Morgunblaðið - 27.10.1991, Page 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1991
FINNSK
LÁGMENNING
ER LÍTIÐ KYNNT
Á ÍSLANDI, ÞÓ
HÚN STANDI
NÆR OKKUR EN
LÁGMENNING
ANNARRA
NORÐURLANDA
Skin og skúrir á Ruissalo-eyju.
Rokk-
skáldið
Kauko
Röyhka.
Martti Syrja, söngspíra Eppu Normaali, vinsælustu sveit Finnlands.
Að koma til Helsinki er ekki
ólíkt því að koma til
hvaða borg annarrar í
Evrópu — til að byija
með. Smám saman áttar
gestkomandi sig á að eitt-
hvað er ekki eins og hann er van-
ur; hvort sem það er austrænt yfir-
bragð, eða stílhreinn arkitektúrinn,
en í Helsinki er liklega að finna
fleiri beinlínis tignarlegar bygging-
ar en í flestum borgum Norður-
landa. Fólkið á götunum kemur
kunnuglega fyrir sjónir og gæti því
eins verið á götum Reykjavíkur,
utan það er vingjarnlegra en íslend-
ingar eiga vanda til við útlendinga.
Helsinki er miðpuntur finnskrar
lágmenningar og þar er aðsetur
helsta útgáfufyrirtækis dægurtón-
listar í Finnlandi, Megamania, sem
er með um 70 sveitir á sínum snær-
uni. Sveitirnar sem það fyrirtæki
gefur út koma frá öllum hlutum
eftir Árno Motthíasson,
myndir Björg Sveinsdóttir
DÆGURTÓNLIST á Norður-
löndum er keimlík í hverju
landi fyrir sig. Þegar grannt
er skoðað má þó greina grund-
vallarmun ogtónlistarhefð
landanna er ansi ólík. Finnland
telst hluti Norðurlandanna en
er samt einkar framandi og
þaðan berst fátt hingað utan
að nokkrir finnskir rithöfund-
arhafa veruið þýddir, t.a.m.
Runeberg, Topelius, Linna-
koski, Sillanpáá, Mika Waltari
og Antti Tuuri og Ijóðaflokkur-
inn Kalevala. Finnsk „lágmenn-
ing” hefur verið minna kynnt
hér á landi og ekki þekkja ís-
lendingar nema tvær finnskar
rokksveitir, þá frábæru Sileun
Yeljet, sem hingað kom á
N’Art-hátíðina á sínum tíma,
og 22 Pistepirrko, sem lék hér
á þrennum tónleikum snemma
á árinu.
Finnlands, sem virðist vel í sveit
sett hvaða varðar byggðastefnu í
rokki. í Finnlandi er það eins og
svo víða að rokkið verður harðara
og fjölbreyttara eftir því sem norð-
ar gredur og helstu þungarokk-
sveitir Finna eru frá því norðan við
„rokkbaug”. (Sbr. íslenskan rok-
kveruleika; hvergi er meira um að
vera í hörðu rokki en á Húsavík.)
í Turku er annað stærsta útgáfu-
fyrirtæki Finna, Poko Records, sem