmeðferð, Sylvia Levis varanlega háreyðingu og að sjálfsögðu alla aðra þjónustu.
Pantaðu tíma strax í síma 29070.
mimismi
« «
KLAPPARSTlG 16
101 REYKJAVlK
S I M I : 2 9 0 7 0
ÁCÚSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
JÓRUNN SIGURJÓNSDÓTTIR
Á hinu forna biskupssetri á Hólum í Hjaltadal er fagurt umhverfi
og mjög snyrtilegt.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blöndu-
ósi geymir fínofin klæði úr ís-
lenskri ull.
greiðslufólksins. Þetta glæsilega
bakarí er enn ein áminning um það,
að í viðskiptum þarf ekki alltaf
harða samkeppni til að viðhalda
gæðum, sé eðiilegur metnaður er
fyrir hendi.
Ferðamenn ferðast hagkvæmt,
verðlag er hér mjög hátt
Sjaldan hefi ég mætt fleiri erlend-
um ferðamönnum á ferð um landið
og í ár, en þeir reyna greinilega að
ferðast á jafn hagkvæmana hátt og
við íslendingar gerum sjálfir. En
það verður að viðurkenna að verðlag
er óheyrilega hátt hér á landi. Ef
matur á veitingastað er tekinn fyrir
sérstaklega, þá virðist annað hvort
boðið uþp á sjoppufæði, þ.e. brauð,
hamborgara og djúpsteiktan mat,
eða málsverði í sama verðflokki og
dýrustu veitingastaði erlendis. Slíka
málsverði er e.t.v. hægt að veita sér
einu sinni tvisvar i ferð, en ekki á
daglega.
Veitingastaði skortir
sem bjóða einfaldan mat
á lægra verði
Hér á landi vantar tilfínnanlega
veitingastaði sem bjóða upp á ein-
faldan kjarngóðan heimilismat á
lægra verði, milliverði, borinn fram
á snyrtilegan hátt jafnvel í kaffiter-
íustíl, sem hinn almenni ferðamaður
erlendur sem innlendur telur sig
hafa efni á að veita sér. Þarna
gæti einnig verið kjörið tækifæri
að kynna erlendum ferðamönnum
íslenskan fisk. Fiskur er dýr erlend-
is og eftirsóttur og flestir vilja gjarn-
an fá eitthvað hér sem telst sérkenn-
andi fyrir landið sem þeir sækja
heim. Veitingastaðir gætu lagt sig
fram við að gera fiskinn lystugan
og matreiðslan þyrfti ekki að vera
flókin. Bjóða mætti upp á ofnbakað-
an fisk einn daginn, fjölbreytta salt-
fiskrétti annan daginn, og matar-
miklar fiskisúpur með heitu brauði
þriðja daginn, fiskibollur í góðri sósu
hinn fjórða o.s.frv. og svo íslenskt
skyr í ábæti. Það er í raun furðu-
legt hér hjá þessari miklu fiskveiði-
þjóð hversu lítil áhersla er lögð á
fiskrétti á matseðli veitingastaða,
sérstaklega á landsbyggðinni.
Langur afgreiðslutími
á veitingastöðum
Á veitingastöðum fer fram mikilvæg
landkynning, því að í gegnum
bragðlauka erlendra viðskiptavina
er oft lagður grunnur að sölumögu-
leikum margra íslenskra matvæla á
erlendri grund.
Ein veikasta hlið margra veiting-
astaða hér á landi, sérstaklega þar
sem verð er í hærra lagi, er hinn
óheyrilega langi afgreiðslutími á
málsverðum eftir að pöntun hefur
verið lögð fram. Á þægilegum veit-
ingastað á Akureyri, „Fiðlaranum á
þakinu“, var biðin eftir einfaldri
máltíð heil klukkustund. Við vorum
fjögur og einu gestirnir á staðnum
a.m.k. fyrsta hálftímann. Það var
fyrst eftir að aðrir gestir höfðu lát-
ið sjá sig á staðnum, að líf virtist
færast í kokkinn í eldúsinu, enda
var bið annarra eftir matnum
skemmri en okkar. Slík þjónusta er
móðgun við gesti og tilhneiging
verður til að sniðganga slíka staði
í framtíðinni.
Hríseyjarkálfar með vel
fituofið kjöt
Það fer ekki hjá því, þegar komið er
í Eyjafjörð, að menn bregða sér
gjarnan til Hríseyjar, þó ekki væri
til annars en til að kanna hvort
nautakjöt af Galloway-kyni sé slíkt
afbragð sem af er látið. Sigling
þangað var afar skemmtileg í fögru
veðri. Bærinn í Hrísey er mjög
snyrtilegur, húsin máluð björtum
litum og umkringd vel hirtum görð-
um. Veitingastaðurinn Brekka
stendur hátt á áberandi stað í bæn-
um. Staðurinn mjög hlýlega innrétt-
aður og góður matarilmur mætir
gestum við komuna þangað. Á mat-
seðlinum voru fjölbreyttir réttir en
aðeins tveir réttir úr nautakjöti og
voru þeir báðir prófaðir. Annar var
úr langsoðum lærisvöðva og hinn
grilluð steik. Maturinn var ágætur,
en við töldum okkur ekki finna mik-
inn mun á þessu kjöti og öðru nauta-
kjöti. Kokkurinn sagði, aðspurður,
að kjötið af Hríseyjarkálfum væri
allt vel fituofið og því mun meyrara
en annað nautakjöt hér á landi.
Edduhótel og ferða-
þjónusta bænda
Eftir góða máltíð er farið í nætur-
stað. Segja má að hér á landi hafi
Edduhótelin og önnur hótel sem
bjóða upp á milliverð, svo og ferða-
þjónusta bænda, rennt styrkum
stoðum undir ferðamannaiðnaðinn.
Verð fyrir gistingu á þessum gisti-
stöðum er innan þeirra marka sem
hinir almennu ferðamenn innlendir
og erlendir bæði geta og vilja greiða
fyrir næturgistingu. Þetta eru ágæt-
ir áningastaðir í hlýlegu umhverfi.
Þjónusta á Edduhótelum hefur verið
samræmd meira en áður og er mjög
til fyrirmyndar.
Ferðaþjónusta bænda er ekki síðri
og á án efa eftir að aukast í framtíð-
inni. Aðstæður eru mismunandi frá
einum stað til annars, en þar sem
okkur bar að garði var hún mjög
góð. Gestgjafar leggja sig fram við
að gera dvöl gesta sem þægileg-
asta. Þjónustan er öll persónulegri
en á hótelum og það er gaman að
ræða við heimafólk yfir morgun-
verðarborði um landsmálin og lífíð
á landsbyggðinni.
Sumarferðii um landið sem
nýr aflgjafi
Það er alltaf mjög ánægjulegt að
hitta fyrir jákvætt fólk bjartsýnt á
framtíð lands og þjóðar. Bjartsýni
er öllum nauðsynleg þar sem bjart-
sýnir leitar lausna og sýnist ekkert
óyfirstíganlegt. Sumarleyfi í öðru
umhverfi en fólk á að venjast bregð-
ur nýju sjónarhomi á lífið og tilver-
una. Ferðir um landið eru sem nýr
aflgjafi, ekki síst á jafn sólríku
sumri og við orðið aðnjótandi í ár.
M. Þorv.