Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 67

Morgunblaðið - 17.12.1991, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991 67 Hún var yngsta barn foreldra sinna, en hin eldri eru Indriði og Ása María. Inga ólst upp í miklu ástríki foreldra sinna og systkina og einnig móðurömmu, Ásu Finsen. Æska Ingu var bjöit og fögur, hún var snemma ákveðin í skapi og nokkuð dul. Hún var mjög stað- föst að eðlisfari og hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum sem yfirleitt varð ekki haggað, en ef sagt var við hana að hún væri þrá, hló hún bara stríðin á svip og sagði: „Þetta er bara ættin.“ Hún lauk prófi frá Verslunar- skóla íslands árið 1972. Fyrsta árið hér í Reykjavík dvaldi hún á heim- ili okkar hjóna, öllum til mikillar gleði og þar kynntist ég henni sem ungri stúlku og sá þá hvílíkum mannkostum þessi unga frænka mín var búin. Rætur hennar teygðu sig upp á Skaga og þangað sótti hún manns- efnið sitt, hann Lúlla. Á sólfögi'um degi 27. júlí 1974 gekk hún að eiga Lúðvík Ibsen Helgason. Það voru glæsileg hjón er gengu úr Akranes- kirkju út í sólina þennan fagra dag og það var stolt frænka er felldi lítið gleðitár yfir hamingju ungu hjónanna, lífið var svo bjart. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau í Reykja- vík, en síðan flytja þau upp á Ákra- nes og með miklum dugnaði og útsjónarsemi byggðu þau hús sitt á Reynigrund 2 og bjuggu þar sér og börnum sínum gott og hlýtt heimili sem a.lltaf stóð opið og gott var að koma á. Börn þeirra eru: Þórir Björn, fæddur 24. mars 1977, Vilborg, fædd 19. september 1978 og Ingólfur, fæddur 4. september 1983. Það dró ský fyrir sólu þessarar hamingjusömu ijölskyldu fyrir sex árum er sjúkdómurinn skæði er svo marga leggur að velli gerði vart við sig. Þá reyndi á járnvilja og kjark Ingu og með „ég skal“ að leiðar- Ijósi blómstraði hún á ný, staðráðin í að sigra. Sólin skein ekki jafn skært og áður, annað áfall kom fyrir þremur árum, það var fjarri Ingu að gefast upp og nú var bar- ist af enn meiri hörku en fyrr. All- ir vonuðu að sigur mundi vinnast.. Lokaáfallið kom nú á haustdögum. Er hún gerði sér grein fyrir því sýndi hún fádæma sálarstyrk. Hetj- ulegri baráttu lauk á heimili hennar þar sem hún var umvafin ást og kærleika eiginmanns, barna og ást- vina. Elsku Lúlli minn, börn, foreldrar og ástvinir, við Jón Otti og fjöl- skylda vottum ykkur dýpstu samúð, og biðjum algóðan Guð að gefa ykkur styrk. Við þökkum fyrir allar yndislegu minningarnar. Megi þær verða ljós í lífi ykkar og milda sökn- uðinn. Siddý Allt eins og orðin raðast á papp- ír flæða minningarnar um hugann, ljúfar og góðar. Minningarnar um Ingu frænku. Þær eru svo yndisleg- ar, og þó hún Inga mín sé ekki leng- ur á meðal okkar, þá lifir brosið hennar alltaf í hjartanu, og allt hið góða sem hún gerði fyrir okkur höfum við hin með í nestispakkan- um út í lífið. Inga Valla var litla systir hans pabba. En samt var hún stundum eins og stóra systir mín. Alltaf til staðar þegar eitthvað bjátaði á. Sérstaklega þegar ég var á hinum alræmda aldri unglingaveikinnar, með allar heimsins áhyggjur á herð- unum og þess fullviss að foreldrar mínir væru alvarleg tímaskekkja. Þá var gott að geta tölt inn á Reyni- grund til að fá aðstoð við að greiða úr flækjunum og skilja sjónannið „skekkjunnar“. Hvenær sem var stóð heimili þeirra Lúlla mér opið, og þar var oft spjallað og brallað yfir mjólkurglasi í eldhúsinu. Reyndar fór heimsóknum mínum fækkandi með árunum, svona þegar meira varð að gera hjá mér í skólan- um, og eftir að ég fór í skóla í Reykjavík í haust hittumst við enn sjaldnar. Samt var samband okkar frænk- anna náið, því undanfarin sumur vann ég undir hennar handleiðslu í Alþýðubankanum góða, sem síðar varð að Islandsbanka. Og þessi sumur í bankanum eru mjög sérstök í mínum huga. Starfsandinn var einstaklega góður, og alltaf stutt í glens og gaman hjá okkur öllum. Og ekki síst Ingu, þótt hún hafi gegnt hinni ábyrgðarfullu stöðu útibústjóra. Jafnt á Stillholtinu sem Kirkjubrautinni áttum við ljúfar og ánægjulegar samvenistundir, sem aldrei munu líða mér úr minni. Sitj- andi inni á kaffistofu maulandi gulrætur og vínber, talandi um allt og ekkert og hlæjandi að bröndur- um hvor annarrar. Frábærir tímar. Og þó Inga væri yfirmaðurinn okk- ar, þá umgekkst hún okkur alltaf sem jafningja. Hún var ákveðin við okkur stundum, en líka svo blíð og góð. Og sanngjörn. Þetta allt sam- einaðist í stórkostlegum persónu-, leika hennar, sem allir virtu og litu upp til. Hún var góður stjórnandi og af eljusemi og dugnaði vann hún að uppbyggingu þess sem nú starf- ar undir merkjum Islandsbanka á Kirkjubraut 40. Þegar maður horfir svona til baka riijast upp mörg skondin og skemmtilega atvik. Og það er svo gott að eiga minningarnar til að ylja sér í svartasta skammdeginu, þegar sorgin ber að dyrum. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er aðeins eitt sem við vitum fyrir víst að gerist. Ein- hvern tímann munu allir kveðja þessa jörð. Einhvern tímann kveðj- um við ástvini okkar í hinsta sinn, og upplifum sorgina og söknuðinn. En í haust þegar ég kvaddi frænku mína áður en ég flutti, þá vissi ég ekki hvað það var stutt þar til við myndum kveðjast fyrir fullt og allt. Inga háði harða baráttu við al- varleg veikindi. Baráttu sem ein- kenndist af þrautseigju, bjartsýni og viljastyrk. Hún naut innilegs stuðnings eiginmanns síns og barna, foreldra, systkina og allra annarra ættingja og vina. Og þrátt fyrir allt, þá veitti hún okkur líka styrk meðan á veikindunum stóð. Hún sýndi okkur fram á hvers virði það er að berjast. Jafnvel þó ekki vinnist sigur og allt virðist svo óréttlátt. Bjartsýni, styrkur ogþrautseigja. Það var einkennandi fyrir hana. Og með þetta þrennt að leiðarljósi tökúmst við nú á við lífið og snúum andlitinu mót hækkandi sól svo að skuggarnir hverfi. Ingu var ætlað annað hlutverk á öðrum stað. Hún hefur skilað sínu. Söknurðuinn er sár og missirinn mikill, en mig langar að minnast eftirfarandi orða úr Spámanninum: „Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú er glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Inga var yndisleg kona, og ég mun alltaf hugsa til þess með gleði og stolti að hafa fengið að kynnast henni. . Elsku Lúlli, Þórir, Vilborg, Ing- ólfur, amma og afi. Guð blessi ykk- ur og styrki. Þess biður Sigríður Indriðadóttir. í örfáum orðum langar okkur að minnast okkar ástkæra útibús- stjóra, Ingveldar Valdimarsdóttur, sem hvarf á braut þann 11. desemb- er sl. aðeins 37 ára að aldri. Mikil sorg ríkir í hjörtum okkar en jafn- framt mikið þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Ingveldi. Hjarta- hlýrri og göfugri yfirmaður er vand- fundinn. Útibúið óx jafnt og þétt undir hennar stjórn. En þar var Ingveldur rétt manneskja á réttum stað. í leik og í starfi var hún fé- lagi okkar og jafningi. Hún var leið- beinandi okkar allra. Alltaf gaf hún sér tíma fyrir okkur þó að mörgu væri að hyggja. Sérstaklega langar okkur að minnast þess er við flutt- um bankann í mars sl. Þar kom eljusemi Ingveldar vel í ljós, þar sem hún stjórnaði af mikilli reisn og röggsemi frá upphafi framkvæmda til opnunardags. Það var stoltur og ánægður útibússtjóri sem opnaði nýtt og glæsilegt útibú. Ekkert okkar grunaði þá hversu stuttan tíma við ættum eftir að fá að njóta samvista við hana. Ekki er hægt að minnast Ingveldar án þess að nefna fjölskyldu hennar sem var henni mjög hugleikin og í rauninni allt. Samheldni þeirra allra og styrkleiki lýsti sér einna best í veik- indum hennar. Umvafin ástúð og umhyggju fjölskyldu og vina fékk hún að heyja lokabaráttuna heima. Elsku Lúlli, Þórir, Vilborg, Ing- ólfur, Valdimar, Ingibjörg og aðrir ástvinir. Ykkar missir er mikill og við biðjum algóðan guð að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Minningin um Ingveldi lifir í hug- um og hjörtum okkar allra. Vegir skiptast - allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein, með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið. Stórt og smátt er saman bundið. (Einar Ben.) Starfsfólk íslandsbanka hf. Akranesi. Ég tigna kærleiks kraftinn hljóða, Kristur, sem birtist oss í þér. Þú hefur fóður hjartað góða, himnanna ríki opnað mér. Ég tilbið undur elsku þinnar, upphaf og takmark veru minnar. (Sbj.E.) Þegar hljómur klukkunnar, sem stýrir hinu mikla lífslögmáli, kallar eitt úr hópnum heim frá störfum jarðlífsins stöndum við oft hljóð, því skilningur vor er enn svo tak- markaður. En Guð ræður og kallar börnin sín til æðri starfa, sam- kvæmt alvisku sinni og kærleika. Því hans vegir eru svo miklu æðri okkar vegum. Nú stöldrum við hljóð við þau vegamót, er teppa hug og fót á lífs- göngunni og verðum að kveðja elsku Ingveldi um stund. Við viljum þó með þessum örfáu orðum þakka henni af alhug fyrir gott og heilla- ríkt samstarf og hugljúf kynni. Við minnumst í hljóðri þökk fórnfýsi hennar í þágu félagsins, þó heilsan væri að bresta. Óbilandi trúartraust hennar og kjarkur til hinstu stundar verður okkur sem eftir stöndum ljúf hvatning og styrkur. Starfið í þessu félagi byggist á einlægni, góðvild og kærleika og hún átti svo auð- velt með að miðla öðrum af þessum sjóði og með því styrkja og efla þennan félagsskap sem gefur fólki trú og vissu um áframhaldandi æðra líf. Við biðjum algóðan Guð að um- veija hana ljósi lífs og kærleika, styrkja hana á nýrri braut og gefa henni sinn frið. Við sendum Lúlla, börnum, foreldrum, systkinum og öðrum ástvinum, okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að vemda þau, styrkja og blessa. Stjórn Sálarrannsóknarfélags Akraness og Borgarfjarðar. Skíðapakkar, allir möguleikar. Jsolomite 4IRTEJC CARRERA TYROL/A Iwrrkú uur/i Barnapakkar verð frá Skíðapakkar fyrir fullorðna Gönguskíðapakkar verð f ra 1 19.95& A1IKUG4RDUR MARKAÐUR VIÐ SUND Þeir sem próf’ann einu sinni, kaup’ann aftur ... og aftur!!!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.