Morgunblaðið - 01.03.1992, Page 10

Morgunblaðið - 01.03.1992, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARZ 1992 ÞAfl ERIIERFHNR TÍMAR eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur. „Óskum að ráða starfsmann í stöðu aðstoðardeildar- stjóra húsgagnadeildar. Verksvið er dagleg umsjón með sölusvæði, verkstjórn 10-12 starfsmanna og aðstoð við innkaup. Æskilegt er að umsækjandi sé á aldrinum 25-45 ára, hafi góða ensku- kunnáttu, eigi auðvelt með að stjóma fólki, sé góð eða góður í umgengni, sam- starfsfús og geti unnið lang- ann vinnudag." Þannig auglýsti vel þekkt húsgagnaverslun hér í borg ekki alls fyrir löngu og ekki stóð á svörum. 138 einstaklingar sóttu um - menn og konur úr hinum ýmsu geirum þjóðfélagsins. Sá, sem hreppti hnossið, er karlmaður, nýútskrifað- ur viðskiptafræðingur frá Banda- ríkjunum. Hann var ráðinn upp á 90 þúsund króna mánaðarlaun, en með þeirri aukavinnu, sem starfínu fylgir, gæti hann staðið uppi með 120-130 þúsund krónur í launaum- slaginu um hver mánaðamót. „Við vorum í heila viku að vinna úr öllum þessum umsóknum. Að minnsta kosti 40 umsóknir komu vel til greina við fyrstu sýn, en til að grisja þetta aðeins, ákváðum við að taka 20 umsækjendur í viðtal og af þeim hefði helmingurinn get- að gengið beint inr. í starfíð - allt þrælmenntað og gott fólk. Maður er óneitanlega svolítið hikandi við að ráða of menntað fólk í slíkt starf því maður býst ekki við að það stoppi lengi við. Segja má að sá einstaklingur, sem ráðinn var í starfíð, sé of menntaður í það vegna þess að viðskiptafræðimenntun nýt- ist ekki nema að hluta til. Menntun var ekkert atriði af okkar hálfu. Gagnfræðingur hefði alveg eins komið til greina," segir verslunar- stjórinn. Mun fleiri umsóknir berast nú um hvert starf en áður hefur tíðk- ast, samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekendum og ráðningastof- um. „Það eru nokkrir, sem hringja, á dag til þess að spyijast fyrir um vinnu og töluvert er um að fólk leggi inn sínar umsóknir þó við séum ekkert að auglýsa eftir þvi,“ segir Kristján Sturluson, starfs- mannastjóri Hagkaupa. „Sérstak- lega hefur mér fundist áberandi hversu margir fullorðnir karlmenn hafa komið til okkar í leit að at- vinnu. Fyrir skömmu auglýstum við starf lagerstjóra. 25 sóttu um og áberandi var hversu margir þeirra voru Iausir og gátu byijað strax. Jafnframt hefur komið hingað tölu- verður íjöldi unglinga eftir áramót, sem var að hætta í skóla og hér hefur unnið áður, til þess að fá stað- festingu á vinnutímanum sínum til að komast á atvinnuleysisbætur." Verulega hefur dregið úr að sóst sé eftir útlendingum til vinnu á ís- landi, samkvæmt upplýsingum Ut- lendingaeftirlitsins. „Það er nátt- Morgunblaðið/Kristján G. Arngrimsson. Fólk veróur fyrir miklu áfalli vió vinnumissi. Stór hluti af þeim, sem eru á atvinnuleysisbótum, er gott starf sf ólk um og yf ir f immtugt sem fœr ekki vinnu, eingöngu aldursins vegna. úrulega ekki búið að loka fyrir út- lendinga á vinnumarkað hérlendis, en það er ákveðin tregða komin upp. Öll atvinnuleyfí eru háð um- sögnum frá viðkomandi stéttarfé- lagi og ef sú umsögn er ekki jákvæð er atvinnuleyfí yfírleitt ekki veitt. Þar af leiðandi eru hlutimir í ákveð- inni biðstöðu núna, en nokkuð margar umsóknir liggja hjá okkur óafgreiddar frá því í janúarmánuði. Maður verður að sjá hvernig at- vinnuástandið þróast,“ segir Jóhann Jóhannsson hjá Útlendingaeftirlit- inu. Að sögn Jóhanns koma útlend- ingar ekki hingað til lands í atvinnu- leit. „Fyrirtækin í landinu sækja um atvinnuleyfí fyrir fólkið áður en það kemur því útlendingar verða að vera búnir að fá atvinnuleyfí hér áður en það kemur. Við eigum von á færri umsóknum á næstunni ef að atvinnuástand horfir við okkur eins og það er í dag. Ég býst a.m.k. við því að færri fyrirtæki munu telja sig þurfa á erlendu vinnuafli að halda á komandi mánuðum." „ S veitastyrkur “ Atvinnuleysi leggst eflaust mis- jafnlega á menn, en oft fylgir því mikil andleg vanlíðan, sem ekki aðeins snertir þann, sem orðið hefur fyrir vinnumissinum, heldur líka Qölskyldu hans og vini. „Fólk verð- úr fyrir miklu áfalli við vinnumissi. Stór hluti af þeim, sem eru á atvinn- uleysisbótum, er gott starfsfólk um og yfir fimmtugt sem fær ekki vinnu, eingöngu aldursins vegna. Vinnuveitendur vilja yngra fólkið. Og þegar atvinnulaust fólk, sem kannski hefur unnið í 20 til 30 ár hjá sama atvinnurekandanum, upp- ÞAfl ER ATVMNUÞREF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.