Morgunblaðið - 24.11.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1991
21
ingum eyðileggur andlega sam-
heldni og samstöðu þjóðarinnar.
Sameiginlegri menningu og upp-
byggingu þjóðfélagsins er stefnt í
hæ'ttu. Innflutningur fólks hefur
líka í för með sér andúð og átök á
milli fólks af ólíku þjóðerni og skap-
ar fordóma og umburðarleysi.”
Og þú álítur að ósættanlegur
genetískur munur sé á milli
ólíkra kynþátta?
„Já. Það er geysimikill munur á
kynþáttunum. Það er líffræðilegur
munur, sálfræðilegur og menning-
arlegur munur. En ég held að það
eigi að meta fólk sem einstaklinga,
af hæfileikum þess og eiginleikum.
Þessi munur á milli kynþáttanna
er líka af hinu góða; mismunandi
menningarheimar og fjölbreytni
meðal mannfólksins gefa lífinu lit
og auka fegurð mannlífsins.
Það væri þess vegna afar slæmt
ef þessi séreinkenni glötuðust. Ég
held t.d. að íslenskt þjóðfélag hafi
merkilega sérstöðu að mörgu leyti
og það væri ykkur og umheiminum
mikill missir ef hún glataðist. Það
sama gildir um aðrar Evrópuþjóðir,
svo og þjóðir Afríku og Asíu. Hver
menningarheild á rétt á vernd, að
arfleifð hennar sé haldið við. Hver
þjóð verður að fá að ákveða hvað
henni finnst fagurt og nytsamlegt
og hvernig hún vill haga sameigin-
legum málum sínum.”
Það var haft eftir þér að Island
væri eina alhvíta landið sem eft-
ir væri í heiminum og það væri
ekki nóg. Var þetta rétt tilvitn-
un?
„Já, ísland er eitt af fáum löndum
heims sem er næstum eingöngu
byggt hvítu fólki. Þau eru trúlega
nokkur til viðbótar, en ísland er
eitt skýrasta dæmið.”
-Hvaða máli skiptir það? Hvaða
lærdóm dregurðu af því?
„Það þýðir að ef haldið er uppi
óheftum innflutningi á útlending-
um, þá tapast sérkennin. Ég vona
að Island viðhaldi sinni menningar-
arfleifð, sem er mjög merkileg. Ég
vona líka að aðrar vestrænar þjóðir
geri slíkt hið sama. Sjálfur er ég
af ensku bergi brotinn og er mjög
stoltur af uppruna mínum.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á íslandi. Ég þekki töluvert til sögu
landsins og er ákaflega hrifinn af
landinu og fólkinu, þótt ég hafi aldr-
ei komið þangað. Ég veit að þið
hafið elsta þjóðþing í heimi og veit
að landið er fallegt og fólkið er
fallegt.
Islendingum hefur tekist að
byggja upp merkilegt samfélag
miðað við aðstæður á þessari eyju.
Það er Iítið um náttúruauðlindir,
hvorki kol né olía né skóglendi,
þótt jarðhitinn hjálpi reyndar til.
Velmegun er mikil, öll þjóðin er
læs, ungbarnadauði mjög lítill, lýð-
ræði er virkt og einstaklingsfrelsi
metið að verðleikum.
Ég hef lesið mér töluvert til um
Island og hef alltaf haft áhuga á
Islendingasögunum. Mér þykir mik-
ið til landsins koma, dugnaðar þjóð-
arinnar, fegurðar fólksins og menn-
ingar þess. Ég vona að íslendingum
takist að viðhalda menningu sinni
og samfélagi, því flest önnur vest-
ræn þjóðfélög eru að grotná niður
og tapa séreinkennum sínum. Ég
vil ekki að þið þurfið að fást við
þá erfiðleika sem við eigum við að
etja, glæpi og önnur alvarleg vanda-
mál.”
Þú vilt rekja velgengni íslend-
inga til fólksins og uppruna þess?
„Já, ég hef sagt að munurinn á
þjóðfélögum heims grundvallist á
fólkinu sem byggir þau. Landið
sjáift skiptir ekki höfuðmáli; greint
fólk, kraftmikið og duglegt fólk býr
til merkileg samfélög. Aðrir haga
sér öðruvísi og byggja annars konar
þjóðfélag. Ef íslenska þjóðin hefði
sest að á suðlægari slóðum þá hefði
hún skapað þar paradís. Þetta segi
ég í fyllstu alvöru. Það nálgast
kraftaverk hvaða árangri íslending-
ar hafa náð í svo erfiðu umhverfi
og þið eigið allan heiður skilið fyrir
það.”
Hverju svararðu ef ég segi að
þetta séu rasískir fordómar?
Ertu rasisti?
„Nei, það er ég ekki. Rasisti
er sá sem hatast út í aðra og vill
kúga þá. Ég virði aðra kynþætti
af því að ég ber virðingu fyrir mín-
um eigin.”
En þegar þú lýsir muninum á
hvítu fólki og öðru, hæfileikum
þess og afrekum, ertu ekki ein-
mitt að lýsa yfirburðum norður-
evrópska, livíta kynstofnsins?
„Nei, þetta eru staðreyndir sem
blasa við okkur. Heimurinn er
svona. Það verður ekki litið framhjá
því sem einkennir mismunandi þjóð-
félög, það er ekkert rasískt eða
nasískt við að segja það: þetta er
einfaldlega sannleikur. Ef ísland
fylltist af t.d. Nígeríubúum yrði
landið mun líkara Nígeríu en það
er nú, og öfugt: Nígería yrði íslensk-
ari af íslendingar væru þar í meiri-
hluta. Við eigum öll okkar menning-
ararfleifð og höfum fullan rétt á
að vernda hana og viðhaldá henni.”
Allir þarfnast fyrirgefningar
Það er með málflutningi á borð
við þennan sem David Duke hefur
tekist að láta sem hann sé nýr og
betri maður. Kjósendur eru líka
flestir löngu hættir að nenna að
hlusta á sögur af því hversu vondur
maður hann var áður fyrr.
„Ég held að fortíð mín skipti sí-
fellt minna máli,” segir hann að-
spurður. „Kjósendur í Louisiana
hafa áhuga á því sem ég er að segja
og gera núna. Sjálfur lifi ég í nútíð
og framtíð. Mér er hins vegar farið
eins og flestum öðrum, að það er
ýmislegt í fortíðinni sem ég myndi
breyta ef ég ætti þess kost, en ég
dvel ekki við það.”
Sérðu eftir því sem þú sagðir
og tókst þér fyrir hendur?
„Já, vissulega. Mig skorti um-
burðarlyndi á yngri árum. Ég er
hins vegar lagður svolítið í einelti
hvað fortíðina varðar. Samt hefur
enginn sákað mig um glæpi eða
ofbeldi. Ég hef aldrei beitt nokkurn
mann ofbeldi á ævinni. Ég veit að
Ku Klux Klan hefur það orð á sér,
en það eru margir og mismunandi
hópar innan þeirra samtaka, mis-
munandi hugmyndafræði og marg-
ar aðferðir sem er beitt. Minn hóp-
ur gerði aldrei neitt ólöglegt eða
beitti sér fyrir ofbeldi.
Jú, mig skorti umburðarlyndi og
ég var fordómafullur, en ég held
að það gildi um alla einhvern tím-
ann á lífsleiðinni. Við þurfum öll á
fyrirgefningu að halda fyrir það
sem við getum ekki breytt í fortíð
okkar.”
Sumir segja að þú hafir ekkert
breyst, heldur gerir þér upp hóf-
semd af pólitiskum ástæðum?
„Það verða alltaf til efasemdar-
menn og þessar skoðanir standast
ekki nánari athugun. Ég hef alltaf
sagt það sem mér liggur á hjarta
og ekkert dregið undan. Ef það sem
ég segi nú nýtur svona mikiis stuðn-
ings almennings, af hveiju eru þá
ekki fleiri sem tala svona? Það er
af því að þeir þora það ekki — fjöl-
miðlarnir myndu rífa þá í sig. Fjöl-
miðlar hafa ekki tekið neinum silki-
hönskum á mér vegna þess að ég
segi það sem ég meina.
Ég hef ekki breytt mínum mál-
flutningi af pólitískum ástæðum.
Ég hef alltaf sagt það sem mér
finnst, burtséð frá því hvaðan hinir
pólitísku vindar blása. Ég hef verið
að segja óvinsæla hluti alla ævina
og aldrei verið ragur við að lýsa
skoðunum mínum.”
Repúblikanar í vanda
Þetta er hinn nýi David Duke,
einarður málsvari hvíta meirihlut-
ans í landinu, en þó opinberlega
boðberi umburðarlyndis og hóf-
semdar. Hann er einkar snjall
stjórnmálamaður og er bæði
mælskur og sannfærandi. Hann
hefur stuðning frá næstum öllum
þjóðfélagshópum, þó einkum venju-
legs launafólks sem óttast um eigin
efnahag.
Valið í kosningunum um síðustu
helgi stóð á milli Dukes og fram-
bjóðanda demókrata, fyrrum fylkis-
stjórans Edwin Edwards. Edwards
hefur sjálfur ekki óflekkaða fortíð;
hann var fylkisstjóri í tólf ár og
frægur fyrir spillingu, fjárhættuspil
og kvennafar. Hann endaði feril
sinn í réttarsölum, en slapp þó við
dóm. Hann sagði eitt sinn að það
■ I kosningabaráttu hefur
David Duke alltaf sýnt á
sér hofsamari hliðina og
látið vera að breiða út
nasistaboðskap nema
ðbeint. Hann lét lýtalækna
fegra á sér andlitið og flöt
hárgreiðslan hefur vikið fyr-
ir géðri biásningu. En á
milli kosninga hefur hann
haldið uppi málstað hvíta
kynstofnsins og lýst skoð-
unum sem hver hýskur nas-
isti hefði verið hreykinn af.
fengi honum ekkert grandað póli-
tískt nema „if they catch me in bed
with a live boy or a dead girl” og
er ekki vert að þýða þá tilvitnun.
Edwards naut þess í þessum
kosningum að Duke var mótfram-
bjóðandinn; hann hefði tapað fyrir
flestum öðrum. Edwards naut
stuðnings ólíkustu hópa sem aldrei
höfðu starfað saman áður, en áttu
það sameiginlega markmið að koma
í veg fyrir kjör Dukes. Á bílum í
Louisiana mátti sjá límmiða með
slagorðinu „Kjósið krimmann” og
sagði það allt sem segja þurfti um
kostina sem kjósendur stóðu
frammi fyrir.
Á endaspretti kosningabarátt-
unnar lagðist allt bandaríska valda-
kerfið á eitt um að kveða Duke í
kútinn. Bush forseti kallaði hann
ómerkilegan loddara og aðrir lægra
settir voru ekki svo hófsamir í
orðavali. Þetta var svo sem ekki í
fyrsta skipti sem Duke gerði repú-
blikönum lífið leitt. í haust var sett
á stofn sérstök nefnd á vegum
flokksins til að fást við Duke þegar
kvisaðist að hann ætlaði að bjóða
sig fram gegn Bush forseta.
Duke sagðist láta sig litlu varða
vandræðaganginn í Washington.
„Ég hef engan áhuga á að bjóða
mig fram til forseta að svo stöddu.
Ég vil verða fylkisstjóri. Ég vil hins
vegar líka hafa áhrif á landsmála-
pólitíkina, af því að það þarf að
gera róttækar breytingar.
Ég vil að fólk um land allt geri
það sem ég er að gera hér í Louis-
iana, beijist fyrir þeim breytingum
sem eru nauðsynlegar, í velferðar-
málum, skattamálum og víðar. Við
þurfum að draga úr ríkisafskiptum;
þau eru of mikil. í stað þess að
minnka ríkisumsvif erum við að
verða æ líkari Sovétríkjunum eins
og þau voru.”
Áf hverju heldurðu að repú-
blikanar vilji ekki kannast við
l)ig-
„Flestir repúblikanar í þessu fylki
styðja mig. Mér er alveg sama hvað
er sagt og gert í Washington. Ég
hef meiri áhuga á því sem fólk í
Louisiana er að gera.
En pólitíkin í Bandaríkjunum er
eins og pólitík alls staðar. Það eru
nokkrir smákóngar sem vilja
stjóma flokknum. Það eru hins veg-
ar óbreyttir flokksmenn sem eiga
að ráða því hvaða stefnu flokkurinn
hefur og hveijir veljast til forystu.”
Og óbreyttir flokksmenn í Louis-
iana velja David Duke. Sumir af
hreinu kynþáttahatri sem enn eimir
af í Suðurríkjunum, aðrir af því að
hann býður ríkjandi viðhorfum birg-
inn.
Niðurstaðan í kosningunum get-'
ur engan veginn talist ósigur fyrir
Duke. Hann hlaut um 40% at-
kvæða, en sú tala segir ekki alla
söguna. Meirihluti hvítra kjósenda,
um 55%, studdi hann og hlutfallið
var enn hærra meðal hvítra mót-
mælenda, Louisiana er óvenjulegt
fylki að því leyti að blökkufólk er
fjórðungur kjósenda og kaþólikkar
af frönskum uppruna eru margir,
þetta gildir ekki að sama skapi um
önnur fylki.
Þess vegna getur Duke gert veru-
legan usla ef hann ákveður að fara
í prófkjör gegn Bush forseta á
næsta ári. Málflutningur hans um
minni ríkisafskipti, lægri skatta og
þyngri viðurlög við glæpum er mjög
svipaður þeim sem hefur notið mik-
ils stuðnings kjósenda allan síðasta
áratug. Duke getur því haft tölu-
verð áhrif á úrslit í prófkjörum
repúblikana, sérstaklega í Suður-
ríkjunum þar sem víða er grunnt á
kynþáttahatri að auki. Og þegar
Duke er búinn að velgja Bush und-
ir uggum má reikna með að hann
bjóði sig fram til Bandaríkjaþings
í einu af kjördæmunum þar sem
hann nýtur yfirgnæfandi stuðnings.
Hver svo sem endirinn verður
hefur Duke tekist að minna Banda-
ríkjamenn rækilega á hversu illa
þeim hefur gengið síðastliðinn ald-
arfjórðung að fást við vaxandi kyn-
þáttaátök í landinu. Og lausnirnar
sem hann mælir fyrir eru ekki leng-
ur tabú, heldur hluti af almennri
pólitískri umræðu. Hann hefur líka
sýnt að það er allt hægt í bandarísk-
um stjórnmálum, ef jarðvegurinn
er fijósamur og stjórnmálamaður-
inn nógu snjall, mælskur og áhrifa-
ríkur málflytjandi til að færa sér
aðstæður í nyt.
Höfundur stundar háskólanám í
Washington.
MARMARI
Eitt fegursta efni í byggingum er marmari. Marmari er
listasmíð náttúrunnar í öllum sínum margbreytileik.
Eigum fyrirliggjandi ítalskan og portúgalskan marmara
á gólf og veggi.
Nýborgj#
Skútuvogi 4, sími 812470.
ra
Húsnæðisnefnd Kópavogs,
Fannborg 4,200 Kópavogi, sími 45140
ú |QE I m
B BE . IZI d| tdb I— QB~ a: d zz
m LH' QQ ez: nn Cj
LtŒ' .t*
UMSOKNIR
Húsnæðisnefnd Kópavogs óskar eftir umsóknum um kaup á:
Félagslegum eignaíbúðum
Félagslegum kaupleiguíbúðum
Alrnennum kaupleiguíbúðum
Um er að ræða 80 íbúðir, 3ja, 4ra og 5 herbergja, sem byggðar verða við
Lautasmára í Smárahvammslandi í Kópavogi. Umsóknirnar gilda einnig fyrir
eldri íbúðir, sem koma til endursölu á árinu 1992.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu húsnæðisnefndar Kópavogs,
Fannborg 4, alla virka daga milli kl. 9-15 og verða þar einnig veittar allar al-
mennar upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.
Athugið að allar eldri umsóknir falla úr gildi.
—
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
—