Morgunblaðið - 01.03.1992, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARZ 1992
EFNI
Umfjöllun um
bamavemd tii
siðanefndar
BARNAVERNDARRÁÐ hefur
lagt fram kæru til siðanefndar
Blaðamannafélags Islands á
hendur tilteknum frétta- og dag-
skrárgerðarmönnum á Bylgj-
unni, DV og Stöð 2 vegna umfjöll-
unar þeirra um barnaverndar-
mál að undanförnu.
Barnaverndarráð kærir frétta-
flutning á Stöð 2, DV og Bylgjunni
af svokölluðu Sandgerðismáli og
umijöllun um barnaverndarmál í
dagskrárþáttum á Bylgjunni.
I kærunni segir meðal annars að
umfjöllun um Sandgerðismálið og
önnur barnavemdarmál hafi í
ákveðnum tilvikum farið út fyrir
þann ramma sem blaðamönnum er
settur í 3. grein siðareglna og að
umfjöllunin um Barnaverndarráð og
barnaverndarmálefni verið 'meið-
andi. Þriðja grein siðareglna blaða-
manna er svohljóðandi: Blaðamaður
vandar upplýsingaöflun sína, úr-
vinnslu og framsetningu svo sem
kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi
í vandasömum málum. Hann forðast
allt, sem valdið getur saklausu fólki,
eða fólki sem á um sárt að binda,
óþarfa sársauka eða vanvirðu.
Heilbrigðisráðherra um meðferðarheimili geðsjúkra afbrotamanna:
Morgunblaðið/Þorkell
Regnboginn klifinn
Félagar í Hjálparsveit skáta sigu niður af þaki Regnbogans á Hverfisgötu vegfarendum til nokkurrar
undranar. Þetta uppátæki skátanna á fimmtudag var skipulagt í samráði við eigendur kvikmyndahússins
enda ætlað til þess að vekja athyli á kvikmyndinni K2 sem þar er verið að sýna og fjallar um afrek nokk-
urra fjallaklifursmanna.
Það eru erfiðir tímar...
►Á undanförnum misserum hefur
atvinnuleysi færst í vöxt hér á
landi og menn velta því nú fyrir
sér hvort slíkt ástand verði viðvar-
andi í íslensku atvinnulífi./ 10
Engar gervilausnir
►Davíð Oddsson forsætisráðherra
í ítarlegu viðtali um niðurskurða-
raðgerðir ríkisstjórnarinnar, at-
vinnumál og sjávarútvegsmál./16
Kísiliðjan við Mývatn
►Bjargvættur eða Bölvaldur? /20
Skoðun
►ingunn St. Svavarsdóttir skrifar
um Ríkisútvarpið og fólkið" og
Gyða Hjartardóttir og Þórdís Þor-
móðsdóttir rita grein um málefni
fatlaðra sem ber heitið Afturhvarf
til fortíðar./22
íþróttir á sunnudegi
►Lyfjanotkun og getraunir í
brennidepli./ 42
Bheimili/
FASTEIGNIR
Þetta er orðinn farsi
„ÞETTA er orðinn farsi og ég
gef mér ekki langan tíma til að
útkljá þetta mál. Ég tel það í
klukkustundum," sagði Sighvat-
ur Björgvinsson heilbrigðisráð-
í máli Friðriks kemur fram að
allar myndirnar sem keppa um að
verða besta erlenda myndin á Ósk-
arsverðlaunahátíðinni standi í
öflugri kynningarstarfsemi vestra
og því hafi verið nauðsynlegt fyrir
aðstandendur Barna náttúrunnar
að gera slíkt hið sama. Sex milljóna
króna styrkurinn sem Börn náttúr-
unnar fékk verður notaður til að
kaupa þjónustu auglýsingastofu í
herra um það er sveitarstjórn
Ölfushrepps frestaði á fimmtu-
dagskvöld afgreiðslu á samþykkt
byggingarnefndar um meðferð-
arheimili fyrir geðsjúka afbrota-
Hollywood sem sérhæfír sig í verk-
efnum á borð við þetta. Auk þess
mun Sigurjón Sighvatsson hjá
Propaganga Film vinna að kynn-
ingu myndarinnar í Hollywood.
Sjálfur fer Friðrik Þór til Hollywood
í næstu viku og verður þar væntan-
Iega allan marsmánuð, ..eða eins
lengi og auglýsingastofan telur
nauðsynlegt," segir hann.
menn. Heilbrigðisráðherra hefur
borist fyrirspurn frá fjölmörgum
aðilum um rekstur meðferðar-
heimilisins og átti hann fund með
bæjarstjórn Njarðvíkur um málið
í gær.
Sveitarstjóm Olfushrepps barst
erindi frá Lögmönnum Suðurlands
á Selfossi þess efnis að þeir hygð-
ust gera tilboð í jörðina fyrir hönd
skjólstæðings og var þá afgreiðslu
málsins frestað.
„Núna virðist spurningin snúast
um það hvort þarna eigi að vera
hross fremur en fólk. Mér vitanlega
hefur ekkert kauptilboð borist í
jörðina. Það hafa fjölmargir aðilar
sóst eftir þessu verkefni og nú síð-
ast fékk ég bréf frá hreppsnefnd-
inni á Djúpavogi sem lýsir sig reiðu-
búna að taka að sér þessa starfsemi
og það liggur fyrir einróma yfiriýs-
ing frá bæjarstjórn Njarðvíkur. Það
hafa fleiri sveitarfélög látið í sér
heyra. Það liggur fyrir sveitar-
stjóminni í Ölfushreppi skrifleg yf-
irlýsing frá Náttúrulækningafélag-
inu um að þeir samþykki þessi not
af umræddu húsi,“ sagði Sighvatur.
„Ég er ekkert frá því að þetta
sé eitthvert huldumannatilboð. Það
er margur leikurinn búinn að vera
í kringum þessa eign,“ sagði Vil-
hjálmur Ingi Árnason, varaforseti
Náttúrulækningafélagsins, sem á
jörðina Sogn. Hann kvaðst hafa átt
von á tilboðinu í fyrrakvöld en það
hefði ekki borist enn. Vilhjálmur
sagði að eignin hefði verið til sölu
í tvö ár. Ekkert tilboð hefði borist
í hana fyrir utan hvað ríkið gerði
kauptilboð í hana sl. haust. Hús-
eignin er metin á 30 milljónir kr.
en ríkið hefði boðið 23 milljónir kr.
og því tilboði hefði verið hafnað.
Ríkið gekk inn í leigusamning sem
SÁÁ hafði við Náttúrulækningafé-
lagið en sá samningur rann út um
síðustu áramót. Enginn leigusamn-
ingur væri því í gildi.
Einar Sigurðsson, oddviti Ölfus-
hrepps, sagði að það tæki sveitar-
stjórnina um viku til tíu daga að
afgreiða málið í ljósi þessarar fram-
vindu. Hann vísaði alfarið á Lög-
menn Suðurlands um kauptilboðið
en þar neituðu menn að tjá sig
nokkuð um málið.
10%lækk-
un á naut-
gripakjöti
ÁKVEÐIN hefur verið 10%
verðlækkun til bænda á kýr-
kjöti og ungneytakjöti vegna
mikils framboðs af þessum teg-
undum nautgripakjöts. Gísli S.
Karlsson, framkvæmdasijóri
Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins, segir að með þessu sé verð-
skráningin að hluta til löguð að
því sem orðið var en verðlækk-
unin ætti þó að hafa einhver
áhrif til lækkunar á útsölu-
verði. Engar verðbreytingar
verða á öðrum búvörum nú um
mánaðamótin.
Gísli sagði að nú væri tímabund-
ið framboð af kúm til slátrunar.
Bændur væru að búa sig undir
næsta haust þegar mjólkurfram-
leiðslan yrði væntanlega löguð að
innanlandsneyslunni. Kýrkjötið
seldist betur en ungneytakjötið og
sköpuðust því einnig vandræði í
sölu á því. Gísli sagði að nú væru
þriggja vikna til mánaðar birgðir
til, þær væru „á fjórum fótum“
þvi nautgripakjöt væri mest selt
ferskt og slátrað eftir hendinni.
Stöð 2 hækkar ákrift um 100 krónur:
Askriftargjöld hafa hækkað
um 13% síðan í september
ÁSKRIFT að Stöð 2 hækkar um 100 krónur, eða 3,9% nú 1.
mars. Á einu ári hafa áskriftargjöldin að Stöð 2 þá hækkað um
13% en síðasta hækkun var í byijun september sl. er áskriftin
hækkaði um 8,8%. Mánaðaráskrift á Stöð 2 verður nú 2.555,50
kr. hjá þeim sem láta færa gjaldið á Visa-reikning en 2.690 kr.
hjá öðrum. Fyrir hækkun var gjaldið 2.590 krónur hjá öðrum
en korthöfum og 2.460,50 kr. hjá þeim sem greiddu sem korti.
Áskríft að RÚV er nú 1.687 kr. og hefur það gjald ekki hækkað
frá því I janúar 1991.
Aðspurður hvers vegna þjón-
usta fyrirtækisins hefði hækkað
svo mjög umfram verðlagsþróun
sagði Bjarni Kristjánsson fjár-
málastjóri Stöðvar 2 að þar kæmi
tvennt til. Annars vegar sé um
að ræða hækkun á aðkeyptu er-
lendu efni til Stöðvarinnar og hins
vegar mikill fjármagnskostnaður.
„Dollarinn er allsráðandi í kaup-
um okkar á erlendu efni og því
þurftum við að hækka áskriftina.
Auk þess hefur orðið gífurleg
hækkun á fjármagnskostnaði hjá
okkur eins og raunar öllum öðrum
í þjóðfélaginu,“ sagði Bjarni.
Hann sagði að í september hefði
hækkunarþörfin í raun verið 12%
en vonir um að 8,8% dygði til að
ná markmiðum rekstrarins hefðu
brugðist.
Bjarni sagði rétt að tekist hefði
að snúa taprekstri í hagnað hjá
fyrirtækinu en hækkunin nú væri
ákveðin með tilliti til þess að nið-
urstaða í rekstrinum yrði viðun-
andi, enda væri stefnan í því sam-
bandi ekki sett á núllið.
Aðspurður sagði hann að
ákvörðunar um áskriftargjöld
fyrir væntanlega sjónvarpsrrás
Sýnar væri að vænta í marsmán-
uði.
Friðrik Þór Friðriksson:
Styrkurinn eykur
möguleika okkar
FRIÐRIK Þór Friðriksson, leikstjóri myndarinnar Börn náttúrunn-
ar, segir að hann sé mjög ánægður með að stjórnvöld skuli hafa
ákveðið að styrkja kynningu á myndinni í baráttunni um Óskarsverð-
launin. „Að fá þennan styrk frá ríkissljórninni eykur möguleika
okkar á árangri," segir Friðrik Þór.
► l-32
Timbur verður alltaf
góður valkostur
►- segir Eiríkur Þorsteinsson, tré-
tæknir hjá Rannóknarstofnun
byggingariðnaðarins. /16
Hún ammamín...
►ímynd ömmunnar með prjónana
og sjalið er býsna sterk. Amman
sem alltaf var heima og alltaf tilbú-
in að passa barnabörnin, segja
þeim sögur, innræta þeim guðsótta
oggóða siði. En ömmumar breyt-
ast eins og annað í hverfulum
heimi. Ný amma tekur við að
ömmu gömlu“ með ógnvekjandi
hraða, - og hvað kemur næst? 1
Barist við ruslhugbún-
að
►Rætt við Friðrik Skúlason tölvu-
veirubana./8
Takmarkið er betri
tónlist
►Rætt viðBjörn Th. Árnason,
formann FIH, í tilefni af sextíu
ára afmæli Félags íslenskra hljóm-
listarmanna. /10
Á kostnað tilfinning-
anna
►Rætt við Stefán Jóhannsson,
stjórnarformann Comerstone með-
ferðarstöðvarinnar, um meðvirkni
og fíkna persónuleika. /12
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
►Ungfrúrtni mistókst að verða
hefðarfrú og myrti bónda sinn á
rottueitri. En var móðir hennar
hálfsystir konungs? /14
FASTIR ÞÆTTtR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Dagbók 8
Kristni 9
Leiðari 24
Helgispjall 24
Reykjavíkurbréf 24
Utvarp/sjónvarp 44
Gárur 47
Mannlífsstr. 8c
Kvikrayndir 18c
Dægurtónlist 19c
Fólk í fréttum 22c
Myndasögur 24c
Brids 24c
Stjörnuspá 24c
Skák 24c
Bíó/dans 26c
A fdmum vegi 28c
Velvakandi 28c
Samsafnið 30c
INNLENDAR FRÉTTIR;
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4