Morgunblaðið - 28.12.1991, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DÉSEMBER 1991
Ljóðið hefur liti sínum glatað
Bókmenntir
Jón Stefánsson
Jónas Friðgeir: Ber er hver ...
Fjölvaútgáfa. 1991.
Fjölvi, forlagið sem kynnti Tinna
fyrir íslendingum, gefur nú út fjórar
Ijóðabækur fyrir jólin. Ber er hver...
eftir Jónas Friðgeir er ein af þeim.
Jónas hefur greinilega lesið Söknuð,
frægasta kvæði Jóhanns Jónssonar,
sem hefst á andvarpinu tregafulla:
“Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum
glatað“. I Bara maður leggur Jónas
útfrá þessari línu:
Lífið hefur
liti sínum glatað
Ljótt er að heyra
það er alveg satt.
Eg hef inn í
raunir miklar ratað
...rosalega
hef ég farið flatt!
Það getur vel verið að Jónas hafi
ratað inn í miklar raunir en hveijar
sem þær eru þá tekst þeim ekki að
lyfta þessu ljóði uppU hæðir skáld-
skaparins. Ef ég á að segja aiveg
eins og er þá á ég erfitt með að
hrósa bók Jónasar. Honum liggur
vissulega mikið á hjarta, talar um
óréttlæti heimsins og veltir fyrir sér
tilgangi lífsins, en það er ekki nóg
að hafa eitthvað að segja til að gefa
út ljóðabók og titla sig skáld; það
verður að vera skáldskaparleg inni-
stæða fyrir orðunum og hana hefur
Jónas Friðgeir því miður ekki:
Tortímandinn
Ég er hrottalegri
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Hópmynd af þeim er veittu styrkjum viðstöku fyrir sína hönd og
sinna félagasamtaka.
Uhlutað úr menningar-
sjóði Austur-Skaftfellinga
Höfn.
NÝLEGA var úthlutað styrkjum úr Menningarsjóði Austur-Skaftfell-
inga á Höfn. 17 einstaklingar og félagasamtök hlutu styrki að þessu
sinni, reyndar allir er sóttu til sjóðsins. Styrkir eru veittir til margvís-
legra og mismunandi verkefna, 6 aðilar fá styrki til söguritunar þar
af einn vegna skáldsagnagerðar. Veittir voru 3 styrkir til tónleika-
halds og námskeiða á þeim vettvangi og aðrir 2 til leiklistarstarfsemi.
Þá má nefna styrk til skógræktar og annan til viðgerðar á gamalli
byggingu. Byggðasafn sýslunnar fékk styrk til að koma gömlum Willys
jeppa í sem upprunalegast horf.
Menningarsjóðurinn var stofnaður
1946 sem sjóður til minningar um
látna félagsmenn Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga. Frá ■ upphafi
hefur hann stutt við bakið á ýmsum
menningarmálum í sýslunni og í
tímans rás hefur hann styrkt við æ
fjölbreytilegri þætti menningarlífs-
ins. Þannig styrkir hann nú allt frá
varðveislu eldri muna og sagna til
íþrótta og landvemdar.
Það kom fram hjá Gísla Sverri
Arnasyni formanni sjóðsstjómar að
stjómin hafí ákveðið að fullnýta ekki
heimild úthlutunar, einkum sökum
spádóma um kreppuástand framund-
an. Úthlutað var 1.530.000 krónum
og er höfuðstóll sjóðsins eftir það
10 milljónir króna.
> - JGG.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDÁ8TJÓRI
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Endaraðhús í syðstu röð
steinhús í Fellahverfi 158,3 fm. Kj. er undir búsinu. Bílsk. 21,6 fm,
sérbyggður. Glæsil. lóð. Húsið er allt eins og nýtt.
Sérhæð með frábæru útsýni
Efri hæð í þribhúsi rétt v/höfnina í Hafnarf. 4ra herb. 113 fm. 2 stórar
stofur, 2 góð svefnherb., rúmg. skáli. Nýtt eldhús. Nýtt bað. Nýtt sérþv-
hús v/eldhús. Geymsluris yfir íb. fylgir. Mjög gott verð.
í þríbhúsi í Vogunum
aðalhæð í reisul. steinhúsi. Grunnfl. 100 fm. 2 saml. stofur, 2 herb.,
eldhús og bað. Gott kjherb. Verkstæði 42 fm fylgir. Ræktuð lóð.
/Reisulegt steinhús - tilboð óskast
Húsið er tvær 3ja herb. íb. á 1. og 2. hæð. Ennfremur góður geymslukj.
og geymsluris. Verkstæði 45 fm fylgir. Góð kjör.
Skammt frá Álftamýrarskóla
3ja herb. suðuríb. á 3. hæð rúmir 80 fm auk geymslu og sameignar.
Bílskplata fylgir.
Við Fellsmúla - laus strax
4ra herb. suðuríb. á 3. hæð um 100 fm. Sólsvalir. Sérhiti. Forstherb.,
mikil og góð sameign. Tilboð óskast.
Glæsileg eign f Hafnarfirði
steinhús, tvær hæðir. Aðalhæð 180,3 fm m/5 svefnherb. Jarðhæð
m/2ja herb. íb. 100,1 fm. Bílsk. 59,1 fm fylgir. Margs konar eigna-
skipti mögul. ^
• • •
Opið í dag kl. 10.00-16.00.
Einbhús óskast í Hafnarfirði,
helst í Vesturbænum.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
en allir heirasins
herir samanlagðir
ég er ógurlegasti
ógnvaldur heimsins
eins og þú, satan
... sjálfur sagðir
ég hef tortímt
tugmilljónum sálna
eins og þú ...
fyrir mig lagðir.
Ég er alkóhól.
Ég get ómögulega litið á svona sem
skáldskap, kýs því að tala um texta.
Það er helst þegar Jónas er undir
sterkum áhrifum frá Steini Steinar
að votti fyrir ijóði hjá honum: „eins
og dökkhærður/dagur sem
deyr/djúpt/inn í sjálfan sig“. Einnig
má samþykkja lokaerindið í Veg-
ferð
Að morgni hinsta dags
vöknum við
og hverfum inn í sólskinið
Ef haft er í huga að Ber er hver
... er fimmta ljóðabók Jónasar þá
er ekki annað hægt en skammast
yfir bókinni og biðja um vandaðri
vinnubrögð. Jónas þarf harðari yfir-
Iesara en þeir hjá Fjölva geta boðið
upp á.
Stúdentar Framhaldsskólans á Húsavík ásamt skólameistara, Guð-
mundi Birki Þorkelssyni.
Fyrsti stúdentahópurinn
Ilúsavík.
FRAMHALDSSKÓLINN á Húsavík, sem nú hefur starfað í fjögur ár,
útskrifaði fyrsta stúdentahópinn, 7 stúdenta, föstudaginn 20. desemb-
er, nemendur, sem stundað hafa allt sitt nám við skólann. Áður hafði
skólinn útskrifað 6 stúdenta, þrjá sem höfðu lokið öllu námi við skól-
ann og þijá sem höfðu lokið hluta náms annars staðar.
Einnig voru útskrifaðir 11 nem-
endur, sem lokið höfðu námi á styttri
námsbrautum, 6 af iðnbrautum, 3
með verzlunarpróf, 1 af fískvinnslu-
braut og 1 af íþróttabraut, fyrri
hluta.
Skólameistari, Guðmundur Birkir
Þorkelsson, sagði í ávarpi sínu, að
skólinn hefði sérstaklegan áhuga á
að auka starfsmenntun, og vildi
leggja meiri áherzlu á góða menntun
í þeim greinum, sem hann biði upp
á, en að hafa þær sem flestar. Hann
sagði að 131 nemandi úr Þingeyjar-
sýslum stundaði nú nám við skóla á
Akureyri, sumir í námsgreinum, sem
ekki væri hægt að stunda hér, en
full margir í þeim greinum, sem hér
væri hægt að læra. Akureyri sæktist
ekki eftir þessum nemendafjölda, þar
sem skólar þar hefðu við þröngan
húsakost að búa. Hann kvaddi nem-
endur með þeirri ábendingu, að nú
blöstu við þeim nýjar námgsbrautir,
og miklir möguleikar, skólanámið
væri vinna, þrotlaus vinna, og síðan
tæki við skóli lífsins, sem ekki gerði
minni kröfur, en sá skóli, sem stúd-
entarnir væru nú að kveðja. Óskaði
hann þeim allra heilla í nútíð og
framtíð.
Fréttaritari
flslterefoft frnðn
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
„Þá mælti Gangleri: Hvað
hafa Einherjar að drykk, það er
þeim endist jafngnógliga sem
vistin, eða er þar vatn drukkið?
Þá segir Hár: Undarliga spyr
þú nú, að Alföður mun bjóða til
sín konungum eða jörlum eða
öðrum ríkismönnum og muni
gefa þeim vatn að drekka, og
það veit trúa mín, að margur
kemur til Valhallar, er dýrt
mundi þykkjast kaupa vatns-
drykkinn, ef eigi væri betra
fagnaðar þangað að vitja, sá er
áður þoiir sár og sviða til banans.
Annað kann eg þér þaðan
segja. Geit sú, er Heiðrún heitir,
stendur uppi á Valhöll og bítur
barr af limum trés er Léraður
heitir, en úr spenum hennar
rennur mjöður sá, er hún fyllir
skapker hvern dag; það er svo
mikið, að allir Einherjar verða
fuildrukknir af.
Þá mælti Gangleri: Það er
þeim geysihaglig geit. Forkunn-
argóður viður mun það vera er
hún bítur af.“
(Snoiri Sturluson:
Gylfaginning.)
★
Tíkur tvær um eitt bein
og píkur tvær um einn svein
verða sjaldan samlyndar í þeirri grein.
(Okunnur höfundur.)
Eldur er í norðri,
ey hefur reista
móðir yfir mar,
beitað bláfjölium,
blómgað grasdölum,
faldað hvítri fönn.
(Jónas Haligrímsson)
★
„Þá [1439] urðu höfðingja-
skipti yfir Norðurlöndum. Kom
til ríkþs eftir Eirík kóng Christ-
ophor af Bayern, hann var skyld-
ur Eiríki kóngi í móður kyn,
systursonur hans; en faðir
Christophors kóngs var Jóhann
son Rúperts keisara, Rúperts-
sonar hins fastheldna, Adólfs-
sonar hins einfalda, Roðólfsson-
ar hins stama er bróðir var Loð-
víks keisara af Bayern. Voru
þeir langfeðgar kynjaðir frá
Arnólfi illa hertoga er mikiil
höfðingi var í tíundu öld. Gjörð-
ist þá hinn mesti ágreiningur
hér í landi, hvört menn skyldu
halda Christophor fyrir réttan
Nóregs kóng, og má það ráða
af bréfum þess konungs sem
eftir hann var, en ei er það hér
í frásagnir fært.“
(Jón Espólín: íslands
árbækur í sögu-formi.)
★
Dróttinn varstú í dýrð og mætti
. dýrr og sterkr og hvetjum fyrri,
ærið ríkr og öllum meiri
í skínöndum kröftum þínum.
Gerðir þú með einu orði
allt í senn á málshátt þenna:
„Verði ljós og vötn á jarðir!"
Víðemi þau standa siðan. '
(Sigurður blindur: Rósa.)
★
[Við hund sem illa kunni ís-
lenskt mál]:
Betja og skamma þyrfti þig,
þrællinn grimmi, svei þér!
flættu að gjamma og glepsa í mig,
go to hell and stay there!
(K.N. = Káinn = Kristján
Níels Júlíus Jónsson.)
★
„Þeir örgu djöfulsins dýrkend-
ur kunna ekki sinn skömmum
vafna flekk að hylja né dylja
með nokkru fegurðarskyni, því
það er gjarnan annmarki og
vani þessara holdguðu djöfla, að
þeir geta ekki vel yfir skömm
sinni þagað, því geri nokkur
þeim til miska, láta þeir gjarnan
af sér heyra nokkur himpings-
yrði og kringsól skuggalegra
hótunarorða, að hann skuli ekki
hafa gert það forgefins, lengi
megi lítið jafnast, og ekki hafi
þeir þá mikið lært, séu þeir ei
megnugir að umbuna lítinn hé-
góma og önnur þess háttar. O,
þá óguðlegu dára, upp bólgnu
bólgelti og svívirðilegu andskot-
ans þræla. Þeir geta ekki þagað
yfir sinni eigin skömm, og það
blygðunarlausa svívirðunnar
nærfat, hveiju þeir sig vefja,
geta þeir ekki hulið og þann
621.þáttur
skammaflekkinn, sem þrykktur
er í þeirra ennum, fá þeir ekki
hulið.“
(Sr. Sigurður Torfason:
Tractatus de magia.)
★
„Fyrirbýð ég öllum þeim, sem
ég byggi stólsins eða aðrar jarð-
ir, að ljá hús til þeirra óhófssömu
vökunótta, sem í þessum dal
tíðkast, bæði af því unga, upp-
vaxandi yngisfólki og svo sjálf-
um þeim eldri, yfír- og undirsett-
um, hveijar gleðinætur mér sýn-
ast með sínu óhófi til amorsláta
og saurlifnaðar meira en til
gagns eður gamans hóflegs
gerðar vera af vel mörgum (sem
ég bevísa mun, ef til vitna rek-
ur), þar bæði eru brotnar hurð-
ir, dróttir og dyrastafir með öðru
fleira. En séu þeir nokkrir af
stólsins landsetum eða áður-
nefndum, þá skal þeirra útbygg-
ingarsök vera með því fleira,
sem ég get upp rakið um þeirra
ólöglega höndlan".
Urðum í Svarfaðardal, 1664,
Jón Illugason,
ráðsmaður Hólastóls.
Einn:] Máninn hátt á himni skín
hrímfólur og grár
Líf og tími líður
og liðið er nú ár.
Allir:] Bregðum blysum á loft,
bleika lýsum grund.
Glottir tungl, en hrín við hrönn
og hratt flýr sturrd.
Komi hver, sem koma vill!
komdu, nýja ár!
Dönsum dátt á svelli,
dunar ísinn blár.
Bregðum blysum á loft, o.s.frv.
Fær þú unað, yndi’ og heill
öllum vættum lands.
Stutt er stund að líða,
stígum þétt vom dans.
Bregðum blysum á loft, p.s.frv.
(Jón Ólafsson)
★
Umsjónarmaður óskar ykkur
gleðilegs árs og þakkar liðið.