Morgunblaðið - 07.03.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
21
Illskeytt tölvuveira varð virk í gær:
Reuter.
Gorbatsjov í Þýskalandi
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum Sovétforseti, er nú á níu daga ferð um Þýskaland og er þetta fyrsta utanlands-
för hans síðan hann lét af embætti. Tekið hefur verið á móti Gorbatsjov sem leiðtoga stórveldis í Þýskalandi
og hefur hann m.a. átt viðræður við Helmut Kohl kanslara og aðra helstu stjórnmálamenn landsins. í gær
hitti hann að máli Theodor Waigel fjármálaráðherra og Richard von Weizsacker, forseta Þýskalands. Greindi
hann Weizsácker frá stjórnmálaástandinu í Samveldi sjálfstæðra ríkja og lagði áherslu á mikilvægi vest-
rænnar aðstoðar ef tryggja ætti stöðugleika í fyrrum Sovétríkjunum. Á myndinni má sjá þýsku forsetahjón-
in taka á móti Míkhaíl og Raísu Gorbatsjov.
Michelangelo olli usla í
uni 10.000 einkatölvum
London, Bonn, Amsterdam, Washington. Reuter.
TOLVUVEIRAN Michelangelo, sem er sú skæðasta sem hingað til
hefur komið fram, olli miklum usla í einkatölvum fyrirtækja víðs
vegar um heim í gær. Áætlaði bandariskur tölvusérfræðingur að
veiran hefði orðið virk í allt að tíu þúsund tölvum í heiminum. Einna
verst úti urðu fyrirtæki í Suður-Afríku en þar urðu um þúsund tölvur
í allt að fimm hundruð fyrirtækjum í flestum helstu atvinnugreinum
landsins fyrir barðinu á veirunni.
í Evrópu og Asíu tókst hins veg-
ar á flestum stöðum að koma í veg
fyrir skaða af völdum veirunnar
með notkun sérstakra forvarnarfor-
rita. í Þýskalandi náðu slík forrit
að eyða veirunni í um þúsund tölv-
um. Fyrirtæki í Ruhr-héraðinu varð
hins vegar mjög illa úti og þurftu
starfsmenn að horfa á öll gögn sem
geymd voru á 75 tölvum þurrkast
út á örfáum sekúndum.
Bandarískir embættismenn hjá
ýmsum helstu stjórnarstofnunum
sögðu í gær að ekki væri vitað um
neinar skemmdir á hugbúnaði á
vegum stjórnarinnar. Fregnir bár-
ust hins vegar af því að veiran hefði
orðið virk í tölvum hjá ýmsum
bandarískum fyrirtækjum. IBM í
Frakklandi sagðist ekki hafa heyrt
af neinum vandræðum vegna veir-
unnar en í Bretlandi var skýrt frá
því að um hundrað tölvur hjá þjón-
ustufyrirtæki hefðu sýkst. Þá varð
lítið vart við Michelangelo í Mið-
Austurlöndum enda nánast allar
skrifstofur lokaðar vegna bæna-
dags múhameðstrúarmanna.
Tölvuveiran Michelangelo er
skýrð í höfuðið á málaranum kunna
og varð veiran ekki virk fyrr en í
gær en þá voru 517 ár liðin frá
fæðingu meistarans. Veiran var
þeim eiginleikum búin að geta „sof-
ið“ í minni tölva er höfðu smitast
af henni og vaknaði fyrst til lífsins
ef kveikt var á þeim í gær og eyði-
lagði þá kerfisbundið á örskammri
stund öll þau gögn sem geymd voru
á hörðum diskum tölvanna. Gátu
allar einkatölvur, sem samhæfðar
eru stýrikerfum IBM-tölva, smitast
af veirunni.
Einn af tölvusérfræðingum holl-
ensku lögreglunnar, Loek Weerd,
skýrði í gær frá því að það hefði
verið tævanskt hugbúnaðarfyrir-
tæki sem óafvitandi dreifði veirunni
um heiminn. Tævönsk yfirvöld hafa
enn sem komið er ekki viljað gefa
upp nafn fyrirtækisins en hluti af
starfsemi þess, h'kt og margra ann-
arra hugbúnaðarfyrirtækja, er að
fjölfalda forrit fyrir viðskiptavini
sína. Líklega komst veiran í fjölda-
Vance átti fund með leiðtogum
múslima, Serba og Króata í Bosníu
í höfuðborginni Sarajevo í gær og
féllust þeir þar á að koma til friðar-
viðræðna, sem haldnar verða undir
verndarvæng Evrópubandalagsins
(EB) í Brussel um helgina.
„Enda þótt mikil spenna ríki enn
get ég þó sagt að hún sé sýnu
minni en fyrr í vikunni," sagði
Vance. Meirihluti íbúa Bosníu lýsti
stuðningi við stofnun sjálfstæðs
ríkis í þjóðaratkvæði um síðustu
helgi en í framhaldi af atkvæða-
greiðslunni hefur komið ■ til
ofbeldisverka og óttast var að
borgarastyijöld brytist út þar sem
Serbar, sem telja 31% íbúa en ráða
yfir tveimur þriðju landsvæðis Bos-
níu, sættu sig ekki við úrslitin.
Vildu þeir að lýðveldið yrði áfram
hluti af júgóslavneska ríkjasam-
bandinu.
Vance sagði í gær að leiðtogar
dreifingu er einn viðskiptavina
fýrirtækisins afhenti því smitaðan
disk til fjölföldunar.
Weerd varaði þá tölvunotendur
við sem ætluðu sér að komast hjá
vandræðum með því að kveikja ein-
faldlega ekki á tölvunni í gær. Þeir
væru alls ekki óhultir . ef tölvan
væri smituð á annað borð. „Veiran
er þarna ennþá. Menn eru bara að
blekkja sjálfa sig. Hún fer á kreik
á ný að ári liðnu,“ sagði hann.
deiluaðila í Bosníu hefðu samþykkt
að hefja samningaviðræður um
friðsamlega lausn deilunnar um
framtíð lýðveldisins. Samninga-
menn EB munu hafa milligöngu.
Samkvæmt friðaráætlun, sem upp-
kast hefur verið gert að, fengju
þjóðarbrotin aukið sjálfsforræði
innan núgildandi landamæra Bos-
níu. Radovan Karadzic, leiðtogi
Serba, hefur varað EB við því að
viðurkenna sjálfstæði Bosníu fyrr
en pólitísk lausn deilunnar um
framtíð landsins hefði fundist.
Vance fór í gærkvöldi til Zagreb,
höfuðborgar Króatíu, til viðræðna
við Franjo Tudjman forseta um
komu friðargaéslusveita SÞ til
landsins. Vance sagði að fyrstu
friðargæsiuliðarnir væru væntan-
legar innan tveggja vikna en yfir-
maður sveitanna, indverski hers-
höfðinginn Satish Nambiar, kemur
til Belgrað á morgun sunnudag.
Deilur um framtíð Bosníu:
Líkur aukast á
pólitískri lausn
Belgrað. Reuter.
CYRUS Vance, sérlegur samningamaður Sameinuðu þjóðanna (SÞ),
segir að áfangasigur hafi unnist í gær er leiðtogar þjóðarbrotanna
í Bosníu-Herzegovínu hétu honum því að leysa ágreining sinn um
framtíð Iandsins með samningum.
Irland;
Fóstri stúlk-
unnar eytt
Dublin. Reuter.
FJÓRTÁN ára gömul írsk
stúlka, sem varð barnshafandi
vegna nauðgunar, hefur gengist
undir fóstureyðingu í Englandi
eftir að hæstiréttur írlands
hafði hnekkt úrskurði undir-
réttar um að hún mætti ekki
fara þangað til að eyða fóstrinu.
Tekin voru sýni úr legvatni
stúlkunnar þegar aðgerðin fór
fram til að ganga úr skugga um
hvort faðir bestu vinkonu hennar
hafi nauðgað henni. Blóðsýni hafa
einnig verið tekin úr manninum.
Hæstiréttur írlands, nam í síð-
ustu viku úr gildi bann dómstóls
i Dublin við því að stúlkan fengi
að fara til Bretlands í fóstureyð-
ingu.
Thomas Finlay, forseti Hæsta-
réttar, kvaðst á fimmtudag hafa
tekið þessa ákvörðun vegna ótta
um að stúlkan myndi ella fremja
sjálfsmorð. Hafði sálfræðingur
borið því vitni að stúlkan væri i
alvarlegum sj álfsmorðshugleiðing-
um.
Hæstiréttur írlands kvað á
fimmtudag upp þann úrskurð að
leyfilegt væri að heimila fóstur-
eyðingar undir ákveðnum
kringumstæðum. Fóstureyðingar
eru bannaðar á írlandi og er talið
að þessi úrskurður hæstaréttarins
eigi eftir að verða að pólitísku hita-
máli. Voru fjórir dómarar af fimm
þeirrar skoðunar að fóstureyðingu
mætti leyfa ef líf móðurinnar væri
ella talið vera í hættu.
MMC Pajero turbo diesel ’89, sjálfsk., ek.
73 þ., brettaútvíkkanir, o.fl. V. 1780 þús.
stgr., sk. á ód.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut. J
Kopavogi, si'mi
671800
Subaru 1800 GL 4 x 4 ’87, ek. 58 þ. Topp
eintak, hvítur. V. 790 þús.
Ford Bronco '82, 36“ dekk, 6 cyl., 4 gíra,
o.fl. V. 890 þús., sk. á ód.
Mazda 323F GTi 1.8 '90, svartur, 5 g., ek.
32 þ., rafm. í öllu. V. 1250 þús., sk. á ód.
BMW 3181 4 dyra '85, læst drif, o.fl.,
sjálfsk., ek. 97 þ. V. 850 þús.
Honda Civic GLi Sedan '91, 5 g., ek. 11 þ.
V. 1050 þús., sk. á ód.
Honda Civic GTI '88, topplúga. Fallegur
bfll. V. 980 þús. Ýmis sk. mögul.
Honda Prelude 2000 EXí '90, sjálfsk., ek.
15 þ. Ýmsir aukahl. V. 1750 þús.
Ford Bronco II XL '88, 5 g., ek. 37 þ. Falleg-
ur jeppi. V. 1590 þ. Sk. ód.
MMC Galant GLS 2000 ’87, sjálfsk., ek.
aðeins 45 þ. V. 850 þús. Sk. á ód.
MMC L-300 8 manna ’88, úrvalsbfll.
V. 1280 þús., sk. á ód.
Mazda 323 1.8 Sedan 4x4 '91, ek. 16 þ.
V. 1180 þús.
MMC Pajero Turbo diesel '88, ek. 82 þ.
Jeppi í sérfl. V. 1450 þús., sk. á ód.
Ath. 15-30% staðgreiðsluafsláttur
- Síðasti dagur útsölunnar -
SÓFASETT
HORNSÓFAR
STAKIR SÓFAR
og margt fleira
Frábær afsiáttur á stökum sófum og
sófasettum frá Eilersen f Danmörku.
Reyrsófasett með borði
frá 39.000,- kr. staðgr.
Sófasett m/áklæði
frá 60.000,- kr. staðgr.
Sófasett m/lúxáklæði 3+2+1
frá 99.000,- kr. staðgr.
Sófasett m/leðri 3+2+1
frá 147.000,- kr. staðgr.