Morgunblaðið - 07.03.1992, Blaðsíða 41
Vr
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992
41
Gyðingar um víða veröld
— og Israelsríki
Frá Þór Jakobssyni:
í beinan karllegg- allmargra ættliði
fram er ég afkomandi erlends skip-
stjóra á íslandsmiðum sem komið var
í land vegna veikinda. Naut hann
góðrar aðhlynningar og fékk bata.
Að ári sigldi hann heim til Englands
með þeim ásetningi að snúa aftur
að vitja stúlku sinnar. Svo varð ekki
og veit enginn hvaða atvik lágu til
þess. Var jafnvel talið, að hann hefði
farist í hafi. Getgátur eru uppi um,
að maður þessi hafí verið gyðingur.
En syni hans er hann átti með unn-
ustu sinni á Austfjörðum, sonarsyni
og sonarsonarsyni var áskapað svo
gott minni, að þeir kunnu utanbókar
allar bókmenntir íslendinga, frum-
samdar og þýddar, íslendingasögur,
Sturlungu, þjóðsögur og Þúsund og
eina nótt.
Eitt sinn átti ég heima allmörg ár
í gyðingahverfí í stórborg í Kanada
og voru margir vina minna þar í
hverfínu og á vinnustað gyðingar.
Gyðingar búa enn í hverfum. Þeir
dreifast ekki jafnt um borgina. Þann-
ig verða böm þeirra leikfélagar og
unglingamir fella hugi saman í rétt-
ar áttin Siðir bemskuáranna haldast
frekar. Einnig munu menn eiga að
fara fótgangandi til guðsþjónustu í
samkundunni. Það má víst ekki fara
á hestvagni eða í bíl. Það má því
ekki vera of langt að fara fyrir gamla
fólkið.
í hverfínu bjuggu annars allra
þjóða kvikindi. Ungar fjölskyldu
sóttu jafnvel í slík hverfí, því að
Frá Valgeiri Matthíassyni:
Það var full þörf og tími til
kominn að fram kæmu á Alþingi
tillögur þess efnis að forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
færi að greiða skatta eins og aðr-
ir þegnar þessa lands.
Tilefni þessara skrifa er
greinarkorn eftir Svein Jóhanns-
son, sem birtist í Velvakanda 26.
febrúar, þar sem hann lýsir van-
þóknun sinni á tillögum þessum,
finnst honum þær vera svívirðileg-
ar og okkur til skammar. Nei og
aftur nei, ekki get ég með nokkru
móti fallist á röksemdarfærslu
þessa manns. Þvert á móti fínnst
mér það vera þessu háa embætti
til vansæmdar að ekki skuli allir
jafnir vera. Ég vii taka undir þau
orð Sveins og er honum hjartan-
lega sammála í því að forseti vor
hefur staðið sig vel í embætti sínu
og verið landi og þjóð til sóma,
eins og þeir, sem áður hafa gegnt
þessu virðulega embætti. En ein-
stakir þjóðfélagsþegnar skuli í
góðir skólar voru vísir í gyðinga-
hverfi. Þótt skólinn væri ríkisrekinn,
þótti víst að hinn hefðbundni áhugi
gyðinga á uppeldi og menntun barn-
anna efldi skólann upp fyrir slapp-
leika meðallagsins. Börnin mín nutu
góðs af þessu. Góðir kennarar, fjöl-
skrúðugt félagslíf og fyrirmyndar-
bókasafn unnu upp hlé og frídaga
sem urðu vegna gyðinglegi'a hátíða.
Þær bættust við þær kristnu.
Hátíðir og siðir gyðinga eiga sér
langa sögu. Sem lesa má í bókum
hverfa sumir í eyðimerkurmóðu
óvissunnar um upphaf í grárri forn-
eskju. Auðvitað eru einstaklingarnir
misjafnlega fastheldnir. Fjölbreyti-
legt litróf afstöðu til fjölskylduhefð-
anna er fyrir hendi, andúð, sinnu-
leysi, eðlileg ástundun, ánægja,
íhaldssemi og ofstæki. En hátíðir og
siðir haldast við. Ýmist er fögnuður
eða hryggð forfeðranna rifjuð upp á
tilteknum hátíðisdögum. Mikill at-
burður er geymdur í minni kynslóð-
anna. Daglegir siðir ýmsir og venjur
haldast einnig við, stundum án þess
menn viti almennilega hvers vegna,
en stundum'er unnt að rekja siðinn
til ævagamalla fyrirmæla.
Eins þóttist ég verða áskynja, nú
er ég rifja upp samvistir mínar með
gyðingum vestra sem ég raunar gerði
lítinn greinarmun á og öðrum vinum
og nágrönnum, að þeir voru svo sem
lítið með hugann við núverandi ísra-
elsríki, fram yfír áhuga á almennum
fréttum úr öðrum heimshomum.
Áhuginn var álíka mikill og áhugi
hinna frönskumælandi Quebec-búa á
nafni embættis komast hjá því að
greiða til þjóðféiagsins, það sem
þeim bæri annars að greiða, er
ekki aðeins siðlaust, heldur er mér
til efs að það standist samkvæmt
stjómarskrárlögunum. Það skal ég
viðurkenna að fróður er ég ekki í
fræðum þeim sem lúta að stjórnar-
skrá íslands, en þykist ég þó vita
að hverskonar mismunun milli
þegna þessa lands sé óheimill og
allir skulu jafnir vera. (Kannski
eiga sumir að vera jafnari en aðr-
ir.)
Nú er ég ekki að beina skrifum
mínum til forsetans sem persónu,
heldur um embættið sem slíkt. Og
í framhaldi af þessum, ef minnið
er ekki farið að bregðast mér, kom
frú Vigdís inn á þessi mál fyrir
forsetakosningar á sínum tíma, og
fannst henni það réttlætismál að
forsetinn ætti að greiða skatta,
sem og aðrir landsmenn.
VALGEIR
MATTHÍASSON,
Stífluseli 7, Reykjavík.
Frakklandi og áhugi þoira afkom-
enda Vestur-Islendinga á því sem
gerist á íslandi.
Hið herskáa Ísraelsríki er fram-
haldsþáttur í óhugnanlegum ofsókn-
um Þjóðveija og annarra þjóða á
hendur gyðingum fyrr á þessari und-
arlegu öld. Bretar og aðrir sigurveg-
arar síðari heimsstyijaldar buðu upp
á hernám Palestínu og þóttust þar
vera að bæta fyrir ofsókn á hendur
gyðingum og menningu þeirra. Lítil
ákvörðun valdamanna veldur stund-
um ægilegasta klúðri. Þeim var
kannski vorkunn, köllunum, eftir
stríð, ráðvilltir eftir hildarleikinn, en
í hálfa öld hafa dunið mér í eyrum
vandræðafréttir frá botni Miðjarðar-
hafs. Og enn leggur ísrael undir sig
lönd, hrekur fólk á flótta. Hvert
skyldi Ísraelsríki vera komið með sín
landamæri að liðnum öðrum aldar-
helmingi? Skyldu þeir sem þar ráða
ríkjum vilja einn góðan veðurdag
hefna sín á heiminum?
En gyðingar vestra og um víða
veröld, þessir samtímamenn hinna
fomu assýríumanna, vinir mínir með
hið góða minni, munu lifa þessa öld
af þrátt fýrir allt. Og menning þeirra
mun dafna vel og lengi, og löngu
eftir endalok landvinningaveldis sem
ísrael nefnist og nú ræður ríkjum í
Palestínu. Það ríki er mannkynssögu-
legur misskilningur, eins og Þriðja
ríkið og Sovétríkin.
ÞÓR JAKOBSSON,
veðurfræðingur
Espigerði 2 Reykjavík
Góð björgunarvesti hafa þann
kost að snúa sjálfkrafa þeim er
þau nota í flotlegu og vama því
að menn fljóti á grúfu. Öil vesti
ættu að vera með endurskins-
borðum, flautu og ljósi.
Greiði einnig skatta
Kalciumkarbonat ACO
fullnægir auðveldlega
daglegri kalsíumþörf!
„Við konur
þurfum kalsíum.“
VELVAKANDI
SKIÐI
UNGLINGASKÍÐI af tegund-
inni Kastle RX12, gul og appel-
sínugul með hvítum Lock-bind-
ingum, voru tekin í misgripum
í Bláfjöllum laugardaginn 22.
febrúar og önnun lakari skilin
eftir af gerðinni Dynic VR15
hvít að lit. Eigandi skíðanna er
vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 34868.
GLERAUGU
KRINGLÓTT herra spangar-
gleraugu töpuðust 26. febrúar
á leiðinni frá Ármúlaskóla að
Sjónvarpshúsinu og þaðan vest-
ur í bæ. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
628132.
BUDDA
BRÚN snyrtibudda stapaðist
fimmtudagin 27. febrúar fyrir
utan Hótel ísland á MS-balli. í
henni var snyrtidót ásamt perlu-
eymalokkum sem hafa mikið
tilfinningalegt gildi fyrir eig-
andann. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í Elsu í
síma 679474.
UMFERÐAR-
LJÓS
Jóhann Einarsson, Skipholti 25:
VIÐ gatnamót Nóatúns og
Skipholts hafa orðið margir
árekstrar og þár varð eitt stór-
slys í vetur. Eg vil koma þeirri
fyrirspum á framfæri hvort
þarna eigi ekki að setja upp
umferðarljós og þá jafnframt
hvenær það verður gert.
Þær upplýsingar fengust hjá
Umferðardeild Borgarverk-
fræðings að samþykkt hefur
verið að setja upp umferðarljós
á þessum gatnamótum og’að
það verði líklega gert á þessu
ári.
GÓÐ
ÞJÓNUSTA
Gréta Árnadóttir:
ÉG þakka innilega góða þjón-
ustu hjá versluninni Gull og silf-
ur Laugavegi 35. Þjónustan þar
er alveg framúrskarandi góð.
Nú hafa vísindalegar rannsóknir víðs vegar um
heiminn sýnt fram á nauðsyn þess að konur bæti
sér upp það magn kalsíums sem þær fa ekki með
fæðunni. Með því minnka líkumar á bein-
þynningu þegar líða tekur á ævina.
í Bandaríkjunum halda vísindamenn því fram
að konur þurfi 1500 mg af kalsíum á dag ffá og
með 45 ára aldri til þess að beinagrindin haldi sínu
rétta kalkinnihaldi og styrk-
leika. Á meðgöngu og þegar
bam er haft á brjósti
þurfa konur einnig á
meira kalki að halda en
venjulega.
Kalciumkarbonat
ACO em bragðgóðar
tuggutöflur með frísk-
legu sítrónubragði.
Stundum getur ffam-
sýni verið hyggileg.
Kalciumkarbonat ACO
Fæst í apótekinu.
Pyrirak Sfml 91-32070