Morgunblaðið - 03.08.1991, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.08.1991, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. AGUST 1991 29 Björn Davíð Kristjánsson (t.v.) og Þórarinn Sigurbergsson. Listasafn Siguijóns; Flauta o g gítar á þriðjudagstónleikum Á NÆSTU þriðjudagstónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 6. ágúst klukkan 20.30 munu Björn Davíð Krisljánsson flautuleikari og Þórarinn Sigurbergsson gítarleikari flylja tónlist úr ýmsum áttum. Fluttir verða þættir úr „Mountain Songs“ eftir Robert Beaser sem byggðir eru á ljóðrænum ballöðum upprunnum í Appalachia-fjöllum Bandaríkjanna. Þá verða leikin verk eftir spönsku tónskáldin Isaac Alb- eniz og Enrique Granados, verk eft- ir Japanann Kazuo Fukushima og Serenada eftir Svisslendinginn Willy Burkhard. Síðast en ekki síst skal telja að frumflutt verður „Dúó fyrir flautu og gítar“ eftir Eirík Árna Sigtryggsson sem hann samdi fyrir þá félaga. Björn Davíð Kristjánsson hóf ung- ur nám í flautuleik við Barnamúsík- skóla Reykavíkur og síðan við Tón- listarskólann í Reykjavík þar sme kennarar hans voru Jósef Magnús- son, Jón H. Sigurbjörnsson og Bern- harður Wilkinsson. Að loknu blásar- akennara- og einleikaraprófi hélt Björn tii Hollands í framhaldsnám við Sweelinck Conservatorium í Amsterdam og lauk þar námi 1989. Auk þess var Björn í Chicago vetur- inn 1983-1984 við nám í hljóðfæra- leik. Þórarinn Sigurbergsson stundaði nám hjá Eyþóri Þorlákssyni í Hafn- arfirði og lauk prófi 1980. Sama-ár hélt hann til framhaldsnáms hjá hin- um þekkta spænska gítarleikara Jose Luis Gonzales í borginni Alcoy á Spáni og lauk þaðan námi 1984. Síðan þá hefur Þórarinn aðallega starfað við kennslu, en jafnframt haldið einleikstónieika og tekið þátt í samtónleikum m.a. með Kammer- sveit Reykjavíkur.Árið 1987 lék hann inn á hljómplötu ásamt fleirum. Þórarinn er kennari við Nýja tónlist- arskólann og tónlistarskólana í Keflavík og Njarðvík. Björn og Þórarinn hafa starfað saman síðan haustið 1989 og leikið á nokkrum samtónleikum á suðvest- urhorni landsins. Inni í Dýrafjarðarbotni eftir að komið var af Glámu. Dýrafjörður: Riðið yfir Glámuheiði Þingeyri. í TILEFNI hestamóts að Söndum í Dýrafirði um verslunarmanna- helgina tóku nokkrir Stranda- menn sig til og fóru hina fornu leið yfir Glámu með stóð sitt. Leiðsögumaður var Gísli Hjartar- son. Ferðin tók 7 klukkustundir. Er niður af heiðinni kom tóku dýrfir- skir hestamenn á móti þeim. - Gunnar Eiríkur Aflraunasteinarnir við Árbæjarsafn. ■ FORNÍÞRÓTTAHÁ TÍÐ verð- ur á Arbæjarsafni sunnudaginn 4. ágúst frá kl. 14.00-16.00. Kappar frá Glímudeild Ármanns sýna og einnig munu Björgvin Filippusson og Kjartan Guðbrandsson reyna við aflraunasteina þá sem á safninu eru. Gestir mega einnig spreyta sig við að lyfta'þeim,' eh á það skal bent að sá þyngsti þeirra, sem stóð lengi við Laugaveg 70, vegur um 304 kg. Reiptog og fieira verður einnig fólki til skemmtunar, konur sinna tóvinnu, spunnið verður úr hrosshári og lummur bakaðar í Ár- bænum. Einnig mun Karl Jónatans- son leika á harmoníku við Dillons- hús. til Kaupmannahafnar. f í þessu verði er allt innifalið nema flugvallarskattur. Nánari upplýsingar um fjölskylduverð Flugleiða fást í síma 690300 (alla 7 daga vikunnar), hjá ferðaskrifstofum, á söluskrifstofum okkar og umboðsmönnum um land allt. Vinsamlegast gerið verðsasamanburð. FLUGLEIÐIR \ Þegar börnin ern tekin með í reikninginn fljúge nllir með Flngleiðum Ástæðan er einföld: Börn frá 2ja til 11 ára fá 50% afslátt af öllum ferðum Flugleiða til Evrópu. Til dæmis má taka sumaraukafargjald til Kaupmannahafnar* sem gildir um brottfarir í ágúst og september. Hámarksdvöl er 30 dagar og eina skilyrðið um lágmarksdvöl er að dvalið sé eina aðfararnótt sunnudags. Verð fyrir fullorðna er kr. 26.690.- og fyrir börn 13.345,- eða meðalverð: kP. 20.017.- k Háö samþykki yfirvalda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.