Morgunblaðið - 28.12.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.12.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991 VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 28. DESEMBER YFIRLIT: Skammt suðvestur af írlandi er 1036 mb hæð, en 990 mb lægð er á vestanverðu Grænlandshafi, hreyfist lítið í bili. SPÁ Allhvöss suðvestanátt á landinu. Él um vestanvert landið, en þurrt og sums staðar bjart veður austanlands. Hiti nálægt frost- marki. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestanátt og éljagangur um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustanlands. Vægt frost víð- ast hvar. HORFUR Á MÁNUDAG: Hvöss sunnan- og suðaustanátt og hlýn- andi veður. Rigning um land allt, einkum þó sunnantil. Svarsímí Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. TAKN: <(^^)> Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað 4 Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * ■* * ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —[* Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 8 atskýjað Reykjavík 5 alskýjað Bergen 2 alskýjað Helsinki 42 snjókoma Kaupmannahöfn 2 skýjað Narssarssuaq 45 snjóél Nuuk 45 snjóél Ósló 5 léttskýjað Stokkhólmur 0 skýjað Þórshöfn 9 rigning Algarve Amsterdam Barcelona Berlfn Chlcago Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Lúxemborg Madríd Malaga Mallorca Montreal NewYork Orlando París Madeira Róm Vín Washington Winnipeg 14 heiðskírt 8 skýjað vantar 3 súld 3 alskýjað 4 heiðskírt 7 skýjað 8 skýjað 3 léttskýjað 8 mistur 9 þokumóða 4 skýjað 7 heiðskírt vantar 15 léttskýjað 44 léttskýjað 3 heiðskirt 17 þokumóða 7 skýjað 17 skýjað 13 léttskýjað 3 rigning 2 alskýjað 47 þokumóða Nýr skuttog- ari í flotann NÝR skuttogari bættist í flotann á jóladag, er Guðmundur Guð- jónsson BA 205 kom til ísafjarð- ar, en heimahöfn er Brjánslækur á Barðaströnd. Togarinn er um 300 lestir og var smíðaður fyrir Grænlendinga 1979. Hann hefur verið mikið endurbættur og m.a. var settur í hann frystibúnaður til rækjuvinnslu 1989. Eigandi er hlutafélagið Barðstrendingur og er hlutafé 40 milljónir, en heildarkostnaður við kaupin og nauðsynlegar endurbætur eru milli 60 og 70 milljónir. Eigendur eru víða að og vegna kaupanna hafa tvö skip Ingibjörg BA og Arnarborg HU verið úrelt, en eigendur þeirra, hlutafélögin Engey á Barðaströnd og Hólanes á Skagaströnd eru aðilar að nýja félaginu. Hólanes er stærsti hlut- hafinn með 20% hlutafjár, en skip- stjórarnir Guðjón A. Kristjánsson sem jafnframt er stjórnarformaður og Bernharð Överby á ísafirði og Jón Steingrímsson, framkvæmda- stjóri Flóka á Barðaströnd eru stærstu hluthafar af einstaklingum. Auk þeirra eiga í skipinu skipstjór- inn Oskar Eyþórsson frá Stykkis- hólmi og vélstjórinn Þorkell Arnar- son frá Barðaströnd, útgerð- Úlfar Ágúslsson Frystitogarinn Guðmundur Guðjónsson við bryggju á Isafirði. Skipið heitir eftir Guðmundi Guðjónssyni sem kenndur var við Þaralátursfjörð á Ströndum, en Guðmundur var einn af stofnend- um Flóka hf. á Barðaströnd. armennirnir Konráð Eggertsson og Tryggvi Guðmundsson og útgerð- arstjórinn Guðmundur Ingólfsson, allir frá ísafirði en hluthafar eru 18. Skipið verður gert út frá Skaga- strönd, en lánastofnun útgerðarinn- ar er Búnaðarbankinn í Reykjavík. Aflakvóti sá sem skipið hefur til ráðstöfunar á fyrsta ári er að mati Jóns Steingrímssonar 4-500 rækju- tonn auk veiða utan kvóta svo sem rækja af Dornbanka. Ellefu manna áhöfn verður á skipinu sem væntanlega mun hefja veiðar í lok janúar. Nokkrar breyt- ingar þarf að gera á því vegna skip- askoðunarlaga og verða þær gerðar í Skipasmíðastöð Marzellíusar á Ísafírði. Skipið er í góðu ásigkomulagi og létu skipverjarnir sem sigldu því heim frá Danmörku vel af sjóhæfni þess, en þeir lentu í fárviðri í Norð- ursjónum og vondu veðri við Fær- eyjar. Skipið er sérstaklega styrkt til siglinga í ís. í því er 900 hest- afla díselvél. Rækjuvinnslubúnaður er frá Karnetar og var settur í skip- ið 1989. í því er 240 rúmlesta fryst- ilest, sem tekur um 100 tonn af frystum afurðum. Úlfar Heimild: Ve6urslofa íslanda (Byggt á veðurspá Kl. 16.151 gær) VdaG kl. Undirbúnmgshópur um kaup á Ríkisskipum: Vilja koma til móts við kröfur ríkisins Undirbúningshópurinn er unnið hefur að tilboðsgerð vegna mögu- legra kaupa á Skipaútgerð ríkisins vonast til að tilboð þeirra verði rætt áfram og segist vona að þetta dæmi geti gengið upp og þeir tilbúnir að koma-á móts við kröfur ráðuneytisins. „Að vísu er óvissa um rekstur útgerðarinnar eftir áramótin; komið hafa upp hugmynd- ir um að leggja skipi, en okkar tilboð miðast við að taka yfir fyrirtæki í fullum rekstri," sagði Hjörtur Emilsson, aðstoðarforstjóri Ríkis- skipa og varaformaður undirbúningsnefndarinnar. Hjörtur sagðist ennfremur viss um að ekki væri hægt að halda uppi ferðum á alla þá staði sem nú er farið til án gífurlegrar hækkunar farmgjalda, ef engir styrkir kæmu til. Ráðuneytið hafnaði í bréfi fyrir jól tilboði hópsins um þjónustu- samning. „Þeir gerðu í sínu tilboði ráð fyrir þjónustusamningi þar sem ríkið greiddi ákveðnar upphæðir, en hins vegar felst í svarinu að ekki er gert ráð fyrir slíku á fjárlög- um og þess vegna er því hafnað. Það má segja. að á mannamáli þýði þetta það, að samgönguráðuneytið hafí hafnað sérstökum rekstrar- styrk til þessa fyrirtækis," ■ segir Þórhallur Jósepsson, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu. Þórhallur kvaðst þó eygja aðrar lausnir á málinu. Til dæmis væri hægt að ímynda sér styrkveitingar til bátseigenda til að þjóna þeim 4-5 höfnum sem ef til vill myndu annars missa reglubundna flutn- inga, annar möguleiki væri að bæta verkefnum á þær feijur sem þegar eru í rekstri og þriðji möguleikinn að veita flutningsstyrk á sjálfar hafnimar, sem þær gætu þá notað til að greiða niður flutninga. „Við teljum að það sé ekki nauð- synlegt að halda uppi heilu skipafé- lagi með þrjú skip í rekstri og mik- il umsvif við höfnina hér í Reykja- vík til að tryggja þá flutninga sem um er að ræða,“ segir Þórhallur. -----»-■♦-♦--- 259.581 ís- lendingnr SAMKVÆMT bráðabirgða- tölum Hagstofu íslands' frá 1. desember voru íslendingar 259.581 talsins og skiptust þannig eftir kynjum að karlar voru 130.166, en konur 129.415. Fjölgunin á árinu nemur 3.873 einstaklingum, eða 1,51% Þetta er mun meiri fjölgun en varð á árinu 1990, en þá fjolgaði íslendingum um 2.208, eða um 0,87%. Undanfama tvo áratugi hefur hlutfallsleg fjölgun sjaldan orðið meiri, en á því tímabili fjölg- aði íbúum mest árið 1988, um 1,75%, en 1,74% árið 1972 og 1,52% árið 1982. Mjög góð kirkju- sókn um jólin KIRKJUSÓKN var víðast hvar mjög góð á landinu um jólin. 1 mörgum kirkjum var þéttsetið á aðfangdagskvöld og á jóladag og í sumum prestaköllum þykir þetta með því besta sem verið hefur í nokkur ár. Sr. Valgeir Ástráðsson, sóknar- prestur í Seljaprestakalli í Reykja- vík, segir að heldur fleiri hafi kom- ið til kirkju um miðnætti á að- fangadagskvöld heldur en kl. 18, en kirkjusókn hafi þó verið mjög góð í báðum messunum og saman- lagt hafi komið á ljórtánda hundr- að manns til kirkjú á aðfangadags- kvöld. Sr. Valgeir segir kirkjusókn í prestakallinu almennt hafa verið mjög góða í desembermánuði og sé hún svipuð þessi jól og áður. Sr. Hjalti Guðmundsson, dóm- kirkjuprestur, segir að kirkjan hafi verið fullsetin á aðfangadags- kvöld. Einnig hafi messur verið vel sóttar báða jóladagana. Sr. Hjalti segir að almennt séu messur vel sóttar á aðfangadagskvöld og nú hafí svipaður fjöldi sótt kirkju og áður. Að sögn sr. Geirs Waage, sókn- arprests í Reykholti, hefur messu- sókn aldrei verið betri en þessi jól síðan hann tók við prestakallinu, en nú um jólin messaði sr. Geir í Reykholti, Síðumúla og Gilsbakka. „Mér finnst þetta hafa verið að sækja í þetta horf undanfarin ár,“ segir sr. Geir aðspurður um ástæð- ur aukinnar kirkjusóknar um jólin. „Ég er alveg viss um að eitt af því sem þar á í hlut er að fólk er að verða þreytt á þessari einhliða efnishyggjuáherslu, sem hefur tíðkast á jólum undanfarið, og ég held að fólk leiti eftir lotningu og friði,“ segir sr. Geir. Sóknarpresturinn í Odda, sr. Sjigurður Jónsson, segir að í mess- um bæði í Odda og á Stórólfs- hvoli á aðfangadagskvöld hafi ver- ið troðfullar kirkjur. Sigurður seg- ir það þó ekki hafa tíðkast að messa í Odda á aðfangadagskvöld áður, heldur ájóladag. Einnig seg- ir sr. Sigurður að veður hafi verið gott og veður hafí því ekki hamlað kirkjusókn. Rækjukvót- inn aukinn um 7 þús- undlestir Hafrannsóknastofnun hef- ur lagt til við sjávarútvegs- ráðuneytið að heildarkvótinn fyrir rækju á yfirstandandi veiðiári verði aukinn um 7 þúsund lestir, eða í 35 þúsund lestir. í lok júlí síðastliðins var heildaraflamark á rækju ákveðið 28 þúsund lestir til bráðabirgða fyrir tímabilið 1. september 1991 til 31. ág- úst 1992. Niðurstöður endurmats á rækjustofninum liggja nú fyrir, og samkvæmt þeim er ástand stofnsins mun betra en áður var talið. Sjávarútvegsráðu- neytið mun næstu daga gefa út reglugerð varðandi aukningu rækjukvótans, og í framhaldi af því senda útgerðarmönnum tilkynningu um breytt aflamark á rækju fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. I l I I i i I I l I \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.