Morgunblaðið - 17.12.1991, Síða 66

Morgunblaðið - 17.12.1991, Síða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBBR 1991 Minning: Ingveldur Valdimars- dóttir, Akranesi Fædd 4. febrúar 1954 Dáin 11. desember 1991 Hún Inga systir er dáin. Hvaða réttlæti er í þessu? Hún svona ung, aðeins 37 ára gömul. Af hverju hún, sem var svo virk og átti eftir að gera svo margt? Hún sem átti eftir að sjá bömin sín þrjú vaxa úr grasi, hún sem hafði svo mikið yndi > af starfí sínu, hún sem lét svo mik- ið til sín taka i félagsmálum, hún sem hafði svo gaman af að syngja, hún sem, hún sem ... Af hveiju þurfti hún að glíma við þennan sjúk- dóm? Það eina sem getur fengið okkur tii að sætta okkur við orðinn hlut er að allt hafi þetta einhvem æðri tilgang. Við verðum að trúa því að henni sé ætlað æðra verkefni og að okkur sem þekktum hana sé ætlað að draga einhvem lærdóm af þessu öllu. Og satt að segja höfum við gert það nú þegar. Þó sjúkdómurinn hafi verið til staðar í líkamanum í ein 6 ár, trúðu því allir statt og stöðugt að komast mætti fyrir hann. Það var ekki fyrr en um 10 dögum fyrir andlátið að ljóst var hvert stefndi og þá gerðust hlutirnir gerðust þá hratt. í samráði vð íjölskyldu og sjúkrahús var ákveðið að Inga lægi heima síðustu dagana. Þetta var erfið ákvörðun en núna eru allir þakklátir fyrir að svo hafi verið gert. Þarna var vakað yfír henni nótt sem dag og allir ættingjar og vinir voru reiðubúnir og hreint og beint kröfðust þess að fá að aðstoða. Fjöldi fólks leit við til að heilsa upp á hana og bjóða 0. aðstoð. Var það ekki dæmigerð Inga að hafa mestar áhyggjur af því hvort allir gestirnir fengju nú ekki kaffisopa frammi! Þrátt fyrir innri kvíða varð heimilið að yndislegu „félagsheimili". Allt var svo eðlilegt og fallegt, öll tengsl urðu svo inni- leg. Ekki síst var þetta gott fyrir bömin sem fylgdust með mömmu sinni fram á síðustu stund og sáu dauðann sem eðlilegan hlut en ekki eitthvað sem þurfti að vera hræddur við. Ég var svo lánsöm að hafa tæki- færi til að dvelja á heimilinu síðustu dagana og er sú reynsla sú dýrmæt- asta sem ég hef fengið í lífinu. Mér var það mjög mikils virði að geta — verið hjá systur minni og talað við hana og sérstaklega er mér minnis- stæð vökunöttin sem við Indriði bróðir áttum með henni. Mér leið vel að fá að vera með allri fjölskyld- unni og mikið er ég stolt af foreld- ram mínum og Lúlla mági mínum, sem hafa sýnt ótrúlegan styrk og hafa vart vikið frá henni undanfarn- ar vikur. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst öllu því góða fólki sem annaðist Ingu, kom til hennar eða sendi hlýjar kveðjur. Fyrir hönd fjöl- skyldunnar vil ég n.ota þetta tæki- færi til að færa þeim okkar innileg- ust þakkir. En staðreyndin er sú að Inga er farin. Ég veit að það var tekið vel , á móti henni handan landamæranna miklu og ég bið almáttugan guð að vera með henni þar. Hennar verður sárt saknað, en ég veit líka að harm- urinn og tárin fá engu breytt. Að hafa kynnst Ingu hefur göfgað okk- ur öll og við verðum að trúa því að það hafi tilgang að hún sé tekin svona snemma frá okkur. Það er í anda Ingu að brosa við tilverunni og því verðum við að reyna eftir megni að horfa björtum augum fram á við. Þó ég eigi óteljandi minningai' um Ingu, sækir sífellt á mig ákveð- ið atvik. Það var í haust þegar öll “fjölskyldan dvaldi saman um eina skemmtilega helgi í Skorradal. Við uppvaskið á laugardagskvöldinu byijuðum við að syngja og fyrr en varði varð til heil „sápuópera" með tilheyrandi fíflalátum. Ég sé Ingu alltaf fyrir mér þarna syngjandi, skellihlæjandi og fulla af innilegri ; gleði. Þannig mun ég muna yndis- lega systur. Blessuð sé minning hennar. Asa María Valdimarsdóttir Flest áttum við okkar síðasta fund með Ingveldi um jafndægur á nýliðnu hausti. Þetta var á stjórn- endarmóti íslandsbanka, sem haldið var í Hveragerði. Við ræddum fram- tíð okkar unga banka, auk dægur- mála í rekstri hans. Þarna var Ing- veldur komin, hlédræg að vanda, en vakandi yfir því sem til gagns gæti verið fyrir okkur öll. Ekkert okkar grunaði þá að hveiju stefndi. Þeir sem ekki voru henni nákunnir gátu ekki merkt að þar fór kona sem þjáð var því meini, sem aðeins nokkrum vikum síðar dró hana til dauða. Ingveldur Valdimarsóttir réðst til starfa hjá Alþýðubankanum á árinu 1986. Að áeggjan heimamanna var þá ráðist í að opna afgreiðslu bank- ans á Akranesi. Þeir fengu því líka ráðið að Ingveldur var fengin tii þess að veita afgreiðslunni forstöðu, en hún hafði þá þegar mikilvæga reynslu af bankastörfum. Umsvifín voru ekki mikíl í fyrstu. Afgreiðslan fékk inni á skrifstofu verkalýðsfé- laganna í bænum og veitti þar mjög takmarkaða þjónustu framan af. Þrátt fyrir erfíðar aðstæður varð strax ljóst að bankinn átt þarna góðan hljómgrunn. Var það sam- dóma álit allra að ekki væri það síst að þakka þessari ungu konu, sem áunnið hafði sér virðingu og traust samferðamanna á Skagan- um, sem og allra sem henni kynnt- ust. Á skömmum tíma óx afgreiðslu bankans svo fískur um hrygg að ljóst var að hún þyrfti á eigin hús- næði að halda. Fluttist afgreiðslan í eigið húsnæði í Stillholti vorið 1988. Þar var um skeið rekið eitt minnsta bankaútibú landsins, en sennilega líka það sem átti örustum vexti að fagna. Þótt þröngbýlt væri með afbrigðum í Stillhotinu minnist ég þess hve Ingveldur og samstarfs- menn hennar fögnuðu því einlæg- lega að vera komin í eigið húsnæði. Þarna var jafnan glatt á hjalla. Fáir en samhentir starfsmenn með Ingveldi í broddi fylkingar sköpuðu þann starfsanda og viðmót gagn- vart viðskiptamönnum sem var og er fágætur. Vinnugleðin var ósvikin og viðskiptamenn smituðust af þeim baráttuanda sem þama ríkti. Af þessari lýsingu kynni einhver að halda að Ingveldur hafi farið með fyrirgangi. Öðru nær. í við- kynningu var hún hlédræg, svo jafn- vel jaðraði við feimni, en sagði svo hug sinn af einlægni og umbúða- laust þegar svo bar undir. Hún leið- beindi og stýrði sínu fólki af ein- stakri lagni. Hún mótaði vinnustað- inn eftir sínu höfði, ekki sem harður húsbóndi, heldursem félagi, en jafn- framl óumdeildur Ieiðtogi liðsins. Enn flutti bankaafgreiðslan á Akranesi snemma á þessu ári. Úti- búið hafði eflst svo að nauðsynlegt var að finna því framtíðarhúsnæði sem hæfði ört vaxandi starfsemi. Á útmánuðum í ár var opnað glæsilegt útibú Islandsbanka á Akranesi. Þótt húsakynnin væru ný og vel búin voru þau jafnframt heimilisleg og hlýleg og áreiðanlega fannst starfs- mönnunum á vissan hátt að þeir væru komnir heim. Og enn var glaðst fölskvalaust og ekki hafði áhuginn og kappið dvínað. Þótt ekki sjái þess merki af þeirri sögu sem hér er rakin, átti Ingveld- ur í langri baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Hún sinnti stóru heimili og veitti jafnframt forstöðu ört vaxandi fyrirtæki af þeirri alúð og atorku, að ekki hvarflaði að neinum annað en þar'færi fullfrísk kona. Eitt orð, hetjulund, lýsir því betur en langt mál með hvaða hætti Ingveldur tókst á við það sem að höndum bar hveiju sinni. í nafni bankaráðs og banka- stjórnar íslandsbanka þakka ég Ing- veldi samfylgdina. Fjölskyldu henn- ar allri, samstarfsmönnum í útibú- inu á Akranesi og stórum vinahópi vottum við einlæga samúð okkar. Björn Björnsson Stundum erum við létt í spori, meðvitað eða ómeðvitað og táknar það þá gjarnan að okkur iíði vel, allt gangi í haginn. En svo geta sporin okkar orðið erfið og þung þegar hugurinn er dapur, svo dapur að jafnvel skin jólaljósanna verður fjarrænt. Þau voru þung sporin mín upp á Akranes þriðjudagsmorguninn 10. desember til að vera hjá Ingu Völlu vinkonu, því að innst í hjarta mínu vissi ég að hún lifði ekki að vera með fjölskyldu sinni þessi jól. Hún var orðin mjög veik og dó á heim- ili sínu 11. desember, umvafin kær- leika fjölskyldunnar. Hún var aðeins 37 ára gömul. Við vorum æskuvinkonur og átt- um góða daga „í túninu heima“ á Háteigi, þar sem húsin okkar standa hlið við hlið. Þá voru sporin okkar létt og hlaupið á milli dag- lega. Við lékum okkur saman hvern dag sem Guð gaf, voram samferða í skólann, sátum saman, fórum saman í sumarbúðir og alls er svo ljúft að minnast. Margt væri hægt að riíja upp frá barnæskunni, en eitt atvik er mér ofarlega í huga. Það er fyrsta sinn sem við voram aðskildar um tíma. Inga Valla sagði mér einn daginn að þau færu í frí til útlanda. Mér varð ekki um sel og hugsaði um hvernig ég ætti að fá tímann til að líða á meðan og svo mundi hún kannski gleyma mér því það hlyti að vera svo skemmtilegt í útlöndum. Svo fór hún og dagarnir siluðust áfram, sporin mín urðu þyngri en vanalega og húsið hennar virtist svo óendanlega stórt og tómt, sem ann- ars var alltaf svo bjart og hlýtt. Loksins rann svo upp dagurinn, sem þau áttu að koma heim. Það voru fislétt sporin yfír túnið þann daginn um leið og hreyfíngar varð vart í stóra húsinu og eftirvænting- unni var ekki hægt að leyna. Eg man enn hvð ég var fegin að sjá að Inga Valla hafði ekkert breyst þó hún færi til útianda, hún var sama góða vinkonan og það voru fagnaðarfundir. Öll fallegu fötin sem hún kom með höfðu verið keypt eins á tvær telpur sem voru jafn- gamlar og jafnstórar. Inga Valla bar nafn foreldra sinn, Ingibjargar og Valdimars og var yngsta barn þeirra. Systkini hennar eru Ása María og Indriði. Hugur minn er fullur þakklætis til þessa yndislega fólks, sem veitti mér svo mikla ást þegar við vorum litlar og tryggð alla tíð. Inga Valla gekk menntaveginn, fór í Verslunarskólann og útskrifað- ist þaðan. Það liðu ekki mörg ár þar til hún var komin í ábyrgða- mikla stöðu sem útibússtjóri Al- þýðubankans, síðar íslandsbanka á Akranesi. Við sem þekktum hana sam- glöddumst henni yfír velgengninni, því við vissum að hún bjó yfír öllum þeim kostum sem til þurfti. Hún var vel gefin og vönduð kona, hafði fágaða, fallega framkomu og átti virðingu allra sem hana þekktu. Og auðvitað var það Inga Valla sem dreif í því að stofna sauma- klúbb okkar skólasystranna átta, þegar við vorum rúmlega tvítugar og allar búnar að stofna eigið heim- ili. Síðan höfum við hist reglulega á hverjum vetri, þó oft hafí viðrað illa til ferðalaga og var stundum ekki einleikið hvað „sapmaklúbbs- veðrið" var vont. En við létum ekki deigan síga og nú minnumst við með tár í augum síðasta klúbbs, sem var 21. nóvember í sveitinni hjá Rögnu. Það fór ekki fram hjá neinni okkar hve þjáð Inga Valla var, þó hún hefði engin orð um það sjálf. Þessi kvöldstund verður okkur öllum minnisstæð. Inga Valla var hamingjusöm kona. Hún giftist yndislegum manni, Lúðvík Helgasyni, og duldist engum ást þeirra og samheldni jafnt í blíðu og stríðu. Þau eignuðust þijú börn, Þóri Björn, 14 ára, Vil- borgu, 13 ára og Ingólf, 8 ára, sem nú syrgja ástkæra móður og reyna að skilja lífið, dauðann og tilgang þess. Ég kveð með þessum línum elsku vinkonu mína, sem gaf mér svo mikið og kenndi mér að meta til- gang vináttu og Lyggðar. Ég mun minnast allra góðu stundanna sem við áttum saman og hetjulegrar baráttu hennar síð- astliðin ár við krabbameinið, þar sem hún sýndi ótrúlega mikinn sál- arstyrk og þrek. Ég bið góðan Guð að geyma hana og styðja og styrkja fjölskyldu hennar. Helga Oliversdóttir Ingveldur hefur farið í það ferða- lag sem við getum ekki fylgt henni í fyrr en okkar tími er kominn. Það er afar sárt að þurfa að gangast undir að kveðja unga móð- ur og eiginkonu langt um aldur fram að okkur fínnst, en aftur á móti er betra að kveðja en að horfa upp á langvarandi þjáningar. Ing- veldur barðist við mjög erfiðan sjúk- dóma í sex ár. Hún var mjög ung þegar þessi staðreynd kom í ljós. Við hlið henn- ar stóð eiginmaður sem hefur sýnt afburðaþrek og foreldrar og tengd- aforeldrar sem aldrei létu deigan síga. Ég kynntist Ingveldi eins dags gamalli. Ég kom þá í fyrsta sinni til Akraness með unnusta mínum og fór að heimsækja þær mæðgur á Akranesspítala, Ingibjörgu og Ingveldi. Ég gerði mér fljótt ljóst að heimili Ingibjargar og Valda vaf heimili þar sem öryggi og kærleikur réðu ríkjum. Börnin fengu í vega- nesti mikinn auð og sást sá auður vel þegar Ingveldur háði sitt veik- indastríð. Aldrei sást uppgjöf, hvorki hjá ungu hjónunum eða for- eldram þeirra. Ingveldur var með góða menntun og sagði mér bróðir hennar fyrir mörgum árum að hún væri sá besti tölvusetjari sem hann hefði kynnst. Hún réð sig hjá Iðnaðarbankanum á Akranesi og veit ég að störf henn- ar þar voru afar samviskusamlega unnin. Starfið var henni mikill gleði- gjafi vegna þess að þar gat hún fengi útrás fyrir sína miklu starfs- orku og þar gat hún bætt við þekk- ingu og gáfur sem í henni bjuggu svo ríkulega. Þegar svo íslands- banki var stofnaður varð hún úti- bússtjóri hans og veit ég að það var henni til gleði og ánægju að vera með í að byggja upp þetta starf. Það sem var þó alltaf númer eitt var henni eigið heimili. Þau Lúðvík byijuðu smátt eins og flestir og það var dásamlegt að fylgjast með hreiðursbyggingu þeirra, bæði fyrst og síðan þegar þau réðust í að byggja einbýlishús á Akranesi. Húsið ber vott um smekkvísi en einnig var gaman að fylgjast með hversu mikið þeim varð úr efnum sem ekki voru alltof mikil eins og oftast er venja .þegar ungt fólk er að koma yfir sig skjóii. Reynigrund 2 er minnismerki þeirra beggja. Börnin komu'eitt af öðru. Fyrstur Þórir sem ég álít að sé nú höfuð þeirra og er viss um að hann mun standa við hlið föður síns eins og klettur og hjálpa honum að halda utan um heimilið. Næst er heima- sætan, Vilborg, sem er nú sú sem mun í anda móður sinnar halda uppi kvenlegum verkum á heimil- inu. Síðastur í röðinni er Ingólfur sem aðeins er átta ára og þarf á miklum stuðningi að halda næstu árin. Lúðvík og börnin eru langt frá því að standa ein. Þau eiga því láni að fagna að eiga ömmur og afa sér við hlið ásamt móður og föðursystk- inum og mjög marga aðra ættingja og vini sem munu umvefja þau öll í kærleika. Síðustu ævidagar Ing- veldar munu verða mér minnisstæð- ir allt mitt líf., Hún var umvafin afar miklum- kærleika. Á Akra- nesspítala var allt gert til að gera henni lífið sem bærilegast og ekk- ert til sparað. Læknar og annað hjúkrunarfólk töldu ekki eftir sér sporin eða handbrögðin til að létta henni byrðina. Eiginmaður og ætt- ingjar létu engan bilbug á sér fínna til að geta gefíð hennið eins gleði- legar stundir og kostur var á. Hún fékk svo að fara heim síðustu dag- ana og var gerð sjúkrastofa á heim- ili hennar. Var þetta frumraun af þessu tagi á Akranesi. Læknar og hjúkrunarkonur voru alltaf til taks og önnuðust hana frábærlega vel. Ættingjar og vinir skiptust á að vera við hlið hennar og eiginmaður- inn stóð eins og klettur við rúm hennar meira og minna allan sólar- hringinn. Börnin fengu að vera hjá henni að vild og hún fékk að hafa þau í návist sinni fram að kveðju- stundu. Hún sjálf var. það merkilegasta sem ég hef upplifað á minni ævi. Hún vissi að hún var að kveðja en ró hennar og þrek var yfírnáttúru- legt. Hún var með meðvitund fram á síðustu stund og gaf öllum í kring- um sig þrótt kjark og ró. Sál henn- ar er sú sterkasta sem ég hef kynnst. Ég óska henni góðrar til- vera á nýja staðnum og ég veit að þar taka aðrar kærleikshendur við henni og hjálpa henni á þessum tímamótum. Ég bið Guð um að blessa börnin hennar og gefa þeim kraft til að standast þessa miklu sorg. Ég bið Guð um að gefa þeim styrk til að geta lifað eins og móð- ir þeirra gat, með æðraleysi að leið- arljósi. Ég bið Guð um að blessa, styrkja og styðja eiginmanninn sem á mik- ið starf fyrir höndum. Ég bið Guð um sefa sorg hans og barnanna og að þau geti haldið áfram að gleðja Ingveldi með kærleika og styrkleika í sálu sinni. Ég bið guð um að styrkja og sefa sorg foreldra, tengdaforeldra og annarra ættingja og vina Ing- veldar. Þökkum Guði fyrir að hún leið ekki meira. Selma Júlíusdóttir „Dáinn, horfinn, harmafregn hvflíkt orð mig dynur yfír. En ég veit að látinn lifir það er huggun harmi gegn.“ (J.H.) Það er með sárum trega og þung- um harmi að ég kveð ástkæra bróð- urdóttur mína í dag. Það er erfitt að skilja tilgang lífsins, þegar ung kona er kölluð héðan frá þremur börnum, eiginmanni og ástvinum, finnst manni almættið hafa rangt við og höggva þar sem síst skyldi. Manni finnst réttlátt að ungt fólk sem á eftir svo miklu ólokið í þessu jarðlífí fái að vera hér og Ijúka starfi sínu. Okkur mönnunum er ekki allt- af ætlað að skilja þessa hluti á ein- faldan máta og þess vegna trúum við því að henni sé ætlað annað og meira starf á öðrum tilverastigum og við munum seinna öðlast þann þroska til að skilja þennan tilgang. Lífshlaup frænku mínnar var ekki langt, aðeins 37 ár, en hún áorkaði í lífi sínu meira en margur aldraður nær að gera. Ég sé hana undurfallega litla í vöggu, strax með athugul augu, síðan litla hnátu er leiðir stóru frænku í göngutúr- um, er strax hefur ákveðnar mein- ingar hvert við skulum fara. Ég sé hana við eldhúsborðið hjá ömmu Villu, þar sem hún situr einbeitt og ákveðin og er að læra að lesa og ekkert utanaðkomandi getur truflað hana. Ég sé hana glæsilega unga stúlku og síðan hamingjusama eiginkonu og móður. Allt sem hún tók sér fyrir hendur einkenndist af. ákveðni, skapfestu og framúrskar- andi trúmennsku og samviskusemi. Hún kom sér alls staðar vel í vinnu og henni voru falin mörg trúnaðar- störf, nú síðast var hún útibússtjóri íslandsbanka á Akranesi. Ingveldur Valdimarsdóttir fædd- ist 4. febrúar 1954 á Akranesi. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Olafsdóttir og Valdimar Indriðason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.