Morgunblaðið - 28.12.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991
Morgunblaðið/Ástvaldur
Sumarhiti eftir hvítjól
Sumarhiti var víða á landinu í gær að loknum hvítum jólum um land allt. Hitastigið á landinu í gær var
samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar óvenju milt miðað við árstíma, og á þremur veðurathugunarstöð-
um mældist hitinn 12 stig. Spáð er kólnandi veðri á næstunni.
Skoðanakönnun Gallup um afstöðu til sölu Búnaðarbanka:
Þrír af hveijum fjórum
andvígir sölu bankans
Fækkun fiskiskipa
er meginmarkmið i
- segir sjávarútvegsráðherra um 1
eyðileggingu smábáta ,
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að eitt meg-
inmarkmið fiskveiðistjórnunar
sé að fækka fiskiskipum, og eyði-
legging nýlegra smábáta sé af-
leiðing af því. Eins og fram hef-
ur komið í Morgunblaðinu eru
brögð að því að nýlegir smábátar
séu eyðilagðir af því að þeir hafa
engan kvóta eða nota á endurnýj-
unarréttinn af þeim til að ný-
smíða fiskiskip.
„Sóun á verðmætum átti sér þá
stað þegar menn létu byggja þessa
báta,“ sagði sjávarútvegsráðherra
í samtali við Morgunblaðið er hann
var spurður hvort þarna væri ekki
verðmætasóun á ferðinni. „Það er
hins vegar augljóst að við þurfum
að koma því þannig fyrir að fiski-
skipastóllinn sé af stærð, sem sam-
rýmist afrakstursgetu fiskimið-
anna. Það er eitt meginmarkmið
fiskveiðistjórnunarinnar að stuðla
að fækkun fiskiskipa. Um það hefur
verið býsna góð samstaða, og ég
trúi ekki að nokkur sá, sem staðið
hefur að því að móta þetta megin-
markmið snúist gegn því þegar
menn eru að ná árangri á þessu
sviði. Þegar menn tóku ákvarðanir
um að byggja skip umfram afrakst-
ursgetu stofnanna, voru menn að
taka' ákvarðanir um sóun verð-
mæta. Þegar menn eru að snúa
taflinu við eru þeir að taka ákvarð-
anir, sem stuðla að betri nýtingu
og meiri afrakstri auðlindarinnar
fyrir þjóðina alla.“ 1
Þorsteinn sagði að ef hann skildi I
rétt tillögu trillukarla um að kvóta-
lausir bátar fengju að koma inn í
banndagakerfið snerist hún einung-
is um það að auka kvótann. „Því
miður höfum við ekki ráðrúm til
að auka við kvótann. Ég vildi að
svo væri, en það svigrúm höfum
við ekki í dag,“ sagði hann.
------♦ ♦ ♦------
Maðurinn er
enn í lífshættu
MAÐURINN sem fluttur var
meðvitundarlaus á Landspítal-
ann eftir hrakningar í Esjunni |
síðastliðinn sunnudag var enn í
lífshættu í gær.
I fréttatilkynningu Landsspítal- |
ans um líðan mannsins segir: „Við
komu hingað var líkamshiti hans
lægst 21 gráða á Celcíus og hjart- |
sláttur var ekki fyrir hendi við svo
mikla kælingu. Hann var endurlífg-
aður og hitaður upp með hjálp
hjarta- og lungnavélar, og gekk sú
meðferð vel. Síðan hafa komið
þekktir fylgikvillar og vandamál
þeim samfara sem verið er að glíma
við. Hann er enn í öndunarvél og
enn í lífshættu. Vonast er til að
meðferðin beri árangur, en ennþá
er ekki Ijóst hvort hann komst nógu
snemma undir læknishendur.“
ÞRÍR af hveijum fjórum, sem spurðir voru í skoðanakönnun Gall-
up dagana 8.-14. desember sl., voru andvígir sölu Búnaðarbanka
íslands. Töluverður munur var á afstöðu fólks eftir aldri og var
andstaðan því meiri sem svarandinn var eldri. Þá var andstaðan
mun meiri í dreifbýli en þéttbýli. Þannig töldu 67% þeirra, sem
búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og tóku afstöðu, ekki rétt að
selja bankann, en 93% svarenda í dreifbýli var sama sinnis.
Skoðanakönnunin var gerð
meðal fólks á aldrinum 15-75 ára,
sem var valið af handahófi úr þjóð-
skrá á landinu öllu. Úrtakið var
1.000 einstaklingar og fengust
660 svör. Spurt var: „Ertu fylgj-
andi eða andvíg(ur) því að Búnað-
arbanki íslands verði seldur?“ Alls
voru 48,5% þeirra sem þátt tóku
í könnuninni andvígir sölu á bank-
anum, 17,6% fylgjandi og 34,1%
tóku ekki afstöðu. Ef aðeins eru
teknir þeir, sem tóku afstöðu, voru
nær þrír af hveijum fjórum and-
vígir sölu, eða 73,3%, en 26,7%
fylgjandi.
Yngstu svarendurnir, á aldrin-
um 15-24 ára, voru óákveðnastir,
en 47% í þeim aldurshópi höfðu
ekki myndað sér skoðun á hugsan-
Málshöfðunin gegn læknum Warhols;
Sátt um greiðslu
440 millj. króna
SAMKOMULAG hefur náðst í skaðabótamáli sem ættingjar
bandaríska listamannsins Andy Warhols höfðuðu gegn New
York Hospital, læknunum D.S. Cox og Birni Þorbjarnarsyni
vegna meintra mistaka þeirra og annars hjúkrunarfólks við
sjúkrahúsið þegar hann lést þar eftir skurðaðgerð árið 1987.
Sjúkrahúsið greiðir dánarbúinu 8 milljónir dala, eða um 440
milljónir króna, en dánarbúið hafði krafist 10 milljóna dala.
Sátt náðist í málinu og var því ekki kveðinn upp dómur.
Björn Þorbjamarson sagði í
samtali við Morgunblaðið að með
þessari greiðslu hefði sjúkrahús-
ið ekki játað á sig neina sök.
„Þessu máli er nú að fullu lokið,
og það er ekkert meira um það
að segja. Það var aldrei neitt til
í þessu,“ sagði hann.
Lögfræðingar ættingja Andy
Warhols héldu því fram að War-
hol hefði dáið í kjölfar þess að
honum hefði verið gefinn of mik-
ill vökvi vegna þess að læknar
hefðu ranglega ályktað að hann
hefði orðið fyrir vökvatapi. Yfir-
völd New York Hospital vísuðu
þessu á bug og sögðu listamann-
inn hafa dáið vegna óvæntra og
ófyrirsjáanlegra truflana á
hjartslætti.
Vitnisburður í málinu tók þijár
vikur og fór það aldrei fyrir kvið-
dóm. í frétt frá Reuters-frétta-
stofunni segir að íekið sé fram
í sáttargerðinni, sem skjalfest
var hjá Hæstarétti New York-
ríkis, að ekki yrði skýrt opinber-
lega frá fjárhæðinni sem ættingj-
ar fengju. Dánarbúið og tveir
eldri bræður Warhols, John og
Paul Warhol frá Pittsburgh í
Pennsylvaniu, munu fá milljón-
irnar í sinn hlut.
Aðalfundur Sjómannafélags Isfirðinga:
Heimild til verkfalls-
boðunar ekki borin upp
Á AÐALFUNDI Sjómannafélags ísfirðinga sem haldinn var fyrir
skömmu var ekki óskað eftir heimild til verkfallsboðunar þrátt fyrir
tilmæli Sjómannasambands íslands til aðildarfélaga sinna að óska
eftir heimildinni vegna meintrar skerðingar sjómannafrádráttar. Sig-
urður Ólafsson, formaður félagsins, segir að það hafi ekki þótt tíma-
bært þar sem félagið hafi ekki óskað eftir viðræðum við útvegsmenn
ennþá.
legri sölu bankans. Af þeim sem
afstöðu tóku í þeim aldurshópi
töldu 67% að ekki ætti að selja,
en 33% voru því fylgjandi. And-
staðan við sölu bankans jókst svo
eftir því sem svarendur voru eldri.
Þannig voru 71,3% fólks á aldrin-
um 35-44 ára andvígir sölu, 78,4%
fólks á aldrinum 45-59 ára og
88,5% svarenda á aldrinum 60-75
ára.
Svör karlmanna voru á þá leið,
að 21,9% þeirra voru fylgjandi
sölu, 55,3% andvígir og 22,8%
óákveðnir. Konur voru hins vegar
mun óákveðnari. Þannig svöruðu
44,9% þeirra ekki, 13,3% voru
fylgjandi sölu og tæp 42% andvíg-
ar henni.
Andstaða við sölu bankans var
minni í þéttbýli en í dreifbýli. Af
svarendum á höfuðborgarsvæðinu,
sem afstöðu tóku, voru 67% and-
víg sölunni. 1 öðru þéttbýli voru
andstæðingar sölu 77,5% svar-
senda, en í dreifbýli voru 93%
andvíg sölunni.
Sjá einnig á bls. 22
„Við spörkum ekki í Pétur ef
Páll er að hrekkja okkur. Það er
lágmarksatriði að fá neitun á við-
ræður áður en óskað er heimildar
til verkfallsboðunar. Verkfallsvopn-
ið er ekki til þess að leika sér með,“
sagði Sigurður í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann sagði að á aðalfundinum
hefði lögum félagsins verið breytt
og trúnaðarmannaráðið stækkað.
Það hefði lítilsháttar verið minnst á
skerðingu sjómannaafsláttarins, en
hún væri ekki mikil hjá þeim, þar
sem flestir þeirra manna væru með
230-250 lögskráða daga og afsiátt-
urinn tæki áfram til beitninga-
manna sem væru hlutaráðnir á
Vestfjörðum. Hann sagði að þeir
myndu ræða við útvegsmenn áður
en aðgerðir yrðu ákveðnar. Þeir
stefndu að því að semja heima í
héraði undir forystu Alþýðusam-
bands Vestfjarða, eins og venjan
hefði verið.
Verkfall mjólkurfræðinga:
Mjólkurvörur í verslunum
endast fram á þriðjudag
til að eiga mjólkurvörur sem dygðu
fram á þriðjudag, en eftir það væri
mjólkurlaust þar til verkfalli lyki að
kvöldi fímmtudagsins. Hann sagði
að vörur kæmu aftur í búðirnar um
hádegið á föstudag.
Pétur sagði að þetta væri miðað
við venjubundna neyslu og ef hamst-
ur yrði mikið gæti það breytt þessu.
Hann sagði að það ætti eftir að
taka ákvörðun um hvað gert yrði
gagnvart bændunum. Heimilt væri
að sækja mjólkina til þeirra, en það
yrði að geyma hana á tankbílunum,
þar sem ekki mætti dæla henni af
þeim. Sex mjólkurfræðingar starfa
hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
SAMKOMULAG tókst ekki á fundi mjólkurfræðinga og viðsemjenda
þeirra, sem lauk hjá ríkissáttasemjara síðdegis í gær, og því hófst
tímabundið verkfall nijólkurfræðinga á miðnætti í nótt. Verkfallið
stendur í sex sólarhringa, eða til miðnættis á fimmtudaginn, og að
sögn Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara, verður nýr sátta-
fundur ekki boðaður nema annar hvor deiluaðila óski þess. Gert er
ráð fyrir að mjólkurvörur endist fram á þriðjudag, og mjólkurvörur
verði síðan aftur komnar í búðir um hádegi á föstudag. Þetta er þó
miðað við venjubundna neyslu og háð því að ekki verði mikið um
hamstur.
Pétur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri framleiðslusviðs í Mjólkurstöð-
inni í Reykjavík, sagði að öll starf-
semi í stöðinni í gær hefði miðast
við það að verkfall hæfist á mið-
nætti og því var unnið fram á kvöld
við vinnslu og pökkun mjólkur.
Hann sagðist vonir standa til að nóg
yrði af mjólkurvörum um helgina
en þó væri tæpt með ijómann en
hann kæmi aftur á mánudag, þar
sem þeir myndu fá vörur um helgina
frá Mjólkurbúi Flóamanna. Miðað
við venjulega neyslu væri því vonast