Morgunblaðið - 17.12.1991, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
Ríkisstjórn Chile vill að Hon-
ecker fái að fara til N-Kóreu
Moskvu. Reuter.
ERICH Honecker, fyrrverandi leiðtogi Austur-Þýskalands, var enn
í bústað sendiherra Chile í Moskvu í gær en ríkisstjórn Chile neit-
aði því í gærkvöldi að afhenda hann rússneskum yfirvöldum og
sagði að leyfa ætti Honecker að fara til Norður-Kóreu.
I yfirlýsingu stjórnarinnar í
Chile sagði að beðið væri eftir
svari við bréfi Patricios Aylwins
forseta til Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta þar sem lagt var til
að Honecker yrði leyft að fara til
Norður-Kóreu til að leita sér lækn-
ishjálpar.
London:
Sprengju-
tilræði rask-
ar lestar-
• •
Rússar virðast nú hins vegar
vilja þvo hendur sínar af Honecker
því Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði að yfirvöld
í Þýskalandi og Chile yrðu að
semja sín á milli hver afdrif hans
yrðu.
í gær rann út framlengdur
frestur sem Rússar höfðu gefið
Honecker til að koma sér úr landi
en í gær sagði Kozyrev að hann
yrði ekki knúinn brott með valdi.
Hann yrði ekki hnepptur í varðC-
hile en Kozyrev sagðist ekki eiga
von á því að honum yrði vísað úr
sendiráðinu.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa
boðist til að skjóta skjólshúsi yfir
Honecker. ítrekaði norður-kór-
eska sendiráðið í Moskvu tiiboðið
í gær og fór þess á leit við rúss-
nesk yfirvöld að þau féllust á að
Honecker fengi að leita sér læknis-
hjálpar í Pyongyang, höfuðborg
Norður-Kóreu.
Hans-Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Þýskalands, sagðist
hins vegar á sunnudag freysta því
að Rússar stæðu við loforð um að
framselja Honecker til Þýska-
lands. Þar yrði hann sóttur tii saka
fyrir að skipa landamæravörðum
að skjóta á fólk sem reyndi að flýja
yfir Berlínarmúi'inn. Honecker er
79 ára að aldri og var við völd í
Austur-Þýskalandi 1971-89.
Stjórn Chile hefur ákveðið að
leyfa Honecker að vera i sendi-
herrabústaðnum þar til rússnesk
stjórnvöld taka ákvörðun um örlög
hans.
Hermenn og björgunarsveitarmenn hjálpa farþega úr ferjunni Salem
Express að fara í land í borginni Safaga, sem er um 600 km fyrir
sunnan Kaíró.
samgongoim
London. Reuter.
Á fimmta hundrað fórust með egypskri ferju á Rauðahafi:
RÚMLEGA ein milljón manna
komst seint eða alls ekki til
vinnu sinnar i London í gær
vegna sprengjutilræðis írska
lýðveldishersins IRA á járn-
brautarstöð.
Maður, sem kvaðst vera liðs-
maður IRA, hringdi í gærmorgun
í breska sjónvarpsstöð og sagði að
sprengju hefði verið komið fyrir á
einni lestarstöðinni í London og
myndi hún springa von bráðar.
Bresku járnbrautirnar brugðust við
með því að loka þegar í stað átta
helstu lestarstöðvum borgarinnar.
Sprengja sprakk stuttu síðar á
Clapham Junction stöðinni en eng-
an sakaði. Að sögn lögreglu var
sprengjan tiltölulega lítil og olli
engu tjóni á mannvirkjum og eng-
an sakaði. „Það virðist sem til-
gangurinn með tilræðinu hafi frek-
ar verið að setja allt úr skorðum
en valda eyðileggingu," sagði lög-
reglufulltrúi. Ferðir jámbrauta í
borginni lágu niðri í um það bil
þijár klukkstundir og varð því
verulegu röskun á ferðalagi fólks
til vinnu í London, en t.a.m. er
talið að 40% starfsfólks í fjármála-
hverfínu ferðist með járnbrautar-
lestum til vinnu.
Ásakanir um að illa hafi ver-
ið staðið að björgunarstarfi
Safaga, Egyptalandi. Reuter.
TALIÐ er að allt að 476 manns hafi látist er egypsk ferja fórst
á Rauðahafi aðfaranótt laugardags. Farþegar um borð voru flest-
ir egypskir karlmenn á heimleið frá Saudi-Arabíu úr pílagríms-
ferð til Mekka eða að lokinni vinnu um skeið.
dagsmorgun, mörgum tímum eftir bjargað. Talið er að flestir hafi
strandið. Samtals vora farþegar farist vegna þess að þeir iokuðust
654 og í gærkvöld hafði 179 verið inni í ferjunni sem sökk.
Um er að ræða mesta sjóslys
undanfarinna ára síðan feija og
flutningaskip rákust á við Filipps-
eyjar árið 1987 en þá fórust 4.386
manns.
Rob Raine, talsmaður banda-
ríska flotans, sagði í gær að
egypsk yfírvöld hefðu hafnað að-
stoð á sunnudag frá erlendum
skipum. Heimildarmenn í hópi
vestrænna stjórnarerindreka í Ka-
író sögðu að dregist hefði að til-
kynna slysið til herskipa í ná-
grenninu en þau voru mörg vegna
viðskiptabannsins á írak. Atef
Sedki, forsætisráðherra Egypta-
lands, sagði hins vegar að neyðar-
kall hefði borist frá feijunni á
miðnætti aðfaranótt sunnudags.
Strax hefðu björgunarsveitir verið
sendar á vettvang en hvassviðri
hefði komið í veg fyrir að npkkuð
væri hægt að gera fyrr en í da-
grenningu á sunnudag.
Feijan, Salem Express, var á
leið frá Jeddah í Saudi-Arabíu.
Hún hraktist af leið í vondu veðri
og strandaði á rifi um sex mílur
undan hafnarborginni Safaga og
barst aðstoð ekki fyrr en á sunnu-
Sunday Mirror:
Maxwell sagður hafa
framið sjálfsmorð
London. Daily Telegraph.
EITT af blöðum Maxwell-samsteypunnar, Sunday Mivror hélt því
fram í forsíðufrétt á sunnudag að fjölmiðlakóngurinn Robert Maxw-
ell hefði framið sjálfsmorð. Blaðið byggir frétt sína á upplýsingum
frá sérfræðingum tryggingafélags sem Maxwell var líftryggður hjá
fyrir 20 milljónir punda, jafnvirði rúmlega tveggja milljarða ÍSK.
Loksins
loksins
bolir og
hnepptar
peysur
á krakka
LACOSTE
STRÆTQ
H A K »
REYKJAVÍKURVEGI 62 - SÍMI 650680
*
Maxwell hvarf af lystisnekkju
sinni við Kanaríeyjar og fannst lík
hans siðar á floti í sjónum. Spænsk-
ur réttarlæknir tilkynnti fyrir helgi
að dauðdagi hans hefði verið eðli-
legur, hann hefði fengið hjartaáfall
í sjónum og væri því hægt að úti-
loka að um morð hefði verið að
ræða.
Breskir sérfræðingar halda því
hins vegar fram að dauða Maxw-
ells hafi ekki borið að með eðlilegum
hætti og draga rannsókn spænska
sérfræðingsins stórlega í efa. Blað-
ið Sunday Mirror sagði hins vegar
í forsíðufrétt með risafyrirsögn að
Maxwell hefði framið sjálfsmorð.
Sagði blaðið að að einn færasti
krufningalæknir Breta hefði rann-
sakað hjarta Maxweils í Madríd á
Spáni nýverið og ekki fundið nein
merki þess að hann hefði dáið úr
hjartaslagi. Sagði Sunday Mirror
að líftryggingafélagið myndi ekki
styðjast við niðurstöðu spænska
krufningalæknisins er það tæki af-
stöðu til þess hvort skaðabætur
yrðu greiddar vegna dauða hans.
Kevin Maxwell, sonur fjölmiðla-
kóngsins, mætti fyrir rannsóknar-
rétti í gær og veitti upplýsingar um
fjölmiðlasamsteypu föður síns
vegna rannsóknar á meintu hvarfi
hundruð milljóna dollara úr eftir-
launasjóðum fyrirtækisins.
Breska leyniþjónustan:
Kona tekur við stjóm M15
London. Reuter.
MIKIL leynd hefur löngum hvílt
yfir starfsemi M15, bresku
gagnnjósnadeildarinnar. Ný lög
hafa þó breytt þessu og í gær
var tilkynnt að kona tæki við
stjórn deildarinnar.
Konan heitir Stella Rimington
og hefur unnið hjá M15 í 22 ár.
Er þetta jafnframt í fyrsta sinn sem
greint er frá því opinberlega hver
yfírmaður stofnunarinnar er. Meira
að segja var þar til fyrir skemmstu
refsivert að birta nafn yfirmannsins
á opinberum vettvangi. M15 sinnir
gagnnjósnum í Bretlandi og M16
fer með starfsemi leyniþjóstunnar
erlendis. Rimington tekur við af Sir
Patrick Walker sem lætur af emb-
. ætti í febrúar. Talsmaður Kenneths
Bakers innanríkisráðherra sagði í
gær að Rimington sem er á sextugs-
aldri væri sérlega hæfileikamikil.
Jafnframt var tilkynnt að laun
hennar yrðu 77.500 pund á ári
(rúmar átta milljónir ÍSK).
í opinberu tilkynningunni var
gefíð til kynna að allri leynd af
starfsemi M15 yrði ekki aflétt.
Ekki yrðu t.d. heimiluð viðtöl við
forstöðumanninn eða myndatökur.