Morgunblaðið - 07.03.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
13
ur um að leggja sjóðinn niður í stað
þess að færa hann í betra horf.
Spurningin er, hvert verður fram-
haldið? Það er ljóst að ef andstæð-
ingar Menningarsjóðs ná sínu fram
verður sá sigur ekki unninn á mál-
efnalegum grunni. Því læðist eftir-
farandi hugsun að mér: Það er
hægt að slátra Menningarsjóði út-
varpsstöðva — en ekki hugmyndinni
sem liggur að baki.
Ef Menningarsjóður útvarps-
stöðva væri lagður af myndi þörfm
fyrir lögbundna og skilyrðislausa
fjármögnunarhlutdeild sjónvarps-
stöðva í kvikmyndaiðnaði verða til-
finnanlegri en nokkru sinni fyrr.
Lög og reglugerðir þaraðlútandi
yrðu nauðsynlega að taka við af
lögum um Menningarsjóð (t.d. með
setningu nýrra útvarpslaga). Þró-
unin gæti hreinlega ekki orðið önn-
ur. En með hvaða hætti skyldi þetta
gerast? Með 5% gjaldtöku af heild-
arveltu sjónvarpsstöðva sem
greiddist í Kvikmyndasjóð íslands?
Með stofnun sérstaks sjónvarps-
kvikmyndasjóðs sem væri fjár-
magnaður að hálfu leyti af sjón-
varpsstöðvum? Með lögbundinni
hlutdeild kvikmyndafyrirtækja í
framjeiðslu dagskrárefnis (25% fyr-
ir RÚV, 100% fyrir einkastöðvar)?
Eða sitt lítið af hverju, eins og venja
er í öðrum löndum?
Ég hygg að Menningarsjóður
útvarpsstöðva sé í alla staði hag-
kvæmari kostur fyrir íslenskar sjón-
varpsstöðvar. Það væri skynsam-
legt að byggja á því sem við höfum
og að axla þannig a.m.k. hluta
þeirrar ábyrgðar sem sannanlega
fylgfir sjónvarpsrekstri. Og hvers
vegna ekki? Þær kvikmyndir sem
þannig væru framleiddar myndu
hvort eð er hafna í sjónvarpi og
auka þannig við fjölbreytileika ís-
lensks dagskrárefnis. En lengi má
beija hausnum við steininn. Ég spái
því að eftirfarandi setning muni
heyrast innan veggja ónefndrar
sjónvarpsstöðvar hér á landi, innan
fárra ára: „ Æ, manstu gömlu,
góðu dagana, í tíð Menningarsjóðs-
ins, þegar við stýrðum framleiðslu
á dagskrárefni eftir geðþótta, þui-ft-
um ekkert að borga og áttum jafn-
vel kost á úthlutunum úr sjóðnum
... (andvarp)“.
Höfundur er formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna.
.. ♦ -------
Heimspeki-
fyrirlestur
DR. ANDREW J. Clark frá há-
skólanum f Sussex mun halda
opinberan fyrirlestur á vegum
félagsvísindadeildar og Félags
áhugamanna um heimspeki laug-
ardaginn 7. mars en heimsókn
hans er styrkt af British Council.
Andrew Clark er ungur heim-
spekimenntaður gervigreindarsinni
sem starfar við hugfræðiskorina í
Sussex og hefur upp á síðkastið
skrifað óspart um „nethyggju“
(connectionism). Fyrirlesturinn
nefnist „Theoretical Spaces“ og
fjallar um það hvemig megi nota
„netin“ til að leysa flókin dæmi.
Þessi fyrirlestur tengist lauslega
fyrirlestri Jóns Torfa Jónassonar
1. febrúar sl. um nethyggju og kem-
ur eins og rúsína f pylsuendanum
fyrir þá sem tóku þátt í fyrirlestra-
röðinni um tvíhyggju í febrúar.
Hann hefst kl. 15.00 í stofu 101 í
Odda.
Mæður með böm á brjósti
Lansinoh
græðandi og mýkjandi
áburður á sárar geirvörtur
Lansinob '&r - ’
Umboðsaöili Ymushf.,
sími 91-46100,
pósthólf 330, 202 Kópavogi.
Fullorðinsfræðslan í nýtt húsnæði
Fullorðinsfræðslan hefur flutt í stærra og betra húsnæði á
Laugavegi 163, 3. hæð. Skólinn er nú staðsettur rétt ofan við
Hlemmtorg, gagnstætt Fíladelftukirkjunni, og aðgangur allur því
greiður.
Fullorðinsfræðslan hefur nú
starf sitt endumýjuð að afli og
næstkomandi sunnudag 8. mars
verður sérstakur kynningardagur
fyrir komandi námskeið og nýj-
ungar. Boðið verður upp á kaffi
ásamt meðlæti allan daginn frá
kl. 14-20.
Sérstakur kynningarafsláttur
verður veittur næstu viku en starf-
semin hefst áð fullu næsta mánu-
dag og þriðjudag með fullorðins-
námskeiðunum í ensku, spænsku,
ítölsku, sænsku, íslensku fyrir út-
lendinga, grunnreikningi, íslenskri
stafsetningu I og íslenskri staf-
setningu og málfræði II.
Fyrsta kennslustund í öllum
námskeiðum verður til kynningar
og ekki er skylt að skrá sig á
námskeiðin fyrr en að fyrstu kynn-
ingastund lokinni. Skráning stend-
ur einnig yfir í námsaðstoð og
stuðningsnámskeið í helstu efni
grunn- og framhaldsskóla. Á há-
skólastigi stendur m.a. yfir skrán-
ing í stuðningsnámskeið í lífefna-
fræði hjúkrunarnema og efnafræði
læknisfræðinema.
Helstu nýjungar eru ritaranám,
bókhald, rekstrarhagfræði og við-
skiptaenska. Fullorðinsfræðslan er
fraeðslu- og kennslustofnun sem
starfar allt árið og næstkomandi
sumar verða kenndir fyrstu áfang-
ar framhaldsskóla til lokaprófa í
ensku, íslensku, stærðfræði, efna-
fræði og rekstrarhagfræði auk
sænsku sem ávallt er kennd á
sumrin.
(Frcttatilkynning)
■ ÍSLENSKI kiljuklúbburinn
hefur sent frá sér fjórar nýjar bæk-
ur: Svanurinn eftir Guðberg
Bergsson. Höfundur hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin árið 1991 fyr-
ir þessa sögu. Bókin er 148 blaðsíð-
ur. Bréfbátarigningin eftir Gyrði
Elíasson. í bókinni eru fjórar sam-
tengdar sögur. Hún er 142 blaðsíður
og var á sínum tíma tilnefnd af ís-
lands hálfu til bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs og kom nýlega út
í Danmörku. Rómeó og Júlía eftir
William Shakespeare. Leikritið er
nú gefið út í kilju í tilefni af því að
Þjóðleikhúsið hefur tekið það til
sýningar. Helgi Hálfdanarson
þýddi verkið en bókin er 114 blaðsíð-
ur. Grafarþögn er spennusaga eft-
ir Colin Dexter um Morse lögreglu-
fulltrúa. Gunnar Þorsteinsson
þýddi bókina sem er 224 blaðsíður.
HUSEIGENDUR
ALLRA TÍMA
hafa leitað logandi Ijósi að réttu innréttingunum og öðru þvi sem prýða skal hólf
og gólf híbýla þeirra. Nú er leitin á enda því BYKO hefur opnað HÓLF & GÓLF
á neðri hæð verslunarinnar í Breiddinni.
IHÓLF & GÓLF er heimilissýning allt árið með innréttuðum hólfum og klaeddum
gólfum. Þar er bókstaflega allt fyrir heimilið: Gólfefni, hillur og skápar,
hreinlætistæki, innréttingar, Ijós, klæðningar og fleira og fleira.
Þú sparar tíma, fé og fýrirhöfn með því að fara á einn stað og finna allt
sem þú þarft á að halda fyrir heimilið - f hólf og góK.