Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 20
20 C_________ _____MORGUNBLAÐIÐ MENIMIIMGARSTRAUMAR sunnudagur 27. OKTÓBER 1991 BÆKUR/ Hvers virbi eru bókmenntaverblaun f Bækur og veðmðahestar Sex skáldsögur af hundrað og tíu eru valdar á úrvalslista og svo er beðið átekta í nokkrar vikur. Ein skal vinna til „Booker”-verðlaun- anna og verða bók ársins. Reyndar líður biðtíminn ekki án upphróp- ana, háðs eða lofs, fálætis eða skrums. Það líða ekki margar mín- útur án þess að einhver vitur-eft- ir-á segir „Hvað sagði ég ykkur!” Því auðvitað er engin þeirra sem nú náði sæti á listanum verðug verðlaunanna, fremur en í fyrra eða hittiðfyrra. Svipaða sögu segja hinir vitru um Nóbelsverðlaunin. Listinn yfir þá rithöfunda, sem ekki hafa orðið heiðursins aðnjótandi, er auðvitað glæsilegri en hinn sem telur verð- launahafana. Og í raun er það enn meiri heiður að vera aldrei heiðrað- ur — eins og Henry James, Tolstoy, Joyce ... — heldur en að fylla hóp höfunda eins og Kipling, Mann, Beckett. .. eða hvað? Og þannig má gleyma sér þar til næsti verð- launahafi er kynntur. Og á þeim sömu vikum sem breskir bókaspek- úlantar bíða þess að ein bók af sex verði aðnjótandi „Bókarans”, er Nadine Gordimer frá Suður-Afríku orðinn Nóbelsverðlaunahafi í bók- menntum. Og allar óánægjuraddir þagna. Fáir treysta sér í raun til að velja eina bók eða einn höfund úr hópi tíu, svo að öllum lesendum líki. Dómurum „Bookerí’-verðlaunanna hér í Bretlandi er Ijós þessi þver- sögn bókmenntaverðlauna, ekki síð- ur en hinum sem gagnrýna dóm- greindarálit þeirra og smekkvísi. En líklega vildu fáir skipta við þá um sæti og þræla sér í gegnum hundrað og tíu skáldsögur til þess eins að velja úr þeim hópi sex á einn úrvaldslista, kjósa síðan aðeins einn vinningshafa, og þola loks fyr- ir ómakið skít og skömm þeirra sem alltaf vita betur. Einn fimm dómara um „Bookerí’-verðlaunin þetta árið, Nicholas Mosley, sem sjálfur hlaut í fyrra hin eftirsóttu Whitbread- bókmenntaverðlaun, lenti reyndar í þeirri óvenjulegu aðstöðu að verða „vitrari”, því hann var ósáttur við allafþær sex bækur sem íjórir sam- dómarar hans settu á úrvalslista sinn. Og sagði sig því úr dómnefnd- inni. Þær sex skáldsögur sem stillt var upp eins og veðreiðahestum í upp- hafi langdregins kapphlaups voru: Time’s Arrow eftir Martin Amis, The Van eftir Roddy Doyle, Such a Long Journey eftir Rohinton Mistry, Redundancy of • Courage eftir Timothý Mo, The Famished Road eftir Ben Okri og Reading Turgenev eftir William Trevor. Og líkt og bækurnar væru veðreiða- hestar, spáðu veðbankarnir sigur- líkum hverrar og einnar. Engin var sigurstranglegust, en þó þótti flest- um sem bók Martin Amis, svokall- aðs Mick Jaggers rithöfundanna, væri líklegust til að koma fyrst í mark. Loksins var skotið af byssunni við upphaf kvöldverðar í Guildhall þriðjudagskvöldið 22. október. Prúðbúinn hópur karla og kvenna virtu látbragð höfundanna fyrir sér, er þeir nálguðust markið um leið og þeir borðuðu kræsingar. Þó að Bókarinn sé kannski ógeðfelld þraut fyrir sérlundaðan og einrænan rit- höfund gefur titillinn honum ekki aðeins tuttugu þúsund sterlings- pund í aðra hönd og örvar sölu bókarinnar, heldur festa verðlaunin hann í „bókmenntalegum” sessi. En almenningshylli getur auðvitað orðið sumum rithöfundinum jafnvel dýrari en verðlaunin. Slík örlög bíða þó vonandi ekki hins hugþekka níg- eríska ljóðskálds, Ben Okri, sem nú hreppti hnossið. Hann þakkaði heið- urinn með því að töfra áheyrendur inn í draumaheim sinn og inn í lát- laust ljóð sitt um drauminn um betra líf. eftir Guðrúnu Nordal í Cadillac Brougham, árgerð '88 (ekinn 29 þús. mílur), Suzuki Fox 4 W/D, árgerð ’87, G.M.C. Jímmy Sierra 4x4, árgerð '85, Volkswagen Van, árgerð ’86 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 29. október kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í Mercedes Benz 2628K/32 malarbifreið, árgerð '82. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARIMARLIÐSEIGNA ENDURMENNTUN MALMIÐNAÐARMANNA LOFTKERFI - GRUNNNAMSKEIÐ Grunnnámskeið í uppbyggingu loftþrýstikerfa og með- höndlun lofts. Kennt verður um helstu hluta loftþrýsti- kerfa t.d. ventla, loka, tjalla - einvirkir tvívirkir, þjöppur, uppsetningu kerfa, meðhöndlun lofts, aflþörf o.fl. Einnig verða kennd þau tákn sem notuð eru í loftþrýsti- kerfum og þyrjað verður að kenna undirstöðuatriði stýri- tækninnar. Námskeiðið er þæði þóklegt og verklegt og er undan- fari námskeiðsins: Loftkerfi stýritækni Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað málmiðnaðar- mönnum sem hafa afskipti af upp- setningu, viðgerðum og viðhaldi loft- þrýstikerfa, einnig þeim sem áhuga hafa á að sérhæfa sig í vinnu við slík kerfi. Lengd námskeiðs: Þátttökugjald: 7.000,- Staður og tími: 30 kennslustundir. (námsgögn innifalin). Námskeiðið verður haldið i verknáms- deild Iðnskólans í Reykjavík, Smiðju- vegi 9a, Kópavogi, á tímabilinu 31. október - 12. nóvember. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING: FRÆÐSLURÁÐ MÁLMIÐNAÐARINS SÍMI: 91-624716 Myndlist /Hvab er hvers? Um endurheimt listaverka „Lok kalda stríðsins getur einnig haft mikla þýðingu fyrir listasöguna. Alþjóðastjórnmál og listasaga tengjast ekki oft í fjölmiðlunum, en um þessar mundir er hafin atburðarás, sem sennilega á eft- ir að hafa meiri þýðingu fyrir listunnendur en nokkurn grunar nú. Allt tengist þetta þeim breyt- ingum, sem hafa orðið í Sov- étríkjunum undanfarið, einkum þó síðustu tvö ár, eftir að Þýska- land var sameinað í eitt ríki á ný. Nú eru að hefjast rannsókn- ir á örlögum þúsunda listaverka, sem hurfu sjónum manna í Evr- ópu í heimsstyijöldinni síðari, með það fyrir augum að þau komist aftur í hendur réttra eig- enda eða erfingja þeirra. Þær athuganir, sem nú eru hafnar, hefðu aldrei verið mögulegar á dögum kalda stríðsins, og eru enn ein sönnun þess, að þjóðir heims eru að fikra sig áfram við þá samvinnu, sem er þeim öllum nauðsyn í framtíðinni. Talið er að Þjóðveijar hafi stol- ið, tekið eignarnámi, „keypt” og „fengið að láni” meira en þijár milljónir listaverka af einu eða öðru tagi í þeim löndum, sem þeir lögðu tímabundið undir sig í heimsstyij: öldinni síðari. í Vestur-Evrópu leituðu þeir eink- um fanga í einka- söfnum og í smærri söfnum, en í Austur-Evr- ópu tóku þeir flest sem þeir náðu í, einkum af verkum eldri meistara. Þessir stór- tæku listaverkaþjófnaðir voru bæði skipulegir, þ.e. á vegum ríkisins eða einstakra embættismanna, svo og afleiðingin af fijálsu framtaki hermanna — eins konar „minja- gripasöfnun”. A síðustu mánuðum stríðsins og eftir að Þjóðvetjar höfðu gefist upp, tóku Bandamenn við; þeir létu greipar sópa hvar sem þeir lögðu undir sig þýskarjiorgir, söfn, heim- ili og kirkjur. í sumum tilvikum var þetta gert af ásettu ráði, t.d. til að forða gi’ipum frá skemmdum eða bjarga verðmætum, en í öðrum tilvikum var um hreinan þjófnað að ræða, einkum méðal óbreyttra hermanna. Eftir að sæmileg regla komst á stjórn hernámssvæðanna eftir lok styijaldarinnar áttu Bandamenn geysilega umfangsmikið verk fyrir höndum á sviði listanna. Verkið var í raun tvíþætt. Fyrri þátturinn fólst í að koma þeim listaverkum sem fundust til fyrri eigenda eða erf- ingja þeirra. Þetta tókst sæmilega vel í nokkuð góðri samvinnu allra aðila fyrstu árin eftir stríð. — Síð- ari þátturinn fólst í að reyna að hafa upp á þeim verkum sem höfðu sannanlega verið tekin, en fundust nú hvergi. Hér gekk samvinnan verr, enda kalda stríðið á næsta leiti, og eftir takmarkaðan árangur lagðist verkið af upp úr 1950. Eðli- lega var reiknað með að flest þeirra listaverka sem enn voru ófundin hefðu eyðilagst; þó grunaði ýmsa vestan járntjalds að Sovétmenn hefðu ýmislegt að fela, og í Moskvu töldu menn að margt af því sem þeir söknuðu væri enn í fórum Vestur-Þjóðveija. Þannig voru í raun afskrifuð fleiri þúsund verk eftir marga helstu meistara listasögunnar eins og Breugel, Cézanne, Courbet, Degas, Dúrer, Goya, Manet, Rembrandt og Titian, svo að nokkr- ir séu nefndir; listasagan hafði glatað mörgum af helstu djásnum vestrænnar myndlistar. í nóvember á síðasta ári skrifuðu Helmut Kohl og Mikhail Gorbatsjov undir tímamótasamning um sam- starf milli Sovétríkjanna og sam- einaðs Þýskalands. I þeim samningi er að finna grein sem segir að list- munum, sem voru fjarlægðir á ólöglegan hátt, skuli skilað aftur. I gi’eininni er fyrst og fremst átt við listaverk, sem herir hvors lands fyrir sig tóku herskildi í heimsstyij- öldinni, og gæti uppgjör á þessu sviði náð til tugþúsunda listmuna; hér er því þráðurinn tekinn upp aftur, þar sem hann brast vegna kalda stríðsins. Samingurinn hefur nú verið staðfestur af þingum beggja ríkjanna, svo er hægt að heíjast handa. Þessi viðburður er mikið fagnað- arefni fyrir alla listunnendur, þar sem vænta má, að ýmis verk, sem undanfarna áratugi hafa verið í geymslum, komi nú fram í dags- ljósið. Þýsk söfn hafa þegar endur- heimt nokkuð af listaverkum sem voru talin glötuð, en þau eru vænt- anlega dæmi um auðveldustu málin af þessu tagi. Málið er því komið á nokkurn rekspöl, og í flestum ríkjum megin- lands Evrópu er nú unnið að gerð lista yfir þá listmuni, sem töpuðust í stríðinu, og ekki hefur enn verið gerð grein fyrir. Síðan verður reynt að rekja feril þeirra, og semja um að þeim verði skilað til réttra eig- enda, ef þau finnast. Oft er þetta flókið mál, einkum þar sem hluti verkanna hefur verið seldur á milli landa; t.d. eru nú í bandarískum, breskum, hollenskum og frönskum söfnum listaverk, sem komu upp- haflega úr þýskum eða sovéskum listasöfnum. I sumum málum gera fleiri en einn aðili kröfu um að telj- ast eigendur ákveðinna listaverká, og í enn öðrum skiptir landafræðin meginmáli. Hér er um að ræða langtímaverkefni, og endurheimtan á eftir að taka mörg ár. Hvers er hvað? — Sú spurning á eftir að hljóma oft á þessum tíma, og ekki víst að allir verði sammála um svörin. Hins vegar er ljóst að hér er hafin þróun í þá átt að al- þjóðasamvinna tryggi að menning- arverðmætum verði skilað til réttra eigenda, og að aflsmunur (fjár- hagslegur eða hernaðarlegur) verði ekki látinn ráða þegar listasagan er annars vegar. Vonandi er þetta góð vísbending fyrir framtíðina. eftir Eirík Þorlóksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.