Morgunblaðið - 25.07.1991, Side 39

Morgunblaðið - 25.07.1991, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 39 KNATTSPYRNA Ásgeir fyrsti landsliðs- þjálfarinn í fullu starfi ÁSGEIR Elíasson; nýráðinn landsliðsþjálfari Islands í knattspyrnu, verður í fullu starfi hjá Knattspyrnusam- bandinu og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur landsliðs- þjálfari er ráðinn ífullt starf. Það á eftir að ganga endanlega frá starfsrammarium en það er búið að ráða Ásgeir og ræða kaup og kjör en starfssviðið liggur ekki alveg fyrir enn,“ sagði Egg- ert Magnússon formaður KSI í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ásgeir verður í fullu starfi hjá Asgeir Elíasson KSÍ og hann er því fyrsti íslenski landsliðsþjálfarínn sem ráðinn er í fullt starf. Hann mun því líklega vinna við fræðslumál á okkar veg- um. Það var nú reyndar líka hugs- unin þegar Svíinn var ráðinn en það nýttist ekki sem skyldi, vegna þess að hann var ekki hér allt árið. En Ásgeir verður í fullu starfi allt árið. Það er einnig inni í myndinni að hann sjái um landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri hjá okkur. Eins og riðlaskiptingin er núna, þar sem U-21 árs liðið leik- ur daginn á undan A-liðinu, er mjög hentugt að hafa sama þjálf- ara fyrir bæði liðin,“ sagði Eggert. Aðspurður um hvenær_ Ásgeir tæki til starfa hjá KSÍ sagði Eggert: „Það er-engin dagsetning í því sambandi. Hann klárar keppnistímabilið með Fram og það klárast ekki fyrr en í fyrsta lagi 3. október. Hann stjórnar lands- liðinu 25. september á móti Spán- veijum og ég lít svo á að við fáum hann lánaðan í þann leik. Eftir leikinn fer hann síðan með Fram til Grikklands og ef þeir komast ekki áfram byijar hann fljótlega upp úr því, en auðvitað þarf hann sitt frí.“ Sigurður skoraði - í ágóðaleik með Arsenal í gærkvöldi. Hefur náð sér alveg af meiðslunum SIGURÐUR Jónsson skoraði fyrir Arsenal í gærkvöldi, er lið- ið gerði jafntefli, 1:1,gegn4. deildarliði Aldershot á útivelli — í ágóðaleik fyrir Len Walker, fyrrum stjóra félagsins. Sigurður lék allan tímann og gerði mjög fallegt mark. Beint úr aukaspymu. Brotið var á Micha- el Thomas rétt utan við vítateig og WKKKKKM Sigurður skoraði Frá Bob beint — þrumaði Hennessy gegnum vegginn og i Englandi knötturinn flaug í netið neðst í hom- inu. Þetta var á 79. mín. en Alders- hot náði að jafna skömmu fyrir leikslok. Sigurður lék á miðjunni ásamt Michael Thomas, David Rocastle sem var á hægri vængnum og Perry Groves, sem var vinstra megin. í vöminni voru þrír sem leikið hafa með a-liðinu; David O’Leary, Linig- an og Colin Pates, en aðrir í liðinu vom varaliðsmenn. Sigurður stóð sig vel í leiknum. Virðist hafa náð sér vel af meiðslun- um og var ánægður. „ „Ég hafði gaman af þessu, það gæti hjálpað mér að hafa skorað — hver veit?“ sagði hann við Morgunblaðið eftir leikinn. Hann fór ekki í æfingaferð Arse- nal til Svíþjóðar á dögunum, heldur var tveimur vikur lengur á íslandi en ráð var fyrir gert í upphafi, „til að æfa af krafti," eins og hann sagði. Er fall fararheill? Sigurður Grétarsson og félag- ar í Grasshopper hófu titil- vörn sína í gærkvöldi, er sviss- neska deildarkeppnin hófst á ný eftir sumarleyfi. Byijunin var ekki glæsileg — 0:4 tap gegn Aarau á útivelli. „Við fengum á okkur víti á klaufalegan hátt snemma í leikn- um, sóttum síðan og sóttum en þeir fengu hraðaupphlaup og skoruðu!“ sagði Sigurður við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Við áttum að fá víti þegar staðan var 1:0, einn leikmanna Aarau tók knöttinn með hendi innan teigs, en ekkert var dæmt. En þeir vom beittari en við, mjög baráttuglaðir og léku ekki illa,“ sagði Sigurður. Hann sagði mál- tækið „Fall er fararheill" hafa átt við í fyrra er liðið tapaði fyrsta leik og varð síðan meistari — og vonast til að sama yrði upp á ten- ingnum í vetur. GOLF / LANDSMOT Góð þátttaka í meistaraflokki LANDSMÓTIÐ í golfi hefst í næstu viku, en að þessu sinni er leikið á tveimur völlum, hjá Golfklúbbi Hellu og hjá Keili í Hafnarfirði. Frestur til að skrá sig í mótið hefur verið framlengdur um tvo daga og því geta menn skráð sig í dag og á morgun föstudag. Að sögn Frímanns Gunnlaugssonar, fram- kvæmdastjóra Golfsambands ís- lands, var ákveðið að framlengja frestinn fyrst og fremst vegna þess að nú er allt tölvuvætt og því tekur skemmri tíma en áður að gera allt tilbúið fyrir mótið. „Maður hefur heyrt að sumum finnist 6.500 kr. og mikið fyrir eitt mót, en í fyrra kostaði 5.000 kr. Gjaldið sjálft er 6.000 kr. í ár og svo fá allir golfhúfu og því var 500 kr. bætt við. Ég veit ekki hvað keppendur verða margir, skráning fer fram hjá klúbbunum, en ég veit að það verður mjög góð þátttaka í meistaraflokki karla. Annars höfum við rætt hvort góðviðrið í sumar geti dregið úr þátttöku. Menn hafa spilað svo mikið golf að það gæti dregið eitt- hvað úr. Fyrir áratug samþykkti golfþing þátttökugjald í opin mót en stóru klúbbarnir fengu því breytt þannig að þeir ákveða sjálfir verðið. Einnig má geta þess að þeir klúbbar sem sjá um mótið fá 50% af þátttöku- gjöldum," sagði Frímann. Sigur&ur Jónsson er farinn að leika með Arsenal á ný eftir langvarandi meiðsli og skoraði fallegt mark í vináttuleik í gærkvöldi. FRJALSIÞROTTIR Pétur kastaði kúlunni 19,95 m Pétur Guðmundsson, HSK, varpaði kúlunni 19,95 m á Selfossvelli á þriðjudagskvöld. Þetta mun vera besti árangur Péturs utanhúss á þessu sumri. Kúlan flaug langt yfir tuttugu metrana í upphitun- inni, svo greinilegt er að Pétur er að komast í betri æfingu fyrir heims- meistaramótið í Tókýó í haust, þar sem Pétur stefnir á verðlaunasæti. ÍÞRÚMR FOLK ■ DAVID Platt, enski landsliðs- maðurinn hjá Aston Villa, var seld- ur til ítalska félagsins Bari á dög- unum fyrir andvirði um 600 milljóna ÍSK. „Þessi samn- FráBob ingur gerir mig að Hennessy miljónamæringi á lEnglandi ejnnj n5ttu,“ sagði Platt, eftir að hann skrifaði undir. Talið er að hann verði með um 625.000 pund í fa^P kaup á ári — um 64 milljónir ÍSK — þegar búið er að draga skattinn frá... ■ DOUG Ellis, forseti Aston Villa, gerði góðan samning við Bari. í honum flest m.a. að verði Platt seldur þaðan fyrir hærri upp- hæð en ítalska félagið greiddi nú, fær Villa helming þeirrar upphæðar sem umfram er. ■ ELLIS samdi einnig um að fé- lögin mætist í tveimur vináttuleikj- um; öðrum á Ítalíu og hinum á Villa Park. Enska félagið fær hvern eyri sem kemur inn í aðgangseyri á báðum leikjum, og er búist að það geti orðið um ein milljón punda_ — rúmlega 100 milljónir ÍSK! ■ ENSKU félögin eru nú að und- irbúa sig fyrir tímabilið. Nokkur eru á írlandi; Tottenham vann Sligo Rovers 4:0 í fyrrakvöld og Li- verpool gerði markalaust jafntefli við Dundalk. ■ DEAN Saunders var með Li- verpool í fyrsta sinn í fyrrakvöld og þótti standa sig mjög vel. Mark- vörður írska liðsins átti stórleik og kom í veg fyrir tap. ■ IAN Rush er meiddur og verður varla með Liverpool næstu tíu vik:‘ urnar. Hann á við meiðsli í hásin að stríða; meiðsli sem hann varð fyrir í landsleik Wales og Þýska- lands sl. vetur, og var settur í gifs á dögunum. ■ STAÐA enska landsliðsmanns- ins Peters Beardsley vænkast við meiðsli Rush — reiknað var með að hann yrði jafnvel seldur eftir að Dean Saunders var keyptur til Liverpool, en nú er hann fyrsti maður inn í stað Rush. ■ JAN Mölby er ekki eins ánægð- ur. Hann komst ekki í 16 manna hóp Liverpool sem fór til írlands, og heldur þaðan til Þýskalands og Svíþjóðar. Talið er líklegt að hann sé ekki í framtíðarmynd GraeJne" Souness, stjóra félagsins. ■ HINN Norðurlandabúinn hjá félaginu, Svíinn Glen Hysen, var líka skilinn eftir í Liverpool. ■ PETER Shreeves, sem kom aftur til Tottenham frá Watford á dögunum, til að sjá um aðalliðið ásamt Terry Venables, er nú sagð- ur stjóri liðsins og sjá alfarið um það. Venables, sem kominn er í stjórn félagsins, ætli sér ekki að skipta sér af þeirri hlið mála lengur. KNATTSPYRNA Ásgeir skoðar gríska liðið ÁSGEIR Elíasson, þjálfari Framara, ætlar í næstu viku að bregða sér til Lundúna til að fylgjast með mótherjum Fram í Evrópukeppni meistaraliða. Fram leikur við grísku meistar- ana Panathinaikos frá Aþenu en liðið tekur um mánaðamótin þátt í fjögurra liða móti í Lundún- um. Þar verða auk þeirra lið Arse- nal, Sampdoria og West Ham. Mótið verður um aðra helgi og ætlar Ásgeir að líta á leiki grísku meistaranna og kynna sér hvernig þeir leika til að vera sem best undir- búinn þegar Fram mætir þeim grísku á Laugardalsvelli um miðjan september. Ljóst er orðið að sjónvarpað verð- ur beint frá leiknum á Laugardaís- velli til Grikklands og hefst leikur- inn klukkan 17.30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.