Morgunblaðið - 17.12.1991, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.12.1991, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 57 Höfnum ósómanum eftir Friðjón Guðmundsson Við íslendingar búum sem betur fer við algera sérstöðu á meðal þjóða. Við eigum merkilega sögu frá fyrstu tíð, frábært land og mikla framtíðarmöguleika. Skylda okkar er að varðveita þessa einstöku. sér- stöðu, sjálfsforræðið og okkar menningarlegu arfleifð. Þetta ger- um við ekki ef við samþykkjum samningana um Evrópska efna- hagssvæðið. Það skiptir í raun engu máli hvort samningurinn er „góður“ eða „vondur“ frá viðskiptalegu sjón- armiði séð, hann er stórpólitískur og stefnumarkandi fyrir framtíð íslensku þjóðarinnar. A því er eng- inn vafi á að með honum glötum við sjálfsforræðinu — ef til kemur — í miklum mæli og í enn stærri stíl síðar sökum þess að hann myndi ótvírætt leiða til inngöngu í EB, það er aðeins spuming um tíma. Það á auðvitað að gera hreint í þessu máli með því að koma í veg fyrir að EES-samningurinn nái fram að ganga, þá fyrst er kominn grundvöllur fyrir tvíhliða viðskipta- samninga við Evi'ópuþjóðirnar eins og önnur ríki veraldar. Og þá fyrst skiptir máli hvemig til tekst. Með þessu móti einu getum við haldið sjálfstæði okkar og öðlast fulia reisn og virðingu á meðal þjóða. Þetta er svo augljóst mál að mér er með öllu óskiljanlegt að ríkis- stjórn, alþingismenn og ýmsir hags- munaaðilar skuli vera að þæfa um aukaatriði í þessum EES-samningi án þess að taka á sjálfum kjarnan- um, sem málið snýst raunverulega um, fullveldisafsalinu sem í honum felst. Það liggur nú ljóst fyrir að það þurfí að gera stórfelldar breyt- ingar á íslenskum lögum til þess að aðíaga þau að samningunum um EES, sem auðvitað skerðir fullveld- ið stórlega og mun hafa óteljandi skaðsamleg áhrif á allt íslenskt þjóðlíf. íslenskir ráðamenn og þjóðin öll verða að viðurkenna þessa stað- reynd. Og ég spyr ríkisstjórn og alþingismenn: Er það vilji ykkar að leggja sjálfsforræði þjóðarinnar í rúst? Ég sé ekki betur en að slíkt „Ég sé ekki betur en að slíkt afsal landsrétt- inda til erlendra vald- hafa sem nú er á döf- inni brjóti í bága við stjórnarskrá lýðveldis- ins og 10. kafla refsi- laga frá árinu 1940, sem fjallar um land - ráð.“ afsal landsivttinda til erlendra vald- hafa sem nú er á döfinni hijóti í bága við stjórnarskrá lýðveldisins og 10. kafla refsilaga frá árinu 1940, sem fjallar um landráð. Við megum ekki selja landið okk- ar hvað sem í boði er, slíkt má aldr- ei gerast. Og ég vona að flestir séu mér sammála um það í hjarta sínu. Islenskir valdhafar verða að við- urkenna mistök sín í þessu máli og snúa við úr ófærunni áður en það er orðið of seint. Og hafna þessum ófögnuði algerlega fyrir íslands hönd, og það án tafar. Annars hryn- ur fullveldið fyrir fullt og allt og Island verður þvínær valdalaus ný- lenda í ríkjasamsteypu Evrópu. Höfundur er bóndi á Sandi i Aðaldal. Landssambandið gegn áfengisbölinu: Varað við öllu undan- UNGLINGASKORn Stærðir: 36-41 • Svart og vínrautt • Kr.4.490. LAUGAVEGI95 OG NÚ EINNIG í JÓLASKEIFUNNI FAXAFEN110 SKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA... haldi í áfengismálum Landssambandið gegn áfengisbölinu hefur samþykkt ályktun þar sem varað er sterklega við öllu undanhaldi í áfengismálum þjóðar- inna. Sérstaklega er varað við hugmyndum um einkavæðingu áfengis- söiu og lækkun lögaldurs tii áfengiskaupa. í ályktuninni, sem samþykkt var á fulltrúafundi sambandsins, segir að í ljósi þeirra ógna sem áfengi og önnur vímuefni leiði yfír þegna landsins, aðeins þjóðarátak þar sem stjómvöld og Alþingi séu í farar- broddi, megni að snúa vörn í sókn. Síðan segir að sölutölur ÁTVR sanni ótvírætt verulega aukningu á áfengisneyslu. Sú staðreynd gangi þvert á skuldbindingar stjórnvalda um að stuðla að fjórðungsminnkun á neyslu áfengis til aldamóta, sam- kvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar. Aðeins markviss- ar forvamir og stöðugt aðhald geti tryggt að það markmið náist. MINI - STÆÐA YAMAHAl HLJÓMTÆKI -. Munalán Afborgunarskilmálar [i VÖNDUÐ VERSLUN HAGKAUP iau,.^»uö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.