Morgunblaðið - 06.10.1991, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
227. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Harðir bardagar í Króatíu þrátt fyrir samkomulag í Haag:
Carrington segir ótta við
blóðbað ýta undir bardaga
Zagreb, Belgrad, Trieset. Reuter.
KROATÍSKIR embættismenn sögðu í gær
að sambandsherinn hefði hafið stórskota-
liðsárásir á borgirnar Vinkovci og Osijek
í norðausturhluta Króatíu aðfaranótt laug-
ardagsins þrátt fyrir samkomulag sem
gert var í Haag á föstudag. Þá var harðri
skothríð haldið áfram á borgirnar
Karlovac og Duga Resa suðaustur af höf-
uðborginni Zagreb. Sveitir sambandshers-
ins eru nú 30 kílómetra frá Zagreb.
Á fundi ráðstefnunnar um málefni Júgó-
slavíu, sem Evrópubandalagið (EB) stendur
fyrir í Haag, samþykktu Serbar á föstudag
að falla frá landakröfum í Króatíu og að til
greina kæmi að einstök lýðveldi Júgóslavíu
lýstu yfir sjálfstæði. Einnig felst m.a. í sam-
komulaginu að búðir sambandshersins í Kró-
atíu verði leystar úr herkví en herinn hætti
á móti árásum og safni sveitum sínum saman
í nokkrar stórar herbúðir. Skömmu eftir að
fundinum í Haag lauk gáfu Serbar og banda-
menn þeirra í forsætisráði landsins hins veg-
ar út skipun um takmarkaða almenna her-
kvaðningu og bardagar hafa haldið áfram af
fullum þunga í Króatíu. Sögðu yfirmenn sam-
bandshersins í gær að áfram yrði barist þar
til búðirnar yrðu leystar úr herkví.
Carrington lávarður, sem hefur yfirumsjón
með friðarumleitunum EB sagði í útvarpsvið-'
tali við BBC á laugardag að jafnt meðal Kró-
ata sem Serba óttuðust menn að til hrikalegs
blóðbaðs kynni að koma ef þeir legðu niður
vopn og væru þeir því tregir til að hætta
bardögum. Hann sagði að þar sem Milosevic,
forseti Serbíu, hefði fallist á að Króatía kynni
að verða sjálfstætt ríki væri ástæðulaust að
berjast lengur. „Nú þegar tilgangur bardag-
anna virðist vera úr sögunni vonar maður að
skynsemin nái yfirhöndinni. Ég myndi hins
vegar ekki treysta því,“ sagði_ Carrington.
Francesco Cossiga, forseti Ítalíu, sagðist í
gær hafa fallist á beiðni frá sambandshernum
um að brynvarðar sveitir hans fengju að aka
í gégnum ítalskt landsvæði þegar þær drægju
sig til baka frá Slóveníu. Var beiðnin lögð
fram til að sveitimar kæmust hjá því að aka
í gegnum Króatíu.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn:
Sovétríkin fá aukaaðild
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, og Michel Camdessus, framkvæmda-
stjóri Alþjóða.gjaldeyrissjóðsins, áttu á laugardag fund í Moskvu þar sem gengið
*var formlega frá aukaðild Sovétmanna að sjóðnum.
Aukaðildin veitir Sovétmönnum aðgang
að tæknilegri aðstoð og ráðgjöf frá Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum til að styðja efnahagsum-
bætur þeirra. Einungis fullgildir aðilar að
sjóðnum njóta hins vegar lánafyrirgreiðslu
á hans vegum.
HA USTLEGT VIÐ HASKOLANN
Morgunblaðið/Kristján G. Arngrímsson
Laxveiðibann
í Kyrrahafi
Bandaríkjamenn, Sovétmenn, Japanir og
Kanadamenn hafa komist að samkomu-
lagi um ótímabundið bann við laxveiðum
í sjó í Norður-Kyrrahafi frá og með
næsta vori. Tilgangur bannsins er að
vernda villta laxastofna í Kyrrahafi en
til þess varð að stöðva umfangsmiklar
veiðar Japana sem haldið hafa úti um
150 togskipum á laxaslóðinni í norður-
hluta Kyrrahafsins. I samkomulaginu
eru ákvæði sem eiga að tryggja að sem
minnst komi af laxi í veiðarfæri skipa
sem eru við veiðar á öðrum fiskitegund-
um.
Hátt verð dreg-
ur úr reykingum
Öflugar reykingavarnir og háir skattar
á tóbak í Kanada hafa leitt til þess að
verulega hefur dregið úr reykingum
þarlendra unglinga. Þriðjungi færri
kanadiskra táninga reykja nú en fyrir
14 árum og er breytingin m.a. þökkuð
banni við tóbaksauglýsingum og reyk-
ingabanni á almannafæri en einnig hafa
fæstir unglingar efni á að reykja vegna
tóbaksskatta sem valda því að vindlinga-
pakki kostar allt að 310 ÍSK.
Jeltsín ekki stór-
drykkjumaður
Klavdía Jeltsín, móðir Borís Jeltsíns
Rússlandsforseta, bar blak af syni sínum
í viðtali við Moskvublaðið Vetsjernaja
Moskva og sagði að hann væri ekki sá
stórdrykkjumaður sem af væri látið.
Ungir hefðu synir hennar ekki gefið sig
tóbaks- eða áfengisnautninni á vald en
nú liti hún vart í kringum öðru vísi en
að sjá 12-13 ára unglinga reykjandi eða
við skál. Máli sínu til stuðnings lýsti hún
atviki þegar Borís var 16 ára og kom
þar að sem skólafélagi hans stóð við
borð og seldi vodka á glösum. Hefði
honum þótt sér stórlega misboðið, geng-
ið að borðinu og hvolft því svo allt fór
til spillis en dregið að því búnu upp rúbl-
ur og borgað kaupmanni andvirði veig-
anna sem í vaskinn fóru og strunsað svo
í burtu.
Hóta að flytja
höfuðstöðvar EB
Yfirmenn í höfuðstöðvum Evrópubanda-
lagsins (EB) í Brussel hafa hótað í við-
tölum við belgíska fjölmiðla að flytja
höfuðstöðvarnar frá Belgíu hætti þar-
lendir stjórnmálamenn og fjölmiðlar
ekki fjandskap í garð starfsmanna. Ekki
bætir úr skák að Belgíustjórn er farin
að draga í land loforð um að byggja
nýjar glæsihallir yfir starfsemi EB.
Hrein
dansgleði
og
strangur
stíll
FLEY MEÐ 18
FAGRA V EAGI
ARFLEIÐ
EINVELDIS-
KONUNG-
ANNA KVÖDD
10
MAÐUR
NÝJUNGA