Morgunblaðið - 28.12.1991, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991
KLETTUR í HAFI
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
Almenna bókafélagið stendur
að útgáfu listaverkabókar er hefur
hlotið nafnið „Klettur í hafi“, sem
er samvinnuverkefni þeirra Einars
Más rithöfundar og Þorláks Krist-
inssonar myndlistarmanns.
Hugmyndin mun vera tveggja
ára gömul, og byggist á mynd og
ljóði, er taka til meðferðar keimlík
viðfangsefni, sem er að yrkja og
mála með land og þjóð í forgrunni.
Þeir félagar námu við fram-
haldsdeild gagnfræðaskólans við
Lindargötu á líku tímaskeiði og
munu vera félagar og lagsbræður
síðan, en ekki veit ég hvernig
hugmyndin að bókinni varð til og
ekkert er hermt frá því í bókinni.
Inngangur er enginn og ei heldur
ritaður texti en á bókarkápu
stendur m.a. að báðir höfundarnir
horfi til hins svipmikla og stór-
brotna — fjöll, höf, vindar og
vættir hrífi þá, eins og mannlífið
í landinu.
Kletturinn í hafínu er að sjálf-
sögðu ísland og bókinni er þannig
ætlað að vera óður til landsins,
fegurðar þess og hrikaleika,
óblíðra náttúruafía, lífsbjargarvið-
leitni mannfólksins, dulinna afla
og hvunndagsins.
Það er rétt sem skrifað stendur
í stuttri kynningu á bakhlið kápu,
að bókin sé nýstárleg, því að slík
útgáfa er einsdæmi á Islandi að
ég best veit og sjaldgæf í útland-
inu.
En það er hins vegar ekki sjald-
gæft að myndlistarmenn myndlýsi
bækur með ljóðum góðskálda né
að ljóðskáld fái innblástur af verk-
um myndlistarmanna og dæmin
eru mörg um þess háttar sam-
vinnu. Að vísu ekki hér á landi
en þeim mun fleiri í útlandinu.
Af bókinni að dæma var lítið
skipulag á samvinnu þeirra félaga
nema að mynd- og yrkisefni eru
af svipuðum toga og þannig
spanna myndir Tolla yfir sjö Ara
tímabil, en hins vegar veit ég
minna um ljóðatextann en renni í
grun um að hann sé af mun yngri
toga. Báðir ganga þeir öllu frekar
út frá hinu svipmikla og stór-
skorna en hins fíngerða, milda og
ástúðlega.
En um annað eðli samvinnunnar
eru engar heimildir í bókinni og
verður það að teljast nokkur galli,
svona eins og þegar menn koma
inn á myndlistarsýningu og fá litl-
ar eða engar upplýsingar upp í
hendurnar. Textinn sem sækir
bersýnilega um sumt andagift til
myndanna bætir hér sitthvað upp,
þótt ég kjósi nú frekar að ljóðræna
myndiistaverka, litir form og lína,
standi fyrir sínu. En form bókar-
innar virkar þó fremur sem einhæf
kynning á verkum myndlistar-
mannsins, sem yfirgnæfa textana
í hráum og umbúðarlausum tjá-
krafti sínum.
Hér er á ferðinni sú úthverfa
innsæisstefna og nýbylgja, sem
átti svo miklu fylgi að fagna í
Þýskalandi á síðasta áratug og
Tolli heimfærði á íslenzkt svið,
eftir frekar stuttan stanz í Berlín.
Það er óyfirvegaður og óbeislaður
frásagnarkrafturinn, sem ræður
ferðinni og útkomunni. Vinnuferl-
ið virkar þróttmikið og hressilegt
én ekki djúprist.
Fram kemur einnig að margar
myndanna virka mun heillegri og
betur upp byggðar við þá smækk-
un sem hefur orðið á þeim í bók-
inni og má það vera listamannin-
um mikill lærdómur, en skortir
um leið hinn mikla kraft er fylgir
frumstærðinni.
Bókin sjálf er mjög vel úr garði
gerð, filmuvinnu, litgreiningu,
prentun og bókband hefur prent-
smiðjan Oddi annast og er að
vanda vel að verki staðið. Þá trufl-
ar letrið myndverkin næsta lítið,
en hefði mátt vera meðhöndlað
og komið fyrir á síðunum á listi-
legri hátt. Það er einhver kaldur
staðlaður tímaritasvipur yfir upp-
setningu lesmálsins, þannig að svo
er sem maður sé að fletta upp í
myndlýstu riti, og fer að mínu
mati full lítið fyrir ljóðunum í
sprengikrafti myndflæðisins.
Tel ég t.d. að rithönd skáldsins
hefði gefið ljóðunum meiri svip og
jafnframt skapað meira líf, tengsl
og samræmi milli myndverka og
ljóða. Um leið einsog lyft þeim upp
á hærri listræna bylgjulengd.
Meö kaupum á hlutabréfum í íslenska hlutabréfasjóðnum hf.
eignast þú hlut í mörgum arðbærum og vel reknum
íslenskum fyrirtækjum. Þannig dreifir þú áhættu
og átt von um góða ávöxtun.
Dæmi:
Þú kaupir hlutabréf í íslenska hlutabréfasjóðnum fyrir áramót
fyrir kr. 100.000,-. Skattafrádráttur vegna kaupanna nemur
u.þ.b. kr. 40.000,- en þá upphæð færð þú endurgreidda frá skattinum
í ágúst á næsta ári. Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir tvöfalt hærri
upphæð fá að sama skapi tvöfalt hærri upphæð
endurgreidda frá skattinum.
Kynntu þér kosti þess að fjgrfesta í hlutabréfum félagsins
hjá ráðgjöfum Landsbréfa.
Upplýsingar vegna nýs hlutafjárútboðs liggja frammi
hjá Landsbréfum hf. og í útibúum Landsbanka íslands um allt land.
Sölu- og ráðgjafardeild Landsbréfa hf. verður opin laugardaginn
28. desember frá kl. 9:15 til 16:00 og þriðjudaginn 31. desember
frá kl. 9:15 til 14:00.
LANPSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 fíeykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598.
Löggilt verðbréfafyrírtœki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
I
Hann bætir í safnið
eftirÁsgeir
Jakobsson
Sveinn Sæmundsson lætur ekki
deigan síga í bókagerð sinni um
þá baráttu, sem íslenzk sjómanna-
stétt hefur háð og heyr á þessu
hafsvæði, sem umlykur hólmann,
og þykir hið versta veðravíti og
sjólagið eftir því.
Sveinn hefur unnið -mikið verk
og þarft í sjómannasögunni og
bækur hans merkar heimiidir um
sjómannslífið á fyrri hluta þessarar
aldar, ekki sízt sú bókin, þar sem
segir af þeirri baráttu, sem háð var
á Halamiðum dagana 6.-7. febrúar
1925.
Ég hafði ætlað en varð of síðbú-
inn að leggja til á jólavertíðinni
nokkur orð til að vekja athygli á
sjómannasögu, sem Sveinn sendir
nú frá sér, með því að benda sjó-
mönnum á, að það gæti margur
haft gaman af að riija upp í minn-
inu siglingar báta á styijaldarárum,
með Sveini og sögumanni hans,
merkum skipstjóra, Einari Bjarna-
syni, sem sigldi báti sínum, Ernu,
á Englandsmarkað öll stríðsárin,
hóf þær siglingar haustið 1939 og
hætti ekki fyrr en 1947.
Ekki eru mér tiltækar upplýs-
ingar, þegar ég rita þessar línur,
hver hlutur bátanna (og línuveiðar-
anna) var í heildarútflutningi tog-
ara, báta og fisktökuskipa á ísfiski
þessi ár, en hlutur bátanna var
mikill. Þeir voru svo margir, 60-200
tonna, í þessum fiutningum frá hin-
um ýmsu sjávarplássum.
Bók Sveins og sögumanns hans
er heilleg samantekt í stuttu máli
en skilmerkilegu á því, sem við var
30 ára af-
mæli SÍNE
JÓLARÁÐSTEFNA SÍNE verður
haldin 30. desember klukkan 15
á Lækjarbrekku (Kornhlöðunni).
Að loknum hefðbundnum ráð-
stefnustöfrum, eða um klukkan
16,30 verður haldið upp á 30 ára
afmæli SÍNE.
Þema afmælisins verður „Gildi
menntunar á erlendri grund“. í til-
efni þess flytja Emil Bóasson iand-
fræðingur, Páll Skúlason prófessor
og Magnús S. Magnússon fyrir-
lestra. Asa Briem píanóleikari leik-
ur lög, og Guðný Árnadóttir mezzo-
sópran syngur við undirleik Guð-
rúnar Guðmundsdóttur.
Einar Bjarnason
að stríða fyrir þá sjómenn, sem
sigldu á England á stríðsárunum.
Þá voru engar veðurfregnir sendar
út frá Veðurstofunni, hvorki í út-
varpi né sendistöðvum, lo'ftskipta-
tæki voru innsigluð, senditækin
inátti aðeins ijúfa í neyð, og notkun
talstöðva var takmörkuð. Slökkt var
á mörgum vitum, skipin sigldu ljós-
laus og var gert að hlíta siglingar-
ákvörðunum Breta yfir hafið, sem
oft þóttu kyndugar, enda tíðum
brotnar. Þá olli og hræðsla Breta
við njósnir margri undarlegri uppá-
komunni.
Einar Bjarnason lætur ekki mikið
yfir sér í sögunni, enda þarf hann
þess ekki. Þeir vita það, sem þekkja
til Englandssiglinga á stríðsárun-
um, að það hefur verið mikill og
góður skipstjóri, sem skilaði stöðug-
um og margra ára siglingum jafn
áfallalaust og Einar á Ernu, 77
tonna báti, vanbúnum siglingatækj-
um og það var síldarhleðsla á þess-
um bátum.
Það þurfti mikla sjómannskunn-
áttu og stöðuga árvekni til að sigla
þessum litlu fleytum áfallalaust yfir
hafið. Norðaustur Atlantshaf er
ekkert skemmtisiglinga svæði, og
það var ekki eins og mennirnir
væru að skreppa eina og eina ferð,
þeir sigldu „rútu“ eins og hafskip.
Þá var og mikið vandaverk skip-
stjórnarmönnum að taka höfn á
Énglandi, bæir almyrkvaðir og
slökkt á mörgum vitum, umferð
mikil en skip ljóslaus. Þeim var
betra að sofa ekki á verðinum, skip-
stjórum, hvorki við að veija skip
sitt sjóum í hafi eða forða árekstri
við Englandsstrendur.
Bók þeirra Sveins Sæmundsson-
ar og Éinars Bjarnasonar er góð
heimild um skipstjóra, sem kann
sitt verk og var hveijum vanda
vaxinn. Og bókin sómir sér vel í
safni Sveins.
Höfundur er rithöfundur.