Morgunblaðið - 28.12.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991
>
m
Póstgöng-
unni lýkur
PÓSTGÖNGU Útivistar lýkur á
sunnudag, er genginn verður 26.
og síðasti áfanginn af póstleið
Sigvalda Sæmundssonar land-
pósts, en gangan, sem er rað-
ganga, hófst 13. janúar síðastlið-
inn og hefur verið gengið hálfs-
mánaðarlega. Leið Sigvalda var
frá Bessastöðum, suður með sjó
og austur i sveitir og endaði að
Móeiðarhvoli í Hvolhreppi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Útivist hafa um 1.200 manns tekið
þátt í göngunni, þar af hefur einn
gengið hana alla. Á sunnudag verð-
ur lagt af stað frá Árbæjarsafni
klukkan 13. Um tvær leiðir verður
að velja, landveg um Klepp, Laug-
ames og Rauðarárland niður í
Grófina í Reykjavik og hins vegar
leið í Gufunes og þar verður farið
um borð í skipið Árnes og síðan
siglt út Kollafjörð, inn Engeyjar-
sund og lagzt að Grófarbryggju.
Báðir hópar eiga þess kost að fá
göngukortin stimpluð í póstútibúi
nr. 12 í Stórhöfða í Grafarvogi.
Hóparnir hittast í Grófinni og verð-
ur boðið að skoða póstminjasafn
Gests Hallgrímssonar í Geysissaln-
um að Vesturgötu 1.
-----♦--------
Samkoma
í Þorláks-
kirkju
ÁRLEG samkoma verður haldin
í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn
nú á laugardaginn 28. desember
og hefst hún klukkan 16.
Kirkjuhátíð þessi er nú haldið
í 10. sinn og hefur jafnan verið
fjölsótt.
Söngfélag Þorlákshafnar og
lúðrasveit staðarins flytja tónlist
undir stjórn Hákons Leifssonar og
Roberts Darling. Aðalræðumaður
er að þessu sinni Steingrímur
Hermannsson alþingismaður og
fyrrum forsætisráðherra. Jónína
Olafsdóttur leikkona les ljóð og
Viðar Gunnarsson óperusöngvari
syngur við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar, sem einnig leikur
einleik á hinn vandaða Bösendorf-
er-flygil; kirkjunnar.
Ábendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Meðferð flugelda og blysa
Skotelda má einungis selja á stöðum sem staðbundin leyfi lög-
reglustjóra segja til um að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þann-
ig er óheimilt að bera út og selja skotelda í heimahús og á vinnustaði.
í reglugerð um sölu og meðferð skotelda segir m.a. að bannað
sé að selja eða afhenda þá barni eða unglingi innan 16 ára ef slíks
er getið í leiðbeiningunum. Öil sala á skoteldum til barna yngri en
12 ára sé óheimil. Þá segir í sömu reglum að óheimilt sé að flytja
inn og selja svokallaða_ kínvetja, reyk- og lyktarsprengjur ýmis
konar og sprengikúlur. Óheimilt sé að breyta á nokkurn hátt skot-
eldi, þannig að hann hlóti aðra eiginleika en framleiðandi hans
ætlast til. Innflytjandi skotelda skuli sjá um að allar tegundir skot-
elda, sem hann flytur inn og hefur leyfi fyrir, séu með álímdum
eða áprentuðum leiðbeiningum á íslensku. Lögreglustjóri getur þó
heimilað að minnstu og einföldustu tegundir skotelda verði ekki
merktar enda verði dreift vönduðum og skýrum leiðbeining-
arbæklæingi til kaupenda. Með skoteldum er átt við flugelda, reyk-
og hvellsprengjur og ýmis konar skrautelda.
Lögreglan vekur athygli fólks á að fara varlega í meðferð flug-
elda og blysa um áramótin. Börnin eru stundum áköf og vilja gleyma
sér við spennandi aðstæður og vilja þá stundum ganga lengra en
æskilegt er. Fullorðnir þurfa að hafa vit fyrir bömunum og gæta
þess að þeim stafi ekki hætta af flugeldum og blysum. Allflest slys
er hægt að koma í veg fyrir með aðgæslu.
Lesið leiðbeiningarnar, sem fylgja flugeldum og blysum og
umfram allt: farið eftir leiðbeiningunum.
Lögreglan óskar öllum gleði, farsældar og friðar á nýju ári.
í þessu dæmi
ljóst að hvítur
drottninguna. til
máti á f5 með r
sjá hvaða reitur
skilyrðum að hvít
bæði d6 og d'5.
5. Höf. F. Amelung 1904.
4. Höf. Cortlever 1940
Hvítur Ieikur og heldur jafn-
tefli.
Það þarf að virkja leynda krafta
til að jafna út þann mikla liðsmun
sem er á borðinu:l. Rd8+!! —
Ke7 (Þetta er betri tilraun en 1.
— Kxd8 2. Hxb7, en eftir það er
svartur í leikþröng og getur ekki
varist hótuninni 3. Hd7+ — Kc8
og síðan fráskák með hróknum)
2. Hxb7+ - Kxd8 (Nú má hvítur
ekki leika 3. Hd7+ — Kc8, því
fráskákin með hróknum er gagns-
laus. Gott dæmi um það þegar
Hvítur mátar í öðrum leik.
Eftir rétta leikinn 1. Da5! er
komin upp afar skondin staða.
Hvítur hótár ekki máti, en það
er sama hvað svartur gerir, hver
einasti leikur hans leyfir mát, ___________________________________
ýmist á al, b4, d5, e5 með drottn- Hvítur leikur og vinnur.
Hvítur matar i öðrum leik.
Lausnarleikurinn erl. Bbl!,
sem hótar 2. Dc5 mát.
2. Höf. Samuel Lloyd,
Hvítur mátar I öðrum leik.
er nokkuð aug-
þarf að flytja
að geta, hótað
riddara. Þá er að
reitur fullnægir þeim
hvítur eigi mát gegn
d5. Niðurstaðán er
nokkuð óvænt, 1. Dh3! er lausnar-
leikurinn.
Lausnir á jólaskákþrautum
Skák
Margeir Pétursson
1. Höf. Sigurbjörn Sveinsson
ingu, eða með riddara á f5. Svart-
ur er því í dæmigerðri leikþröng.
3. Höf. R. Kofman og L. Loshin-
sky 1947
w
Peðsendatöflin eru oft
skemmtileg í sínum einfaldleika.
Hvernig hvítur brýtur einu peði
leið á drottningarvængnum með
því að fórna hinum er þekkt þema,
en hann má ekki gleyma að loka
svarta kóriginn úti. Lausnin er
því: Xf h4! — Kxg3 2. b5! —
Kxh4 3. c5!(En álls ekki 3. a5??
— bxað 4. c5 — b6)3. — g5 4.
a5! - g4 5. axb6! — g3 6. Kf3!
- Kh3 7. bxc7 - g2 8. c8=D+
og vinnur því svarti kóngurinn
stendur í skák.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUIMIMAR í REYKJAVÍK:
23.-26. desember
Enginn gisti fangageymslur á
jólanóttina. Reyndar voru jóladag-
arnir með þeim rólegri sem lögregl-
umenn rekur minni til. Mikil um-
ferð var þó við kirkjugarðana fyrri
hluta aðfangadags, en hún gekk í
flesta staði vel fyrir sig.
Þorláksmessan og fyrri hluti
aðfangadags voru hins vegar ann-
asöm. Alls var tilkynnt um 10
hnupltilvik þessa daga, 5 umferð-
arslys, 4 voru stöðvaðir í akstri
grunaðir um ölvun við akstur og
þrír aðrir slíkir lentu í umferðar-
óhöppum.
Einhveijir þóttust kenna „tund-
urdufl" á reki í sjónum skammt
undan Látraströnd á Seltjarnar-
nesi á Þorláksmessu. Ráðstafanir
voru þegar gerðar til þess að halda
fólki í hæfilegri fiarlægð ef svo
illa vildi til að „duflið“ ræki á land
og spryngi með fyrirsjáanlegum
afleiðingum. Fljótlega kom þó í ljós
að „duflið“ reyndist vera ókenni-
leg, uppflosnuð bauja.
Eldur kom upp í húsi við Fáfnis-
nes seinni partinn á Þorláksmessu.
Mikið tjón hlaust af. Auk þessa
var fimm sinnum tilkynnt um eld
um hátíðirnar. Eldur kom upp í
bíl við Laugavegsapótek skömmu
eftir miðnætti á Þorláksmessu,
kveikt var í jólakransi á útidyrum
húss við Hraunbæ um nóttina,
pottur hafði gleymst á eldavél í
húsi við Bárugötu seinni partinn á
aðfangadag, aðventukrans brann
þá í húsi við Bjargarstíg og eldur
kviknaði út frá eldunarofni húss
við Hringbraut um hádegisbil á
jóladag.
Gosloftþrýstitæki sprakk í loft
upp í höndum fólks í austurborg-
inni aðfaranótt jóladags. Fjölskyld-
an hafði verið að blanda sér gos-
drykk þegar ósköpin gerðust. Brot-
in úr tækinu dreifðust um íbúðina,
en engin meiðsli urðu á fólki.
Aðfaranótt annars í jólum voru
tveir menn handteknir skammt frá
sundlauginni á Seltjarnarnesi.
Komið var að þeim þar serri þeir
voru önnum kafnir við að reyna
að tengja framhjá kveikjulási bif-
reiðar, sem þeir höfðu komist inn í
í algerri óþökk eigenda. Mennirnir,
sem voru 19 ára gamlir, voru báð-
ir verulega undir áhrifum áfengis.
Á jóladagskvöld rak togarinn
Viðey stefnið á afturhluta varð-
skipsins Týs og danska eftirlits-
skipsins Hvidbjörnen. Verið var að
snúa skipinu á útleið með aðstoð
dráttarbáts þegar togarinn lét ekki
að stjórn með fyrrgreindum afleið-
ingum. Talið er að togarinn hafi
verið á tveggja til þriggja mílna
ferð þegar óhapþið varð. Talsverð-
ar skemmdir hlutust af á öllum
skipunum.
Desembermánuður er sá mán-
uður sem oftast er tilkynnt um
búðarhnupl — og því oftar sem nær
dregur jólum. Á Þorláksmessu og
á aðfangadagsmorgun voru, eins
og að framan greinir, tíu einstakl-
ingar staðnir að slíkum þjófnuðum.
Ellefu ára gömul stúlka var staðin
að því að reyna að hnupla hár-
skoli að upphæð kr. 442, 21 árs
gamall maður var staðinn að því
að reyna að hnupla bók að verð-
mæti kr. 790, 65 ára gamall mað-
ur reyndi að hnupla sér matvörum,
kertum, sælgæti og jólaskrauti að
verðmæti kr. 1.740, 26 ára gam-
all maður var staðinn að því að
ætla að ganga út úr verslun með
hangiket og bók að verðmæti kr.
6.513, 18 ára stúlka spreytti sig
við ilmvatnsglas að verðmæti kr.
4.990 og fimmtugur maður reyndi
að laumast út með súkkulaðistykki
og tvo kakópoka að upphæð kr.
229.
Sjaldan hafa jafnmargir slasast
í umferðarslysum í Reykjavík og
á þessu ári. Það er von lögreglunn-
ar að hver og einn líti sér nær og
einsetji sér að fara varlega, sýna
nærgætni og tillitsemi og geri sitt
besta tii þess að tryggja hámarks-
öryggi í umferðinni á nýju ári.
hótunin er sterkari en leikurinn.
Hvítur verður að geyma sitt eina
tromp, en hann er nálægt því að
vera í leikþröng. Hann á þó einn
nothæfan leik og það nægir:) 3.
Kgl! — Bd4+ 4. Kg2 og nú á
svartur ekkert betra en 4. — Bg7
sem hvítur svarar auðvitað með
5. Kgl og jafntefli með þráleik
verður staðreynd.
6. Höf. Vasili Platof og Mikhail
Platov 1909.
Hvítur leikur og vinnur
1. Bf6 - d4 2. Re2! (2. Rf3 virð-
ist vera eðlilegri leikur, en peð-
sendataflið eftir 2. — al=D 3.
Bxd4l— Dxd4 4. Rxd4 — Kxd4
er einfalt jafntefli) 2. — al=D
3. Rcl!!(Þetta er hinn eiginlegi
lausnarleikur. Nú hótar hvítur 4.
Bg5 mát og 3. — Dxcl er svarað
með 4. Bg5+) 3. — Da5 4. Bxd4+!
og hvítur vinnur, því 4. — Kxd4
er auðvitað svarað með hjónag-
afflinum 5. Rb3+.
Þraut þessi var rangfeðruð í
jólablaðinu en Guðmundur Arn-
laugsson þekkti króann. Leiðrétt-
ist það hér með.
Jólaskákmót grunnskóla í
Reykjavík:
I desember gengust Taflfélag
Reykjavíkur og íþrótta- og tóm-
stundaráð borgarinnar fyrir jóla-
skákmóti grunnskóla. Teflt yar í
fjögurra manna sveitum. Úrslit
urðu þessi:
Eldri flokkur, 8-10. bekkur:
1. Æfingaskóli KHÍ, A sv. 25 'h
v. af 28 mögulegum.
2. Hólabrekkuskóli, A sv. 21 v.
3. Æfingaskóli KHI, B sv. 15‘/2 v.
'4. Breiðholtsskóli 14‘/2 v.
5. Hlíðaskóli 12 v.
6. Seljaskóli 10 v.
7. Hólabrekkuskóli, B sv. l'h v.
8. Ölduselsskóli 6 v.
Yngri flokkur, 1-7. bekkur:
1. Æfingaskóli KHÍ, A sv. 21'A
v. af 24 mögulegum.
2. Hólabrekkuskóli, A sv. 16 v.
3. Hvassaleitisskóli 15*/2V.
4. Breiðholtsskóli, A sv. 14‘/2 v.
5. Selásskóli 14 v.
6. Hamraskóli 14 v.
7. Ártúnsskóli 14 v.
8. Melaskóli, A sv. 13*/2 v.
9. Æfingaskóli KHÍ, B sv. 13‘A v.
10. Austurbæjarskóli 12 v.
11. Ölduselsskóli 11 Vi v.
12. Fossvogsskóli, A sv. 11 v.
13. Seljaskóli, A sv. IIV2 v.
14. Skóli ísaks Jónssonar 11 v.
15. Seljaskóli, B sv. 11 v.
16. Breiðagerðisskóli, Asv.lO'Av.
17. Breiðholtsskóli, B sv. 9'/2v.
18. Melaskóli, B sv. 9'/2 v.
19. Hlíðaskóli 9 v.
20. Fossvogsskóli, B sv. 9 v.
21. Hólabrekkuskóli, B sv. 8 v.
22. Breiðagerðisskóli, B sv. 3'/2 v.
Jólahraðmótin:
Taflfélag Reykjavíkur: 29. og
30. desember. Taflið hefst báða
dagana kl. 20.00 í Faxafeni 12.
Skákfélag Akureyrar: 29. des.
kl. 14.00 í skákheimilinu.
Taflfélag Kópavogs: 29. des. kl.
14.00, í Hamraborg 5, 3. hæð.
Skákfélag Hafnarfjarðar:29.
des. kl. 20.00 í félagsheimilinu
Dverg.