Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 2

Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 OLÍS og Olíufélagið semja við Norð- menn um olíukaup: Allflestar olíuvör- ur frá Noregi 1992 Statoil óskar eftir viðræðum við Skeljung OLIS og Olíufélagið hafa gert samninga við norska ríkisolíufyrir- tækið Statoil um kaup á olíuvörum allt næsta ár. Þessi tvö félög fá allar sínar olíuvörur, fyrir utan svartolíuna, frá Norðmönnum á næsta ári. Hér er um að ræða 130.000 tonn af bensíni, gasolíu og þotueldsneyti hjá Olís og allt að 200.000 tonn hjá Olíufélag- inu. Þetta er í fyrsta sinn sem samningar af þessu tagi eru gerð- ir við Norðmenn en áður hafa íslensku olíufélögin keypt stöku farma af Statoil. Þá hefur norska fyrirtækið nú óskað eftir viðræð- um við Skeljung um sölu á olíuvörum. Verða þær viðræður vænt- anlega í byijun janúar. og Shell í Noregi um olíukaup," segir Kristinn. „Þá hefur Statoil óskað eftir viðræðum við okkur og hefjast þær í byijun janúar. Það er alveg ljóst að við munum kaupa olíuvörur þar sem þær bjóð- ast á lægsta verðinu." FJÓRIR menn voru fluttir á sjúkrahús eftir að Toy- ota-pallbíll sem þeir voru í valt á Vesturlandsvegi við Tíðaskarð á sunnudagskvöld. Mikið hvassviðri var þegar slysið varð og kvaðst ökumaðurinn. ekki Sameining við Landspítala kemur til greina árið 1997 Hörður Helgason, aðstoðarfor- stjóri Olís, segir að samningar þessir hafi verið nokkuð lengi í bígerð eða allt frá síðasta vori. Norðmennimir tóku strax vel í umleitanir íslensku olíufélaganna um kaup á olíuvörum og vom þess- ir samningar undirritaðir fyrir skömmu. íslensku olíufélögin . . .. . . , kaupa oiíuna á heimsmarkaðsverði Sighvatur Bjorgvmsson heilbrigðisraðherra: eins og það er þegar farmar em --------------------------------------------------------------------------- lestaðir ytra. „Þetta er í fyrsta sinn sem við gemm samninga til svo langs tíma við Norðmenn og um svona mikið magn en um er að ræða allar olíu- vörar utan svartolíu sem við mun- um kaupa áfram af Rússum," seg- ir Hörður Helgason. Geir Magnússon, forstjóri Olíu- félagsins, segir að þessir samning- ar við Statoil hafí verið gerðir án afskipta viðskiptaráðuneytisins. „Innflutningur á bensíni var gef- inn frjáls fyrir ári síðan og á þeim tíma höfum við keypt allt okkar bensín, og hluta af gasolíu, frá Vesturlöndum,“ segir Geir. „Við bíðum núna eftir ákvörð- unum stjórnvalda í vérðmyndun á olíuvörum en framvarp um aukið frelsi til olíufélaganna í verðmynd- un átti að fara í gegnum Alþingi fyrir áramót. Það getur víst ekki orðið úr þessu.“ Kristinn Bjömsson, forstjóri Skeljungs, segir að fyrirtækið sé með samninga um kaup á olíuvör- um við Shell í Rotterdam út apríl- mánuð. „En við eram famir að huga að framhaldinu og höfum rætt við bæði Shell í Rotterdam 4 slösuðustí veltu Morgunblaðið/Ingvar. hafa getað stjórnað bílnum á hálum veginum vegna þess. Að sögn lögreglu voru meiðsli mannanna ekki talin hættuleg en þeir gengust undir rannsókn og fengu aðhlynningu á slysadeild. Mikil samstaða innan spítalans gegn sameiningn segir Sigurður Björnsson læknir á Landakoti SIGHVATUR Björgvinsson heil- brigðisráðherra segir að verði ekki af sameiningu Landakots og Borgarspítala verði farið að huga alvarlega að því að gera Landakot að ríkisspítala þegar samningurinn við St. Jósefssyst- ur rennur út 1997 og þá geti það átt fyrir honum að liggja að verða sameinaður Landspítalan- um. Standi nunnurnar og starfs- menn spítalans á andstöðu sinni verði að skipta fjárveitingu fjárlagafrumvarpsins á milji spít- alanna tveggja sem muni reynast mjög erfitt. Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri _ í heijbrigðis- ráðuneytinu, og Ólafur Örn Arn- arson, yfirlæknir á Landakoti, sem sæti á í nefnd þeirri er mælir með sameiningu spítal- anna, áttu í gær fund með St. Jósefssystrum. Páll sagði að ekki hefði verið óskað eftir breytingu á afstöðu þeirra til sameiningar spítalanna og að afdráttarlaus afstaða þeirra í bréfinu til ráð- herra standi áfram. „Það lítur út fyrir að þessi afstaða þeirra hafi komið fram eftir endurtekn- ar heimsóknir og skriftir starfs- manna til þeirra," sagði Páll. Aðspurður sagði hann að læknar hefðu haft sig mest í frammi gegn sameiningarviðræðunum um sameininguna. Flugleiðir og Eimskip: Neikvæð raimávöxtun hluta- bréfa frá útboðum í fyrra — miðað við að bréfin yrðu seld núna á skráðu kaupgengi RAUNÁVÖXTUN hlutabréfa sem keypt voru í útboðum Eimskips og Flugleiða fyrir rúmu ári er neikvæð miðað við að bréfin yrðu seld núna á skráðu kaupgengi á verðbréfamarkaði. Er þá miðað við skráð kaupgengi bréfanna hjá Landsbréfum og nýlegt kauptilboð á tilboðsmarkaði Kaupþings. Miðað við þessa forsendu er raunávöxtun hlutabréfa sem keypt voru í útboði Flugleiða í nóvember á sl. ári neikvæð um 6,3%. Raunávöxtun hlutabréfa Eimskips sem keypt voru í október á sl. ári er neikvæð um 2,9%. Þessa útkomu bréfanna má rekja til lækkana á gengi þeirra frá því í ágúst. Hlutabréf Flugleiða voru seld á genginu 2,20 í nóvember á sl. ári í hlutafjárútboði félagsins en frá þeim tíma hafa eigendur bréfanna fengið 10% arð og 10% jöfnunar- hlutabréf skv. ákvörðun aðalfundar. Sá sem keypti bréf í útboðinu fyrir 100 þús. kr. að nafnvirði greiddi fyrir þau 220 þús. kr. Að meðtöld- um jöfnunarhlutabréfum eru hluta- bréf hans nú 110 þús. kr. að nafn- virði. Ef þessi sami aðili seldi bréf sín núna á genginu 1,95 fengi hann 214.500 kr. Til viðbótar hefur hann fengið 10 þús. kr. í arð þannig að heildareign hans er því 224.500 kr. Bréfín hafa því hækkað um 4.500 kr. eða um 2% á tímabilinu. Á sama tíma hefur lánskjaravísitalan hækk- að um 8,8% og er raunvöxtun því neikvæð um 6,3%. Hlutabréf Eimskips voru seld á genginu 5,60 í áskrift í útboði fé- lagsins í október á sl. ári. Frá þeim tíma hafa eigendur bréfanna fengið 15% arð og 10% jöfnunarhlutabréf. Sá sem keypti bréf í útboðinu fyrir 100 þús. kr. að nafnvirði greiddi fyrir þau 560 þús. kr. Að meðtöld- um jöfnunarhlutabréfum er hlutafé hans nú 110 þús. kr. að nafnvirði en það samsvarar 577.500 kr. mið- að við gengið 5,25. Að meðtöldum arði nemur heildareign viðkomandi 592.500 kr. sem er um 5,8% hækk- un. Lánskjaravísitalan hefur aftur á móti hækkað um 9% á tímabilinu þannig að raunávöxtun er neikvæð um 2,9%. I þessum útreikningum. er ekki tekið tillit til skattaafsláttar sem sumir kaupendur bréfanna hafa eflaust fengið né heldur eru vextir reiknaðir af arðgreiðslunni. Einnig þarf að hafa í huga að hlutabréf ber að líta á sem langtímafjárfest- ingu en hér er um tiltölulega stutt tímabil að ræða. Þá þarf jafnframt að taka tillit til þess að innifalin er söluþóknun verðbréfafyrirtækja sem er að jafnaði 5%. Loks ber að taka ■ fram að hlutabréf Flugleiða og Eimskips hafa aðeins verið keypt í takmörkuðum mæli gegn stað- greiðslu á verðbréfamarkaði að undanförnu en þess í stað era þau tekin í umboðssölu. Páll sagði að nunnurnar hefðu tæpast farið að taka afstöðu til málsins nema fyrir einhver slík áhrif frá starfsmönnum. Sagði hann að ráðherra þyrfti nú að taka af- stöðu fljótlega en sér virtist að sú samvinna sem tillaga væri gerð um milli spítalanna væri fallin. 22 af 37 læknum sem sæti eiga í læknaráði Landakots undirrituðu ályktun á sunnudag þar sem lýst er fullum stuðningi við ákvörðun St. Jósefssystra og að þeir vænti þess að ríkisvaldið standi við sinn hluta samningsins við nunnurnar um rekstur spítalans. Sigurður Bjömsson, yfírlæknir á lyflækn- ingadeild, sagði að St. Jósefssystur hefðu gefíð í skyn að ef meirihluti lækna Landakots vildi gera breyt- ingar á fyrirkomulagi læknaþjón- ustu spítalans, myndu þær íhuga það. Því hafí læknamir sent þeim bréfíð á sunnudag. Síðan var hald- inn fundur í læknaráði kl. 17 þar sem tillögur sameiningarnefndar- innar voru lagðar fram. Sagði Sig- urður að til hefði staðið að fá lækna- ráðið til að samþykkja tillögumar en í ljósi bréfsins til St. Jósefs- systra hafí það fallið um sjálft sig. „Formaður læknaráðs hafði vonast til að við myndum samþykkja tillög- urnar og sagði okkur að hann ætl- aði með þá niðurstöðu til systranna á sunnudagskvöld til að reyna að fá þær til að skipta um skoðun. Ur því varð að sjálfsögðu ekki,“ sagði Sigurður. Kvaðst hann telja að í sameiningarskýrslnnni væri aðeins verið að leggja til að Landa- kotsspítali verði lagður niður og sagði að mikil samstaða væri innan spítalans gegn sameiningu. Nýlega hefði ráðherra verið afhentur undir- skriftalisti með nöfnum 461 starfs- manns gegn sameiningaráformun- um. Ólafur Öm Amarson sagði að niðurstaða lægi ekki fyrir. Ráðherra ætti eftir að fjalla um skýrsluna og gera svo sínar tillögur til stjórna spítalanna. í framhaldi af því verði leitað álits St. Jósefssystranna. Sagði hann að álit þeirra hefði kom- ið of fljótt fram. Sagði hann að óeðlilegt hefði verið að leita eftir áliti systranna áður en eiginleg nið- urstaða hefði legið fyrir. Aðspurður sagði hann að engin samþykkt hefði verið gerð meðal starfsfólks spítal- ans um helgina. Skoðanir væru skiptar en þær skiptust nokkurn veginn til helminga meðal lækna Landakots. Heilbrigðisráðherra segir að beð- ið verði endanlegrar afstöðu St. Jósefssystra um sameiningu Landa- kotsspítala og Borgarspítala áður en ákveðið verður hvort fallið verði frá hugmyndinni en ef þær standi við andstöðu sína gegn sameiningu verði ekkert af henni. „Þama hafa stjórnendur tveggja spítala skilað samhljóða niðurstöðu, síðan kemur í ljós að meirihluti starfsfólks á Landakoti virðist vera á móti og nunnurnar líka. Nunnurn- ar segjast í bréfí sínu til mín hafa allar sínar fréttir um þessi mál úr blöðum en ég veit að þær hafa v.er- ið látnar fylgjast með,“ sagði ráð- herra. „Ég ætla ekki út í neitt stríð við nunnumar á Landakoti hvort sem ég get túlkað lögin mér í vil eða ekki. Ef þær eru alfarið á móti þessu þá stendur það. Mér skilst einnig að meirihluti læknaráðs Landakots sé einnig mótfallinn saméiningunni. Verði ekki af henni verðum við að fara út í að skipta ljárveitingu á milli Borgarspítalans og Landakots. Það getur orðið mjög erfítt,“ sagði ráðherrann. Sjá ennfremur blaðsíðu 48. -----------» ♦ ♦-------- Ekið á aldr- aða konu Öldruð kona varð fyrir bíl á Rauðarárstígnum í gær, um kl. 16, er hún var á leið í pósthúsið þar. Ökumaðurinn ók raldeiðis af slysstaðnum án þess að sinna konunni. Konan gengur við stafhækju o. ók bílstjórinn á hækjuna. Við þai féll konan í götuna. Hún handar- brotnaði við það að bera höndina fyrir sig í fallinu. Nærstaddir veg- farendur komu konunni til hjálpar. Fékk hún að fara heim er búið hafði verið um handarbrotið. Hafði starfsfólk pósthússins hjálpað konunni við að komast undir læknishendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.