Morgunblaðið - 17.12.1991, Side 32

Morgunblaðið - 17.12.1991, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 Einkavæðing: Verk að vinna hjá Reykjavíkurborg eftir Júlíus Hafstein Að undanförnu hafa farið fram allmiklar umræður um sölu ríkisfyr- irtækja svo og. breytingar á rekstr- arþáttum ríkisstofnanna, þ.e. að einkavæða með einum eða öðrum hætti ýmsar rekstrareiningar ríkis- þjónustunnar. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hef- ur lýst því yfir að færa beri ýmsa starfsemi og verkefni ríkisins í hend- ur einstaklinga og fyrirtækja þeirra. Þessi markmiðssetning er löngu tímabær, og er því að vænta að einkavæðing á vegum ríkisins muni hafa nokkurn framgang á næstunni. Það er athyglisvert, að í allri þess- ari umræðu hefur hins vegar lítið sem ekkert verið rætt um fyrirtæki og rekstur sveitarfélaganna þó að vitað sé að sveitarfélögin stýra stór- um hlusta af hinni opinberu þjónustu og eiga jafnframt mörg fyrirtæki sem auðveldlega og í mörgum tilfell- um ættu eðlilega að vera í höndum einstaklinga og fyrirtækja þeirra. Erlend reynsla Fyrir rúmum áratug hófst á Bret- landi átak í að einkavæða opinber fyrirtæki og ýmsa þætti í opinberum rekstri og þjónustu. Fyrstu aðgerðir beindust einkum að ríkisreknum fyr- irtækjum í olíu-, kola-, stál- og bíla- iðnaði. Síðar beindist athyglin að ýmsum rekstrar- og þjónustuþáttum og hafa sveitarfélög m.a. náð veru- legri lækkun útgjalda með útboðum af ýmsu tagi. A Norðurlöndum er minna um ríkisrekin iðnfyrirtæki heldur en var á Bretlandi og þegar umræðan um einkavæðingu hófst þar, nokkrum árum síðar en á Bretlandi, var áhersla lögð á að færa rekstrar- og þjónustuverkefni frá opinberum aðil- um til einkafyrirtækja, m.a. með útboðum. í Danmörku hefur þessi þróun verið áhugaverðust. Þar hafa mörg sveitarfélög náð góðum árangri með einkavæðingu. Reykjavíkurborg - 1500 milljóna króna sparnaður Fyrir nokkrum árum stóð borgin fyrir afar vel heppnaðri einkavæð- ingu þegar Grandi hf. var stofnaður með samruna Bæjarútgerðarinnar og ísbjarnarins hf. og hlutabréf borgarinnar í Granda hf. síðan seld. Fyrir breytinguna voru greiddar beint úr borgarsjóði umtalsverðar upphæðir í viku hverri, til að halda rekstri fyrirtækisins gangandi. Með því að sameina fyrirtækin og síðar selja hlutabréf borgarinnar í Granda hf. spöruðu borgaryfirvöld borgar- sjóði og um leið borgarbúum umtals- verða fjármuni. Miðað við 10 ára tímabil reiknað til núvirðis hafa spa- rast ekki minna en 1.500 milljónir króna. Frá því að þetta gerðist hefur lítið farið fyrir einkavæðingu á veg- um borgarinnar, þó tækifæri séu til staðar. Ég mun í þessari grein geta ýmissa verkefna sem til álita koma, þegar horft er tii reynslu bæði hér- lendis og erlendis. Markmið með einkavæðingu Helstu markmið með einkavæð- ingu á rekstrarverkefnum Reykja- víkurborgar ,eru annars vegar að efla einkafyrirtækin í borginni og hins vegar að lækka kostnað, og í framhaldi af því að lækka skatta. Efling einkarekstrar - lækkun kostnaðar Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að atvinnurekstur eigi að vera í höndum einkafyrirtækja. Allt bendir til þess að framundan séu erfiðir tímar fyrir fyrirtækin í iandinu og samdráttur blasir við í mörgum greinum. Einkavæðing rekstrar- og þjónustuverkefna mundi öi-va fyrir- tækin og veita þeim ný tækifæri. Einkavæðing hefur víða leitt til lægri kostnaðar, þ.e. að sama þjón- usta fáist á lægra verði eða betri þjónusta á sama verði. Lægri rekstr- arkostnaður mundi styrkja fiárhag borgarinnar, þannig að lækka mætti skatta án þess að skerða nauðsyn- lega þjónustu. í einstaka tilfellum er ekki hægt að koma við einkavæð- ingu, í þeim tilfellum tel ég að komi til álita að hækka greiðslu fyrir þjón- ustu, sem veitt er af borgarstofnun- um. Mikill halli er á rekstri ýmissa stofnana sem ekki eru rök fyrir að greiddur sé til frambúðar af borgar- sjóði. Fyrir þá þjónustu eiga þeir að greiða sem nýta sér þjónustuna. Hér má t.d. nefna Sundlaugarnar í Reykjavík, en að óbreyttu verður tap þeirra milli 80 og 90 milljónir á næsta ári. Sala borgarfyrirtækja Sá ágæti árangur, sem náðist vð einkavæðingu Bæjarútgerðarinnar, ætti að hvetja til enn frekari einka- væðingar borgarfyrirtækja. I mörg- um tilvikum eiga þau rök, sem hafa verið fyrir opinberum rekstri fyrir- tækjanna, ekki við lengur. Hér verða nefnd nokkur dæmi. Pípugerð Reykjavíkur í gegnum árin hefur það alioft verið rætt að breyta ætti rekstri Pípugerðarinnar. Óllum sem til þekkja er Ijóst að umtalsverður hluti af rekstri (framleiðslu) pípugerðar- innar er í bullandi samkeppni við sambærileg fyrirtæki í eigu einstakl- inga. Þessi samkeppni af hálfu borg- aiyfiivalda er ekíri eðlileg, og ætti sala pípugerðarinnar að verða næsta verkefni borgarinnar í einkavæðingu á fyrirtækjum í eigu borgarinnar. Malbikunarstöð - vélamiðstöð Líkt gildir um þessi fyrirtæki borgarinnar, þau eru í samkeppni við einkafyrirtækin, þó ekki sé það jafnáberandi og pípugerðin. Vélam- iðstöðin gengur þó lengra, en það er fyrirtæki sem veltir vel á fimmta hundrað milljónir króna. Hjá vélam- iðstöðinni er starfrækt m.a. bíla- leiga, vélaleiga, smurstöð og vara- hlutasala, svo eitthvað sé nefnt. Allt eru þetta þjónustuverkefni sem einkaaðilar gætu séð um, enda nóg af fyrirtækjum í borginni sem starfa við sambærilega þjónustu. Veitustofnanir Reykjavíkur Aðalsteinn Guðjohnsen, raf- magnsstjóri, hefur reifað m.a. á orkuþingi 1991, hugmyndir um nýja skipan íslenskra orkufyrirtækja. Með vísan til hugmynda Aðalsteins hiýtur það að vera einn af valkostum í einkavæðingu að breyta Rafmagn- sveitu Reykjavíkur í hlutafélag eða félög. Ég tel að sú almenna regla eigi að gilda að Reykjavíkurborg sé ekki þátttakandi í atvinnurekstri með beinum hætti. Borgin á að styrkja atvinnulífið með almennum hætti með því að bæta skilyrði tii atvinnurekstrar og veita stuðning við þróunarstarf og markaðsöflun þar sem það á við. Svipuð sjónarmið eiga við um Hitaveitu og Vatnsveitu Á Reykjavíkurþorp að verða hesthús frá Kópavogi? eftir Leif Sveinsson Fasteingagjöld með boðgreiðslum Þann 10. október sl. reit ég Vei- vakanda með ósk um þá sjálfsögðu þjónustu að gefa húseigendum í Reykjavík kost á því að greiða gjöldin með svipuðum hætti og ger: ist í Kópavogi og á Akureyri. í Velvakanda 10. desember kemur loks svar frá Ólafi Jónssyni upplýs- ingafulltrúa Reykjavíkurborgar. Þvert nei. Innheimtukostnaður myndi aukast. Enginn rökstuðning- ur né upplýsingar frá Visa-ísland um reynsluna frá Kópavogi og Ak- ureyri. Það er átakanlegt, að Reykjavík- urborg geti ekki boðið upp á sömu þjónustu og Kópavogur, sem er þó mun veikari fjárhagslega. Ætlar hinn nýi borgarstjóri að stefna að því, að Reykjvík verði eins konar hesthús frá Kópavogi? Vill Markús Orn Antonsson auka sparnað hjá Reykjavíkurborg? Af tilkynningu upplýsingafulltrú- ans virðist mikill áhugi hjá borgar- „Það er átakanlegt, að Reykjavíkurborg geti ekki boðið upp á sömu þjónustu og Kópavog- ur, sem er þó mun veik- ari fjárhagslega. Ætlar hinn nýi borgarstjóri að stefna að því, að Reykjvík verði eins konar hesthús frá Kópavogi?“ stjórnarmeirihlutanurn að spara all- an óþarfa kostnað. Þar get ég gef- ið Markúsi Erni nokkur góð ráð: A. í grein minni í Morgunblaðinu 31. maí sl: „Veljum vínlausan borg- arstjóra í Reykjavík" segir m.a.: „Borgarfulltrúarnir eru ekki kosnir af Reykvíkingum til þess að ala unga fólkið upp í víndrykkju, þeir eru kosnir af Reykvíkingum til þess að vera borgurunum fyrirmynd á allan hátt, bregðist þeir í þessu hlut- verki, þótt ekki sé nema í eitt skipti, ber þeim að segja af sér og hasla sér völl á öðrum vettvangi." A.m.k. einn borgarfulltrúi virðist ekki hafa lesið varnaðarorð mín með hörmu- legum afleiðingum. Gott væri því að byrja sparnaðinn á því að hætta öllum áfengisveitingum á vegum Reykjvíkurborgar. B. Verktaki sá, er reistir bragga þá í Tjörninni, sem almenningur kallar Camp David, virðist hafa sjálftökurétt úr borgarsjóði Reykja- víkur, þannig að þar er unnin yfir- vinna jafnt kvöld sem helgar, þann- ig að nágrannar braggannna hafa sjaldan frið fyrir vélaskrölti. Nokk- ur hundruð milljónum hefur verið hent í þessa hít til þess að unnt verði að opna braggana 14. apríl 1992. Mál er að þessum fjáraustri linni, það liggur ekkert á. Ilægt er að brynna hinum síþyrstu skjól- stæðingum Sjálfstæðisflokksins á hinum mörgu vínúðunarstöðvum, t.d.Höfða, Kjarvalsstöðum, dælu- stöð Hitaveitu Reykjavíkur o.s.frv. Gott að veita þeim mysu. llöfundur cr lögfræðingur. Júlíus Hafstein „Sá ágæti árangur, sem náðist vð einkavæðingu Bæjarútgerðarinnar, ætti að hvetja til enn frekari einkavæðingar borgarfyrirtækja. I mörgum tilvikum eiga þau rök, sem hafa verið fyrir opinberum rekstri fyrirtækjanna, ekki við lengur.“ Reykjavíkur, þó einhver munur kunni að vera á, eðli fyrirtækjanna vegna. Einkavæðing rekstrar- og þjónustuverkefna Ég tel að þetta form einkavæðing- ar gefi mesta möguleika við núver- andi aðstæður. Hér er oft um að ræða stoðstarfsemi, sem ekki raskar aðalstarfsemi viðkomandi stofnunar. Þvert á móti geta þau fyrirtæki og stofnanir, sem í hlut eiga, beint kröftum sínum að þeim viðfangsefn- um, sem tengjast beint hlutverki þeirra og markmiðum. Til eru í land- inu þjónustufyrirtæki, sem eru full- fær um að takast á við rekstrar- og þjónustuverkefni, sem borgin sinnir. Ég tel að eftirtalin verkefni komi m.a. til álita: Rekstur fasteigna: Fjöldi bygg- inga er í eigu Reykjavíkurborgar og rekstur fasteigna er því mikilvæg stoðstarfsemi hjá borginni. Rekstur fasteigna felst m.a. í reglubundnu viðhaldi, húsvörslu, öryggisvörslu, ræstingu, gluggaþvotti, sorphirðu og umhirðu lóðar. Viðhald og rekstur gatna: Dæmi eru frá Norðurlöndum um einkavæðingu þessarar starfsemi. Meðai verkefna gætu verið hreinsun yfirborðs, snjómokstur, hálkueyðing, viðgerð og viðhald slitlags, merking- ar á akbrautum og hreinsun holræsa. Viðhald og rekstur garða og útisvæða: Hér gæti verið um að ræða hreinsun, gróðursetningu, um- hirðu gróðurs og slátt. Sorphirða: Síðustu ár hafa verið að eflast í borginni nokkur fyrir- tæki, sem annast sorphirðu. Það er orðið tímabært að gefa þessum fyrir- tækjum kost á að spreyta sig á al- mennri sorphirðu. Þessi fyrirtæki gætu tekið að sér almenna sorphirðu á ákveðnum svæðum, hverfum og ætti það að gerast með útboðum. Mötuneytisþjónusta: Fjölmörg einkafyrirtæki hafa falið sérstökum þjónustufyrirtækjum að sinna þess- ari stoðstarfsemi, það er löngu tíma- bært að Reykjavíkurborg taki sömu stefnu. Slíkt mundi efla veitinga- rekstur í borginni, en í veitinga- rekstri og ferðaþjónustu felast.mikl- ir möguleikar á næstu árum. Þetta er afar þýðingarmikið vegna þess að fiestir, sem til þekkja, telja að ferðaþjónustan sé ein þeirra atvinnu- greina, sem eigi hvað mesta framtíð fyrir sér. Niðurlag Ég hef hér tilgreint. nokkur rekstr- ar- og þjónustuverkefni, sem til álita kemur að fela einkafyrirtækjum. I mörgum tilvikum væri heppilegt að bjóða út þessi verkefni og þá kemur til greina að viðkomandi rekstrar- deild borgarinnar, sé hún starfrækt, bjóði einnig verkefnið. í þeim tilfell- um verður að tryggja að tilboð séu borin saman á ,jafnréttisgrundvelli“ þar sem allur kostnaður borgarinnar er tilgreindur, þar með talinn fjár- magnskostnaður, yfirstjórn og fleira. Með slíkum samanburði sést hvort um raunverulegan sparnað er að ræða eða ekki. Það kemur til álita að einkavæða Qöldamörg verkefni, sem borgin sinnir nú á eigin vegum. I fæstum tilvikum eru viðfangsefnin auðveld, jafnvel þó að jeita megi fyrirmyndar erlendis frá. Ávallt þarf þó að aðlaga lausnirnar íslenskum aðstæðum. Þetta verk þarf að heija strax, í raun er ekki eftir neinu að bíða. Það þarf að taka fyrir alla þætti máls- ins, sölu borgarfyrirtækja, einka- væðingu þjónustustofnana og einka- væðingu rekstrar- og þjónustuverk- efna. Markmiðið á að vera efla einka- fyrirtækin í borginni, gera þeim mögulegt að skila sem mestum arði, lækka kostnað borgarsjóðs og í framhaldi af því að lækka skatta borgarbúa. Eins og fyrr segir, er það stefna Sjálfstæðisflokksins að atvinnufyr- irtækin séu í eigu einstaklinganna, sem búa í landinu. Þó vel hafi tekist hjá okkur í borgarstjórninni með stofnun Granda hf. þá höfum við ekki fylgt þeirri ákvörðun eftir og látið þessi mál njóta þess forgangs sem skyldi. Nú eigum við tækifæri, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, að blása til sóknar á ný og við eigum ekki að láta það tækifæri úr greipum okkar ganga. Höfundur er borgarfulltrúi I Reykjavík ogsiturþar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sjómannafélag Reykjavíkur: Niðurskurði á sjómanna- afslætti mótmælt Á FUNDI stjórnar og trúnaðar- mannaráðs Sjómannafélags Reykjavíkur hinn 12. desember, var fyrirhuguðum niðurskurði ríkissljórnarinnar á sjómannaaf- slætti og til Landhelgisgæslunn- ar mótmælt harðlega. í ályktun fundarins segir meðal annars að sjómannaafslátturinn, sem verið hafi við líði frá árinu 1954, hafi verið viðurkenndur vegna fjarveru sjómanna frá heim- ili, vinnutímalengdar og álags í erf- iðu og hættulegu starfi. Þá átelur fundurinn harðlega þau vinnu- brögð, sem eru viðhöfð varðandi fullyrðingar fjármálaráðuneytisins um þá peningalegu upphæð sem sparast með niðurskurði sjómanna- afsláttarins en þar skeiki hundruð- um milljóna. Heitir fundurinn á alla sjómenn að mæta árás ríkisvaldsins af fullri hörku með þeim hætti að grípa til fyrirvaralausra aðgerða. Á fundinum var einnig ályktað um málefni Landhelgisgæslunnar og var niðurskurði á rekstrarfé til hennar harðlega mótmælt. Segir að með slíkum niðurskurði sé vegið alvarlega að öryggis- og eftirlits- hlutverki stofnunarinnar. Þá er skorað á stjórnvöld að kaupa nú þegar nýja og öfluga björgunar- þyrlu fyrir stofnunina til þess að efla enn frekar öryggi sjómanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.