Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 30

Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 Kerfið getur ekki lært af mistökum sínum: Virkjun Blöndu er jafn mikið hneyksli og virkjun Kröflu eftir Valdimar Jóhannesson Nýverið var fyrsti rafallinn af þremur ræstur í Blönduvirkjun. Óvíst er hvort hinir rafalarnir tveir verða ræstir fyrr en undir næstu aldamót. Orkuþörfm hér innanlands mun varla kalla á það. Það var ekki af orkuskorti, sem fyrsti rafall- inn var ræstur. .Því réði aðeins sú staðreynd, að búið yar- að reisa orkuver án markaðar. Fyrst það var risið á annáð þorð mátti hafa af því hagræði, minnka tapið í raf- magnskerfi. landsins og auðvelda viðhaldið í öðrum orkuverum. Það er dýrt hagræðið, sem vel mátti komast af án. Á verðlagi dagsins í dag kostar Blönduvirkjún 14 milljarða króna, þ.e. stofnkostnaður, fjármagns- kostnaður og bætur til bænda og annarra. Það liggur nú fyrir, að engirí þörf er. fyrir virkjunina og verður ekki næStu ár. Ef sjö ár líða munu 10% vextir gleypa alla ljár- festinguna. Með þeim vöxtum tvö- faldast höfuðstóllinn á sjö árum. Þar með glatast fjárfestingin. Eflaust hafa vextirnir af lánum ti! Blönduvirkjunar verið eitthvað lægri, en þar á móti kemur rekstrar- kostnaður, kostnaður af dreifingar- mannvirkjum og þess háttar. Hár- toga má vaxtadæmið. Hér nægir þó að benda á, að atvinnulífið býr nú við 10% raunvexti. Ríkissjóður, sem er skuldum vafinn, er að taka sambærileg lán á innlendum lána- markaði til að greiða niður Blöndu- mistökin okkar, Kröflumistökin okkar, hitaveitumistökin okkar víðá um land, Álafossmistökin okkar, laxeldismistökin okkar, loðdýraeld- ismistökin okkar,-> ofíjárfesting- armistökin okkar í landbúriáðj, út- gerð og fiskvinnslú. Neðar Spánverjum í lífskjörum Er' það furða, að við stefnum nú inn í minnkandi þjóðartekjur (nei- kvæðan hagvöxt) og verðum neðar en Spánveijar í mælanlegum efna- legum kjörum fljótlega á næstu öld ef spár ganga eftir?-Þeir þurfa auk þess minna til lífsviðurværis en við vegna betri véðráttu, hagstæðari hnattstöðu með tilliti ti! márkaða o.s.frv. Einnig er alkunna, að hér- lendis hefur . óhæfilegur vinnutími lengstum verið forsenda lífskjar- anna. Samanburðurinn við þetta land, sem íslendingum er tamt að líta á sem fátækt land, verður okkur því miklum mun óhagstæðari. Eftir þriggja vikna dvöl mína á Spáni í fyrra er ég þeirrar skoðunar, að al- menningur þar í landi búi í dag síst við lakari kjör en hér og er þar mik- ill munur á frá því ég kom fyrst til Spánar 1965. Þannig er fyrir okkur íslendingum komið, að okkur miðar lítið í átt til batnandi lífskjara meðan þjóðir allt umhverfis okkur eru á hraðri uppleið. FERÐATÆKI SEM NÁ 5 STUTTBYLGJUM SELENA ferðatækin eru hljómgóð og næm og tilvalinn í eldhúsið, bústaðinn eða bátinn. Þau ná mið- lang- 5 stuttbylgjum og FM, ganga fyrir raf- hlöðum og rafmagni (220 volt) og eru með innbyggt loftnet. 8x40 / verð kr. 3.910} Tento sjónaukar. Taska fylgir. BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF. Suðurlandsbraut 14 108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36 Varahlutaverslun, beinn síml 3 92 30 Þrjár Perlur og þrjú ráðhús fyrir mistökin Ilér er þarft að átta sig á hvað mistökin ko'stá. okkpr. Ef engin þörf er fyrir Blönduýlrkjun í sjö ár glatast uppþæð, sem mundi nægja til áð byggja þrjú ráðhús í Reykja- víkuitjöm og'að auki þijár Perlur á Öskjuhlíð. Perlan mun kosta um 1.750 miiljónir króna og ráðhúsið mun kosta • um 3.000 milljónir króna. Margir hafa orðið til þess að hnéykslast á byggingu þeirra rrianhvirkja. En við skulum muna, að þeim fjármunum hefur ekki ver- ið kastað á glæ. Mannvirkin standa. Á meðan fjöldinn hefur verið að skammast yfir ráðhúsi og' Perlu ■ erum við í miðri kreppunni að glata sextíu þúsund kr. á hvert manns- barn í landinu vegna ótímabærrar virkjunar Biöndu án þess að nokkur hafr æmt eða skræmt. Það er ótrúlegt að enginn stjórn- málamaður skuli hafa burði til að sjá þetta stórkostlega hneyksli eða vekja á því athygli. Það þykir kannski bera vott um óvönduð vinnubrögð að styggja þá, sem virð- ast vera taldir æðstu stjórnendur þessa lands. Það voru a.m.k. marg- ir sammála. um það mat haustið 1975, þegar við Vilmundur heitinn Gylfason í fréttaskýringaþættinum Kastljósi vöktum athygli opinber- lega fyrstir manna á þeim stórkost- legu mistökum, sem okkur sýndist áform um virkjun Kröflu vera. Við höfðum þá tvo undangengna vetur átt þátt í því að móta og standa að þeim þætti sjónvarpsins, sem hafði mest áhorf. Við höfðum verið beðnir um að leggja þættinum lið þriðja veturinn. Eftir Kröfluþátt- inn sá kerfið sér þann leik vænst- an, að koma okkur út úr sjónvarpi. Stikkfrí frá allri ábyrgð Mörgum mætum manninum varð þáð þó ljóst í upphafi Kröflufram- kvæmda, að þær voru hrikaleg mis- tök, alveg óháð eldsumbrotum, sem hófust undir jól 1975. Þeir séih þar réðu- málum voru svo kýrfilega stikkfrí frá allri ábyrgð, að þeir gátu látið allar viðvaranir mætustu manna sem vind um eyru þjóta og haldið áfram að fóðra persónulega pólitíska hagsmuni sína með fyrjr- hyggjulausu íjáraustri í hinni gjör- spilltu kjördæmapólitík, þar sem stundarhagsmunir kjördæmisin? ög einstakra aðila voru látnir trðlíríða hagsmunum þjóðarinnar. Það er erfitt að fá það á hreint hvað Kröflumistökin kostuðu þjóð- ina. Kerfið hefur sínar leiðir til að láta reikningana hverfa að hluta. Vextirnir eru látnir fara á einn reikning, Orkustofnun er látin bera híuta af kostnaðinum, sem og Raf- magnsveitur ríkisins, Landsvirkjun, iðnaðarráðuneytið og stofnkostnað- ur er afskrifaður,- Það virðist þó liggja alveg ljóst fyrir, að dellan kostaði a.m.k. 10 milljarða kr. um áramótin 1985—86 á verðlagi dags- ins í dag og er þá fjármagnskostn- aður verulega vantalinn. Þetta sam- svarar 40.000 krónum á hvert mannsbarn eða 160.000 krónum á hveija fjögurra manna ijölskyldu. Auðvitað er þessi upphæð orðin miklu hærri í dag. Kröfluskuldin hefur ekki horfið þó að ríkissjóður hafi yfirtekið skuldina að mestu leyti. Öll erum við ennþá að greiða þessa skuld, hvar sem skuldin er vistuð í reikningum ríkisins. Það er bara heimskulegur hókus pókus að láta ekki orkuverðið sjálft um að greiða niður mistökin. Það hefði orðið okkur holl lexía að fá orku- reikninginn sundurliðaðan með sér- stökum Kröfluskatti. Komust allir til aukinna metorða Það er sérstakt umhugsunarefni, að allir þeir sem ábyrgð báru á Kröfluhneykslinu komust til auk- inna metorða. Enda höfðu þeir smurt sína pólitísku maskínu vel með því „að færa framkvæmdir heim í kjördæmið" eins og það heit- ir í íslensku kjördæmapólitíkinni. Að vísu má segja, að formaður Kröflunefndar hafi ekki komist til aukinna áhrifa eftir Kröfludelluna, enda var hann aldraður maður. Því miður er íslensk pólitík og íslensk blaðamennska á svo lágu plani, að það þurfti á sínum tíma „óalandi æsingamenn" eins og okk- ur Vilmund til að gera skurk í Kröfl- umálinu. Kerfið hljóp rækilega í vörn, enda voru allir pólitísku flokk- arnir samsekir um Kröflu á þessum tíma nema Alþýðuflokkurinn. Hann var þá svo lítilijörlegur að honum stóð ekki til boða að eiga fulltrúa í Kröflunefndinni. Ailir vita að kerfið hafði betur, þjóðínni til mikils skaða og gat lát- ið alla gagnrýni og aðvaranir mæt- ustu vísindamanna sem vind um eyru þjóta. Hér er rétt að geta þess, að nú, mörgum árum eftir að síðast gaus á Kröflusvæðinu, er önnur vélasamstæðan af tveimur enn í kössum en hin, sem var sett upp, er keyrð hluta af árinu. Og ennþá er verið að bora eftir gufu. Það er meiriháttar rannsóknar- . verkefni að kanna hvað nýtanleg orka frá Kröflu kostar okkur. Þar duga ekki tölur þeirra aðila sem telja sig þurfa að 'veija mistökin. Þau atriði sem eru verð gagnrýni við virkjun Blöhdu eru annars eðlis. Við virkjuri Kröflu var rokið í nýj- ungar af kfafti en engri forsjá án þess að fyrir lægi, hvort nýtanleg orka væri fyrir hendi. Algjör bjart- Sýnisdella. Við virkjun Blöndu virð- ist öll verkfræði og verktakavinna hins vegar vera til sóma. Það er Kór Keflavíkur- kirkju með tónleika KÓR Keflavíkurkirkju efnir til jólatónleika í Bústaðakirkju þriðjudag- inn 17. desember kl. 20.30 og í Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 18. desember kl. 20.30. Á efnisskránni er Jólaóratoría eftir Saint Saens og ýmis kirkjuleg lög sem minna á þær hátiðir sem eru í vændum. Á næsta vori hefur kórinn starfað formlega í 50 ár og verður þess væntanlega minnst með listahátíð Keflavíkurkirkju, sem vonandi verð- ur reglulegur viðburður í starfi Keflavíkurkirkju í framtíðinni. Á tónleikunum kom afram eftirf- arandi einsöngvarar: Bergþór Páls- son, Böðvar Þ. Pálsson, Guðmundur Ólafsson, Hlíf Káradóttir, Ingunn Sigurðardóttir, Kolbrún á Heygum Magnúsdóttir, Margrét Hreggviðs- dóttir, María Guðmundsdóttir og Sverrir Guðmundsson. Hljómsveit skipa: Gróa Hreinsdóttir, Hrönn Geiriaugsdóttir, Kjartan Már Kjart- ansson, Monika Abendroth, Vera Ósk Steinsen og Örnólfur Kristjáns- son. Miðar verða seldir við inngang- inn. Stjórnandi kórsins er Einar Örn Einarsson, organisti Keflavíkur- kirkju. (Fréttatilkynning) Valdimar Jóhannesson „Það hlýtur að vera fleirum en mér um- hugsunarefni, hvers vegna hlutirnir eru með þessum ólíkindum hér á landi. Kerfið virðist ekki geta lært af mis- tökum sínum. Það virð- ist því ekki liggja annað fyrir en að breyta kerf- inu.“ bara enginn markaður fyrir orkuna. Algjör stjórnunardella. Vildu ekki á framkvæmdafyllerí Það flækir kannski málið um of að ijalla um það hér, að enginn markaður var á Norðurlandi fyrir nema mjög lítinn hluta af orkunni, 60—70 MW, sem Kröfluvirkjun var ætlað að framleiða. Á slíka gagn- rýni var nú síst af öllu hlustað og þeir taldir litlir karlar, sem ekki voru tilbúnir til að fara á fram- kvæmdafyllerí og skildu ekki hvað mátti gera við alla þessa ódýru og góðu orku, „birtu og yl frá Kröflu“. Staðreyndin var sú, að nægt hefði að byggja um 10 MW stöð í Bjarna- flagi eða Námafjalli, þar sem jarð- fræðilegar stærðir lágu ljósar fyrir og vísindamenn töldu aðgengilegan kost, meðan þeir vöruðu eindregið við að þekkingu á Kröflusvæðinu væri ábótavant. Var það löngu áður en nokkrum datt gos í hug. Það er alveg ótrúlegt, að gerð séu svona endurtekin mistök í orku- málum þjóðarinnar á jafn skömm- um tíma. Ákvörðun um virkjun Blöndu var tekin 1981 aðeins 2—3 árum eftir að öllum mönnum átti að vera Ijós mistökin við Kröflu. Á sama tíma var ráðist í hitaveitu- framkvæmdir um allt land. Margar þær framkvæmdir virðast hafa ver- ið byggðar á tilfinningalegum for- sendum frekar en íjárhagslegum, enda hefurþurft að hlaupa undir bagga með þeim mörgum og greiða niður mistökin með almannafé. Hér væri ástæða til að fjalla ítar- lega um bætur sem hafa verið greiddar til bænda og annarra vegna Blönduvirkjunar. Þær námu um seinustu áramót tæpum 700 milljónum króna. Til að flækja ekki málið um of verður slík umfjöllun að bíða betri tíma, enda efni í langa ritsmíð. Almenningur á þó kröfu til þess, að sá fjáraustur og aulahátlur verði gerður opinber. Þess verður að gæta sérstaklega, að þau dæma- lausu vinnubrögð öðlist ekki for- dæmisgildi. Við umfjöllun um Blöndu mega menn ekki hræra saman viðræðum um orkufrekan iðnað t.d. við Atl- antsálshópinn. Ákvörðun um virkj- un Blöndu var tekin óháð sölumögu- leikum til orkufreks iðnaðar. Það er ekki vegna svika neins aðila, sem við sitjum uppi með gagnslausa 14 milljarða króna fjárfestingu. Hins vegar hefði samningurinn við ál- hringinn getað bætt skaðann að hluta en aldrei allan. Bygging og hönnun álvers tekur nokkur ár, en myllur fjármagnsins mala nótt og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.