Morgunblaðið - 03.08.1991, Síða 17

Morgunblaðið - 03.08.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991 17 öðrum greinum, ef svo hefði verið að verki staðið. Ríkisafskiptin hafa því kostað rækjuvinnsluna miklar fjárhæðir. Ríkisafskipti verða því miður við lýði í sjávarútvegi hvort mönnum þykir betur eða verr á meðan kvóta- kerfið blífur. Ríkisstyrkir í sam- keppnislöndunum verða einnig íslenskum rækjuframleiðendum erf- iður ljár í þúfu á meðan slíkir styrk- ir eru þar til staðar. Þessar einföldu staðreyndir um það umhverfí sem rækjuvinnsla og raunar aðrar greinar sjávarútvegs lifa og hrærast í mega ekki gleym- ast, þegar stjórnvöld móta stefnu sína í atvinnumálum. Það er því miður ekki hægt að segja við menn: Nú standið þið á eigin fótum, hvern- ig sem þið verðið leiknir af eigin ríkisvaldi og ríkisstyrkjum í sam- keppnislöndunum! Menn verða að horfa á raunveruleikann eins og hann er. Skynsamleg stefnumörkun framleiðenda og ríkisvalds í at- vinnumálum verður að miðast við staðreyndir, en ekki meiri eða minni óljósa óskhyggju. Stefnumörkun til frambúðar - þjóðarátak gegn stöðnun og samdrætti í atvinnulífinu Við horfum nú fram á mikinn samdrátt í framleiðslu sjávarafurða vegna veikra fiskistofna. Rækju- stofnarnir eru á hinn bóginn sterk- ir og öll úthafsrækjumið fráleitt fundin enn. Rækjuframleiðslan sjálf hefur þegar að verulegu leyti aðlag- að sig til að mæta markaðsáfallinu og mun vafalítið sigrast á því, ef rétt er á haldið. Margt bendir til að markaður fyrir skelfletta kald- sjávarrækju sé að styrkjast og að einungs sé um tímabundna lægð í verði þessara gæðaafurða að ræða. Betri nýting rækjuauðlindarinnar er því augljóslega einn af þeim kostum, sem við Islendingar höfum til að vinna okkur út úr efnahags- legri stöðnun undangenginna ára og fyrirsjáanlegum samdrætti í framleiðslu ýmissa sjávarafurða á næstunni. Að slíku átaki verður auðvitað ekki unnið með umræðum út og suður í ijölmiðlum. Til þess þurfum við þvert á móti markvissa stefnu- mörkun samtaka framleiðenda, stofnana sem vinna í þágu sjávarút- vegs og stjórnvalda. Kjarni málsins er sá að afar vel hefur verið á marga lund að verki staðið í yngstu vaxtargrein _ sjávarútvegsins, rækjuvinnslunni. Á þeim grunni er mikilvægt að stjórnvöld og fram- leiðendur taki höndum saman og marki frambúðarstefnu, sem tryggi hámarks afrakstur rækjuauðlindar- innar á komandi árum þjóðinni til heilla og þeim sem vinna að nýtingu hennar. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda. Nú er TVÖFALDUR 1. vinningur Náttúruverndarráð: Islenskur leiðsögu- maður með Austurrík- ismönnum Búið er að uppfylla kröfu undan- þágunefndar Ferðamálaráðs um að íslenskur leiðsögumaður fari með austurríska hópstjóranum, Josef Mörtl, í aðra för hans um landið. Náttúruverndarráð hafði farið fram að það að Mörtl yrði sviptur undanþáguleyfi sem leið- sögumaður vegna slæmrar um- gengni hóps er hann fór fyrir fyrr í sumar. Þóroddur Þóroddsson hjá Nátt- úruverndarraði sagði að ráðið vildi síður en svo eyðileggja fyrir ferða- mönnunum í þessum nýja hópi sém ættu ekki hlut í máli fyrri hópsins og að hann vonaði hið besta um umgengni hópsins. Að sögn Þór- odds bætist íslenskur jarðfræðingur í hópinn í gær og á hann að vera bæði leiðsögu- og aðstoðarmaður. Hann sagði að lítill tími hefði verið til þess að leysa málið og erfitt hefði verið að finna leiðsögumann með litlum fyrirvara. Hjá Náttúru- verndarráði var talið að austurríkja- maðurinn færi með hóp sinn af stað í gær en síðan bárust upplýsingar um að hópurinn hefði farið í fyrra- dag en íslenski jarðfræðingurinn slóst í hópinn í gær. Þóroddur benti á að enn stæði eftir sú grundvallarspurning um það hvernig eigi að standa að leyfi- sveitingum til erlendra hópstjóra. Hann sagði að Náttúruverndarráð væri ábendingar og umsagnaraðili í þessum málum og starfsmenn þess myndu ræða þetta mál við starfsmenn Ferðamálaráðs en það væri hlutverk þeirra að marka stefnu í ferðamálum. ■ NÁTTÚRUVERNDARFÉ- LAG Suðvesturlands stendur fyrir skoðunarferð með gömlu höfninni í Reykjavík og Sundahöfn í dag. Siglt verður á milli hafnanna. Ferð- in hefst kl. 13.30 við Hafnarhúsið að vestanverðu og gengið um gömlu höfnina og ýmislegt markvert skoð- að sem viðvíkur lífríki og mann- virkjum. Að því loknu verður farið í siglingu með ströndinni inn í Sundahöfn og hafnarsvæðið skoð- að. Til baka verður siglt í gömlu hofnina og ferðinni lýkur þar. í sjó- ferðunum verður lífríki grunnsvæð- isins kynnt. • draumurinn gæti orðið að veruleika! W. 10-18 kl. 10-14 LOKAÐ kl. 10-14 Nlikligarður JL; Mikligarður Garðabæ Wlikligarður Nl'ðvang Mikligarður y/Syna KAUPSTAÐUR yyx AAMMÆM Mf*AT%r\M IB rpi » íTíí-f' ivq rurlil ■go rn ín J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.