Morgunblaðið - 17.12.1991, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
Sverrir Hermannsson bankasljóri á fundi sjálfstæðisfélaga í Reykjavík:
Ætlar flokkurinn að halda
áfram ofsíj órnarbrj álæði?
Kallar eftir stefnu sjálfstæðismanna í sjávarútvegsmálum
SVERRIR Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, gagnrýnir stefnu-
leysi Sj^lfstaeðisflokksins i sjávarútvegsmálum og spyr hvort flokkur-
inn ætli að halda áfram „ofstjórnarbrjálæði Framsóknarflokksins".
Þetta kom fram í hugvekju Sverris á jólafundi sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík siðastliðinn laugardag.
„Það er ekki heii brú í þessu
flókna ofstjómar- og miðstýringarr
kerfí,“ sagði Sverrir er hann ræddi
um fyrirkomulag fískveiðistjómun-
ar. „Vafalaust, að því er séð verður,
erum við á röngu róli með alla okk-
ar stýringu á nýtingu landhelginnar.
Það blasir við að í hvert einasta
skipti, sem þorskstofn er stærstur,
verður nýliðun minnst og í hvert
einasta sinn sem þorskstofn er
minnstur verður nýliðun stærst.
Þetta er hægt að rekja frá árinu
1960. Menn spyrja: Hver ósköpin
em þetta? Erum við með friðun
Faxaflóa, friðun Breiðaljarðar og
Þistilfjarðar, að friða ránfískinn, sem
étur nýliðunina, eða hvað? Spyr sá,
sem ekki veit,“ sagði Sverrir.
„Mér ofbýður með öllu ef svo á
til að bera að Sjálfstæðisflokkurinn
taki nú loksins við forystu í þessum
undirstöðuatvinnuvegi okkar og ætli
að halda áfram að framkvæma of-
stjórnarbijálæði Framsóknarflokks-
ins, þó að við bemm meira og minna
ábyrgð á ofstjóminni, eins og hún
var af hendi leyst þá, og jafnvel með
enn meiri þrælatökum en áður,“
sagði Sverrir. „Ég hlýt að vara við
þessu sterkiega og kalla eftir því
alveg án undanbragða að Sjálfstaeð-
isflokkurinn móti sér stefnu í sjávar-
útvegsmáium, um nýtingu fískstofna
og skipan þessara mála í heild sinni.
Þessi stefna er ekki tii.“
Sverrir sagði að stefnan, sem nú
væri uppi, væri að leiða þjóðina í
ógöngur. „Við sjáum hagfræðinga,
sem draga út reiknistokka sína og
segja: Er Húsvíkingum nokkuð
vandara um að flytja suður til
Reykjavíkur en Homstrendingum á
sínum tíma? Og við höfum unga
menn, sem em að gera sig breiðari
en áður, fijálshyggjumenn, sem hafa
siíka vanþekkingu á þjóðfélaginu og
byggingu þess í heild, að þeir era
álíka til verks lagnir og prestur til
sinna verka, sem á enn ólesna fjail-
ræðuna," sagði hann.
Bankastjórinn sagði að uppistaða
og inntak Sjálfstæðisflokksins væri
einkaframtakið í sjávarútvegi. „Og
hvert stefnir nú, þegar menn skrifa
um þær þúsundir, sem komi til með
að eiga fískstofnana, þegar þeir
leyfa sér að sitja fyrir svömm niðri
í þingi og segja að eigi að vera einka-
eign manna? Þeir fara með vísvit-
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00
Helmid: VeCurstofa islands
(Byggt á vaöurapá kl. 16.151 gær)
VEÐURHORFUR l DAG, 17. DESEMBER
YFIRLIT: Um 300 km suðsuðaustur af Hvarfi er 950 mb lægð á
hreyfingu norðaustur. Skammt norðvestur af landinu er 970 mb
lægð sem grynnist og færist einnig norðaustur.
SPÁ: í fyrramálið verður norðaustanátt og él á Vestfjörðum, en
breytileg eða suðvestanátt og skúrir eða slydduél í öðrum lands-
hlutum. Sfðdegis verður vaxandi norðaustanátt og kólnandi veður
um allt land. Snjókoma eða éljagangur um allt norðanvert landið,
en léttir til sunnan fjalla.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestlæg átt um mest allt iand. Él
um sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítið norðaustanlands.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg eða norðaustlæg átt. Él víða
um land, þó einkum norðanlands.
Svarsimi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hrtastig: 10 gráður á Celsius
A stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
/ > Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V Él Þoka
Léttskýjað / / / / / / / Rigning
'íllÉb Rálfskýjað / / / * / * 9 5 Þokumóða Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo 4 Mistur Skafrenningur
Alskýjað *-**-* Snjókoma * # # K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hhl vefiur Akureyri 5 skýjað Reykjavík 5 skúr
Bergen 2 skýjað
Helsinki +1 skýjað
Kaupmannahöfn 4 þokumóða
Narssarssuaq 1 skafrenningur
Nuuk vantar
Ösló 0 skýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Þórshöfn 8 rigning
Algarve 18 rign. ó síð. klst.
Amsterdam 3 þoka
Barcelona 11 mistur
Berlín 1 mistur
Chicago vantar
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt *4 þokumóða
Glasgow 7 mistur
Hamborg 0 mistur
London 9 mistur
Los Angeles 14 alskýjað
Lúxemborg vantar
Madríd 9 þokumóða
Malaga 15 þokumóða
Mallorca 13 skýjað
Montreal +15 skýjað
New York 0 léttskýjað
Orlando vantar
París . vantar
Madeira vantar
Róm vanter
Vin +5 hrfmaþoka
Washington +3 léttskýjað
Winnipeg +11 alskýjað
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sverrir Hermannsson flytur hug-
vekju sína í Sjálfstæðishúsinu
Valhöll.
andi ósannindi, því að brátt kunna
að vera stórhöfðingjar teljandi á
báðum höndum, sem eiga þetta allt
saman, og það á víst að ganga að
erfðum. Menn eiga að eiga fisk á
uggum, eins og menn áttu áður fé
á fæti,“ sagði hann.
Dæmdur í
5 mánaða
fangelsi
SAKADÓMUR í ávana- og
fíkniefnamálum hefur dæmt
30 ára gamlan mann í 5 mán- :
aða fangelsi fyrir að hafa haft
í fórum sínum, í því skyni að
seþ’a, 49,5 grömm af amfetam-
íni sem hann kastaði frá sér
á flótta undan lögreglu í jan-
úar síðastliðnum.
Lögreglan handtók manninn
á hlaupum á Njálsgötu en
skömmu áður höfðu lögreglu-
menn séð hvar hann kastaði frá
sér plastpoka með efninu á Vita-
stíg. Við yfirheyrslur bar maður-
inn að hafa sótt efnið að felu-
stað að Hallgrímskirkju en þar
hafi maður sem hann þekkti
ekki komið því fyrir og á þann
sama stað hafí hann átt að setja
250 þúsund króna borgun þegar
hann væri búinn að selja efnið.
Maðurinn játaði að hafa ætlað
að drýgja efnið með því að þynna
það út og selja grammið svo á
5 þúsund krónur.
Sala mjólkurdufts:
Samdráttur kæmi
fyrst o g fremst
niður á bændum
- segir formaður Samtaka afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði
ÓSKAR H. Gunnarsson, formaður Samtaka afurðastöðva í nyólkur-
iðnaði, segir að ef samdráttur verði í sölu á innlendu mjólkurdufti
muni það fyrst og fremst koma niður á kúabændum, þar sem það
myndi rýra verulega mjólkurframleiðslu þeirra eftir að útflutnings-
uppbætur falla niður frá og með 1. september næstkomandi. Hann
sagði að það duft sem ekki væri markaður fyrir hérlendis færi fyrst
og fremst til osta- og smjörgerðar, og miðað við sölu þessara afurða
á innanlandsmarkaði og það mjólkurmagn sem kæmi til mjólkurbú-
anna, þá væri ekki um annað að ræða en að setja þær á erlendan
markað.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu er í efnahagsaðgerð-
um ríkisstjómarinnar gert ráð fyrir
að niðurgreiðslum á mjólkurduft til
samkeppnisiðnaðar verði hætt, en
þess í stað lagt jöfnunargjald á inn-
flutt sælgæti. Landbúnaðarráðherra
hefur lýst því yfír að hann hyggist
ekki leyfa innflutning á mjólkur-
dufti, en heimsmarkaðsverð á því
er tífalt lægra en á óniðurgreiddu
mjólkurdufti hérlendis, og því íhuga
sælgætisframleiðendur að flytja inn
kakóduft, sem innihéldi mjólkurduft
að vemlegu leyti.
Óskar H. Gunnarsson sagði að
áhrif slíks innflutnings fyrir mjólkur-
iðnaðinn fæm fyrst og fremst eftir
því hve mikill innflutningurinn yrði,
og eins hvemig verðlagningu á hon-
um yrði háttað. Hann sagðist telja
að jöfnunargjald hlyti að verða sett
á innflutt kakóduft í hlutfalli við
magn mjólkurdufts í vömnni þar
sem það væri I samkeppni við inn-
lenda framleiðslu.
Fjármálaráðherra;
Jöfnunargjaldið
löglegt hér á landi
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir jöfnunargjaldið löglegt
hér á landi og það beri öllum að fara eftir þeim lögum. Stjórnarfrum-
varp um framlengingu á álagningu jöfnunargjalds á innfluttar vörur
liggur nú fyrir þinginu. Framkvæmdasljórn Verslunarráðs hefur and-
mælt frumvarpinu þar sem það sé í ósamræmi við þá fríverslunarsamn-
inga sem ísland hefur gert við EFTA og EB auk þess sem gert hafi
verið ráð fyrir að gjaldið félli niður þegar virðisaukaskattur væri
tekinn upp.
Friðrik Sophusson sagði í samtali
við Morgunblaðið að það væri rétt
að gert hefði verið ráð fyrir að jöfn-
unargjaldið félli niður þegar virðis-
aukaskattur yrði tekinn upp. „Þáver-
andi ríkisstjóm felldi skattinn hins
vegar ekki niður heldur hækkaði
hann þvert á móti úr 3% í 5%. í
byrjun þessa árs lækkaði hann í 4%
og í haust niður í 3%. Þar hyggj-
umst við halda honum fram á mitt
ár en þá verður hann lagður af,“
sagði Friðrik.
Hann sagði jöfnunargjaldið ekkert
meira eða minna ólöglegt nú en það
hefði verið en það væri hins vegar
rétt að EFTA-þjóðimar gætu gert
athugasemdir við það og gripið til
gagnráðstafana. „Við væntum þess
að þær hafi með okkur biðlund í
málinu í hálft ár enda hefiir verið
sýnt fram á að uppsöfnunaráhrifun-
um af söluskattinum hefur ekki ver-
ið útrýmt alveg," sagði Friðrik.
Hann sagðist þess fullviss að
fmmvarpið um framlengingu á
álagningu gjaldsins ætti nægan
stuðning á Alþingi, þar sem það
hefði verið borið undir báða stjómar-
flokka og verið samþykkt af þeim
áður en það var lagt fram.