Morgunblaðið - 28.12.1991, Page 31

Morgunblaðið - 28.12.1991, Page 31
teffitíÆpœBæBB® «s ífMft'wSWim'rur. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR' 28: DESEMBER 1991 • s* ------31 Morgunblaðið/Þorkell Danska varðskipið Hvítabjörninn við festar í Reykjavíkurhöfn. Eftir 30 ára dygga þjónustu i grænlenska varðflotanum er hann nú á leið til Danmerkur þar sem örlögin bíða í brotajárni. Síðasta heimsókn Hvítabjarnaríns DANSKA varðskipið Hvítabjörninn kom til hafnar í Reykavík skömmu fyrir jól í síðustu heimsókn sinni til íslands. Héðan siglir skipið til Danmerkur, þar sem það verður höggvið í brotajárn. I þrjátíu ár hefur Hvítabjöminn siglt um Norður-Atlantshafið, og er það hið síð- asta af fjómm skipum sem löngum gegndu þörfu starfi á þessum slóð- um. Þeirra í stað koma nú fjögur ný skip. Hvítabjöminn var smíðaður í Árós- um árið 1961 og áhöfnin er 72 menn, þar af tólf yfirmenn. Skip- herrann, Axel Fiedler, og yfirstýri- maðurinn, Frank Nielsen, tóku á móti blaðamanni Morgunblaðsins í jólaskreyttum offíseramessanum. „Þetta eru fyrirtaks sjóskip, smíðuð eftir gamla laginu. Þau liggja djúpt í vatninu og klára sig í öllum veðrurn," segir skipherrann um systurskipin fjögur. „Ástæðan til þess að þau fóru í brotajárn, og Hvítabjörninn er nú i sinni síðustu ferð er fyrst og fremst sú, að aðbún- aður skipveija er ekki samkvæmt nútímakröfum en það stendur til bóta með nýju skipunum." Sá Hvítabjörn sem nú er að kveðja er þó ekki sá fyrst röðinni, því árið 1640 var sá fyrsti byggð- ur, og var það herskip með 40 fall- byssum. Sá næsti endaði lífdaga sína fyrir utan Roros í Danmörku, þegar áhöfnin sökkti honum 29. ágúst 1943 til að hann kæmist ekki í hendur Þjóðveija. Hvítabjörninn er systurskip varð- skipsins Vædderen, sem frægt var fyrir að flytja handritin umdeildu heim til íslands 1971. Vædderen mætti síðan sömu örlögum og nú bíða Hvítabjarnarins. Hin skipin í flokki hinna íjögurra systurskipa voru Ingolf og Fylla, og ættu nöfn- in að hljóma kunnuglega í eyrum margra sjó- og björgunarmanna. Frá árinu 1984 hefur verið í gildi samstarfssamningur milli Land- helgisgæslunnar á íslandi og græn- lenska varðflotans. Samningurinn, felur í sér að björgunaraðgerðir eru samræmdar, og reglulegar æfingar hafa verið haldnar milli skipa og þyrlna. Einnig er Hvítabjörninn í sex tíma viðbragðsstöðu meðan hann liggur hér við festar. En hvernig ætli sé að halda jól um borð í skipi? Fiedler skipherra verður fyrir svörum: „Við tókum með okkur fimm jólatré frá Dan- mörku, og eitt þeirra verður sett upp á mastur. Eg veit ekki hvort það er líka siður á íslandi, en mér finnst mjög gaman að sjá allar ljósaperurnar á skipunum hér í höfninni. Gallinn er bara sá að þær springa gjarnan hjá okkur í frost- inu.“ „Svo fáum við auðvitað danskan jólamat, gijónagraut með möndlu, svínasteik og andasteik. En ekki veit ég hvort við dönsum kringum jólatréð," segir skipstjórinn og bros- ir. Þó skipveijar hefðu verið 72 dag- inn sem blaðamaður heimsótti Hvítabjörninn, getur allt eins verið að þeim ijölgi áður en skipið lætur úr höfn. Skipstjórinn hefur nefni- lega tvo kanarífulga í búri á skrif- stofu sinni, og ekki fór sjóveikin veri- með þá en svo að nú liggur kvenfuglinn á fjórum eggjum, en karlinn stendur vörð. Skipstjórinn kallar þetta „ástarsöguna um þorð“, og við og við má heyra ákaft tíst alla leið fram á gang, og skipveijar geta látið hugann reika til suðlæg- ari slóða. yfirstýrimaður I brúnni á Hvítabirninum. Karl-kanarífuglinn ver hreiðnð fyrir óboðnum gestum, enda liggur frauka hans á fjórum eggjum. Garðabær: Stjömuheimilið tekið í notkun Byggingarnefnd Stjörnuheimilisins á fyrsta fundinum í nýja heim- ilinu, frá vinstri: Sævar Jónsson, Kristófer Valdimarsson, Jón Guðmundsson, formaður, Tómas Kaaber og Jón Ásgeir Eyjólfsson. FYRIR skömmu tók íþróttafé- lagið Stjarnan í Garðabæ í notkun nýtt félagsheimili sem hlotið hefur nafnið Stjörnu- heimilið. Var heimilinu valinn staður við hin glæsilegu íþróttamannvirki Garðabæjar við Ásgarð. Með tilkomu heimilisins verður gjörbreyt- ing á starfsemi Stjörnunnar, sem fram til þessa hefur verið á hrakhólum með félagsstarf sitt. Það kom fram í máli Jóns Guðmundssonar, formanns byggingarnefndar, að ákvörðun um byggingu félagsheimiljs hefði verið tekin árið 1988. Byggingarnefnd var skipuð og ákvað hún að byggt yrði félags- heimili á einni hæð, 368 fermetr- ar að grunnfleti. Húsið teiknuðu og hönnuðu Pálmar Ólason og Úlfar Másson. Hinn 4. nóvember 1989 tók þáverandi formaður Stjömunnar, Karl Harry Sigurðsson, fyrstu skóflustung- una. Á haustdögum 1990 var húsið risið af grunni og á þessu ári hefur verið unnið að innrétt- ingum af fullum krafti. Öll félagsaðstaða er nú fullbúin en eftir er að klára samkomusal. Stefnt er að því að fullgera félagsheimilið fyrir mitt næsta ár og verður húsið þá vígt form- lega. Kostnaður við byggingu húss- ins er í dag 14,5 milljónir króna og keyptir hafa verið innan- stokksmunir fyrir 1,5 milljónir. Fullbúið mun húsið kosta um 20 milljónir króna. Bæjarsjóður Garðabæjar hefur lagt 8 milljón- ir til byggingarinnar, úr Lottó- sjóði hafa komið 4,5 milljónir, gjafir og framlög frá Stjörnu- mönnum nema 2,5 milljónum og margir hafa gefið vinnu og efni. Anna Möller formaður Stjörn- unnar tók við lyklum að félags- heimilinu úr hendi Jóns Guð- mundssonar. Um 300 gestir voru viðstaddir opnunarhátíðina. Fjölmargir voru viðstaddir opnunarhátíðina. Fremst stendur Anna Möller, formaður Sljörnunnar. Útlitsteikning af Stjörnu- heimilinu. Áramótsveifla í Perlunni FYRSTU jasstónleikar í Perlunni verða sunnudaginn 20. desember og hefjast klukkan 22. Á fyrri hluta dagskrár tónleikanna verða spiluð ýmis þekkt jasslög, en síðan verða þekkt jóla- og áramótalög færð í sveiflubúning. Þeir, sem leika eru: Björn Thor- oddsen gítar, Kristinn Svavarsson saxofónn, Reynir Sigurðsson víbra- fónn, Gunnar Hrafnsson bassi og Jóhann Hjörleifsson trommur. -----» ♦ -♦-- A Jólagleði Asa- trúarfélagsins ÁSATRÚARFÉLAGIÐ gengst fyrir áramótagleði að Hótel Borg í dag, laugardag 28. desember. Skemmt- unin hefst klukkan 23. í frétt frá félaginu segir að margt verði til skemmtunar, en tilgangur með gleð- inni er að endurvekja anda hinnar fornu jólagleði, eins og það er orðað í tiikynningunni. -----» ♦ ♦--- Flugeldasýning KR ÁRLEG flugeldasýnign KR-flugelda verður sunnudaginn 29. desember á KR-svæðinu við Frostaskjó! og hefst klukkan 20,30. VINNINGASKRÁ UINNINGAR G FLOKKS '91 UTDRATTUR 27. 12. '91 KR. 2.731.313,- 211357 KR. 163.879. - 107635 120615 148233 163510 186441 116449 143043 161859 181423 193280 KR. 10. 925. - 101408 144259 162867 174609 190918 205088 106988 144325 162915 175071 190952 205273 107140 144340 163405 176002 191011 206125 107621 146619 163594 176039 192868 206837 110455 153434 164417 176254 194719 206957 110804 156009 164601 176640 199484 207598 111618 156021 164838 178270 199810 209288 114900 156204 164876 179821 200665 209471 116004 157227 165463 180625 200693 217061 116418 157846 165483 182413 201411 219411 119832 159120 166817 183211 201485 220809 120701 159247 167474 183444 202242 220902 129664 159449 168470 185175 202278 221807 134882 160481 169634 188830 202357 222408 140405 160521 170892 189227 203659 224471 142811 160709 172059 189367 204474 143353 162213 172309 190029 205006

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.