Morgunblaðið - 07.03.1992, Blaðsíða 4
nvn;»ww
VEÐUR
ÍDAGkl.1
/. tfcimilíJ; Veðuiatóla Isiands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær)
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
Hæstiréttur:
Niðurstaða sakadóms
um mál Halls Magn-
ússonar staðfest
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Hall Magnússon blaðamann til að
greiða 60 þúsund króna sekt til ríkissjóðs og 135 þúsund króna
miskabætur til séra Þóris Stephensen, auk málsvarnarlauna og sakar-
kostnaðar, fyrir ærumeiðandi ummæli um séra Þóri í grein sem
Hallur skrifaði undir eigin nafni í dagblaðið Tímann. Ríkissaksókn-
ari ákærði Hall fyrir brot á 108. grein almennra hegningarlaga þar
sem kveðið er á um að hver sá sem hafi í frammi skammaryrði,
aðrar móðganir i orðum eða athöfnum eða ærumeiðandi aðdróttan-
ir við opinberan starfsmann, skuli sæta sektum, varðhaldi eða fang-
elsi allt að þrjú ár. Hrafn Bragason hæstaréttardómari skilaði sérat-
kvæði og taldi ekki tilefni til að refsa fyrir brot á þessari grein
þótt hann teldi rétt að ómerkja ummæli í greininni.
Með dómi meirihluta Hæstarétt-
ar var staðfest niðurstaða saka-
dóms Reykjavíkur um málið að öðru
leyti en því að hlutur Halls í greiðslu
saksóknarlauna í héraði var lækk-
aður úr 180 þúsund krónum í 100
þúsund krónur. Áður en Hæstirétt-
ur felldi þennan endanlega dóm um
efni málsins hafði rétturinn í maí-
mánuði 1990 fellt úr gildi dóm og
málsmeðferð málsins fyrir héraðs-
dómi samkvæmt eldri ákæru. í júlí
1990 krafðist ríkissaksóknari þess
að málið yrði tekið fyrir í sakadómi
að nýju á grundvelli sömu ákæru
og vísað hafði verið frá Hæstarétti.
Sakadómari hafnaði þeirri kröfu og
Hæstiréttur staðfesti þá ákvörðun
9. október 1990. 12. október 1990
gaf ríkissaksóknari út þá ákæru í
málinu sem dómur sakadóms frá
því í júní síðastliðnum byggðist á.
Grein sú sem mál þetta reis út
af og birtist í Tímanum 14. júlí
1988 var skrifuð í framhaldi af frétt
um framkvæmdir í kirkjugarðinum
í Viðey, en Hallur Magnússon taldi
þær forkastanlegar og á ábyrgð
séra Þóris, staðarhaldara í eynni. í
greininni var farið hörðum orðum
um framkvæmdimar og persónu
og störf séra Þóris. Við meðferð
málsins kom fram að séra Þórir
átti ekki aðild að ákvörðun um
framkvæmdirnar og hafði ekki
umsjón með þeim þótt hann svaraði
síðar fyrir þær, í fréttum.
Ríkissaksóknari ákærði Hall fyrir
brot á 108. grein almennra hegn-
ingarlaga og meirihluti Hæstaréttar
taldi að séra Þórir teldist opinber
starfsmaður í skilningi þeirrar laga-
greinar. Varð niðurstaða málsins
sú sem að framan greinir.
Meirihluta Hæstaréttar í málinu
mynduðu hæstaréttardómaramir
Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason, Hjörtur Torfason og Þór
Vilhjálmsson, en Hrafn Bragason
hæstaréttardómari skilaði sérat-
kvæði, eins og fyrr segir.
-------♦----------
Jórdaníu-
konungur
í heimsókn
HUSSEIN Jórdaníukonungur
kemur í tveggja daga heimsókn
til íslands um helgina. Hussein
mun meðal annars hitta að máli
Vigdísi Finnbogadóttur forseta
íslands, Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra.
Heimsóknin hefst síðdegis á
morgun en þá lendir flugvél Huss-
eins á Keflavíkurflugvelli. Davíð
Oddsson forsætisráðherra mun taka
á móti konungi í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar en um kvöldið snæðir
Hussein málsverð að Bessastöðum
í boði forseta íslands.
Á mánudagsmorgun verður sam-
eiginlegur fundur Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra, Husseins Jórd-
aníukonungs og Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra
en síðan heldur forsætisráðherra
hádegisverðarboð til heiðurs Jórd-
aníukonungi. Heimsókninni lýkur
síðar um daginn en þá heldur Huss-
ein af landi brott ásamt föruneyti.
SKÍÐASVÆÐI
Listahátíð:
Grace Bum-
bry heldur
tónleika
Sópransöngkonan Grace
Bumbry kemur hingað til lands
í júnímánuði næstkomandi þar
sem hún syngur á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveit íslands í Há-
skólabíói. Einnig verður óperan
Rigoletto sett upp í íslensku
óperunni í tengslum við Listahá-
tíð og þar fara íslensku söngvar-
arnir Kristinn Sigmundsson, Ól-
afur Arni Bjarnason og Sigrún
Hjálmtýsdóttir með aðalhlut-
verkin.
Tónleikar Grace Bumbry verða
18. júní og þar syngur hún Sumar-
nætur eftir Berlioz, aríuna Ah,
perfido eftir Beethoven og Liebes
Tod úr Tristan og ísold eftir Wagn-
er. Grace er þekkt bandarísk sópr-
ansöngkona, sem hefur fengið
ny'ög góða dóma fyrir söng sinn
um víða veröld og þykir ein besta
sópransöngkona okkar tíma. Rut
Magnússon, framkvæmdastjóri
Listahátíðar, segir það vera mikinn
heiður að hún komi hingað til lands
til að syngja á Listahátíð. Stjóm-
andi tónleikanna verður John Bark-
er, en hann er tónlistarstjóri í kon-
SKÍÐASVÆÐI landsins eru misjafnlega sett hvað varðar snjó.
Best er ástandið á skíðasvæðunum sunnanlands, á ísafirði og
í Oddskarði. Snjólítið er á Norðurlandi og mörg skíðasvæði
þar lokuð vegna snjóleysis. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akur-
eyri verður opnað um helgina í fyrsta sinn frá þvi 11. janúar.
Suðurland:Um helgina verður
opið í Bláfjöllum, Hamragili og í
Sleggjubeinsskarði. 10 lyftur
verða opnar í Bláfjöllum (sími
801111) og þar er ágætt skíða-
færi. Lyfturnar verða opnar frá
kl. 10 til 18 bæði laugardag og
sunnudag. Göngubrautir verða
lagðar.
í Hamragili (sími 98-34699) og
Sleggjubeinsskarði (sími 98-
34666) er góður snjór og verða
tvær lyftur í gangi á báðum stöð-
um og opnunartími sá sami og í
Bláfjöllum.
Skíðasvæðið í Skálafelli (sími
666099) er lokað vegna snjóleys-
is.
Vestfirðir: Á Seljalandsdal við
ísafjörð (sími 94-3793) er mikill
og góður snjór. Þrjár lyftur verða
í gangi um helgina frá kl. 10 til
17. Skíðasvæði ísfirðinga hefur
verið opið frá því nóvember.
Norðurland: Skíðasvæði Ak-
ureyringa í Hlíðarfjalli (96-22930)
verður opið í dag og á morgun
frá kl. 13-17. Ekki er mikill snjór
á svæðinu en reynt verður að
keyra stólalyftuna og Stromplyft-
una.
Á skíðasvæði Dalvíkinga í
Böggvistaðafjalli (sími 96-61010)
hefur verið lítill snjór, en um helg-
ina er fyrirhugað að reyna að
keyra efri lyftuna fyrir almenning
frá kl. 10 báða dagana.
Á Ólafsfirði, Siglufirði og á
Húsavík hefur ekki verið hægt
að opna lyftur í vetur vegna snjó-
leysis. Skíðasvæðin á þessu
stöðum verða því lokuð um helg-
ina.
Austurland: Skíðasvæðið í
Oddskarði (sími 97-61465) hefur
verið opið frá því 20. febrúar og
um helgina verður opið frá kl.
10-17. Nægur og góður snjór er
VEÐURHORFUR I DAG, 7. MARZ
YFIRLIT: Á vestanverðu Grænlandshafi er nærri kyrrstæð 983 mb lægö
og hægt vaxandi lægð suður af Hvarfi þokast norðaustur.
SPÁ: Sunnan og suðvestan 4-6 víndstig, slydduél sunnanlands og vest-
an, þurrt norðanlands. Vaxandi sunnan og suðaustan átt í fyrramálið
um suðvestanvert landið.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan og suðaustan átt og fremur hlýtt.
Stydduél um vestanvert landið en dálítil rigning austantil.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og svalt.
Dálftil él um vestanvert landið en annars þurrt að mestu.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt
/ / /
/ /
f f f
Rigning
&
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
&
Hálfskýjað
* * *
* *
* ♦ *
Snjókoma
Skýjað
Alskýjað
V
Skúrir Slyddué!
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og Ijaðrimar vindstyrk,
heil fjðður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM:
Greiðfært er á vegum í nágrenni Reykjavíkur og einnig um Suðurnes.
Fært um Hellisheiði og Þrengsii. Talsverð hálka er á þessu svæði.
Mosfellsheiöi verður mokuð f dag. Vegir á Suðurlandl eru flestir þokka-
lega færir og fært með suöurströndinni austur á Austfirði. Vegir f Borgar-
firði, á Snæfellsnesi, í Dölum og vestur í Reykhólasveit eru færir og
Brettabrekka er fær. Fært er á milli Bíldudals og Brjánslækiar og einnig
é milli Þíngeyrar og Flateyrar. í dag er mokaö um Breiðadals- og Botns-
heiðar og einnig um ísafjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði. Greiðfært
er á milli ísafjarðar, Bolungarvíkur og Suðavíkur. Frá Drangsnesi er
fært suður Strandirnar. Holtavörðuheiði er fær og einnig eru flestir vegir
á Norðurlandi færir, svo sem til Siglufjarðar og Akureyrar. Fært er frá
Akureyri til Ólafsfjarðar og einnig austur um Þingeyjarsýslu. Á Austur-
landi eru vegir greiðfærir. Víða er mikil hálka á vegum, einkum á vestan-
verðu landinu.
Vegagerðin
<KI. I7.30igær)
Sópransöngkonan Grace
Bumbry, sem kemur hingað til
iands á Listahátíð.
unglega óperuhúsinu í Covent
Garden í London.
Þá verður óperan Rigoletto sýnd
í íslensku óperunni 16. og 19. júní
en þar syngja íslenskir söngvarar
aðalhlutverkin. Kristinn Sigmunds-
son syngur hlutverk Rigoletto, Ól-
afur Ámi Bjarnason syngur hlut-
verk hertogans og Sigrún Hjálm-
týsdóttir syngur hlutverk Gildu, en
hún söng það einnig í uppfærslu
íslensku óperunnar á Rigoletto á
síðasta ári. Stjórnandi hljómsveitar
er Robin Stapelton.
á svæðinu og verða þrjár lyftur
í gangi.
Skíðaáhugafólki er bent á að
hringja í skíðasvæðin áður en
lagt er í hann tii að kanna veður
og færð. Þá fást upplýsingar um
veiður í símsvara Veðurstofu ís-
lands, 91-17000.
Bergen 6 rigning
Halsinkí 41 alskýjað
Kaupmannahöfn 6 þokumóða
Narssarssuaq +16 heiðskírt
Nuuk +10 úrkoma
Óslð 5 súld
Stokkhólmur 6 alskýjað
Þórshöfn m skýjað
Algarve 21 mistur
Amsterdam 9 léttskýjað
Barcelona 14 rigning
Berlín 10 mistur
Chicago varttar
Feneyjar vantar
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 8 rigning
London 12 skýjað
LosAngeles vantar
Lúxemborg 9 skýjað
Madríd 13 akýjað
Malaga 17 mistur
Mallorca 15 alskýjað
Montreal vantar
NewYork vantar
Orlando vantar
París 12 háHskýjað
Madeira 17 skýjað
Róm 16 þokumóða
Vln 9 skýjað
Washlngton vantar
Winnlpeg vantar