Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 52

Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 Slökkvibíll sömu gerðar og Húsavíkurbær hefur fest kaup á. Sjómannsamband íslands: Mótmæli við skerðingu sj ómannaafsláttar Húsavík; Nýr slökkvi- bíll keyptur Húsavík. HÚSAVÍKURBÆR hefur fest kaup á nýjum og mjög vönduð- um slökkvibíl, sem væntanlegur er til landsins á næsta ári og hefur bæjarstjórinn á Húsavík hug á að gera samning við nærliggjandi sveitarfélög um sameiginleg not af bílnum. Væntanlegt tæki er af IVECO TLF gerð með drifi á öllum hjólum .og með mjög sterkri vél. Rúmgott hús er á bílnum fyrir 8 manns og þeirra búnað, þar af pláss fyrir tvo reykkafara. Dæluafköst eru 4500 lítrar á mínútu og þar að auki eru tvö háþrýstikefli á bílnum og hann er með ABS bremsur, auk margs annars útbúnaðar. Tankar eru úr plastefni og skáp- ar og geymslur úr áli til að halda heildarþunga bílsins í lágmarki. Með 2.400 lítra af vatni og 100 lítra af kvoðu er heildarþungi bíls- ins um 12 tonn. Áætlað er að bíllinn kosti hing- að kominn um 11 milljónir króna auk virðisaukaskatts. Húsvíkingar hafa átt því láni að fagna að langt er síðan að veru- legt brunatjón hefur orðið og von- andi verður svo áfram, þótt bæjar- stjórnin vilji vera við öllu búin. Fréttaritari MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Sjó- mannasambandi íslands: „Framkvæmdastjórn Sjómanna- sambands íslands mótmælir harð- iega þeim áformum ríkisstjórnarinn- ar að skerða kjör sjómanna með því að lækka sjómannaafslátt. Framkvæmdastjórn Sjómanna- sambands íslands telur nauðsynlegt að tekið verði á allri misnotkun sem hugsanlega á sér stað varðandi sjó- mannaafslátt. Stjórnin átelur hins vegar ríkisstjórnina fyrir að ekki skuli hafa verið haft samráð við for- svarsmenn sjómanna um með hvaða hætti á sh'kri misnotkun væri hægt að taka. Þess í stað ér sett fram tillaga um breytingu á sjómannaf- slættinum sem hefur verulega skerð- ingu í för með sér fyrir þá sem njóta hans með réttu. Á sama tíma og sjómenn standa frammi fyrir tekjur- ýrnun vegna aflasamdráttar leggur ríkisstjórnin til að sjómannafsláttur- inn verði lækkaður um rúm 30%. Sjómannafsláttur er og hefur um áratuga skeið verið hluti af kjörum sjómanna. Ekkert í þjóðfélaginu hef- ur breyst á þann veg að slík aðför að kjörum sjómanna geti verið rétt- lætanleg. Sjómenn fallast á að bera sömu byrðar og annað launafólk í landinu vegna þeirra þrenginga sem að þjóðarbúinu steðja um þessar mundir. Sjómenn eru hins vegar ekki tilbúnir til að taka á sig sér- staka skerðingu umfram annað launafólk. Öllum órökstuddum árás- um á kjör sjómanna með lækkun sjómannafsláttar mun því verða svarað af fullri hörku.“ ATVINNIBAUGL YSINGAR Kvikmynda- gerðarmenn Ríkisútvarpið-Sjónvarp óskar eftir samstarfs- aðilum til að framleiða tvær sex þátta raðir fyrir sjónvarp, sem fjalla um brú (bridge) og um fjármál heimila og einstaklinga. Nánari upplýsingar og gögn fást á Innlendri dagskrárdeild Sjónvarpsins, Laugavegi 176. SJÓNVARPIÐ Forritari óskast Vegna aukinna umsvifa óskar Hugbúnaðar- félag íslands hf. eftir að ráða starfsmann til hugbúnaðargerðar. Starfið felst í nýsmíði og viðhaldi á Starra, en það er hugbúnaður fyrir heilbrigðiskerfið. Forritunarmál sem unnið er í MUMPS. Eiginhandarumsóknir sendist til Hugbúnað- arfélags íslands hf., Skeifunni 17, pósthólf 1536, 128 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 30. desember nk. Fiskvinnsla Nokkra starfsmenn vantar til að vinna við undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Karlar eða konur, vanir eða óvanir, ungir eða full- orðnir. Góð vinnuaðstaða. Vinsamlegast sendið umsókn með helstu upp- lýsingum til auglýsingadeildar Mbl. merkta: „Fiskvinnsla - Hafnarfjörður - 12923“. RADAUGl YSINGAR TILBOÐ — UTBOÐ TIL SOLU Félag með yfirfæranlegan rekstrarhalla til sölu IH ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir til- boðum í 1.680 Ijósbúnaði til götulýsingar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag- inn 21. janúar 1991, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirk|uvecj» 3 Simi 25800 KENNSLA Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Dagskrá staðfestingardags 18. desember Dagskóli Kl. 10.00-10.15 Afhentar einkunnir. Kl. 10.30-11.30 Prófasýning. Kl. 13.00-16.00 Staðfesting á vali. Öldungadeild Kl. 17.00-19.00 Einkunnir afhentar og próf Til sölu íÁrmúla 7, við hliðina á Hótel íslandi, rekstur söluturns, grillstaðar og bjórstofu. Söluturninn og gillstaðurinn, sem reknir eru á neðri hæð hússins, hafa leyfi til nætursölu og því samrekstur bjórstofunnar á efri hæð heppilegur kostur. Öruggt leiguhúsnæði. Afhending samkomulag. Frekari upplýsingar veita: Lögmenn, Borgartúni 33, Reykjavík, sími 91-29888 ÓSKASTKEYPT Tap Traustir aðilar óska eftir að kaupa fyrirtæki, sem á yfirfæranlegt tap. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Tap - 11078“. Járnsmíðavélar Til sölu plötubeygjuvél HACO, gerð PPB 30100, 8x3000 mm. Einnig plötuklippuvél HACO, gerð HST 306, 6x3000 mm. Áhugasamir leggi nafn og síma inn á auglýs- ingadeild Mbl. merkt: „HACO - 11075“, fyrir nk. fimmtudag. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Félag - 9632“. Matsveinafélag íslands Aðalfundur Aðalfundur Matsveinafélags íslands verður haldinn í Goðheimum, Sigtúni 3, fimmtudag- inn 19. desember 1991 kl. 16.00. 1. Aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. I.O.O.F. Rb. 4 = 14112178-Jv. □ EDDA 599117127 - Jf. I.O.O.F. Ob. 1P = 17312178AS ETII, EK. Jv. □ HAMAR 599117127 - JF. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Jólasagan sýnd í kvöld kl. 20.00. Ógleymanleg frásögn. Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir. AD-KFUK Fundur í kvöld kl. 20.30. Jól I Eþíópíu. Ingibjörg og Jónas Þór- isson, kristniboðar, koma á fundinn. Ath.: Fundurinn verður á Háaleitisbraut 58-60. Kaffi eftir fund. Allar konur velkomnar. Fataúthlutun Hjálpræðishersins er í dag, þriðjudag, kl. 10-18. Fatnaður á alla fjölskylduna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.