Morgunblaðið - 17.12.1991, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
75
Þátttakendur í námskeiðinu ásamt kennara, fulltrúum Farskóla Suðurlands og forsvarsmönnum Fjölbrautaskóla
Suðurlands.
Farskóli Suðurlands:
Þrjáthi útlendingar á
íslenskunámskeiði
Selfossi.
ÞRJÁTÍU útlendingar fengu
miðvikudaginn 11. desember af-
hent skírteini hjá Farskóla Suður-
lands fyrir þátttöku í námskeiði í
íslensku. Þátttakendurnir voru frá
sjö löndum og eru allir við störf
víðs vegar á Suðurlandi.
Námskeiðið fór fram í grunnskól-
anum á Brautarholti á Skeiðum. Sveit-
arfélögin í uppsveitunum, Skeiða-
hreppur, Hrunamanna- pg Gnúpverja-
hreppur greiddu götu námskeiðsins
með því að leggja til húsnæði og fjár-
framlög.
Farskóli Suðurlands er rekinn í
tengslum við Fjölbrautaskóla Suður-
lands og heldur úti námskeiðum af
ýmsu tagi víðs vegar um Suðurland.
Fjölmargai' óskir bárust um námskeið
í íslensku fyrir útlendinga og var með
þessu námskeiðshaldi reynt að koma
til móts við þær óskir. Gert er ráð
fyrir að framhaldsnámskeið verði eftir
áramótin.
Námskeiðið fór fram á kvöldin, tvo
tíma tvisvar í viku. Kennari á nám-
skeiðimrvar Hafsteinn Karlsson skóla-
stjóri í Villingaholtsskóla. Hann lét
vel af námskeiðshaldinu en sagði það
mjög krefjandi.
Nemendurnir skipulögðu samsæti
þegar skírteinin voru afhent og
skemmtu sér og viðstöddum með leik
og söng ásamt því að bjóða upp á
kaffiveitingar.
Sig. Jóns.
Dengsi
Jólaball með
Dengsa og
félögum
HLJÓMPLATAN Jólaball
með Dengsa og félögum
er komin út lyá Skífunni
hf.
Eins og nafnið bendir til
er um Jólaplötu að ræða og
inniheldur hún fyrst og
fremst hefðbundin jólalög í
tveimur mislöngum syrpum.
Auk þess taka þeir félagarn-
ir Dengsi og Hemmi lagið
ásamt gestum. Skrámur,
Saxi læknir, Jólasveinninn
og fleiri líta við.
(Fiéttatilkynning)
Þú svalar lestrarþörf dagsins ;
ástóum MoggansJ
METAÐSOKNARMYNDIN:
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA:
„FUGLASTRÍÐIÐ í LUMBRUSKÓGI“
HEIÐUR FÖÐUR MÍNS
FUGLASTRÍÐIÐÍ
LUMBRUSKÓGI
Ómótstæftilcg teikni-
mynd meft íslensku tali,
full af spennu, alúft og
skemmtilegheitum. Óli-
ver og Ólaf ía eru munaft-
arlaus vegna þess aft
Hroði, fuglinn ógurlegi, át
foreldra þeirra. Þau
ákvefta aft reyna að saf na
lifti í skcginum til að
lumbra á Hroða.
ATH. ISLENSK TALSETNING
Metaðsóknarmyndin í Frakklandi. Byggð á atriftum
úr ævi hins dáfta franska rithöfundar Marcel Pagnol,
sem er meðlimur í frönsku Akademíunni. Yndisleg
mynd um ungan strák sem íþyngir móður sinni meft
uppátækjum sínum. Sjálfstætt framhald myndarinn-
ar, „Höll móður minnar" verftur sýnd á næsta ári.
Leikstjóri: Yves Robert. Tónlist: Vladimir Cosma.
Aðalhlutverk: Philippe Caubére, Nathalie Roussel.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Aðalhlutverk: Bessi
Bjamason, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigurður Sig-
urjónson, Laddi, Örn Árnason o.fl.
Sýnd kl. 5 og 7. Miðaverð kr. 500.
ögö
CS3
19000
UNGIRHARÐJAXLAR
Ó, CARMELA
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
KRAFTAVERK ÓSKAST Sýnd kl. 9og 11.
HOMOFABER Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 5, 7, 9og11.
Bönnuðinnan16 áca.
‘TöfrafCau.tan
eftir W.A. Mo/art
örfáar sýningar eftir.
ATH.: Breyting á hlutverkaskipan:
Næturdrottning: Sigrún Hjálmtýsdóttir.
1. hirðmær: Elísabet F. Eiríksdóttir.
Papagena: Katrin Sigurðardóttir.
Sýning fóstudaginn 27. des. kl. 20.00,
sunnudaginn 29. desember kl. 20,
fostudaginn 3. janúar kl. 20.
Ósóttar pantanir eru seldar tveimur dögum fyrir sýningu.
Töfrandi jólagjöf: Gjafakort i Óperuna!
Miðasalan opin frá kl. 15.00-19.00 daglega og
til kl. 20.00 á sýningardögum. Sími, 11475.