Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
21
Steinsteypa,
stál o g plast
eftir Sigurlínu
Sveinbjarnardóttur
Ekki er öll vitleysan eins. Nú hef-
ur kaupmönnum við Laugaveginn í
Reykjavík dottið í hug að byggja þak
yfir gangstéttamar svo að það rigni
ekki og snjói á kúnnana. Flannadýr-
ar auglýsingar hvetja einnig við-
skiptavini til að versla í hlýju og
birtu Kringlunnar. Það eru engin
takmörk fyrir hugulsemi kaup-
jnanna í garð okkar, væntanlegra
kaupenda. En hvað kostar öll þessi
steinsteypa, stál og plast? Gera
blessaðir mennirnir þetta allt af ein-
skærri hjartagæsku eða hver borgar
brúsann?
Að sjálfsögðu era það þú og ég
sem borgum fyrir þetta í hærra vöra-
verði og því vil ég hér með mót-
mæla. Þegar ég kaupi vöru þykir
mér alveg nóg að þurfa að borga
kynstin öll af óþarfa umbúðum og
geysilegan auglýsingakostnað, þó
að ekki bætist við algjörlega óþarfur
aukakostnaður fyrir steypu, stál og
plast. Eigum við íslendingar ekki
heimsmet í fermetrafjölda verslunar-
■ IÐUNN gefur út bókina Södd
og sæl á fyrsta ári eftir Laufeyju
Steingrímsdóttur næringarfræð-
ing. I kynningu útgefenda segir
m.a.: „Hér er á ferðinni ómissandi
handbók fyrir foreldra ungra bama,
bók sem veitir skýr og greinargóð
svör við flestum þeim spurningum
sem kunna að vakna varðandi nær-
ingarþörf ungbamsins. Meðal ann-
ars er hér að fínna leiðbeiningar
um brjóstagjöf, pelagjöf og ung-
barnablöndur, fæðuval og matartil-
búning fyrir barnið. Rætt er um
hvenær óhætt sé að bytja að gefa
barninu fasta fæðu og sagt frá því
hvaða fæðutegundir beri helst að
varast fyrstu mánuðina.
„Ég tel tímabært að
kaupmenn hugsi sig al-
varlega um hvort það
sé ekki allra hagur að
viðskiptavinirnir fái
vörurnar á lægra verði
og að dregið verði úr
bruðli með steypu, stál
og plast.“
húsnæðis á íbúð?
Ég hef aldrei stigið mínum fæti
í Kringluna og ætla aldrei að gera.
Ég vil ekki nota mína peninga til
að greiða fyrir gjörsamlega ónauð-
synlegar byggingaframkvæmdir
þar, enda gengur mér ágætlega að
eyða þeim annars staðar. Ég hef
fram til þessa heldur kosið að styrkja
verslun á Laugaveginum og í gamla
miðbænum. Mér er mjög annt um
gamla bæinn og hef tekið nærri mér
ýmsar alvarlegar tilraunir sem gerð-
ar hafa verið til að eyðileggja hann.
Og nú blöskrar mér alveg hvemig
Laufey Steingrímsdóttir
lýta á götumynd Laugavegar með
þökum yfir gangstéttar. Það var
nógu slæmt þegar sett vora upp
forljót auglýsingaskilti þvert yfir
Laugaveginn í fyrra. Eru ekki ein-
hver byggingaryfírvöld sem geta
bannað slíka sjónmengun? En auk
þess erum það við, kúnnarnir, sem
verðum að borga í vöraverðinu fyrir
allt þetta stál og plast.
Ég tel tímabært að kaupmenn
hugsi sig alvarlega um hvort það sé
ekki allra hagur að viðskiptavinirnir
fái vörurnar á lægra verði og að
dregið verði úr braðli með steypu,
stál og plast. Þá gæti verið að færri
færa til Skotlands í verslunarferðir.
Okkur íslendingum er engin vor-
kunn að ganga „úti“ á milli verslana
í öllum veðram. Við getum bara far-
ið í fínu skíðagallana okkar eða fjal-
laútbúnaðinn ef veðrið er vont.
Ég vil því bera fram þá tillögu
að Samtök verslunareigenda í mið-
bænum hafi framkvæði að því, í stað
þess að byggja þak yfír Laugaveg-
inn, að lækka allt vöraverð um
15-20% og kynna sérstaklega holl-
ustuna sem fylgir því að fá góða
hreyfingu og ferskt útiloft við inn-
kaupin. Ég er nokkuð yiss um að
þeir gætu á þennan hátt lokkað
marga frá lognmollu Kringlunnar.
Ég hef reyndar aðra hugmynd
sem gæti verið afar skemmtilegt að
reyna. Ef allir Islendingar tækju sig
saman núna og frestuðu allflestum
innkaupum í eitt ár. Aðeins yrðu
keyptar allra nauðsynlegustu mat-
vörur til að halda góðri heilsu og
líkamshreysti en engar jólagjafir og
engin föt í heilt ár. I staðinn mund-
um við öll leggja okkur fram um að
meta önnur lífsgæði, leggja áherslu
á hugulsemi, ást og umhyggju.
Hægt væri að dytta áð gömlu fötun-
um, síkka buxumar þegar börnin
stækka, skiptast á fötum og sauma
upp úr gömlu. Ég þori að fullyrða
að við væram ennþá við lok þessa
árs í hópi bestklæddu þjóða heims.
Þetta væri holl lexía fyrir okkur, við
gætum vonast eftir nokkuð breyttu
verðmætamati að fenginni þessari
reynslu, en við kynnum eflaust vel
að meta jólafötin og jólagjafirnar
næstu jól.
Höfundur starfrækir einkaskóla í
Grjótaþorpi.
GULUR
GRÆNN
OG BLÁR
NÝIR LITIR OG SÉRSTAKAR KÚLUR FYRIR
SJÓNSKERTA OG BLINDA
TVEIR, ÞRÍR,
FJÓRIR EÐA SEX
NÚ GETA ALLT AÐ SEX SPILAÐ
oboJone
1 GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
| HEILDVERSLUN, SÍMI 653075
Kfottverð
HAGKAUP