Morgunblaðið - 03.08.1991, Page 28
28.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991
M-hátíð á Hellu:
Fjölmenni við opnun
myndlistarsýningar
MIKIÐ fjölmenni var við formlega opnun myndlistarsýningar á
vegum M-hátíðarnefndar og menntamálaráðuneytisins laugardaginn
27. júlí sl. á Hellu.
Listamennirnir Elías Hjörleifs-
son, Guðrún Svava Svavarsdóttir
og Gunnar Örn Gunnarsson sýna
verk sín í stóru húsnæði sem áður
hýsti kjötvinnslu. Hefur það
mælst vel fyrir að húsið, sem stað-
ið hefur autt í nokkur ár, hafi nú
fengið nýtt hlutverk og ekki síður
ánægjulegt að það skuli vera í
þágu listagyðjunnar.
Við opnunina fluttu ávörp Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra og 1. þingmaður Sunnlend-
inga og Óli Már Aronsson oddviti
Rangárvallahrepps.
Kvartett, skipaður þeim Rúnari
Georgssyni saxafónleikara, Birni
Thoroddssen gítarleikara, Bjarna
Sveinbjörnssyni kontrabassaleik-
ara og Guðmundi Steingrímssyni
trommuleikara, lék djass af fingr-
um fram, skemmtileg tilbreyting
við þetta tækifæri.
Sýningjn stendur til 11. ágúst
og er opin daglega kl. 16.00 til
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Djasskvartettinn er skipaður þeim Rúnari Georgssyni saxafónleik-
ara, Birni Thoroddsen gitarleikara, Bjarna Sveinbjörnssyni
kontrabassaleikara og Guðmundi Steingrímssyni trommuleikara.
Norðurland vestra:
Kaupfélag
Skagfírðinga
greiðir mest
KAUPFÉLAG Skagfirðinga á
Sauðárkróki greiðir hæst álögð
gjöld í Norðurlandsumdæmi
vestra en ekki Skagstrendingur
hf. eins og sagt var í Morgunblað-
inu á fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum frá
skattstjóraembættinu á Siglufirði,
sem birtust í blaðinu á fimmtudag,
voru opinber gjöld Skagstrendings
hf. ákveðin 21.540.866 kr. en Kaup-
félagsins 21.136.898 kr. Við þá upp-
hæð, sem Kaupfélaginu er gert að
greiða, bætast hins vegar aðstöðu-
gjöld í öðrum sveitarfélögum en
Sauðárkróki, þannig að heildargjöld
þess hækka í 23.423.815 kr.
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. ágúst 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................. 12.123
'A hjónalífeyrir ...................................... 10.911
Full tekjutrygging ..................................... 26.909
Heimilisuppbót .......................................... 9.174
Sérstök heimilisuppbót .................................. 6.310
Barnalífeyrir v/1 barns ................................ 7.425
Meðlag v/ 1 barns ....................................... 7.425
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.653
Mæðralaun/feðralaunv/2jabarna .......................... 12.191
Mæðralaun/feðralaunv/3jabarnaeðafleiri ................. 21.623
Ekkjubætur/ekkilsbæturé mánaða ......................... 15.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ....................... 11.389
Fullur ekkjulífeyrir ................................... 12.123
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) ............................ 15.190
Fæðingarstyrkur ........................................ 24.671
Vasapeningar vistmanna ..................................10.000
Vasapeningarv/ sjúkratrygginga ..........................10.000
Daggreiðslur
Fuliirfæðingardagpeningar ............................ 1.034,00
Sjúkradagpeningareinstaklings .......................... 517,40
Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ............... 140,40
Slysadagpeningareinstaklings ........................... 654,60
Slysadagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ................ 140,40
21% tekjutryggingarauki, sem greiðist aðeins í ágúst, er inni í upp-
hæðum tekjutryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisupp-
bótar.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
2. ágúst.
FAXAMARKAÐURINN HF. í Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur(st) 90,00 55,00 56,62 2,575 145.802
Ýsa (sl.) 119,00 50,00 83,19 4,644 386.357
Blandað 32,00 10,00 16,39 0,062 1.016
Karfi 37,00 37,00 37,00 0,347 12.839
Keila 21,00 21,00 21,00 0,146 3.066
Langa 20,00 20,00 20,00 0,230 4.600
Lúða 415,00 365,00 390,25 0,133 51.905
Skarkoli 52,00 34,00 47,92 5,7787 277.338
Skötuselur 135,00 135,00 135,00 0,007 945
Steinbítur 63,00 20,00 58,55 0,933 54.623
Ufsi 25,00 8,00 25,00 3,015 75.375
Undirmál 59,00 11,00 30,70 8,465 259.839
Samtals 48,35 26,344 1.273.705
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur,
23. maí -1. ágúst, dollarar hvert tonn
Lagarefir í Bíóborginni
BÍÓBORGIN tekur til sýningar, sunnudaginn 4. ágúst, kvikmyndina
„Class Action", Lagarefir. I aðalhlutverkum eru Gene Hackman,
Mary Elizabeth Mastrantonio og Colin Friels. Myndinni leikstýrir
Michael Apted.
Þýskir ferðamenn;
Heldur
áfram ferð
sinni með
íslenskum
fararstjóra
SÝSLUFULLTRÚINN á Seyðis-
firði ákvað í fyrradag að hópur
þýskra ferðamanna yrði kyrr-
settur, þar sem hópurinn upp-
fyllti ekki reglur um íslenska
leiðsögn um landið.
Ferðamannahópurinn kom með
hópferðabíl með sér frá Þýskalandi,
en hafði ekki aflað sér undanþágu
frá Ferðamálaráði til þess að fá að
ferðast hérlendis án leiðsögumanns.
Mál ferðamanna leystist farsællega.
Þeim var útvegaður íslenskur leið-
sögumaður og þeir héldu í gær frá
Seyðisfirði undir fararstjóm hans.
Ljósmynda-
sýningn að
ljúka
Ljósmyndasýningu Barkar
Arnarsonar í Nýhöfn við
Hafnarstræti lýkur næstkom-
andi miðvikudag.
Börkur segir að sýningin
hafi gengið vel. Flestar þeirra
22 mynda sem hann sýnir eru
seldar.
Leiðrétting
Að gefnu tilefni vill Auglýsinga-
deild Morgunblaðsins taka fram að
heilsíðuauglýsing fyrir Bylgjuna,
sem birtist í Morgunblaðinu í gær,
(2. ágúst), er íslensku auglýsinga-
stofunni með öllu óviðkomandi.
Merking auglýsingarinnar eru mis-
tök Morgunblaðsins.
GENGISSKRÁNING
Nr. 145 2. ágúst 1991
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.16 Kaup Sala Gengl
Dollari 61,69000 61,85000 61,72000
Sterlp. 103.08400 103,35100 103,36200
Kan. dollari 53,64600 53,78500 53,71900
Dönsk kr. 9,05540 9,07890 9,09990
Norsk kr. 8,97440 8,99770 9,01550
Sænsk kr. 9.66170 9,68680 9,70440
Fi. mark 14.55470 14,59240 14,59960
Fr. franki 10.31170 10,33850 10.34230
Belg. franki 1,70110 1,70550 1,70890
Sv. franki 40.13660 40,24070 40,30040
Holl. gyllim 31,08980 31.17050 31,21510
Þýskt mark 35.04220 35,13310 35,19320
ft. líra 0,04692 0,04704 0,04713
Austurr. sch. 4.97960 4,99250 4,99980
Port. escudo 0,40850 0,40950 0,41010
Sp. peseti 0,56000 0,56150 0,56160
Jap. jen 0,44812 0,44928 0,44668
l'rskt pund 93.67600 93,91900 94,06100
SDR (Sérst.) 82,03100 82,24380 82,1 1720
ECU, evr.m. 71,94600 72,13260 72,24630
Tollgengi fyrir ágúst er sölugengi 29. júlí símsvari gengisskráningar er 62 32 70. Sjálfvirkur
Lagarefir fjalla um Jed Ward,
kunnan lögfræðing, sem hefur verið
falið skaðabótamál á hendur bif-
reiðaverksmiðju nokkurri. Málið er
DAGANA 2.-18. ágúst sýnir
kanadíski myndlistarmaðurinn
Kevin Kelly innsetningu á neðri
hæð Nýlistasafnsins.
ekki eins einfalt og í fyrstu virðist
og reynist verksmiðjan vera með
óhreint mjöl í pokahorninu.
Kevin Kelly hefur stundað mynd-
listarnám bæði í Kanada og Hol-
landi. Verk hans hafa verið sýnd
víða, bæði vestan hafs og í Evrópu.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og bróður,
GUNNARS JÓNSSONAR,
Glæsibæ 2,
Reykjavík.
Þóra Sigurbjörg Erlendsdóttir,
Inga Anna Gunnarsdóttir, Andrés F. Gíslason,
Agnes Gunnarsdóttir, Svanur Elíson,
Gunnar Þórir Gunnarsson, Marcia Gunnarsson,
Jón Ingvar Gunnarsson, Guðfinna Jónsdóttir,
Erlen Sveinbjörg Óladóttir, Sigurjón Sigurjónsson,
barnabörn og systkini.
Innsetningar í Nýlistasafninu