Morgunblaðið - 03.08.1991, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1991
Menningarmálanefnd Norðurlandaráðs;
Sex tíllögnr rædd-
ar á fundi ráðsins
Menningarmálanefnd Norð-
urlandaráðs heldur fund á Hót-
el KEA á mánudag, 7. ágúst,
og liggja sex þingmannatillögur
fyrir fundinum. Nefndin er ein
sex fastanefnda Norðurlanda-
ráðs og þar eiga sæti 13 þing-
menn, sem eru fulltrúar þjóð-
þinganna á Norðurlöndum.
Nefndin heldur að jafnaði sex
fundi árlega og í tengslum við einn
þeirra er farin kynnisferð utan
höfuðborgarsvæðanna.
Að loknum fundinum á Akur-
eyri heldur nefndin til Egilsstaða,
en dvölinni hér á landi lýkur í
Reykjavík þar sem Norræna húsið
og Listasafn íslands verða m.a.
heimsótt.
Eldurí
fjölbýlishúsi
Eldur kom upp í ijölbýlishúsi
við Hrísalund 14 á Akureyri í
gæmorgun og fylltist stiga-
gangurinn af reyk og urðu af
honum nokkrar skemmdir.
Slökkvilið Akureyrar var kall-
að að húsinu nokkru fyrir
klukkan 10 í gærmorgun.
Pottur hafði gleymst á eldavél
með þeim afleiðingum að íbúð
og stigagangur í húsinu fylltist
af reyk. Einn maður var í íbúð-
inni, en honum varð ekki meint
af, að sögn Gísla Kristins Lór-
enzsonar varaslökkviliðs-
atjóra. Vel gekk að hreinsa
reykinn út.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Atvinnulausum hefur fjölg-
að um 40 á milli mánaðamóta
Tillögur sem fyrir fundinum
liggja varða m.a. bætta umferðar-
fræðslu í grunnskólum, stofnun
norræns sumarskóla fyrir veflista-
menn og greiðslur til rétthafa sam-
kvæmt höfundarréttarreglum
vegna sjónvarpssendinga milli
Norðurlanda.
Fjallað verður um samstarf
nefndarinnar við Evrópudómstól-
inn og um norrænt samstarf við
Eystrasaltsríkin. Þá verður fjallað
um kynningu utan Norðurlanda á
listum og menningu á Norðurlönd-
unum.
SIÐARI umræða uni fjárhags-
áætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir
árið 1991 var tekin fyrir í hrepps-
nefnd í fyrrakvöld. Áætlaðar
tekjur hreppsins eru um 100
milljónir króna. Geysilega stór
hluti teknanna fer til fræðsiu-
mála, eða 46 milljónir.
FLEIRI eru skráðir atvinnulausir
á Akureyri nú um mánaðamótin
en var um þau síðustu og einnig
eru nokkru fleiri í atvinnu í bæn-
um nú en var á sama tíma á
Fjárhagsáætlunin var einróma
samþykkt á fundinum.
Framkvæmdum við jarðhæð á
skrifstofu hreppsins á Syðra-
Laugalandi er nú lokið og hafa tek-
ist ljómandi vel og er aðstaðan
stórglæsileg. Eftir er að gera tengi-
síðasta ári. Skýringin á aukning-
unni er að mestu leyti sú að starfs-
fólk Álafoss kom inn á atvinnu-
leysisskrá í júlímánuði. Konum á
atvinnuleysisskrá hefur fjölgað
um 44 á milli mánaðamóta. Iðja,
félag verksmiðjufólks, hefur
greitt út um 9 milljónir króna í
atvinnuleysisbætur á árinu og
stefnir allt í að á þessu ári muni
félagið greiða út hærri upphæð í
atvinnuleysisbætur en á siðasta
ári.
1 lok júlímánaðar voru 221 skráð-
ir atvinnulausir á Akureyri, 76 karl- ’
ar og 145 konur. Fyrir mánuði voru
181 á skrá, 82 karlar og 99 konur,
þannig að ijölgað hefur um 40 á
atvinnuleysisskránni á milli mánaða.
Alls eru 60 félagsmenn úr Einingu
atvinnulausir, 17 karlar og 43 kon-
ur, en 100 félagsmenn úr Iðju eru
skráðir atvinnulausir nú, 23 karlar
og 77 konur. Um síðustu mánaða-
byggingu við kjallara og breyta inn-
réttingum þar.
Á jarðhæðinni er fundarsalur
sveitarstjórnar, skrifstofa starfs-
manna og þar hefur sveitarstjórinn,
Pétur Þór Jónasson, einnig aðstöðu.
Benjamín.
mót, þ.e. í lok júni, voru 36 Iðjufélag-
ar atvinnulausir, 18 af hvoru kyni.
Þá má nefna að nú eru 34 verslunar-
menn án atvinnu á Akureyri, 20
konur og 14 karlar.
Sigurbjörg Héðinsdóttir á Vinnu-
miðlunarskrifstofunni sagði að auk-
ing atvinnuleysis nú stafaði fyrst og
fremst af því að starfsfólk Álafoss,
einkum konur, hefðu komið inn á
atvinnuleysisskrá í júlí. Hún sagði
að verkakonur, þ.e. þær sem sjá um
þrif í skólum bæjarins, myndu detta
út af skránni í ágúst og í kjölfarið
myndi atvinnuleysistalan vonandi
lækka.
Ármann Helgason varaformaður
Iðju sagði að einungis hluti starfs-
fólks Alafoss hefði skráð sig hjá
atvinnuleysisskrá, þannig að tölur
drægu ekki upp raunverulega mynd
af atvinnuleysinu. Hann sagði að
rekstrarfélag um rekstur Álafoss
hefði að undanförnu verið að ráða
starfsfólk og eftir því sem hann
best vissi hefðu allfiestir verið endur-
ráðnir. Atvinnuleysistölur myndu því
eitthvað lækka, en ekki væri vitað
hvenær þær gætu hækkað aftur,
sumt af fólkinu hefði fengið atvinnu
hjá rekstrarfélaginu til 31. október
og annað fram til áramóta.
„Mál verða að skýrast í þessum
mánuði, það má alls ekki dragast
lengur, við óttumst að markaðir
kunni að tapast ef ekki verður
ákveðið með framhaldið fljótlega,"
sagði Ármann.
Iðja hefur greitt út röskar 9 millj-
ónir króna í atvinnuleysisbætur til
félagsmanna sinna það sem af er
árinu, en allt síðasta ár vorugreidd-
ar út 12,6 milljónir króna. Armann
taldi allt stefna í að meira yrði
greitt á yfírstandandi ári en því
fyrra, en þó hefði mönnum þótt tal-
an ansi há sem þá var greidd.
Bæjarráð:
54 félagslegar
íbúðir keypt-
ar á árinu
BÆJARRÁÐ Akureyrar ákvað á
fundi í fyrradag af hvaða verk-
tökum í bænum keyptar verða
félagslegar eignaríbúðir, en alls
var bænum úthlutað byggingu
49 slíkra íbúða. Frá fyrra ári
átti eftir að ráðstafa 5 íbúðum,
þannig að um er að ræða sam-
tals 54 íbúðir.
Samþykkt var að kaupa 12 íbúð-
ir af Pan hf., 3 af Fjölni hf., 4 af
Fjölnismönnum hf., 5 af SS-Byggi
og 3 af Trétaki. Þá mun Aðalgeir
Finnsson hf. byggja 19 íbúða fjöl-
býlishús. Þeim íbúðum sem eftir
standa verður ráðstafað á næst-
unni, að sögn Sigurðar J. Sigurðs-
sonar forseta bæjarstjórnar.
Nær allar íbúðirnar verða byggð-
ar í Giljahverfi.
Morgunblaðið/Benjamín
Vel fer um sveitarstjórnarmenn í hinum nýuppgerða fundarsal sveit-
arstjórnar Eyjafjarðarsveitar.
Eyjafjarðarsveit:
Mestu fé veitt til fræðslumála
Ytri-Tjörnum.
Ástæða þess að Ijárhagsáætlun
kemur svo seint fram er uppgjör á
hreppunum þremur, sem sameinað-
ir voru í upphafi árs.
Aðrir stórir liðir eru yfirstjórn
sveitarfélagsins með 11 milljónir,
rekstur fasteigna 7,5 milljónir, og
fjármagnsgjöld 6,2 milljónir.
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þið akið.
■ Drottinn Guó. veit mér
vernd þina, og lát mig
minnast ábyrgðar minnar
er ég ek þessari bifreið.
I Jesú nafni. Anien.
Fæst í Reykjavík:
Kirkjuhúsinu, Kirkjutorgi 4
og Jötu, Hátúni 2.
Akureyri:
Hljómveri, Grettisgötu
32 og Shell bensínaf-
greiðslu v/Hörgárbraut.
Verðkr. 100,-.
Orð dagsins, Akureyri.
Jafnréttis- og fræðslufulltrúi tekinn til starfa:
Hlakka til að hefja störf
- segir Valgerður Bjarnadóttir
„STARFIÐ leggst vel í mig og ég hlakka til að takast á við það.
Mér fannst ég á tímabili vera búin að fá nóg af jafnréttismálum,
en eftir dálítið hlé frá þeim vettvangi þá er ég til í slaginn aftur,
enda af nógu að taka á þessu sviði,“ sagði Valgerður Bjarnadótt-
ir, en hún tók við nýju starfi jafnréttis- og fræðslufulltrúa Akur-
eyrarbæjar í fyrradag. Valgerður er eini starfandi jafnréttisfulltrú
inn á vegum bæjiirfélags í landinu.
Starf Valgerðar verður tvíþætt,
annars vegar á sviði jafnréttis-
mála, en hvað það varðar er hún
starfsmaður jafnréttisnefndar bæj-
arins. Þá verður innan skamms
stofnuð fræðslunefnd er hefur með
höndum fræðslumál starfsmanna
bæjarins og verður Valgerður einn-
ig starfsmaður þeirrar nefndar.
Þá verður það hlutverk hennar
að framfylgjajafnréttisáætlun sem
samþykkt var í bæjarstjórn Akur-
eyrar fyrir tveimur árum og sagði
Valgerður það verða eitt sitt fyrsta
verk í starfí, að fara yfir þá áætl-
un og endurskoða hana. Áætlunin
er í ellefu liðum og m.a. er þar
íjallað um mannaráðningar innan
bæjarkerfísins, þar sem áhersla er
lögð á að þegar ráðið verði, einkum
í stjórnunar- og ábyrgðarstörf,
verði jafnréttissjónarmiða gætt til
samræmis við önnur mikilvæg
sjónarmið. Þá verði einnig leitað
leiða til að gera konum kleift að
sinna stjórnunarstörfum, m.a. með
sveigjanlegum vinnutíma.
Annar þáttur í starfi Valgerðar
er námskeiðahald af margvíslegu
tagi fyrir starfsmenn bæjarins,
kennara, fóstrur og fleiri og má
þar nefna námskeið fyrir konur í
sveitarstjórnum, konur er vilja
stofna fyrirtæki og sjálfstyrking-
amámskeið. Þá mun jafnréttis- og
fræðslufulltrúi einnig veita ráðgjöf
varðandi þá þætti er snerta hennar
starfssvið og þá ekki eingöngu
innan bæjarkerfisins, heldur í bæj-
arféiaginu öllu.
„Ég lít svo á, að hlutverk þessa
starfsmanns sé að benda á þá hluti
sem miður fara á þessu sviði í
bæjarfélaginu öllu og skylt sé að
taka upp þau mál þar sem mis-
rétti hefur verið beitt," sagði Val-
gerður, en benti á að vissulega
mætti ekki rugla saman hennar
starfi og t.d. Jafnréttisráðs sem
hefðj vald til að fella dóma.
„Ég er að leggja línurnar og hef
í hyggju strax og sumarleyfum
starfsmanna bæjarins lýkur að
heimsækja fyrirtæki og stofnanir
er undir hann heyra og kanna
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Valgerður Bjarnadóttir, jafn-
réttis- og fræðslufulltrúi Akur-
eyrarbæjar.
hvaða óskir og væntingar menn
hafa, t.d. varðandi námskeið því
fyrirhugað er að efla mjög endur-
og símenntun á meðal starfsfólks
bæjarins og í framhaldi af því kem-
ur þörfín væntanlega í ljós,“ sagði
Valgerður.