Morgunblaðið - 17.12.1991, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
29
Rislág þingstörf
eftir Gunnlaug
Þórðarson
Áður fyrr og jafnvel enn þykir
það hin mesta goðgá að gagnrýna
störf Alþingis eða Hæstaréttar.
En tímarnir eru breyttir og nú eru
jafnvel gefnar út bækur þar sem
menn tíunda að þeirra mati veilur
í starfi Hæstaréttar. Það er reynd-
ar ekki á færi annarra en lögfræð-
inga að benda á hugsanleg mistök
Hæstaréttar og það hlýtur jafn-
framt vera hverjum lögfræðingi
þungbært að finna sig knúinn til
þessa, því lögfræðingar vilja veg
æðsta dómstóls þjóðarinnar slíkan
að ekki þurfi að koma til gagnrýni.
Hins vegar er hvetjum manni
auðveldara en áður að átta sig á
því, þegar framkoma alþingis-
manna er óþingleg eða andstæð
velsæmi og eiga fjölmiðlarnir sinn
þátt í því að gera slíkt athæfi
augljósara en áður. Aftur á móti
er það öðrum fremur á færi lög-
fræðinga að meta löggjafarstarf
Alþingis, sem er meginstarf þing-
manna.
Að verða samdauna þingheimi
Á árunum 1956—1958 átti
undirritaður sæti á Alþingi í for-
föllum kjörins þingmanns. Frá
þeim tíma hefur mér e.t.v. þótt
meira um veg Alþingis og störf
þess en ella og ekki getað stillt
mig um að víkja stundum að störf-
um þingmanna í fjölmiðlum. Mér
finnst algjör fjarstæða, að til þess
að geta dæmt störf Alþingis þurfi
menn að hafa átt sæti á þingi og
enn meiri fjarstæða að menn séu
ekki hæfir ráðherrar, nema þeir
hafi setið á þingi. Það er fundið
Davíð Oddssyni, forsætisráðherra,
til foráttu. Áð mínu mati er ein-
mitt kostur að hafa ekki orðið
samdauna þingheimi áður en
menn verða ráðherrar og geta séð
störf þingsins í réttu ljósi eins og
honum hefur tekist. Þess má t.d.
minnast að sá ágæti maður Her-
mann Jónasson varð forsætisráð-
herra nánast um leið og hann
settist á þing. Enginn hefur látið
sér detta þá fásinnu í hug, að
Hermann hefði verið síður hæfur
til ráðherradóms þess vegna. Þá
er þess og að minnast, að menn
hafa setið á þingi og það jafnvel
áratugum saman og aldrei flutt
bitastætt mál, en aðallega tekið
þátt í meira og minna tilgangs-
lausum umræðum í því skyni að
vekja athygli á sér. Þessi löstur
þingmanna hefur greinilega færst
mjög í aukana nú eftir að þingið
hóf í haust að starfa í einni deild.
Þá mun skortur á æsifréttum hafa
gert fjölmiðla aðgangsharðari en
áður og er það ástæða þessara
skrifa, þar sem vegið hefur verið
að Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra að ósekju fyrir að hafa á
hispurslausan hátt bent á hve
störf þingsins hafa í seinni tíð
verið rislág.
Að slá sig til riddara
Átakanlegt dæmi um þetta er
þegar samflokksþingmaður for-
sætisráðherrans tók til sín um-
mæli, sem greinilega beindust að
framkomu Olafs Ragnars Grímss-
onar, sem hugðist slá sig til ridd-
ara með þeirri smekkleysu að efna
til blaðamannafúndar, þar sem
hann ætlaði að koma höggi á ríkis-
stjórnina fyrir sinnuleysi í sam-
bandi við hörmulega sorgarvið-
burði. Þessi samflokksþingmaður
forsætisráðherra, sem var á sömu
villigötum í málinu og Ólafur
Gunnlaugur Þórðarson
„Að mínu mati er ein-
mitt kostur að hafa ekki
orðið samdauna þing-
heimi áður en menn
verða ráðherrar og
geta séð störf þingsins
í réttu ljósi.“
Ragnar, tók til sín hógvært svar
forsætisráðherra af því tilefni í
fjölmiðli. Það er táknrænt fyrir
störf þingmanna í dag, er þessi
sami þingmaður krafðist áfsökun-
ar á ummælum forsætisráðherra,
sem eins og fyrr segir greinilega
beindist að frumhlaupi Ólafs
Ragnars og varð sér til minnkun-
ar á þann hátt. Enn fáránlegri var
þó utandagskrárumræðan 29.
f.m., er Steingrímur J. Sigfússon,
fyrrv. ráðherra, krafði forsætis-
ráðherra afsökunar á ummælum
hans um störf þingsins, sem hann
líkti við fund í gagnfræðaskóla
eða klúbbfund og var sú umsögn
rækilega staðfest með umræðu á
utandagskrá þeirri. Samt varð
Ólafur Ragnar Grímsson til þess
að kóróna skrípalætin með upp-
lestri úr tímariti til þess eins að
tefja þingstörfin.
Athyglisverð
fráhvarfseinkenni
Það átti mjög vel við, þegar
forsætisráðherra benti á fráhvarf-
seinkenni ráðherranna, sem orðið
hafa að hverfa úr ráðherrastólum.
Það var ekki síður passandi hjá
forsætisráðherra að líkja þing-
störfum að undanförnu við klúbb-
fundi, þegar t.d. hugsað er til
samstöðu þingmanna um að halda
fast í fríðindi, svo sem ákvæði um
lögheimili, sem hafa í för með sér
að þingmenn eins og Steingrímur
J. Sigfússon o.fl. geta m.a. fengið
aukalega um milljón krónur í hú-
saleigustyrk af almannafé. Má í
því efni minnast máls Rit Bjær-
regaard, danska ráðherrans
fyrrv., sem varð að láta af for-
mennsku í þingflokki sínum af því
að slíkur styrkur þótti siðlaus hjá
Dönum.
Fjörráð við lýðræðið
Auðvitað eru vandræða þing-
menn í öllum flokkum, sem m.a.
vilja í blindri fyrirgreiðslupólitík
halda áfram fjáraustri úr ríkis-
sjóði í vonlausa hít eða setja hér-
aðsbundin ákvæði líkt og þáver-
andi sjávarútvegsráðherra stóð
fyrir 1975, og hefur á sinn hátt
átt þátt í stórfelldu hruni rækju-
iðnaðarins. Sá þingmaður hefði
átt að hætta þá, enda búinn að
sitja 12 ár á þingi, en enginn
maður ætti að sitja á þingi leng-
ur. Áratuga seta á þingi er fjörráð
við lýðræðið.
Höfundur er
hæstaréttarlögniaður.
Dúx spiritus
fyrir viðkvæma
og feita húð
Dúx spiritus er mild
djúphreinsandi
náttúrusópa fyrir
feita húð. Dúx skilur
eftir raka í hú&inni
og vi&heldur e&lilegu
sýrustigi pH 5,5.
sFRIGG
snyrtivörurSJ
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamidill!
7.110.111
ktt.115.
MHOAWMn
MÍÍÓÁWWTJ
„úsvtSliSl^ín
„OBGUNBIAO®
jobgaklmhúsið
IISTABRAUT
AUÐVELT MEÐ
STRÆTÓI
KRINGLUNA
Það er einfalt mál að komast í Kringluna -
og þarf ekki einkabíl til þess.
Biðstöðvar strætisvagna Reykjavíkur eru
beggja vegna Miklubrautar
Ieiðir7, 16,1 10,1 1 1,1 12 og 1 15, leiðir 8 og 9 við
Borgarleikhúsið, leið 3 við Hvassaleiti.
K&H) Biðstöðvar Kópavogs- og Hafnarfjarðarvagna
eru beggja vegna Kringlumýrarbrautar.
Að komast í Kringluna ?
Ekkert mál með strætó.
NGMN i