Morgunblaðið - 24.11.1991, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1991
37
... Hvaða Trotskíj?
— AleksandrKansvarar
eftir Pál Lúðvík Einarsson
MENN læra að ritskoða sjálfir, vega
og og meta, gera málamiðlanir. Þú
segir við sjálfan þig að betra sé að
fara varlega í eitthvert mál. Þá getur
þú í það minnsta komið öðru óbrengl-
uðu á framfæri.” Prófessor Aleks-
andr Kan var helsti sérfræðingur
Sovétríkjanna í sögu Norðurlanda á
árunum 1960-86. Fyrir tilstilli forsæt-
isráðherra Noregs og Svíþjóðar fékk
hann og fjölskylda hans leyfi til að
flytjast úr landi árið 1987. Prófessor-
inn sótti sagnfræðiþing á íslandi um miðjan ágústmánuð í þann
mund sem valdaránstilraunin var gerð í Moskvu. Morgunblaðið leit-
aði álits hans á þeim atburðum en blaðamaður notaði einnig tækifær-
ið tilað spjalla um sagnfræði í alræðisríkinu.
Aleksandr Kan
Aleksandr Kan er fæddur
í Moskvu árið 1925.
„Það má segja að ég sé
af menntafólki, inteleg-
ensíunni. Faðir minn var
sögukennari við her-
skóla í Moskvu. Eftir
herþjónustu innritaðist ég í
Moskvuháskóla og lauk prófi 1949.
Frami Kan var nokkuð jafn uppá
við og hann varð yfirmaður þeirrar
deildar sovésku vísindaakade-
míunnar við Moskvuháskóla sem
sinnir sögu Norðurlanda. Hann varð
félagi í kommúnistaflokknum árið
1966. „Ég gekk frekar seint í flokk-
inn. Aðild að flokknum skipti tölu-
verðu máli. Maður varð að vera í
flokknum til að fá ferðaleyfi til út-
landa. — Flokksaðild hafði líka áhrif
á í hvaða skjalasöfn manni var leyft
að hnýsast. — En það voru líka
hugsjónaástæður. Þetta var fyrir
innrásina í Tékkóslóvakíu, enn var
hægt að trúa því að það væri hægt
gefa kommúnismanum mannesku-
legt yfirbragð og-þróa hann í átt
að lýðræði.”
— En hvenær sagðirðu skilið
flokkinn og kérfið?
„Það gerðist ekki í einni svipan.
Ég var lengi að gera það upp við
mig að fara úr landi. Það voru sam-
tvinnaðar persónulegar og pólitísk-
ar ástæður fyrir því að yfirgefa
Sovétríkin. Þetta var tólf ára bar-
átta. Eldri sonur minn flutti úr landi
árið 1973. Eftir það voru mínar
utanlandsferðir takmarkaðar við
Norðurlönd og mér fannst það vera
mismunun miðað við kolleganna.
Og síðast en ekki síst stríðið í Afg-
anistan, ég vildi alls ekki að yngri
drengurinn minn tæki þátt í þeim
vígaferlum. En það var margt sem
hélt í mann. Manni fannst maður
vera svíkja vinnuna, kollegana. Og
eftir að ófriður hófst í Afganistan
þrengdist um möguleika, það var
vonlítið að sækja um og fórnar-
kostnaðurinn hár.
Það voru í sjálfu sér ekki pólitísk
mótmæli að ganga úr flokknum.
1984 sótti ég um að flytjast úr landi
og það fyrsta sem gerist er brott-
rekstur úr flokknum. Ég vildi verða
fyrri til áður en mér yrði sparkað.
Ursögnin kom flokksskrifstofunni
að óvart; kerfið gerði ekki ráð fyrir
því að menn segðu sig úr fiokknum.
Það var ekki til neitt eyðublað fyrir
úrsögn. En félagaskráin og stat-
istíkin varð að vera í lagi. Að lokum
vaf fyllt út eyðublað sem er ætlað
til að afskrá látna flokksfélaga.”
— Þú trúir ekki á kommúnis-
mann, hvar ertu þá í pólitíkinni?
„Ég er sósíalisti í þeirri merkingu
að ég til að góður sósíalismi sé
betri en kapítalismi — en góður
sósíalismi hefur sýnt sig vera full-
komlega óframkvæmanlegan
a.m.k. í nánustu framtíð. Ég vona
að Sovétríkin nái að þróast til lýð-
ræðis og blandaðs hagkerfis eftir
sósíal-demókratískum leiðum.”
Norrænn undirlægjuháttur
- Þú varst sérfræðingur við vís-
indaakademíuna í 26 ár. Tilheyrðir
þeim hópi sem skráði „opinbera
sögu” sem er nú yfirlýst fölsun,
hver var þinn hlutur?
„Ég stjórnaði skandinavísku
deildinni og skrifaði ekki um sov-
éska sögu. Ég þurfti því ekki að
taka þátt í verstu sögufölsununum.
Til allar hamingju sagði Lenín lítið
um Norðurlönd. Maður hafði til
þess að gera mikið frelsi til að rann-
saka og skrifa. Flokkurinn gaf ekki
mjög sterka forskrift eða gerði ná-
kvæmar kröfur um hvernig norræn
saga skyldi vera. Það voru þó þrjár
meginforsendur: í fyrsta lagi: Við-
urkenna skyldi félagslega ávinn-
inga á Norðurlöndum. í öðru lagi:
Um leið skyldi gagnrýna undir-
lægjuhátt sósíaldemókrata gagn-
vart einokunarkapitalisma. í þriðja
lagi: Gagnrýna skyldi þjónustulund
og undirlægjuhátt borgarlegra afla
gagnvart Bandaríkjunum.
Ég skrifaði báðar þær
kennslubækur sem eru til um Norð-
urlandasögu fyrir framhaldsskóla.
— Og ég héld að það þurfi ekki að
stroka mikið út.”
— Hvað segir um ísland?
„ísland og Einnland eru nokkuð
vánrækt. íslensku get ég ekki lesið.
í bókinni er aðallega sagt frá sögu-
öldinni og þar studdist ég aðallega
við skrif Einars Olgeirssonar.”
— En hefur þú í þínum rannsókn-
um rekist á eitthvað áhugavert um
íslenska samtímasögu, t.d. sam-
band íslenskra kommúnista við Sov-
étríkin?
„íslenskir kommúnistar voru þeir
fyrstu til að yfirgefa Kommitern
og breyta nafni flokksins. (Samein-
ingaflokkur Alþýðu — Sósíaiista-
flokkurinn. Innsk. blm.) Að mínu
mati voru þeir til þess að gera sjálf-
stæðir. Eiginlega má segja að þeir
hafi verið brautryðjendur á leið
Evrópukomúnismans; í því að losa
hægt og_ rólega um tengslin við
Moskvu. I samanburði við félagana
á hinum Norðurlöndunum voru þeir
miklu sjálfstæðari.”
Undir rós
— En hvað sagðir þú um — t.d.
Vetrarstríðið 1939-40. Réðust
Finnar á Sovétríkin eins og eitt sinn
var haldið fram?
„Ég reyndi að taka ekki afstöðu
til þess hver réðst á hvern. — En
doktorsritgerð mín var um utanrík-
isstefnu Norðurlanda í seinni heim-
styijöld. En ég var varkár, sagði í
innganginum að Finnland væri utan
við rannsóknarsviðið. Auðvitað
komst ég ekki hjá því að minnast
á Vetrarstríðið þegar fjallað var um
utanríksstefnu Svíþjóðar. Ég sagði
að Finnar hefðu með einsýnni og
harðri samningsafstöðu á vissan
hátt leitt til þess að Sovétríkin fóru
í stríð. En það kom annað fram —
og af því er ég stoltur — ég sagði
líka frá því að Finnar hefðu reynt
með sænskri milligöngu fyrstu daga
stríðsins að koma á sámningavið-
ræðum en Sovétríkin hafí hafnað
því, þau viðurkenndu ekki lengur
ríkisstjórn Finnlands. Þetta var vís-
bending til lesandands, að Sovétrík-
in hefðu haft áhuga á stríði.
Ég held að ég hafi ekki logið en
það vantaði ýmis atriði í söguna.
Það mátti t.a.m. alls ekki segja frá
griðasáttmálanum milli Hitlers og
Stalíns, þótt ég vissi um hann auð-
vitað.”
Línan gefin
— Þú segir að þér hafi verið hlíft
við verstu „sögufölsunum” en þú
hlýtur að hafa fylgst með því hvað
kollegarnir voru að fást við — eða
ekki fást við?
„Já, ég hafði alltaf áhuga á rúss-
neskri sögu. Og þar var falsað. Það
var stigsmunur á þessu; milli undir-
greina, mönnum leyfðist meira þeg-
ar þeir skrifuðu hagsögu heldur en
stjórnmálasögu. Og menn höfðu
meira sjálfstæði þegar þeir skrifuðu
um miðaldirnar heldur en nútím-
ann. Því nær sem dró samtímanum
því varkárari varð sagnfræðing-
urinn að vera.
Þetta er flóknara mál heldur en
margir halda hér fyrir vestan. Með-
al fræðimanna voru alvarlegar,
heiðarlegar rannsóknir stundaðar
en fölsunin var verst í almennum
sögubókum.”
— En hvernig virkaði þetta, ekki
settust sagnfræðingar niður og
ákváðu svona fyrir sig „opinbera
útgáfu” sannleikans?
„Nei. Auðvitað ekki. Það finnast
ýmis meðöl til að stýra því hvernig
menn skrifa. Á Stalínstímanum
gátu jafnvel óviðeigandi athuga-
semdir við kaffíborðið verið hættu-
legar heilsu og frelsi. En það er
hægt að beita öðrum meðölum.
Sérstaklega þegar ríkið er eini
vinnuveitandinn. Starfsframi verð-
ur hægari en vænta má. Bókin þín
kemst ekki á prent hjá forlaginu,
greinin þín er endursend. Menn
læra að ritskoða sjálfir, vega og
meta, gera málmiðlanir. Þú segir
við sjálfan þig að það er betra að
fara varlega í eitthvert mál, þá
getir þú kannski í það minnsta kom-
ið öðru óbrengluðu á framfæri.”
— En hvernig kom ríkið eða
flokkurinn því á framfæri hvernig
sögu hann vildi fá; „gaf línuna”?
„Það hefur verið breytilegt í ár-
anna rás. Stalín var mikill áhuga-
maður um sagnfræði, vissi hvað
hann vildi og gaf mjög ákveðna
forskrift. Sérstaklega um sögu
flokksins — og allir vissu um dá-
læti Stalins á vissum keisurum s.s.
ívari grimma. Á Khrústsjov- og
Brezhnevtímanum var flokkurinn
ekki jafn afskiptasamur en það
voru traustir kommúnistar í lykil-
stöðum í háskólanum og þeir gáfu
tóninn með greinarskrifum og fyrir-
lestrum og einstaka sinnum gripu
þeir beint inn í. Sérstaklega fylgd-
ust þeir með efni ætlaðu almenn-
ingi og til kennslu.
Bein opinber ritskoðun var einnig
fyrir hendi en hún hafði fyrst og
fremst áhuga á því að engin ríkis>*^
leyndarmál lækju út. Og í sagn-
fræðinni eru þau ekki svo mörg.
En ritskoðunin strikaði einnig út
ákveðin nöfn. Ég varð" fyrir því að
afskipti Bukharins af norskum
verkalýðsmálum voru þurrkuð út
úr minni bók. Ekki mátti nefna
þann mann í jákvæðu samhengi.
Á Stalínstímann var bæði falsað
með orðum og þögn. Á Khrústsjov-
og Brezhnevtímanum var það mest
þagnarlýgin. Maður kaus það helst
að þegja. Eða afgreiða málið með
staðlaðri setningu. „Þegar sam-
yrkjubúskap var komið á var í viss-
um tilfellum gengið of langt og hið
sósíalistíska grundvallaratriði ekki
virt um að menn bindist samtökuna^T
af fijálsum vilja.” Hér er átt við
að bændur voru þvingaðir til að
ganga í samyrkjubú, samhliða voru
bændur fluttir nauðungarflutning-
um og matvæli gerð upptæk. Afleið-
ingin varð uppskerubrestur og
hungursneyð sem kostaði milljónir
lífíð.
Rannsóknir og viðfangsefni voru
valin með hliðsjón af línunni. Menn
hylltust að því að velja sértæk verk-
efni, t.d. landbúnaðarframleiðslu á
18. öld. — En það fóru líka fram
mjög líflegar og frjóar umræður
um fræðilegar spurningar sagn-
fræðinnar. Lénskerfíð, söguleg lög-
mál eða ferli, hlutverk einstaklinga.
En þessi umræða var takmörkuó'
við fræðimennina.”
— Hvernig eru viðhorfin í so-
véskri sagnfræði í dag, það hlýtur
að vera mikil endurskoðun í gangi?
„Nú er hægt að fínna flest mögu-
leg sjónarmið til sögunnar. Fjölm-
iðlar í Sovétríkjunum eru nú mjög
andkommúnískir í skrifum um sög-
uleg efni. Það má segja að þeir
hafí tekið frumkvæðið af sagnfræð-
ingum sem eru enn bundnir af ára-
tuga innrætingu og fyrri skrifum.
Nú hefur flokkurinn ekkert að segja
um söguskoðunina. Sagnfræðing-
um er nú fijálst að endurskoða sög-
una, segja Satt frá því sem máli
skiptir. Eg bíð spenntur eftir nýrri
kennslubók um stjórnmálasögu
Rússlands. Það er sagt að október-
byltingin verði tekin til gagnrýninn-
ar endurskoðunar. En það er ekki
lengur til einn réttur og opinber
sannleikur.”