Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 40

Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 41 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Islenskukennsla hafi forgang Islendingar eru ekki eina smáþjóðin á Vesturlöndum, sem hefur áhyggjur af tungu sinni og menningu á tímum al- þjóðlegrar fjölmiðlunar þar sem enskan ræður ferðinni. Við er- um ekki eina Norðurlandaþjóðin sem horfir til þess með ugg, að tungunni sé teflt í tvísýnu vegna sinnuleysis um utanaðkomandi máláhrif. Við gerum okkur á hinn bóg- inn betur grein fyrir því, máski vegna fámennis okkar, hve mik- ilvægt það er fyrir stjórnarfars- legt og menningarlegt sjálf- stæði okkar, að standa vörð um móðurmál okkar og menningar- arfleifð. Sú hefur a.m.k. verið trú okkar til skamms tíma. En spurning er, hvort vitund okkar um mikilvægi íslenskunnar hef- ur slævst í framvindu og fjöl- breytileika nýrra tíma. Er okkur það ekki sama keppikeflið sem fyrr (heimilum, uppeldisstofn- unum, skólum og fjölmiðlum) að „móðurmálið streymi ekki sína leið út í hið engilsaxneska hafdjúp"? Ragnheiður Briem, kennari í íslensku og málvísindum, segir í greinaflokki í Lesbók Morgun- blaðsins: „Móðurmálskunnáttu íslend- inga, einkum ungu kynslóðar- innar, er áfátt. Það lýsir sér þannig að (ungt) fólk á æ erfið- ara með að tjá hugsanir sínar bæði munnlega og skriflega. Orðaforði hefur rýrnað mjög svo að nú skilja nemendur ekki mál sem lá ljóst fyrir jafnöldrum þeirra fyrir tveimur áratugum. Þetta veldur meðal annars því að kennarar þurfa að eyða dýr- mætum tíma í að „þýða“ ósköp venjulegar námsbækur á hálf- gert barnamál ef efni þeirra á að komast til skila. Ritleikni, þar með talin réttritun, er á svo lágu stigi að mikill hluti fram- haldsskólanema getur alls ekki talist sendibréfsfær." Höfundur rekur síðan rétti- lega sitthvað sem valdið hefur afturför í málkennd fólks, meðal annars gjörbreyttir þjóðlífs- hættir (frá því börn ólust upp í stórfjölskyldum bændasamfé- lagsins) og utanaðkomandi mál- áhrif (sjónvarp með erlendu efni, kvikmyndir, myndbönd og dægurtónlist með ensku tali, utanferðir o.fl.). Hann bendir jafnframt á sitthvað sem hægt er að gera til að styrkja stöðu móðurmálsins og snúa vörn í sókn í þessum efnum. „Fyrsta skrefið til að koma lagi á móðurmálskunnáttu og málvöndun," segir Ragnheiður Briem, „er að gera sér ljóst að íslenskunám hefst um leið og máltaka barna (á fyrsta eða öðru ári) og lýkur ekki fyrr en í hárri elli. Annað skrefið er að skipuleggja þetta nám, ekki aðeins það sem fram fer i skól- um, heldur frá vöggu til grafar. Skólaárin gegna hér lykilhlut- verki en ekki til að kenna allt heldur til að kynna allt og kenna sumt.“ Mikilvægt er að talsetja sjón- varpsefni, einkum barnaefni, sem er daglegur „gestur“ á heimilum landsmanna og hefur mikil og mótandi áhrif á málf- ar. Talsetningu (framburð) og textun sjónvarpsefnis þarf að vanda vel svo mikilvægt sem þetta efni getur verið í málvernd okkar. En skólarnir eru eða eiga að vera höfuðvígi tungunnar. 0gv móðurmálskennslan verður að hafa vissan forgang í skóla- kerfinu frá því skólaganga hefst og þar til framhaldsskólanámi lýkur. Það dugar ekki að landsf- eður tali fagurlega um móður- málið á hátíðis- og tyllidögum. Þeir verða að búa móðurmáls- kennslunni í skólum landsins þær aðstæður að hún geti sinnt hlutverki eins og best verður á kosið. Ragnheiður Briem leggur í grein sinni áherslu á mikilvægi þess, að fólk sé hvatt til lesturs góðra bóka. „Bókmennta- kennslu þarf að breyta þannig,“ segir í grein hennar, „að hún örvi nemendur til bóklesturs eftir að formlegu námi lýkur.“ Ástæða er til að staldra við þessa ábendingu, ekki sízt í ljósi nýlegra frétta þess efnis, að 44% 14 ára unglinga lesi sjaldan eða aldrei bækur sér til skemmt- unar, samkvæmt forprófi vegna alþjóðlegrar rannsóknar á læsi á vegum Rannsóknarstofnunar uppeldis- og kennslumála. Hér er að vísu aðeins um forpróf að ræða, en niðurstaðan er langt frá því að vera glæsileg fyrir „bókaþjóðina". Þegar móðurmálið á í hlut er aðeins það besta nógu gott. Þess vegna er ástæða til að taka undir þessi orð í grein íslensku- kennarans: „Svo lengi sem menn bera skynbragð á að sumt mál er fegurra en annað, að málbeiting manna er misjöfn, verður það auðvitað krafa almennings, að íslendingum verði kennd sú málnotkun sem dómbærir menn telja til fyrirmyndar. Það er enginn að tala um boð og bönn. Ef íslenska er kennd í skólum á annað borð hvers vegna ætt- um við þá ekki að kenna það sem best er talið, réttast og fegurst?" S AMEININ G FISKVINNSLUFYRIRTÆKJA I VESTMANNAEYJUM * Alyktun háskólaráðs vegna fjárlagafrumvarps: Viðbrögð við sameiningu fyrirtækjanna: Formenn verkalýðs- félaganna varkárir Formenn verkalýðsfélaganna í Vestmannaeyjum - eru varkárir í orðum um áhrif sameiningar Fisk- iðjunnar og Vinnslustöðvarinnar, en segjast vona að fækkun starfs- fólks muni ekki fylgja í kjölfarið „Ég vona að eftir að þeir eru orðn- ir svona stórir og sterkir þá hætti þeir að senda fiskinn út og láti fólkið sitt vinna aflann, því það er sama hvað mikið er sameinað ef enginn er fiskurinn," sagði Jón Kjartansson, formaður Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja, við Morgunblaðið. Jón sagði að reynt hefði verið að fullvissa sig um að ekki yrði fækkað almennu starfsfólki við þessa samein- Aðeins af hinu góða - segir Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri ingu, „en ég á eftir að sjá það,“ sagði hann. „Þetta á ekki að þurfa að raska mjög miklu, en það er ekki komið á hreint hvort um fólksfækkun verður að ræða, þótt slíkt sé ekki í deiglunni eftir því sem ég kemst næst. Og ég hef ekki trú á öðru en stjórnendur þessara fyrirtækja reyni í lengstu lög að sleppa við segja upp fólki,“ sagði Elsa Valgeirsdóttir formaður Verka- kvennafélagsins Snótar. Elsa sagði, að þessi sameining væri sjálfsagt hrein nauðvörn, og væri þessu kvótabraskrugli að kenna sem væri að ganga frá fyrirtækjum. Jón Kjartansson sagði að það væri ekki gefið í þessum efnum, að stórt væri endilega gott. „Þótt hægt sé að benda á 3 mjög góð stór fyrirtæki, Granda, HB og co. og ÚA, er einnig hægt að benda á mörg lítil vel rekin fyrirtæki. Og það er alltaf hætta á að eftir því sem fyrirtæki er stærra þá verði lengra frá tindinum niður á jafnsléttu og því minna samband þar á milli,“ sagði Jón Kjartansson. Skipastóll og fiskikvóti nýja fyrirtækisins Skip sem áður voru í eigu Fiskiðjunnar hf.: Brl. Kvóti i þorsk- ígildum Klakkur Sindri VE103 VE 60 488 297 1.580,8 1.701,2 Samtals: 3.282,0 Skip sem áður voru í eigu Vinnslustöðvarinnar: Breki V E 61 599 2.298,1 Fngg VE 41 155 660,1 Sigurfari VE138 118 601,4 Kristbjörg VE 70 149 548,2 Styrmir VE 82 190 398,0 Sleipnir VE 83 77 214,2 Samtals: 4.720,0 Skip sem áður voru í eigu Fiskimjölsverksmiðju Vestmannaeyja* (tyrirtækið var áður í eigu Fiskiðjunnar hf. og Vinnslustöðvarinnar) Kap VE 4 Sighvatur Bjarnason VE 81 349 370 72,7 70,4 143,1 Samtals: Heildarkvóti hins nýja fyrirtækis verður 8.145,1 tonn í þorskígildum, auk 7.000 tonna loðnukvóta og síldarkvóta á 8 skip. Nýtt stórfyrirtæki í útgerð og vinnslu FISKIÐJAN og Vinnslustöðin, og dótturfyrirtæki Fiskimjöls- verksmiðja Vestmannaeyja (FIVE), Lifrarsamlag yest- mannaeyja og Gunnar Olafs- son og Co. (Verslunin Tang- inn) hafa sameinast. Fiskiðjan gerir út togarana Klakk (1.580,8 tonn) og Sindra (1.701,2 tonn). Veiðiheimildir togara og báta eru í svigum. Vinnslustöðin gerir út togar- ann Breka (2.298,1 tonn) og bátana Styrmi (398 tonn), Krist- björgu (548,2 tonn), Sleipni (214,2 tonn), Sigurfara (601,4 tonn) og Frigg (660,1 tonn). Bátarnir eru í eigu Knörr hf. sem er í eigu Vinnslustöðvarinnar. FIVE á loðnuskipin Kap (72,7 tonn) og Sighvat (70,4 tonn). Samtals eiga skip og bátar fyrir- tækjanna botnfiskheimildir upp á 8.145 tonn, en við bætist 7.000 tonna loðnukvóti og 8 síldarkvót- ar þannig að í þorskígildum kem- ur hið nýja fyrirtæki til með að hafa yfir eitthvað á tíunda þús- und tonna að ráða. Fiskiðjan og Vinnslustöðin: Hluthafafundir um sam- eiiiiiigmia 30. desember GUÐJÓN Hjörleifsson bæjarsljóri í Vestmannaeyjum segist telja það jákvætt að tvö af stærstu sjávarút- vegsfyrirtækjum Vestmannaeyja stefni að sameiningu fyrir áramót. „Ég held að það sé aðeins af hinu góða að fá eitt stórt afl hér í fisk- vinnsluna," sagði Guðjón við Morgunblaðið. „Eg átta mig ekki alveg á hvaða áhrif þetta hefur á stöðugildi, miðað við núverandi störf hjá fyrirtækjunum tveimur, líklega gæti þetta helst bitn- að á skrifstofu- og verkstjórastörfum. En um leið ætti vinnan að vera sam- felldari; í haust hafa verið að detta út dagar,“ sagði Guðjón Hjörleifsson. Hann sagði aðspurður, að með þess- ari sameiningu ættu menn ekki á hættu að missa fastan veiðikvóta frá þessum fyrirtækjum burtu frá bæjar- félaginu, en talin var hætta á því. -------------»-♦ »----- Magnús Kristinsson forstjóri ísfélagsins; Snyrtileg vinnubrögð að geta klárað svona mál á einni helgi MAGNÚS Kristinsson fram- kvæmdasijóri Isfélagsins í Vest- mannaeyjum og stjórnarformaður Bergs-Hugins sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann teldi félaga sína í Vestmannaeyjum hafa náð mikilsverðum árangri nú um helgina, er þeir náðu samkomulagi um að sameina Fiskiðjuna og Vinnslustöðina. Magnús er nú staddur í Hull í Englandi, en er væntanlegur til landsins á morgun. Ég hlýt bara að fagna því að menn hafi náð saman heima í Eyjum. Ég óska þeim til hamingju'með þennan árangur í þessum helgarviðræðum. Mér þykja það drengileg og snyrtileg vinnubrögð að geta klárað svona mál á einni helgi. Ég lít bara björtum augum til þessa stóra og sterka nýja fyrirtækis sem við komum til með að keppa við úti í Eyjum,“ sagði Magnús. Magnús var spurður hvort hann teldi að þessi niðurstaða hjá Fiskiðju og Vinnslustöð yrði til þess að hann og Sigurður Einarsson hjá Hraðfrysti- stöð Vestmannaeyja tækju upp þráð- inn þar sem frá var horfið og reyndu að semja um sameiningu ísfélagsins og Hraðfrystistöðvarinnar: „Þessu get ég ékki svarað núna. Ég er nú einu sinni ekki heima á íslandi og því ekki í neinu sambandi við Sigurð þessa dagana. Við verðum bara að sjá til,“ sagði Magnús. STJÓRNIR .Fiskiðjunnar og Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna- eyjum ákváðu síðastliðinn laugar- dag að stefna að sameiningu fyrir- tækjanna í eitt fyrir næstu ára- mót, þannig að nýitt fyrirtæki taki við 1. janúar 1992. Akveðið hefur verið að boða til hluthafafunda í fyrirtækjunum 30. desember nk. sem muni taka afstöðu til þessarar ákvörðunar stjórna félaganna. Ofangreind niðurstaða er fengin eftir mikil og ströng fundahöld og flóknar samningaviðræður, eins og greint var frá í Morgunblaðinu á sunnudag. Sameiningarviðræður þessara fyrirtækja hafa að undan- förnu staðið yfir með hléum, en þær tóku á sig nýjan og alvöruþrungnari blæ síðastliðinn fimmtudag, með of- angreindum árangri. „Við höfum ákveðið að halda hlut- hafafundi í fyrirtækjunum 30. des- ember næstkomandi, þar sem af- staða verður tekin til þessarar niður- stöðu stjórna félaganna," sagði Guð- „SAMEINING Vinnslustöðvarinn- ar og Fiskiðjunnar markar tíma- mót og ég fagna henni," sagði Valur Valsson bankastjóri íslands- banka í samtali við Morgunblaðið í gær, er hann var spurður álits á sameiningu sjávarútvegs- og fisk- vinnslufyrirtækja í Vestmannaeyj- um. Valur sagði að þessi sameining skapaði möguleika til þess að hag- ræða í rekstri, lægri tilkostnaðar og sterkari fjárhagsstöðu. „Hið nýja fyr- irtæki á því að geta keppt á kvóta- markaði og fjármagnsmarkaði við önnur stór sjávarútvegsfyrirtæki í landinu," sagði Valur. „Við í Islandsbanka höfum um langt skeið hvatt forráðamenn fyrir- tækjanna í Vestmannaeyjum til að mundur Karlsson framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar hf. í samtali við Morg- unblaðið í gær, í kjölfar þess að stjórnir Fiskiðjunnar og Vinnslu- stöðvarinnar samþykktu síðastliðinn laugardag að stefna að sameiningu fyrirtækjanna og dótturfyrirtækja nú fyrir áramót. Guðmundur er talsmaður beggja fyrirtækjanna eftir þessa niðurstöðu stjórna fyrirtækjanna. Þeir Guðjón Rögnvaldsson stjórnarformaður Fiskiðjunnar og Bjarni Sighvatsson stjórnarformaður Vinnslustöðvarinn- ar vildu ekkert um málið segja þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við þá í gær, en vísuðu á Guðmund Karlsson sem talsmann sinn. „Nú hefur verið tekin ákvörðun um að stefna að þessu og ef ekki koma upp einhverjir óyfirstíganlegir örðugleikar verður stofnun nýs fyrir- tækis að veruleika nú um áramótin,“ sagði Guðmundur Karlsson, sem er auk þess að vera framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar 20% eigandi að fyrir- snúa bökum saman, hagræða í rekstr- inum með sameiningu og skapa þann- ig fjárhagslega sterk fyrirtæki, eitt eða fleiri. Við höfum talið góð skil- yrði til slíkrar endurskipulagningar og lagt að mönnum að nota tækifær- ið núna, áður en tekjurýrnun vegna kvótaskerðingar segir til sín,“ sagði Valur. Valur sagði að frá upphafi hefði það verið ljóst að heimamenn þyrftu sjálfir að finna bestu lausnina, „því hver er sinnar gæfu smiður. íslands- banki gat ekki og ætlaði ekki að segja mönnum fyrir verkum, en við höfum alla tíð verið reiðubúnir að styðja sameiningu eftir því sem við getum“. Hann sagði að nú hefði það gerst að forráðamenn Vinnslustöðvarinnar og Fiskiðjunnar hefðu komið sér saman tækinu. „Við hljótum að vera sáttir við þessa niðurstöðu. Þetta er það sem við viljum gera, miðað við þá stöðu sem er í dag,“ sagði Guðmund- ur. Haraldur Gíslason framkvæmda- stjóri FIVE og einnig 20% eigandi Fiskiðjunnar og hluthafi í Vinnslu- stöðinni sagðist í samtali við Morg- unblaðið í gær vera mjög ánægður með þá niðurstöðu sem komin væri í sameiningarmál Fiskiðjunnar og Vinnslustöðvarinnar. „Hugsunin á bak við þetta er að sjálfsögðu sú að ná fram meiri hagræðingu, þannig að afkoma hins nýja fyrirtækis verði betri en hinna tveggja sem fyrir eru. Annars hefðum við nú ekki verið að þessu,“ sagði Haraldur. „Að undanförnu hafa farið fram viðræður milli forráðamanna Fiskiðj- unnar hf. og Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum um sameiningu félaganna ásamt dótturfélögum. Á sameiginlegum fundi stjórna félag- anna 14. desember 1991 var sam- um ákveðna hagræðingu og því fögn- uðu menn í Íslandsbanka og myndu aðstoða þá eftir föngum. Aðspurður hvort hann ætti með þessum orðum við að íslandsbanki myndi aflétta einhvetjum skuldum af fyrirtækinu, eða skuldbreyta, sagði Valur: „Það er mikilvægur áfangi í þessu dæmi að ákveða sameininguna. Nú fer hins vegar í gang mikil vinna við frágang á öllum smáatriðum, sem tekur óhjákvæmilega einhvern tíma. Það þekkjum við vel í íslandsbanka. Af því sem vitað er núna, þá tel ég ekki ástæðu til að ætla annað en tak- ast megi að ljúka sameiningunni far- sællega og ég geri ráð fyrir að bank- inn og aðrar lánastofnanir sem hlut eiga að máli vilji gera sitt til að greiða fyrir því,“ sagði Valur. þykkt að stefna að sameiningu Vinnslustöðvarinnar hf. og Fiskiðj- unnar hf. og taki sameiningin gildi 1. janúar 1992, enda sé ljárhagsleg- ur grundvöllur fyrir sameiningunni. í kjölfar framangreinds verður boðað til hluthafafunda fyrir 31. desember 1991.“ Svo hljóðar fréttatilkynning sem Fiskiðjan og Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sendu í samein- ingu frá sér til fjölmiðla í gær. ------»■».♦----- Arnar Signrmunds- son, formaður Sam- taka fiskvinnslu- stöðva: Sameiningin er jákvæður áfangi „EITT af þeim ráðum til að kom- ast út úr hallarekstri með öðru, er aukin samvinna og sameining fyrirtækja. Þetta höfum við lengi sagt. I þeirri stöðu sem fyrirtækin eru í, þá var ekki um neitt annað að ræða en að ná saman og því tel ég þetta vera jákvæðan áfanga," sagði Arnar Sigurmundsson for- maður Samtaka fiskvinnslustöðva i samtali við Morgunblaðið í gær er leitað var álits hans á samein- ingu Fiskiðjunnar og Vinnslustöðv- arinnar í Vestmannaeyjum. Arnar sagði að það sem nú væri að eiga sér stað í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, Akranesi og víðar á þessu ári, væri einfaldlega hluti af þeirri þróun að ná fram hagræðingu þegar kreppti að. „Við höfum líka trú á því að fyrirtækin stefni í að verða stærri og öflugri útgerðar- og vinnslu- fyrirtæki annars vegar og hins vegar að það verði ákveðinn vaxtarbroddur í minni og sérhæfðari fyrirtækjum," sagði Arnar. Arnar sagði að afkoman undanfar- in ár og takmarkaðar veiðiheimildir þrýstu mönnum saman. Það yrði auð- vitað heilmikið átak að framkvæma svona sameiningu og ekki sársauka- laust. Valur Valsson bankastjóri íslandsbanka: Sameining fyrirtækjanna í Eyjum markar tímamót Nýnemar ekki innritaðir næsta haust ef áætlaður niður- skurður nær fram að ganga SVEINBJÖRN Björnsson rekt- or Háskóla Islands segir að ef áætlaður niðurskurður á fjár- framiagi ríkisins til Háskóla ís- land^nái fram að ganga geti farið svo að á næstkomandi hausti verði engir nýnemar teknir inn í háskólann. Hann segir að undanfarin fjögur ár hafi nemendum í háskólanum fjölgað um 935 eða 21,8% og að allan þann tíma hafi raun- gildi fjárveitinga verið það sama. Með nýja fjárlagafrum- varpinu yrði fjárveiting til há- skólans um 253 milljónum króna lægri en hún þyrfti að vera. Sveinbjörn segir að ekki liafi verið hægt að auka nemendafjölda í háskó- lanum síðastliðin ár jafnframt því að fjárveitingar hafi staðið í stað, nema með mikilli hagræðingu. Hann segir m.a. að reynt hafi verið að fella niður námskeið, sem hafí verið fámenn eða hægt hafi verið að kenna annað hvert ár í stað þess að kenna þau á hverju ári. Einnig hafi kennsla í ákveðnum deildum verið sameinuð þar sem því hafi verið komið við. Sveinbjörn segir erfitt að leggja niður einstakar deildir innan háskól- ans. „Þótt við vildum hætta að bjóða eitthvert nám erum við skuldbundnir þeim nemendum, sem eru þegar inni, um að þeir fái að halda áfram. Við gætum því aðeins lagt niður fyrsta misserið." Hann segir að niðurfelling verkefna og deilda skili aðeins 22 milljónum króna þar sem það tekur nokkur ár að leggja deildir niður. „Ef við eigum að skiia alls 127,8 milljón- um króna þá er eina róttæka aðgerð- in, sem við komum auga á að stöðva innritanir,“ segir Sveinbjörn. Ef af skerðingunni verður lækka fjái’veitingar á hvern nemanda Há- skóla íslands um 6% eða úr 292 þús- undum króna niður í 275 þúsund krónur. Háskólinn í hættu Ályktun háskólaráðs 16. desember 1991 í tilefni fjárlagafrumvarps fyrir árið 1992 fer hér á eftir: „Háskóli íslands er í hættu. Ef svo fer fram sem horfið um fjárveitingar á næsta ári mun Háskólinn ekki geta veitt neinum nýnemum kennslu á næsta hausti, þrátt fyrir áform um skólagjöld og þrátt fyrir ýtrasta niðurskurð kennslu og þjónustu. Um 2.000 nemendur munu þá tefjast í námi, leita atvinnu á þröngum vinnu- markaði og sækja um skólavist er- lendis með auknum tilkostnaði stúd- enta og Lánasjóðs. Háskólanum er vel ljóst að nú eru samdráttartímar í þjóðfélaginu og bæði einstaklingar og stofnanir verða að taka á sig auknar byrðar. Þetta hefur Háskólinn hins vegar gert um- fram aðra á undanförnum árum. Frá árinu 1988 hefur nemendum fjölgað um 935 (21,8%) og námsbrautum og þjónustuverkefnum fjölgað, án þess að fjárveitingar hafi hækkað að raun- gildi. Kostnaður á hvern nemanda hefur því lækkað verulega og er miklu lægri en í nokkrum öðrum háskóla á Norðurlöndum. Ef þessum nemendum hefði verið komið fyrir í nýjum há- skóla, sem hefði sama kostnað á nem- anda og Háskólinn hafði árið 1988 næmi rekstrarkostnaður þess skóla um 330 milljónum króna á næsta ári. Háskólinn er reiðubúinn að leita leiða til enn frekari hagræðingar og samdráttar í kennslu, en þar verður að hafa í huga að Háskólanum ber skylda til að tryggja að gæði þeirrar kennslu sem hann veitir séu sámbæri- leg við aðra háskóla. Kennsla við Háskólann er nú þegar mun ódýrari en í öðrum sambærilegum háskólum á Norðurlöndum og það er samdóma álit háskólamanna að ekki sé nokkur leið að beita almennum niðurskurði Fjárveitingar á nemanda við HÍ1988-92 Miðað er við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps 1992. Þúsundir kr. Fjárveiting á skráðan nemanda við nokkra háskóla á Norðurlöndum Þús. ÍKRmiðaðviðmeðalgengijan.-april1991 ( 0__________200__________400_________600 800 1000 enn á ný til að mæta fyrirhugaðri skerðingu á fjárveitingum næsta árs. Slík aðgerð mundi draga svo úr kennslu að Háskóli Islands yrði undir- málsskóli, nemendur tefðust í námi og Háskólinn yrði að segja upp því kennaraliði sínu sem er með lausasta samninga, en það eru yngstu og efni- legustu kennararnir sem ætlað er að standa undir endurnýjun kennaraliðs- ins á komandi árum. Þessi skyndiað- gerð hefði áhrif til langframa og gerði að engu áratuga uppbyggingarstarf. Nú er útlit fyrir að fjárveiting á fjárlögum næsta árs verði um 253 milljónum króna lægri en hún þyrfti til að standa undir óbreyttri þjónustu við áætlaðan nemendafjölda. Til að mæta því er gert ráð fyrir því í fjárlag- afrumvarþinu að Háskólinn innheimti allt að 90 milljónir króna í viðbótar- skólagjöld (sem er ókleift að ná á árinu 1992). Einnig má gera sér von- ir um að hann fái til baka 36 milljón- Borgarfjörður: Sjo onopp í ALLS URÐU sjö umferðaróhöpp í Borgarfirði um síðastliðna helgi. Meiðsli á fólki urðu í tveimur til- fellum. Flest óhöppin urðu vegna mikillar hálku á vegum en tvö þeirra mátti rekja til lausagöngu útigangshrossa. Undir Hafnarfjalli rann stór jeppi til í hálku og lenti á minni jeppa sem kom á móti. Okumaðurinn í minni jeppanum slasaðist og var fluttur á sjúkrahús. Þá lentu tveir bílar saman- á brúnni yfir Hítará og kona sem var ökumaður annars bílsins hlaut höfuðhögg og var flutt á sjúkrahús. ir af almennum niðurskurði til ríkis- stofnana sem tillaga verður gerð um við 2. umræðu fjárlaga. En jafnvfl þótt Háskólinn fái þetta fé allt í sinn hlut vantar hann enn 127 milljónir til að geta veitt óbreytta þjónustu. Nái fyrirhuguð skerðing fram að ganga á Háskólinn engan annan kost en að takmarka fjölda nemenda. Hann er bundin skyldum við þá nem- endur sem nú þegar eru í námi og því yrði takmörkun að koma niður á nýnemum á næsta hausti. Auk þess yrði að koma til varanleg lokun náms- brauta og deilda og afnám margs konar þjónustu. Aðgerðir af þessu tagi eru vissu- lega mjög alvarlegar og hefðu ófyrir- sjáanleg áhrif á menntakerfið í land- inu og framtíðaráform þúsunda ung- menna. Háskólinn vill fyrir alla mupi komast hjá að beita slíkum neyðarúr- ræðum og treystir því að þeir sem ráða fjárveitingum sjái sig um hönd.“ umferðinni Meiðsli fólksins voru ekki talin alvar- leg. Útigangshross sluppu út úr girð- ingu undir Akrafjalli og lentu þrtá þeirra fyrir tveimur bílum sem átfu leið um Akranesveg aðfaranótt sunnudagsins. Meiðsl urðu ekki á fólki og hrossin höltruðu út í myrkr- ið. Bílamir skemmdust báðir töluvert mikið og bera eigendur þeirra það tjón sjálfir. Lausaganga hrossa er bönnuð á þessum slóðum. Þá sluppu hross einnig út á veg í Melasveit en lögreglumenn sem áttu leið þar um ráku hrossin aftur inn í girðinguna áður en þau náðu að valda skaða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.